Morgunblaðið - 29.07.1966, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.07.1966, Qupperneq 1
32 siður Sukarno reynir að- rétta hlut sinn — en útvarpið í Djakarta endurtekur aðeins hluta ummæla hans „Sá tíml kemur“, segir kunn- ur brezkur hugvitsmaður, Russell Winn, „að öll vélknú- in ökutæki, sem gefa frá sér útblástursreyk, verða bönnuð í miðborgunum“. í stað þeirra muni koma handhæg, rafknú- in ökutæki, í líkingu við það, sem hugvitsmaðurinn situr á. Gerir hann ráð fyrir, að slik tæki taki við hlutverki bif- reiða í miðhlutum þéttbýl- ustu borga. Djakarta, 28. júlí — AP — NTB — SUKARNO, Indónesíuforseti, lýsti því yfir í Djakarta í dag, að hann færi enn með fram- kvæmdavald í landinu. Jafn- framt lýsti forsetinn yfir því, að Indónesía hefði ekki lagt fjandskap sinn við Malasíu á U-2 Þýðingarmiklar viðræður ráða- manna Bretlands og USA Wilson segir Bandaríkin vitja friðarumleitanir, án skilyrða, sem bundið geti enda á styrjöldina í Vietnam, en nú standi á ráðamönnum í Hanoi segja, að Johnson telji viðræð- hilluna, þótt ekki yrði beitt vopnavaldi til að útkljá hana. Það var á mánudag, að Su- harto, hershöfðingi, kunn- gerði, að hann hefði myndað nýja stjórn í landinu. Þá sagði Suharto, að Sukarno hefði fallið frá því að taka við embætti forsætisráðherra, þótt hann myndi enn gegna embætti forseta. í dag sagði Sukarno í ræðu sinni, að því hefði verið haldið fram í blcðum og fréttatilkynn- ingum, að hann væri ekki leng- ur forsætisráðherra. „Þetta er ekki satt“, sagði Sukarno. Neit- aði hann að viðurkenna, að Su- harto hefði tekið við neinum sínum fyrri völdum. Sukarno sagðist komast við, er hann minntist þess, að fyrrum varaforsætisráðherra landsins, dr. Leimena og R. Abdulgani, hefðu orðið að láta af embætti, Framhald á bls 2S saknað Wasihington, 28. júlí — AP SAKNAÐ er bandarískrar þotu, af gerðinni U-2, sem fræg varð •fyrir njósnaflug á sínum tíma. Samiband rofnaði við flugvélina, er hún var enn á flugi, skammt undan ströndum Kúbu, að því er talið er. Herma fréttir, að marg.t bendi til þess, að flugmaðurinn hafi misst me'ðvitund. Það var flugvél af gerðinni U-2, sem skotin var niður á njósnaflugi yfir Sovétríkjunum, á sínum tíma, og flugvélar af þessari gerð voru notaðar til eftir lits- og könnunarflugs, er Kúbu- deilan stóð sem hæst. Washington og London, 28. júlí — AU — NTB — HAROLD Wilson, forsætis- ráðherra Breta, hélt í dag flugleiðis frá London til Bandaríkjanna, þar sem hann mun eiga mikilvægar umræð- ur við Johnson, Bandaríkja- forseta, um brezk vandamál og alþjóðleg. Fréttamaður Reuters-frétta stofunnar í Washington, John Heffernan, segir, að Johnson muni leggja margar spurning ar fyrir brezka forsætisráð- herrann, og muni þær eink- um miða að því að afla upp- lýsinga um efnahagsvanda- málin í Bretlandi, og áhrif þeirra á afstöðu Breta til ann arra þjóða. Mun Bandaríkjaforseti vænta þess, að Wilson geti fært honum heim sanninn um að Bretar geti staðið við al- þjóðlegar skuldbindingar sín- ar, einkum, að brezka stjórn- in geti haldið úti herstyrk sín um við Indlandshaf og í SA- Asíu. Brezka stjórnin kunngerði ný lega, eins og fram hefur komið £ fréttum, að hún yrði að draga úr kostnaði sírium, vegna dvalar brezks herliðs í V Þýzkalandi. Það var í desember sl. að Wilson og Johnson hittust síð- ast. Talsmenn í Hvíta húsinu urnar við Wilson nú mjög þýð- ingarmiklar. Wilson lagðist ný- lega gegn árásum Bandaríkjanna á N-Vietnam, og mun Bandaríkja forseti nú ætla sér að fá úr því skorið, hvort Bretar ætli sér framvegis að vera sú stuðnings- þjóð Bandaríkjanna, sem verið hefur. Blaðið „Washington Post“, sem talið er áreiðanlegt í flutningi sínum, sagði í dag, að allt benti til þess, að viðrneður ráðamanna myndu bera góðan árangur, þrátt fyrir skoðanamun þeirra á ástandinu í Vietnam. Wilson dvelst aðeins einn dag í Washington, en síðan heldur hann til Kanada. í Ottawa mun hann eiga viðræður við for- sætisráðhei ra landsins, Lester Framhald á bls. 31 Geislovirkt ryk á Nýja-Sjálandi Auckland, Nýja Sjálandi, 28. júlí — AP — Geislavirkt ryk, sem stafar af fyrstu af mörgum kjarn- orkusprengingum Frakka á Kyrrahafi nú, í tilraunaskyni, er nú tekið að falla til jarð- ar á Nýja-Sjálandi. 1 tilkynningu heilbrigðisyf irvalda landsins segir, að at- huganir, sem fram hafa farið á ýmsum stöðum í landinu, sýni, að geislavirkni hafi auk izt, og hafi afleiðingar henn- ar komið fram, m.a. við rann sóknir á mjólk. „Izvestia" ræðst á Otto Grieg Tidemann Segir landvarnaráðberra Noregs vilja fá kjarnorkuvopn geymd í Noregi Moskvu, 28. júlí — NTB — MÁLGAGN sovézku stjórnarinn- ar „Izvestia“ réðst í dag harka- lega gegn landvamarráðherra Noregs, Otto Grieg Tidemann, og segir blaðið, að hann sé „einn Shelzti stuðningsmaður Atiants- hafsbandalagsins". Segir „Izvestia", að Tidemann ,rsé ákaflega bitur“ yfir þeirri stefnu Norðmanna að leyfa ekki að kjarnorkuvopn verði geymd í Noreg. á friðartímum. Ásakanir þessar eru birtar í grein, sem undirrituð er af Jurij Golosjubov, og segir-þar að auki, að N-Noregi hafi verið breytt í svæði, þaðan sem gera megi ár- ásir á Sovétríkin. Þá segir í greininni, að sovézka þjóðin geti ekki setið aðgerðar- iaus, og horft á það, sem eigi sér stað í næsta nágrenni. Er Tide- mann ásakaður jafnframt fyrir að trúa á, að ofbeldi sé til þess fallið að jafna metaskálarnar. „Hvers vegna er þörf á því að lýsa nú sérstakri andúð við NATO?“ segir og í greininni. Því er svarað á þann veg, að Norð- menn beri nú sífellt minna traust til bandalagsins. Þó hafi banda- lagssinnarnir í Noregi ekki látið sér segjast, heldur gangi þeir nú skrefi lengra í þjónkun sinni við hershöfðingja bandalagsins. „Framtíð PEN-klúbbs- ins er stefnt í hættu með því að leyfa mönnum eins og Tarsis að stíga í rœðustól". segir „Literaturnaja Gazeta", og gagnrý nir Arthur Miller Moskvu, 28. júlí — NTB — SOVÉZKA rithöfundasam- bandið sakaði í dag PEN- klúbbinn (alþjóðasamtök rit- höfunda o.fl.) fyrir að beita sér gegn því, að eðlilegt sam band ihéldist milli sovézkra rithöfunda og rithöfunda ann arra þjóða. Ásökunin kemur fram í mál gagni rithöfundasamtakanna sovézku, „Literaturnaja Gaz- eta“, en þar segir um ný- afstaðið PEN-þing í New York, að bandarískri rithöf- undurinn Arthur Miller, hafi sett fram „hlægileg, ný skil- yrði“ fyrir upptöku sovézkra rithöfunda í PEN-klúbbinn. Þá segir blaðið, að það hafi í upphafi verið ætlunin að fiílltrúar Sovétríkjanna sæktu þingið í New York, en hætt hafi verið við það. Sovézkir rithöfundar hafi verið farnir að sýna klúbbnum áhuga, því að innan hans hafi verið farið að gæta „framfarastefnu“. Hins vegar hafi verið haldn ar margar ræður á þinginu í New York, sem beint hafi verið gegn Sovétríkjunum. M.a. hafi Valerys Tarsis, fyrr um sovézkur rithöfundur, haldið þar ræðu, svo og þjóð- ernissinnar sem flutt hafi frá Ukrainu og Eystrasaltsríkjun- um. Loks segir „Literaturnaja Gazeta", að með því að heim- ila slíkum mönnum að taka til máls á PEN-þingi, sé ver- ið að stefna framtíð klúbbs- ins í hættu, og megi búast við því, að hann eigi í erfiðleik- um framvegis við að undir- búa alþjóðaþing rithöfunda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.