Morgunblaðið - 22.07.1966, Blaðsíða 26
4lU
nriUKUUHDLMVIt/
ií'ostudagur 22. júií 1966
Golfmótið á Akureyri:
Eittar Gu&nason
hefur
unnið upp forskot Magnúsar
Keppnin hálfrsuð og spennÍBiguB'lnn vex
1.ÍTT þekktur kylfingur frá
Keykjavík, Einar Guðnason, hef-
ur vakið mesta athygli á golf-
mótinu á Akureyri. Hann gerði
það ótrúlega í gær á öðrum degi
(af fjórum) landsmótsins, að
vinna upp 4 högga forskot „stór-
meistarans" Magnúsar Guðmunds
sonar, svo að hálfnuðu m.óti eru
l>eir jafnir með 153 högg á 36
holur.
Skemmtileg keppni.
Á fyrri hringnum í gær (9 hol-
ur) vann Einar tvö högg af for-
skoti Magnúsar, fór hringinn í 38
höggum en Magnús í 40. Síðari
hringinn vann hann aftur tvö
högg. Fór nú Magnús í 38 en Ein-
ar gaf sig ekki og fór í 36.
Keppnin milli þeirra var afar
hörð og skemmtileg. Er 5 holur
höfðu verið leiknar af síðari
hringnum í gær þ.e.a.s. 4 holur
voru eftir, hafði Einar unnið upp
forskot Magnúsar frá fyrsta degi.
í>eir notuðu síðan jafnmörg högg
á 6., 7. og 8. holunni, en á 9.
holunni hafði Einar möguleika
á að ná 1 höggs forystu, en þá
brást honum tiltöluiega auðveld
bogalist í fyrsta sinn í keppninni
í gær.
Einar sýndi óvenjulegan styrk-
leik í að „putta“ þ.e.a.s. slá kúl-
una í holuna eftir að inn á holu-
flötina var komið. Tókst honum
það yfirleitt alltaf í 1. höggi í
gær og vann upp það sem
Framhald á bls. 8
Veröa úrslit Islands-
mótsins ráöin í kvöld?
í KVÖLD leiða saman hesta
sína á Laugardalsvellinum Kefla
vík og Valur. Leikurinn hefst
kl. 8.30, og dómari verður Balti-
ur Þórðarson.
Þessa leiks hefur ef til vill
verið beðið með meiri eftirvænt-
ingu en verið hefur um 1. deild-
arleikina fram að þessu. Kemur
það til af því, að þessi lið hafa
sýnt það bezta sem sést hefur til
Tyrkneskir íþrótta-
menn ó Meisfiaram,
1 NÓTT sem leik komu til lands-
ins tveir tyrkneskir frjálsíþrótta
menn, ásamt ritara Tyrkneska
frjá’. :þróttasambandsins. Munu
iþr. * mennirnir keppa á meist-
aramótinu ■ í frjálsum íþróttum,
sem gestir.
Annar þeirra, Muharren Dalk
iiic, er 3000 og 5000 m hlaupari,
en hér mun hann keppa í 1500 og
800 m hlaupi. Má til marks um
styrkleika hans geta þess að
hann hefur hlaupið 1500 metrana
undir 3.50.0.
Hinn heitir Askin Tuna og er
þrístökkvari — hefur stokkið
15.44 í sumar. Hann mun keppa
hér í langstökki og þrístökki.
íslenzkra knattspyrnuliða í sum
'ár, og eru hæst að stigum í deild
inni. Er það trú margra að þessi
leikur geti skorið úr um, hver
verður íslandsmeistari í ár.
Valur hefur á að skipa mörg-
um góðum einstaklingum, og
hefur átt tiltölulega jafna leiki
í sumar, enda þótt maður hafi
það ætíð á tilfinningunni, að
liðið geti meira en það hefur
sýnt fram að þessu. Keflavík
hefur einnig á að skipa mörgum
góðum leikmönnum, og liðið í
heild virðist heldur jafnara en
Valur. Keflvíkingar byrjuðu
fremur iila, en hafa sótt sig mjög
í síðustu leikjum, og margt gott
— kannski það bezta sem sést
hefur til islenzkra knattspyrnu-
manna í sumar.
En það eitt er víst að áhorf-
endum mun í kvöld gefast kost-
ur á að sjá skemmtilegan leik
— leik sem skýra mun talsvert
línurnar í 1. deildinni.
Þessi mynd er tekin í leik Sviss og Spánar í heimsmeistarakeppn
inni á dögunum. Stierli (t. vins tri) og Peiro frá Spáni eru byrj-
aðir átök sín í milli eftir að þeir lentu í nokku harkalegum
árekstri. Annar Spánverji (yzt til hægri), hyggst blanda sér í
leikinn, en Elsener markv. Sviss (nr. 1) gengur á milli. Síðan
kom dómarinn uðvifandi og gek k á milli leikmannanna — og
allt féll i ljúfa löð.
Haukar og Víkingar
unoB fyrsta kvöldið
ÍSLANDSMÓTIÐ í útihandknatt
leik karla og kvenna hófst í gær
kvöldi. Þá léku i meistaraflokki
karla Vikingur og Ármann og
unnu Víkingar með 19 gegn 16.
Haukar ujinu KR í sama flokki
með 20 gegn 12.
Alls taka 22 flokkar þátt í
mótinu. I mfl. karla eru Ár-
mann, KK, Hsukar, Víkingur,
Fram og FH.
í mfl. kvenna taka þátt KR,
Ármann, Valur, ÍBK, Breiða-
blik, Fram og Neskaupstaður.
í 2. fl. kvenna taka þátt Vík-
ingur. Ármann, KR, Týr, Þór,
Völsungar, Valur og Fram.
Næstu Jeikir verða á laugar-
dag. Þá leika í mfl. karla kl. 4
Haukar gegn FH, Ármann gegn
KR og Víkingur gegn Fram. —
Sama dag leika í kvennaflokki:
FH gegn Breiðablik, Ármann
gegn Neskaupstað, Valur gegn
ÍBK, KR gegn Fram. Á sunnu-
dag verða 3 leikir í mfl. karla og
4 i kvenr.aflokki.
Eitft og annað frá HIU í knaftftspyrnum s
Ungmeyjarnar hrúpuðu: ,Farið ekki, fariö ekki'
Nobby Stiles er talinn einn
af beztu mcnnum enska liðs-
ins. En hann !ét sig hafa það
frammi fyrir 92.500 áhorfend
um að lemja fcezta leikmann
Frakka, Bernard Bosquier, í
bakið svo hann tók ekki á
heilum sér það sem eftir var
leiks. Og síðar í leiknum kast
aði hann sér á annan fransk-
an sóknarmann, sem hann
var að missa frá sér. Frakk-
inn var borinn af velli og til
læknis, en kom haltrandi 10
mínútum siðar.
★
Ekki blæs byrlega hjá
enska liðinu á HM fyrir leik
inn við Argentínu í 8 liða úr
slitum á laugardaginn. Jimmy
Greves er meiddur á fæti og
verður vaila leikfær. Mið-
vörðurinn Jakie Charlton,
bakvörðurinn Jimmy Cohen
og Gordon Banks markv. eru
einnig á „sjúkralista", en bú
izt er við að þeir geti leikið.
★
Líklegt þykir að leyft verði
við næstu heimsmeistakeppni
sem fram fer í Mixico 1970,
að varamenn taki stöður
þeirra er meiðast. Þessi til-
laga heíur fengið byr undir
báða vængi, nú er ýms lið
hafa fatið illa út úr leikjum
sínum á HM, er menn hafa
meiðzt. Verst úti urðu Brasil-
ía, ítalia og Frakkland.
★
Baráttan um að skora mörk
á HM er álika hörð og þegar
ísl. laxveiðimenn eru að berj
ast við að veiða lax í Laxá í
Þingeyjarsýslu. Laxveiði-
mennirnir berjast til að veiða
upp í veiðileyfin. Knattspyrnu
mennirnir vilja forðast að
hlutkesti ráði úrslitum — því
peningurinn. sem kastað er,
fellur ekki alltaf til hags fyr
ir betra liðið á vellinum.
Á laugardag verða undan-
úrslit HM. Standi leikar jafn
ir í lok leiktíma er framlengt
2x15 mín. Standi enn jafnt
ræður hlutkesti. Sama regla
gildir í undanúrslitum 25. og
26. júli.
★
í úrslitaleiknum (30. júlí)
er lika framlengt 2x15 min.
séu leikar jafnir í leikslok.
Verði enn jafnt verður annar
leikur 2. ágúst. Verði hann
jafn í leikslok er framlengt í
2x15 mín. — og standi enn
jafnt bá, er peningi kastað
upp og það hvernig hann fell
ur til jarðar ræður því hvar
heimsmeistaratitillinn lendir
og hin fræga Jules Rimet
stytta.
Heimsmeistarakeppnin í
Englandi er mesti sigur er
knattspyrnuíþróttin hefur
unnið. Aldrei hafa áhorfend
ur verið fleiri og aldrei hef-
ur keppninni verið eins mik-
ill gaumur gefinn af blöðum,
útvarpi og sjónvarpi og nú,
því allir vilja fylgjast með.
Meðaltala áhorfenda að hverj
um leik er um 40 þús. — en
milljónir og aftur milljónjr
lesa um leikina í blöðum,
hlusta á lýsingar í útvarpi
eða sjá leikkafla á sjónvarps-
skermi sínum.
★
Sérfræðingar hafa bent á
hve mörkum í leikjum hef-
ur fækkað með 4-2-4 kerf-
inu. í 24 leikjum sem búnir
eru hafa verið skoruð 58
mörk. Það er 2.4 mörk í leik
að meðaltali.
í Chile 1962 voru sltoruð
65 mörk í riðlakeppninni eða
2.7 mörk í léik að meðaltali
og í Svíþjóð 1958 voru skor-
uð 84 mörk í riðlakeppninni
eða 3.5 mörk að meðaltali í
Jeik.
Og þegar tekið er tillit til
allra markanna sem skoruð
hafa verið nú úr aukaspyrn-
um, vítaspyrnum og að Þjóð-
verjar skoruðu 5 mörk í ein-
um leik, má sjá að framherj-
unum fer aftur eða að varnar
aðferðir eru vandaðri nú en
áður. Margir hafa áhyggjur
af varnarleik og þáð að von-
um. Benda má sérstaklega á
leik Ungverja og Brasilíu nú.
Bæði lið léku sóknarleik, en
sýndu baeði frábæran varnar
leik. En tiltektarvert þótti
hve liðin lögðu áherzlu á að
byggja upp hraða sókn er
upphlaup mótherja hafði ver
ið stöðvað. Þetta sýnir að
varnarleikur er ekki leiðin-
Jegur, nema lið hyggi aðeins
á varnarleik — og hverfi
aldrei úr varnarstöðum, —
eins og líka hefur sézt á HM.
★
Það var niðurlútur hópur
manna með súran svip, sem
yfirgaf aðalstöðvar sínar í
Lymm í Cheshire í gær. Bras
ilíska heimsmeistaraliðið hélt
upp á fyrsta áfangann á leið
heim til Rio. Liðið verður
tvo daga í London og flýgur
síðan heim — þar sem senni-
lega bíða ekki allt of þægi-
legar móttökur.
En það voru fleiri sorg-
mæddir en heimsmeistararn-
ir. Ungar stúlkur grétu bæði
hátt og felldu tár hljóðar.
Þær börðu hnefum í áætlun-
arbíiinn er flutti þá þeldökku
á brott og hrópur: „Farið
ekki, farið ekki.“
Lögreglan missti alla stjórn
á mannfjöldanum, sem hópað
ist kringum hina ógaefu-
sömu heimsmeistara frá 1958
og 1962.
Aganefnd alþjóðasambands
ins tók í gær til meðferðar
kæru á Nobby Stiles, enska
framvörðinn. Hann hafði ver
ið skrifaður upp af dómar-
anum í leik Englands og
Frakklands og fékk nú áminn
ingu aganefndar og tilkynnt
var að önnur kæra bærist á
hann frá dómara eða starfs-
manni keppninnar hlyti hann
þunga refsigu.