Morgunblaðið - 22.07.1966, Síða 27

Morgunblaðið - 22.07.1966, Síða 27
Föstudagur 22. júlí 1966 MORCUNBLAÐIÐ 27 4 sundmet í gær EFNT var til sundmóts í 50 m. lauginni í Hveragerði í gær- kveldi, og voru þar mætt til keppni bæði danska og íslenzka landsliðið í sundi. Mjög góður árangur náðist á þessu móti, og voru sett 3 íslandsmet og eitt józkt. Guðmundur Gíslason sigraði í 200 m. flugsundi, synti.á 2.28.0, sem er nýtt ísl. met. í 200 m. bak sundi kvenna for Lone Morten- sen með sigur af hólmi, setti jóskt met, 2.56.9. Matthildur Guð mundsdóttir varð önnur, synti á 3.01.6, sem er nýtt íslenzkt met. í 4x100 metra fjórsundi sigraði íslenzka sveitin, synti á 4.37.4, sem er nýtt ísl. met, en danska sveitin syaati á 4.38.5. Fyrsta sprettinn, 100 m. baksund, synti Guðmundur Gíslason, synti á 1.08,3, sem er nýtt Islandsmet. Hann átti fyrra metið, sett í Finnlandi í fyrra, 1.09.8. Nánar verður sagt frá þessari keppni í laugardagsblaði. Tilraunir til sjónvarps móttöku í Eyjum AÐ UNDANFÖRNU hafa áhuga menn um sjónvarp í Vestmanna eyjum reynt að auðvelda mót- töku sjónvarpsmyndar frá Kefla vík í kaupstaðnum þar. Að þessu tilefni sneri blaðið sér til Vilhjálms Þ. Gíslasonar og tjáði hann blaðinu að útvarp- ið liti svo á, að hér væri um ó- löglega starfsemi að ræða. Mbl sncri sér þá til Braga Björnssonar lögfræðings í Vest- mannaeyjum, formanns Félags sjónvarpsáhugamanna þar, og spurðist fyiir um sannleiksgildi þessa. Bragi tjáði blaðinu, að áhuga- menn um sjónvarp, sem væru fjölmennir í Eyjum, hefðu sett upp á svokölluðu Klifi venjulegt Athugasemd Grímur Guttormsson frá Þórs höfn í Færeyjum hefur beðið bláðið, að koma á framfæri þeirri léiðréttingu, að biblían hefði komíð út í heild sinni á færeysku í 1. útgáfu, árið 1948 og 2. útgáfa 1956, en ekki 1961, eins og haft var eftir Færeyja- biskupi í' blaðinu í gær. Stóð Bræðrasöfnuðurinn í Þórshöfn að útgáfu biblíunnar, en Grím- ur er meðlimur þess safnaðar. Leiðrétting MISRITAST hefur fyrrverandi heimilisfang og nafn Ástríðar Torfadóttur, í minningagrein hér í Morgunbl. um Hannes Frímann Jónasson er birtist 19. þ.m. Hún var frá Oddsstöðum í Lundarreykjadal en ekki Sturlu- reykjum, eins og sagt var í greininni. Hún gifti sig á Hálsi í Fnjóskadal. — De Gaulle Framh. af bls. 1 . erið mjög ánœgður með við- ræðurnar við franska forsetann, þær hafi verið opinskáar og afar vinsamlegar. Báðir héldu þeir ræðu við opinberan bádegisverð og fóru þar hjartanlegum orðum um vináttu Frakka og Þjóðverja og nauðsyn áframhaldandi sam- vinnu þeirra. De Gaulle lýsti því yfir, að ekki yrði friðvænlegt 1 Evrópu án vináttu þeirra og samvinnu og lagði á það áherzlu að stefna sín væri að opna alla Evrópu, þar á meðal 'bæði þýzku ríkin, þannig að úr gæti orðið ein heild. Þar með væru Frakk- ar ekki að vísa Atlantshafsbanda laginu á bug, þeir teldu einung- is brýna þörf breytinga á s>kipu- lagi þess. í svarræðu sinni þakk- aði Erhard de Gaulle sérstak- lega fyrir að hafa neitað að viðurkenna skiptingu Þýzkalands í samræðum við sovézku leið- togana í för hans til Sovétríkj- anna. Sagði Erhard, að afstaða de Gaulle þar væri Þjóðverjum stoð í barákiunni fyric samein- ingu þýzku ríkjanna. \ loftnet, sem unnt sé að kaupa í venjulegri viðtækjaverzlun og notuð væru á fjölbýlishúsum í Reykjavik. Beindu þeir með þessu loftneti geislanum frá Keflavíkursjónvarpinu inn yfir kaupstaðinn, en ekki hefur ver- ið unnt að sjá sjónvarpið þaðan, nema á einstaka stað í kaupstaðn um. Taldi hann hér ekki vera um neina ólöglega starfsemi að ræða. f fyrrakvöld skrifaði mennta- málaráðuneytið rikisútvarpinu bréf, þar sem það fór þess á leit, að það rannsakaði, hvort ein- staklingar hefðu sett upp endur- varpsstöð í Eyjum í heimildar- leysi og óskaði um það skýrslu frá útvarpinu hið allra fyrsta. — Yfirlýsing Framhald af bls. 15. bráðabirgðalaganna í fyrra, því að þáu hindruðu framhald til- færslna á verði milli búvara, og því teljum við einnig, að þeir, sem settu þau lög, beri mikla ábyrgð á því hvérnig komið er. Einnig koma til breyttar neyzlu verijur, sem ekki urðu séðar fyr- ir. Eins og nú er ástatt eftir að innvigtunargjaldið kom til, fá bændur yfirleitt kringum kr. 4,80 fyrir mjólkurlítrann greitt út en grundvallarverð er kr. 8,42. Auk þess verða þeir að greiða allt að 90 aura á lítra í flutnings- kostnað að mjólkurbúi. Liggur í augum uppi, að bændur standast það ekki til ler.gdar að fá aðeins tæplega helming kaups síns og þegar útlagðs kostnaðar greidd- an við afhendingu fyrir fram- leiðsluna, og getur hver stétt litið í eigin barm um það og sann- færzt um, að krafa bænda um leiðréttingu er rét.tmæt. Þess skal getið, að formaður Stéttarsambands bænda hefur tekið beiðni um stéttarsambands fund vel og munu svör stjórnar- innar væntanlega berast bráð- lega, og líklegast bykir mér, að annað hvurt verði aukafundur haldinn eða aðalfundi samtak- anna flýtt. Fundarmenn á Akureyri fólu okkur í stjórninni að hvetja hér- aðsnefndirnar eindregið til þess að sækja fund Stéttarsambands- ins og fylgjast þar með málura og æskja þess að framkvæmda- nefndin fái þar málfrelsi og til- lögurétt. Að lokum vil ég að gefnu til- efni geta þess, að Akureyrar- fundurinn gerði ekki annað með ályktun sinni en að ítreka sam- þykktir fundarins á Sögu, þar sem alger samstaða ríkti um af- greiðslu málsins. Staddur í Reykjavík, 22. júlr 1966 Stefán Valgtirsson, formaður framkvæmdastjórnar héraðs- nefnda bænda. Boiungarvík Hnffsdolut® S 4, Arnardoíor .AnJÖRÐUR loteyrt Súðóvík’ ttéötur íambadoÍsfj 957 tjp Glómo Whlti’ibót ■■■ ■■ ■■■■■ *-■■■■’■. Drangc ■s -o t Naot< - ‘M> rt '.Vo ÍKur -Q (ytavSin fölptióhfiött Kortið sýnir hvernig vegir liggja nú og áformaðan veg að fjarðabaki sunnan ísafjarðardjúps, frá Mjóafirði í Álftafjörð. Skv. vegalögum er ætlunin að leggja veg út fyrir nes og inn með fjörðum. Strikið yfir heiðina er fyrsta áætlun um styttri veginn og punktalinan nýtilkomnar tillögur um breytingu á honum. — Hlutafélag veginn á báðar heiðarbrúnir, kvaðst Jón hafa loforð fyrirtæk- is í Kópavogi um að það skuli láta fara vestur öðrum að kostn aðarlausu og skoða vegarstæðið, eftir að vegamálaskrifstofan hef ur ákveðið hvar líklegast er að vegurinn skuli liggja yfir heið- ina. Skuli fyrirtækð þá gera til- boð í lagningu hans, ef ekki verði of mikið að gera hjá því. Kvaðst Jón sjálfur telja aðstæð- ur til vegarlagningar sæmilega góðar. Jón hefur snúið sér til ísa- fjarðarkaupstaðar og farið fram á að hann taki forustuna fyrir vestan. Hefur hann nýlega feng- ið bréf, þar sem forráðamenn þar lýsa áhuga sínum á að slik vegarlagning verði athuguð sem fyrst. Vegurinn séreign hlutafélags Ætlunin er að stofna hluta- félag um veginn, eins og fyrr er sagt, þannig að allur útlagð- ur kstnaður verði borga'ður með hlutabréfum í félaginu. Er svo til ætlast að reynt verði að fá ríkissjóð til að taka þennan veg á vegalög og leysi ríkið veginn þá út. Þangað til verður hann séreign hlutafélagsins og þá auð vitað hægt að loka honum og taka gjald fyrir akstur um hann. En um það er ekkert ákveðið fyrirfram, aðeins verið að hugsa um að koma vegarsambandi á þarna, sagði Jón. Framhald af bls. 28 fjarðar. Þegar komið er i Skötu- fjör’ð, sagði Jón, að vegalagning- in væri mjög örðug og dýr. Hefði vegamálastjóri nefnt töluna 40 millj. fyrir allan veginn. Því yrði sjáanlega langt þar til hann verður kominn í gagnið. Þess- vegna vildi hann fara með sinn veg styttri leið, eða innst upp úr Mjóafirði yfir heiðarnar bak við firðina, og niður í Hattardal Við Álftafjörð, sem er næsti fjörður við ísafjarðarkaupstað, en þar á milli er þegar kominn vegur. — Þetta væri a'ð vísu ekki ný hug- mynd. Notin af þessari leið væru tvenns konar og sjónarmiðin því tvö. Annars vegar er notagildi vegarins fyrir þá, sem búa við firðina og hafa vilja samband hver við annan og við ísafjörð. Telja þeir að hinn vegurinn kunni að tefja fyrir lagningu vegarins með fjörðunum og éru áhugalausir af þeim sökum. Hins vegar er áhugi þeirra, sem búa á ísafirði og í kring og vilja fá greitt vegasamband við vegakerfi landsins um Þorskafjarðarheiði. Þeir eru því málinu mjög fylgj- andi. Leggur sjálfur 8 km veg Jón byrjaði sjálfur árið 1964 að leggja veg í Mjóafjarðarbotn og er kominn me’ð veginn undir- byggðan um 3,6 km leið, eða upp fyrir Fossa, og búinn að byggja brú á á eina á þessari leið. Þegar hann sá hvernig þetta gekk, á- kvað hann að leggja veginn upp að Mýflugnavatni sjálfur, en þá er hann kominn með 8 km veg og upp í 425 m hæð yfir sjávarmál. Er verið að vinna við þennan veg nú. Er hér var komið fór Jón til ísafjarðar, kallaði saman forustu menn þar og lagði málið þannig fyrir þá. Hann kvaðst ætia að leggja á sinn kostnað veginn upp á brúnina Mjóafjarðarmegin, gegn því að ísafjarðarkaupstað- ur og hrepparnir þar um sióðir leggi hann upp á brúnina í Hatt- ardal. Þegar búið væri að leggia veg upp og aðeins eftir sléttiend ið, þá mundi þetta verkefni ekki stöðvast úr því. Til að þetta geti orðið, þarf urnsögn vegamála- skrifstofunnar um vegarstæðið. Fór Jón fram á það við sam- göngumálaráðherra sl. haust, að hann hlutaðist til um að sú um- sögn fengist í haust og var lof- að að láta fara fram athugun í sumar. Er nú verið að byrja á því verfci. Kvaðst Jón vonast til að undirtektir og umsögn full- trúa vegamálaskrifstofunnar verði það góðar að hægt verði að byrja hinum megin frá í haust. Eftir að búið verður að leggja ALLT í viðleguna tjöldin eru gerð fyrir íslenzka veðráttu. 5 manna fjol- skyldutjöldin með bláu aukaþekjunni eru hlý, þar sem loftið á milli einangrar og innra tjaldið helzt þurrt í vætutíð, kosta aðeins kr. 3.890,00. Athugið — að tjaldið er heimili yðar meðan á viðlegunni stendur. — Það er ill líðan að vera blaut- ur og slæptur. —< Vandið því valið. Tjaldhælar, stög — risiaga tjaidsúlur. Gas-ferðaprímusar. Vönduð þýzk hústjöld, svefntjatd og dagtjald, krónur 5.850,00. PALMA vindsængur. — Sólstóiar frá kr. 560,09. Sóltjöld. — Munið eftir veiðistönginni, en hún fæst einnig I: Laugavegi 13. PÓSTSENDUM. Móðurbróðir okkar. GUÐMUNDUR JÓSEFSSON fyrrv. hreppstjóri frá Staðaihóli, Höfnum, andaðist í sjúkrahúsinu í Keflavík 20 júlí sl. Guðrún Magnúsdóttir, Þóra Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.