Morgunblaðið - 29.07.1966, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 29.07.1966, Qupperneq 7
Tostudagur 29. júlí 1966 MORCUNBLADIÐ 7 Arnardalsætt að vestan ÞRIÐJA bindi af Arnardals og Eyrardalsættum ásamt fullkomnu nafnregistri yfir þau mannanöfn, sem fyrir- koma í öllum 3 bókunum til samans, mun nú koma á bóka markað, að öllu forfallalausu, einhverntíma á næsta ári (1967). Sökum þess, að margt liggur ekki fullljóst fyrir t.d. hve mikið muni berast af myndum í þetta 3. og loka- bindi verks þessa, ennfrem- ur nokkra aðra kostnaðarreikn inga verks þessa, svo þess- vegna hefir ekki tekizt enn að semja um útgáfu þess. Það var aldrei byrjað á þessu verki í því augnamiði að hafa það að féþúfu, og svo enn, mun því reynt, sem áð- ur, að stilla verði þessarar 3. bókar svo í hóf sem kostur er á eins og var um hin fyrri bindin; enda þá strar í byrjun viðurkennt af þeim, er verk- ið önnuðust, (ísafold) að verð á Arnardalsætt væri mun lægra stillt, en á nokkurri annarri bók sem þeir hefðu unnið að það árið a.m.k. Fyrri bindin tvö, fást nú orðið ekki í bókabúðum. En til þess að fá samhengi yfir þetta, er mikil nauðsyn að hafa aðgang að öllu ritinu. Enn er til lítið eitt af þessum fyrri bókum, hjá útgefanda Vald. B. Valdimarssyni Víði- mel 28, Rvík. Sími 10647. Skal brýnt fyrir fólki, hafi það á- huga að eignast þau, að draga ekki að gera pöntun á þeim, annaðhvort beint frá útgef- anda eða umboðsmönnum hans á hverjum stað, áður en það er orðið of seint — þar eð ritið verður ekki endur- prentað í náinni framtíð. Nýir og gamlir áskrifendur fá þessi eintök sem eftir eru við mjög vægu verði meðan til hrekk- ur, eða aðeins fyrir 300 kr. hverja bók í bandi. Ekki skal þess ógetið að þetta verð er allmiklu lægra en ritið var Valdemar Björn Valdemarsson selt almennt í bókabúðum, enda miðast þetta verð við, að í hlU't eigi áskrifendur að þessu 3. bindi, sem enn er ó- komið. Eins og að ofan getur, er ekki hægt enn, að lofa nokkru ákveðnu verði á 3. bindinu. Þó skal framtekið, að verð til áskrifenda mun verða allt að því 1/3 hluta ódýrara, en hún verður seld í bókabúð- um. Okkar keppikefli er, að fá svo marga áskrifendur að þessu 3. bindi að hægt verði að miða útgáfuna að mestu leyti við áskrifendur, en að- eins þá að litlu leyti við sölu á annan hátt en til þeirra. Þetta mun líka takast, ef sami áhugi kemur fram fyrir þessu 3.- og lokabindi og kom fram þegar áskriftarinnar var leitað að hinum 2 fyrri bindum. Myndir — sérstakl. fjöl- skyldumyndir — pg eða mynd ir af gömlu fólki og eða af ættingjum og venzlafóíki þeirra verður tekið í þetta 3. bindi meðan rúm er fyrir þær í ritinu. Þær verða teknar án sérstaks endurgjalds. Okkur er mikið áhugaefni að fá fá- séðar gamlar myndir, en til að tryggja að þær berist eig- endum aftur, er fólk beðið að rita heimilisfang sitt á bak- hlið eða þá á sérstakt við- fest blað, sömuleiðis ef um fjölskyldumyndir er að ræða, þá er reglan sú, að skrifa við- komandi nöfn mynda frá vinstri til hægri og ef tvísett er röð, þá eða neðri röð o.s.frv. símanúmer sendanda væri líka æskilegt að fá. Er þess vænst að umboðs- menn taki á móti myndun- um, en verði myndir sendar beint, þá til Reykjavík. En til þess að hægt verði að búa til myndamót á hæfilegum tima, þurfa myndirnar að ber- ast hingað snemma í ágúst eða ekki síðar en í ágústlok þessa árs. Allmargt fólk hér hefir vilj- að senda myndir af börnum sérstaklega. En við viljum síður myndir af blessuðum börnunum sér, því útiit þeirra vill venjulegast breyt- ast mikið er þau komast á legg. Með beztu kveðjum, 19 — 7 — 1966. V. B. Valdimarsson . VÍSUKORIM Ekið fyrir Hvalfjörð: Það er alveg eins og í undurfögrum draumi, sólargeislar gegnum ský glytra í bláum straumi. Guðmundur Guðni Guðmundsson. F RETTIR Kristileg samkoma verður í samkomusalnum Mjóuhlið 16 sunnudagskvöldið 31. júlí kl. 8. Allt fólk hjartanlega velkomið. Langholtssöfnuður: Bifreiða- stöðin Bæjarleiðir og Sumar- starfsnefnd safnaðarins gengst fyrir ferðalagi eldra fólks mið- vikudaginn 3. ágúst n.k. Lagt verður af stað kl. 13.00 frá safn- aðarheimilinu. Haldið verður um Þrengsli, Þorlákshöfn, Strandar- kirkju, um Reykjanes, og heim. Ferð þessi er þátttakendum að kostnaðarlausu. Veitingar verða. Þátttaka tilkynnist ísíma 35750 kl. 18—20 fimmtudags- og föstu- dagskvöld. — Sumarstarfsnefnd. Skemmtiferðalag V. K. F. Framsóknar: Verður að þessu sinni um Skagafjörð 12. — 14. ágúst. Farið verður 12. ágúst kl. 8.00 um kvöldið norður i Hrúta- fjörð. Gist í Reykjaskóla, borðað ur morgunverður þar. Síðan ekið um Skagafjörð. Borðað laugar- dagskvöld á Sauðárkrók og gist þar farið þaðan heirn á leið sunnudagsmorgun. Borðað í Borgarnesi seinni hluta sunnu- dags. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Konur fjöl- mennið og takið með ykkur gesti. Æskilegt að pantanir berist fljót lega eftirspurn er mikil. — Pantaðir farseðlar skulu sóttir í síðasta lagi mánudag 8. ágúst. Símar á skrifstofunni 20385 og 12931 opið frá 2 — 6. Orlof húsmæðra á Suðurnesj- um verður í Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi dagana 9-19. ágúst. Þátttaka tilkynnist fyrir 1. ágúst til Ingibjargar Erlendsdóttur, Kálfatjörn, Sigrúnar Guðmunds dóttur, Grindavík, Sigurbjargar Magnúsdóttur, Ytri-Njarðvík, Auðar Tryggvadóttur, Gerðum, Halldóru Ingibjörnsdótt'ir, Flánkastöðum, Miðneshreppi. Húsmæður, Njarðvíkurhreppi: Orlofsdvölin verður frá 9. — 19. ágúst n.k. Tilkynnið þátttöku fyrir 1. ágúst í síma: 2093 eða 2127. Frá Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík. Skrifstofa nefndar- innar verður opin frá 1/6 kl. 3:30—5 alla virka daga nema laugardaga sími 17366. Þar verða veittar allar upplýsingar varð- andi orlofsdvalirnar, sem verða að þessu sinni að Laugagerðis- skóla á Snæfellsnesi. Orlof húsmæðra í Keflavík verður frá 9. til 20 ágúst n.k. Til- kynnið þáttöku sem fyrst eða í síðasta lagi 1. ág. í síma: 2030, 1692, 2072 og 2068. Húsafellsmótið: Farmiðasala og upplýsingar um bindindisimót ið í Húsafellsskógi um verzlunar mannahelgina veittar í Góð- templarahúsinu daglega kl. 5 — 7, sími 13355. Mótsnefnd. að fallegt hefði vérið að fljúga meðfram Tjörninni í gær- morgun, og fegurðin var mikil. Lognið var rjómalogn, og Tjörn- in skyggð eins og slípaður gim- steinn, og í miðju hennar — mar- aði í hálfu kafi græni Sverris- hólminn rétt eins og smaragður í hring, vaxinn fallegri hvönn, en einn einstakur njóli stakk upp kollinum á norðurbakkanum. Kríurnar h guðu að ungum sínum, sem bráðlega fara að sjást á flugi yfir borginni, ein- staka önd synti letilega í kring- um hólmann. Það var hásumar í borginni við Sundin. Rétt hjá Hljómskálagarðinum, hitti storkurinn mann, sem sat þar og horfði á dýrðina, og lagði hönd undir kinn. Var því líkast, sem hann reyndi að festa þessi dásemdarsýn í hug sér ei'líf- lega. Storkurinn: Og barasta alveg „dolfallinn?" Maðurinn með hönd undir kinn: Já, það var orðið. Mér er spurn: Hafa menn gert sér það í hugarlund, hvílíkur fjársjóður Tjörnin er í Reykjavík? Og hve hér yrði allt fábrotnara, ef hún væri horfin af sjónarsviðinu? Svo tala menn um að byggja hús út í hana, væri ekki hitt' réttara að stækka hana, auka við hólmana, svo að enn fleiri fugl- ar löðuðust hingað? Hvernig væri að stofna Tjarnarverndar- félag? Er ekki stofnuð varnar- félög út af hinu og þessu? Ja, mér þykir þú koma með til löguna. Er ég þér hjartanlega sammála, og ættum við að stofna þetta strax í kvöld? Þú getur skrifað mig sem ævifélaga. Við skulum vera sammála öllu öðru góðu fólki, sem vill vernda Tjörnina fyrir öllu hnjaski, svo að eilíflega geti orð skáldsins rætzt: „Fyrir sunnan Fríkirkj- una, fórum við á stefnumótin“. x- Gengið x- Reykjavik 25. júlí 1966 1 Sterlingspund Kaup 119.70 Sala 120.00 1- Bandar. dollar 42,95 43,06 1 Kanadadollar 39,92 40,03 100 Danskar krónur 620.50 622.10 100 Norskar krónur 600,64 602,18 100 Sænskar krónur 831,45 833,60 100 Finsk mörk 1.335,30 1.338,72 100 Fr. frankar 876,18 878,42 100 Belg. frankar 86,55 86,77 100 Svisön. frankar 994,50 997,05 100 Gyllini 1.191,80 1.194,86 100 Tékkn. kr. 596,40 598,00 100 v-þýzk mörk 1.076,44 1.079,20 100 Lírur 6,88 6,90 100 Austurr. sch. 166,18 166,60 100 Pesetar 71,60 71,80 Ferðafólk Við bjóðum yður þægileg herbergi, góðan mat, kaffi heimabakaðar kökur og ýmsa aðra þjónustu fyrir ferðafóik. Hótel Hveragerði. Keflavík — Suðurnes Bifreiðaeigendur gangið í félag ísl. bifreiðaeigenda áður en þér leggið af stað í ferðalagið. F.Í.B. Umboð Guðfinns Gíslasonar, Hring braut 93 B. Sími 2210. Veiðimenn Hofum á boðstólum nokk- ur veiðileyfi í Laxá í Hvammssveit, Dalasýslu. Upplýsingar gefur síma- stöðin Ásgarður. Willys jeppi til sölu, — árgerð 1954, í góðu standi. Skipti á nýlegum diesel-traktor geta komið til greina. Uppl. gefur Garðar Þorfinnsson, Brim- ilsvöllum. Simi um Ólafsv. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Ibúðarhús til sölu í Grindavík. — Tilboð óskast í húseignina Vesturbraut 2 (Þorvaids- staði), Grindavík, ásamt tilheyrandi lóð og útihús- um. Tilb. sé skilað tii und irritaðs fyrir 20. ágúst n.k. Jón Árni Sigurðsson, sóknarprestur. Keflavík — nágrenni í ferðalagið: Ferðahandbók in — vegakort, sóígleraugu í úrvali, sjónaukar, mynda- vélar, filmur, flass perur, - ávextir, harðfiskur og allsk sælgæti. Brautarnesti, Hringbr. 93 B. Sími 2210. Skrifstofuhúsnæði Til leigú skrifstofuhúsnæði við miðbæinn, 3 stofur niðri og 2 stofur uppi. Enn- fremur stórt geymslupláss í kjallara. Tilboð merkt „miðbær — 4976“ sendist Mbl. fyrir 6. ágúst. Innréttingar í svefnherbergi og eldhús. Sólbekkir. ísetning á hurð- um. Sími 50127. Karlmenn Ný gerð af léttum, þægilegum og ódýrum ferðaskóm. i Skinn og rúskinn. Austurstræti og Laugavegi. j Blaðamennska Þessu er beint til nýstúdenta og annarra, sem ekki hafa gert upp við sig, hvað þeir aeila að taka sér fyrir hendur. ^ Blaðamennska krefst góðrar íslenzkukunnáttu og áhuga á mannlífinu í kringum okkur. s Dagblað í Reykjavík vill ráða til sín ungan blaða- mann. — Umsókn tilgreini menntun og fyrri störf og sendist til afgr. Mbl., merkt: „Blaðamennska — 4709“. " S Tilboð óskast í rauða Ford Falcon station bifreið (G-131) vel með farna, í góðu standi. Til sýids föstudag kl. 8 f.h. til kl. 6 e.h. við trésmíðaverkstæði Kleppsspítalans. Tekið við tilboðum á sama stað. — Einnig til sölu Zenith 21” sjónvarpstæki, fríttstandandi á kr. 14 þúsund (ca. hálfvirði). — Upplýsingar í síma 33572. Tökum að okkur Þungaflutninga allskonar, með aftanívögnum. Vanir menn — reynið viðskiptin. FARG HF. Símar 32578 og 10440.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.