Morgunblaðið - 22.07.1966, Side 21

Morgunblaðið - 22.07.1966, Side 21
Fostudagur 22. júlí 1966 MORG U N B LAÐIÐ 21 — Vigdís Framhald af bls. 17. öl'lum þeim er hana þekktu, tal- in mikil saemdarkona, stillt og prúð í dagfari nokkuð hlédræg, mikil búkona, höfðingi í lund og hjartagóð. Börn þeirra Kotvogshjóna voru sex, er upp komust, en þau vru þessi: 1. Ketill óðalsbóndi í Kot- vogi, dáinn 21. júlí 1921, eink- ar prúður öðlingsmaður. 2. Helga varð prestsfrú á Stað í Grindavík, mikil atgerfiskona, traust og trygg, dáin 17. febr. 1942. 3. Eiríkur hreppstjóri á Járn- gerðarstöðum í Grindavík, dá- inn 30. okt. 1898, 36 ára., mjög vinsæll og öllum harmdauði er hann þekktu. 4. Ólafur stórbóndi og hrepp-' stjór á Kalmannstjörn í Höfn- um, dáinn 19. febr. 1947, gáf- aður og glaður áhugamaður, 5. Vigdís. 6. Vilhjálmur kennari og um skeið bóndi í Kirkjuvogi, síðar í Reykjavik, dáinn 10. marz 1959 afburða gáfumaður, viðkvæmur og hjartahlýr. Það hafði verið glaður og gjörfulegur systkinahópurinn í Kotvogi, er þau voru að alast upp, gáfur og manndómur var þeim öllum gefið í ríkum mæli og vinsældir þeirra hvers og eins voru því meiri er árin liðu. Það var eitt sinn eftir afla- leysis vertíð að hagur ólafs á Kalmannstjörn stóð svo höllum fæti, að hann bjóst við að þurfa að selja jörð og bú. Rak þá um vorið stóran og mikinn hval á Kalmannatjarnarfjöru, en reynd ist svo verðmætur, að lýsið, sem úr hausnum kom, var eitt nóg til þess að rétta við efnahag- inn. Þótti þessi saga um hval rekann svo góð frétt um Suð- urnes að allir glöddust, vegna Ólafs er ég heyrði á þetta minnst og er þetta til marks um vin- sældir hans. Þannig mætti lengi segja sög- ur um vinsældir þeirra syst- kinanna um öll Suðurnes, hygg ég að réttsýni þeirra hafi átt þar mikinn hlut að. Vigdís Ket- ilsdóttir var ung að árum er hún gekk í Kvennaskólann í Reykjavík, en þá stjórnaði þar hin hámenntaða kona frú Þóra Melsted af mikilli röggsemi svo sem alkunnugt er. Er ekki að efa að hin gáfaða unga stúlka hefur kunnað að njóta þess lær- dóms, er þar var á boðstólum og hefur á þeim árum tileink- að sér alla þá menntun sem þar var að fá. Hinn 16. maí 1890 giftist Vig- dís Ólafi kaupmanni Ásbjarn- arsyni frá Innri-Njarðvík, syni þeirra Njarðvíkurthjóna Ás- bjarnar Ólafssonar og konu hans Ingveldar Jafetsdóttur, gull- smiðs í Reykjavík, Einarssonar er bjuggu á ættaróðali Ásbjarn- ar, höfðu forfeður hans gert þar garðinn frægan á þriðju öld. Þau frú Vigdís og Ólafur sett- ust að í Keflavik, þar sem hann rak umfangsmikla verzlun um 20 ára skeið. Ólafur var gáfaður bjartsýnis- og hugsjónamaður og í flestu á undan sínum tíma. Var verzlun hans til mikilla hagsbóta fyrir Keflavík og nærliggjandi hér- ar þessar ferðir voru farnar gangandi. Matur var oft og nærri ævinlega af skornum skammti og menn því svangir er í kaupstað kom og leiðin til baka þeim mun erfiðari þar sem þurfti að leggja þungar byrðar á bak. Það gat því oft ráðið úr- slitum hvernig ferðin tókst, hvort menn höfðu þegið beina í kaupstaðnum. Já, jafnvel ráð- ið lífi eða dauða, svo tvísýnt var oft í þessum ferðum, er illveður geisaði og náttmyrkr- ið skollið á og fyrir kom að menn urðu úti í þessum ferð- um. Það voru því sannkölluð líknar- heimili, er tóku á móti gestum og gangandi úr úthéruðum Keflavíkur og veittu þeim mat og drykk. Var heimili þeirra frú Vigdísar og Ólafs eitt þeirra og það af beztu gerð. Frú Vigdís var ágætum gáfum gædd, með ríka lund og heitt hjarta, hún var eldfljót að átta sig á hverju máli og fylgdi því fast eftir, er hún áleit sann- ast og réttast. Á þeim árum er ég þekkti frú Vigdísi bezt, (en þá vann ég við verzlun Ólafs Ásbjarnarsonar manns hennar) vissi ég að hún las mikið. Hún valdi sér ævin- lega úrvals bækur, las góðskáld Norðurlanda á frummáli og mörg fleirri öndvegis skáld ut- an úr heimi og var, að ég hygg, mjög nærri hugsunarhætti heimsborgarans, en stóð jafn- framt djúpum rótum í íslenzk- um jarðvegi. Ég var hálfvaxin telpa er ég sá frú Vigdísi fyrst. Hún var þá ung kona, gift og búsett í Keflavík, glæsileg, fyrirmann- leg og góðmannleg, einhver nýr og ferskur andblær lék um hana þessa fallegu og vel klæddu konu, sem kunni svo vel að orða hugsanir sínar og sagði skoð un sína afdráttarlaust ef með þurfti, en glettni á næsta leiti. Það hygg ég að frú Vigdís hafi aldrei misst sjónar á sam- tíð sinni, en hverju sinni tekið þátt í athöfnum líðandi stundar og aldrei orðið viðskila við sam- tíð sína þótt aldurinn yrði svona hár. Svo frjó og sterk var skap- gerð hennar. Þau voru sex börn þeirra frú Vigdísar og Ólafs kaupmanns og eru öll búsett í Reykjavík: Gunnar, Ingveldur, Halldóra, Unnnur, Ásbjörn og Vilborg. Marta Valgerður Jónsdóttir. — Vietnam Framhald af bls. 1 velstæðir íbúar N-Víetnam eigi við að búa. Þá segir fréttastofa N-Vietnam að bandaríski flugmaðurinn Jam ey Joseph Connell, einn hinna föngnu, hafi játað á sig sök á „margvíslegum glæpum gegn þjóðinni í N-Víetnam“. Frétta- stofan segir, að flugvél Connells hafi verið skotin niður suður af Hanoi 15. júlí sl. Fréttastofan hermir einnig í dag, að níu bandarískar flugvél-* ar hafi verið skotnar niður yfir N-Víetnam í gær og hafi þá 1233 bandarískar flugvélar verið skotnar niður frá því í ágúst 1954. — Silungapollur Framh. af bls. 5 — Já, en meira gaman inni. Og aftur spyrjum við: Hvað heitir þú? — Ég heiti Valli, segir Valentínus Guðmundur. — Átt þú þetta fallega hjól? — Já, amma gaf mér hjólið. — Hvað þykir þér mest gaman að gera? — Mest gaman að fara heim. Okkur ,er nú orðið kalt af að sitja úti á stéttinni, og för- um við því inn í húsið. Klukkan er þrjú, það er kaffi- tími. Við lítil hringlaga borð í borðstofunni sitja á litlum stólum, lítil börn. Þau eru að drekka mjólk og borða krem- kex með. Við eitt af borðun- um sitja tvær systur hlið við hlið. Þær segjast heita Sig- ríður Dögg og Ingibjörg Dis og vera 5 og 4 ára, — Er kremkexið gott? spyrjum við Sigríði. — Já. — Hvað finnst þér bezt? — Þetta kex hér. — Hvað finnst þér bezt? spyrjum við Ingibjörgu. — „Kók“ er bezt. Sigtún Opið í kvöld Dútar leika DÁTAR nýkomnir úr hliómleikaferðalagi. í fyrsta skipti í Reykjavík í kvöld — síðan 17. júní. Sigtún — Dútar HEIMDELLINGAR! HEIMDELLINGAR! Hvílum okkur á borgarlífinu næstii helgi. Ferðumst að Hvítárvatni og víðar. Tilkynnið þátttöku og aflið ykkur upplýsinga á skrifstofunni; sími 17-100. HEIMDAlLljlf \~m \ Bandariska herstjórnin í Saigon segir hinsvegar, að þrjár flugvél- ar hafi verið skotnar niður í dag og átta flugmenn, sem í þeim voru, farizt eða verið handtekn- ir. — Reyndi að brenna sig lifandi Fregnir frá Saigon herma einnig, að ungur Búddamunkur hafi í dag gert tilraun til þess að brenna sig til bana á fjölda- fundi, er hinar ýmsu greinar Búddatrúarmanna héldu til þess að reyna að komast að samkomu lagi um sameiginiega afstöðu gegn stjórn landsins. Leiðtogi hinna róttækari Búddatrúar- manna, munkurinn Thioh Tri Quang, sem nú hefur fastað í sex vikur, lét styðja sig til fund arins, og flutti þar stutt ávarp, þar sem hann kvaðst ætla að halda föstunni áfram þar til stjórn Kys, hershöfðingja væri farin frá. Thioh Tri Quang er orðinn mjög máttfarinn og heyrð ist naumst hvað hann sagði. Munkurinn, sem reyndi að brenna sig heitir Tuong Quang og er 25 ára að aldri, Er hann kom til fundarins voru föt hans gegn vætt olíu. Viðstaddir brugðu skjótt við og slökktu í fötum hans, er þau fuðruðu upp og var hann fluttur í sjúkrahús, þar sem læknar reyndu að bjarga lífi hans. Maðurinn var mjög brenndur. Fjöldafundur í Peking í fregnum frá Peking segir að þar sé í undirbúningi geysileg- ur mótmælafundur gegn stefnu Bandaríkjamanna í Víetnam. — Hafa verkamenn unnið að því í nokkra dag að reisa slagorða- spjöld á torgi því, er kennt er við „himneskan frið“, í miðri borginni. Búizt er við, að um hundruð þúsund manns taki þátt í fundi þessum. Útvarpað og sjónvarpað verðúr frá honum, að því er áreiðanlegar heim- ildir herma, en af opinberri hálfu er ekkert um fund þenn- an sagt. Talsmaður stjórnarinn- ar sagði aðspurður í dag, að hann vissi ekki til þess að neinn fjöldafundur stæði fyrir dyr- um. uð. Þau hjón fluttu til Reykja- víkur 1905 og setti Ólafur þar á stofn verzlun í húsi þeirra við Grettisgötu 26, þar sem þau áttu heima æ síðan. Ólafur lézt 9. febr. 1943 eftir langa vanheilsú. 'j' Heimili þeirra frú Vigdísar og i Clafs var eitt þeirra góðu gest- j risni heimila, sem líkja mætti að veitingahús, einungis var þar allur beini gefinn en ekki seldur. Var því mikil gesta- koma á því heimili. Nú á dögum kynnl einhver að halda að svona risna ihafi verið óþörf. En svo var ekki. Að Keflavík lágu mannmörg héruð, sem þurftu að sækja allar nauð- synjar sínar til Keflavíkur, eink um síðari hluta vetrar, er birgð- ir voru þrotnar frá sumrinu. En yfir heiðar og hraun var að fara og vegleysur, engin vega- spotti var þá lagður og nær all- JÚMBÓ —k— - Loks koma þeir að hellunum. Nætur- svefni Spora er borgið, og hann andar léttar. Júmbó leggur þó tii að sýna ítr- ustu varkárni, þvi að verið gæti, að ein- hver byggi lika i þessum hellum. Þeir nálgast fyrsta hellinn. Spori hefur aldrei augum litið svo freistandi helli. Mikið er hann heimilislegur og þægileg- ur. Honuni finnst þeir ciga að taka hann — og það á stundinni. Þeir ganga inn. Spora virðist hann ekki siður dásamlegur innan en að utan. Er Teiknari: J. MORA nokkur þörf á að fara varlega? En Júmbó viðhefur meiri gætni . . . honum er nefni- lega ekki grunlaust um, að einhver búi í hellinum. Skyldi einhver búa hérna? Og ef það reynist rétt, þá hver?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.