Morgunblaðið - 22.07.1966, Side 1
28 síður
Efnahagsbaudalag Evrópu:
Búizt við samkomulagi
- um landbúnaðarmálin í nott
Briissel, 21. júlí NTB.
f kvöld var gerð meiri háttar
tilraun til þess að koma skriði á
nmræður innan Efnahagsbanda-
lags Evrópu um landbúnað-
armálin. Komu landbúnaðarráð-
herrar aðildarríkjanna einir sam-
an til viðræðna um kl. 10, til
þess að leita lausnar er aliir að-
ilar gætu við unað — og fengu
ekki einu sinni nánustu ráðgjaf-
ar þeirra að sitja fundinn.
Formaður ráðherrafundarins,
land'búnaðarráðherra Hollands,
Bahrend Biesheuvel, sagði áður
en fundurinn hófst, að þeir von-
uðust til að ná einhverjum ár-
angri. Fyrr í dag höfðu ráð-
herrarnir ræðzt við margar
klukkustundir ásamt aðstoðar-
mönnum sínum en enginn árang-
ur náðst. í kvöld eru uppi sterk-
ar raddir um að samkomulag
náist í nótt. Á morgun og laug-
ardag ræðast utanríkisráðherrar
landanna við og er vonazt til að
hægt verði að leggja fyrir þá
samkomulag landbúnaðarráð-
herrana til staðfestingar.
De Gaulle í Bonn
Bonn, 21. júlf. AP—-NTB.
• Charles de Gaulle, forseti
Frakklands, kom til Bonn í dag
til tíu klukkustunda viðræðna
við v-þýzku stjómina. í för með
honum voru Georges Pompidou,
forsætisráðherra, Couve de Mur-
ville, utanríkisráðherra og Pierre
Messmer landvarnaráðherra. —
Helztu umræðuefni, sem fyrir
lágu, voru för franska forsetans
um Sovétríkin nú fyrir skömmu
og staða franska hersins í V-
99IVIoskvufréttir64
segja herbúnað
aukinn ál
Norðurlöndum
Þýzikalandi. Þair eru nú 72.000
franskir hermenn.
Haft er fyrir satt í Bonn, að
Ludwig Erhard, kanzlari, hafi
Framhald á bls. 27
„Detta úr lofti dropar stórií
dauft nú er í sveitinni“,
sagði skáldið. Það er ekiki
seinna vænna að birta þessa
mynd, því að samikvæmt uppi
lýsingum Veðurskofunnar mun
veðrið orðið fagurt og bjart,
þegar þetta blað kemur fyrir
lesendur. Myndina af þessari
gullfallegu stúlku tók Ólafur
K. Magnússon, á götu í
Keykjavík í einni skúrinni i
gær.
Efnahagsráðstafanlr Wilsons
„Góöar - svo langt sem þær ná“
eru viðbrögð blaða. Gengi pundsins hækkar. Viðræður hefjast
í dag við leiðtoga TLC. Brown mjög fagnað s Meðri málstofu
brezka þingsins
Moskvu, 21. júlí. NTB.
# Stefan Smirnov, utanrikis-
málasérfræðingur vikublaðsins
„Moskvufréttir", sem gefið er út
á ýmsum tungumálum, skrifar
í síðasta blaði að undanfarið
hafi mátt merkja vaxandi hern-
aðarframkvæmdir á Norðurlönd-
um.
Segir hann vandfundna skýr-
ingu á þessu þar sem Norður-
löndin séu eitthvert friðsamleg-
asta svæði í heiminum og bætir
við, að mjög sé þetta varasamt,
því að eldar geti tendrazt í vopna
birgðum á Norðurlöndum af
neista, er kvikni einhvers staðar
víðs fjarri iþeim.
Smirnov staðhæfir, að á Norður
Hanoi, Saigon, 21. júlí
— AP — NTB
| HAFT er eftir trúverðug-
um heimildum í Hanoi, að
bandarísku flugmennirnir,
sem eru þar í haldi, verði
London, 21. júlí, NTB-AP.
t NOKKRAR sveiflur urðu
í dag á gengi sterlings-
pundsins — fyrst hækkaði
ekki dregnir fyrir rétt í
næstu framtíð.
t Sömu heimildir herma, að
stjórnin I Hanoi muni ákveða
örlög flugmannanna, án þess að
láta sig nokkru skipta aðvaranir
og afskipti erlendis frá. Enn-
það upp í 2.7902 miðað við
bandaríska dollara, féll síðan
niður í 2.7892 dollara og steig
aftur upp í 2.7900 dollara, eft-
fremur segir, að flugmennirnir
njóti góðrar meðferðar í N-Víet-
nam, „þrátt fyrir þau afbrot, er
þeir hafi gert sig seka um“, eins
og komizt er að orði, og þeir
njóti lífskjara umfram þau, er
Framhald á bls. 21
ir að fregnir bárust um, að
Englandsbanki og bandarísk-
ir bankar hefðu stutt pundið
með kaupum. Eðlilegt gengi
pundsins er 2.80 dollarar.
t Sú skoðun er ríkjandi
meðal fréttamanna, að
ráðstafanir þær í efnahags-
málum, sem Harold Wilson,
forsætisráðherra, skýrði frá í
gær, sé spor í rétta átt, en
víðast hvar kemur fram sú
spurning, hvort þær séu nægi
lega öflugar til þess að koma
efnahag landsins á réttan
kjöl til frambúðar.
Brezka stjórnin kom saman til
fundar í morgun og ræddi efna-
hagsástandið og horfurnar. Á
morgun hefjast viðræður við
stjórn brezka verkalýðssam-
bandsins, Trade Union Congress
og mun George Brown, efna-
hags- og innanríkisráðherra hafa
forystu fyrir þeim viðræðum.
Þegar hafa borizt mótmæli frá
ýmsum greinum verkalýðssam-
bandsins vegna ráðstafana stjórn
arinnar og er talið að Frank
Cousins, framkvæmdastjóri sam-
bands flutningaverkamanna —
sem sagði af sér embætti tækni-
málaráðherra á dögunum vegna
andstöðu við stefnu stjórnarinn-
ar í efnahagsmálum — muni
reynast harður í horn að taka.
George Brown bauðst tvívegis
til þess að segja af sér í gær-
Framhald á bls. 2
Láistí ðariongelsi
Bochum, Þýzkalandi,
21. júlí. AP.
• Fjórir Þjóðverjar voru í dag
dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir
þátttöku í aftökum 1700 Gyð-v
inga í fangabúðum nazista, Neu
Sandez.
Menn þessir eru Heinrich Ham
ann, 57 ára, fyrrum lögreglumað
ur, Johann Bornhold, 62 ára
verkamaður, Bruno Baunack,
einnig fyrrum lögreglumaður. 63
ára og Josef Rouenhoff, 54 ára
verkfræðingur. Tíu aðrir menn,
sem sættu sömu ákærum, voru
dæmdir í 38 mánaða til 10 ára
fangelsi.
Framh. á bls. 2
Vietnam
Bandarísku flugmennirnir
ekki fyrir rétt á næstunni?