Morgunblaðið - 29.07.1966, Síða 13

Morgunblaðið - 29.07.1966, Síða 13
r Föstudagur 29. }<H! 1966 MORGUNBLAÐIÐ 13 Haukur Kristinsson, Eyvindarstöðum, Georg Jósepsson, Sunnu- hlíð, Jósef Guðjónsson, Strandhöfn, og Stefán Ásbjarnarson, Guðmundarstöðum, ræðast við. — Mér finnst, að veita eigi l>ví mun meiri athygli, sem þeir Gunnar Bjarnason ráðunautur og Gylfi í>. Gíslason mennta- málaráðherra hafa sagt um land búnað á íslandi, og ræða beri þau mál af meiri stillingu og fcófsemi en gert hefur verið hingað til, segir >órarinn Sveins son að lokum. Og ekki allöngu eftir, að við liöfum kvatt Þórarin leikur hljómsveit Magnúsar síðasta iag ið kl. 2 eftir miðnætti samkvæmt þeirri gullnu reglu, að hætta hverri skemmtun þá hæst hún íber. Aukast þá kærleikar milli dansfólksins og endar svo skemmtunin að hver kveður ann an með mikilli blíðu og hverfur eiðan heim, enda starfsdagur á dagatalinu. ★ Fáskrúðsfirðingar hafa af myndarskap komið sér upp prýði Jegu félagsheimili, sem þeir Ikalla Skrúður eftir eyjunni, sem listaskáldið góða orti um á sin- um tíma. Ragnar Björgvinsson í>að fer hér eins og á hinum tveimur mótsstöðunum, að hús- ið er þétt skipað fólki og þekkj- um við marga, sem kvöldið áður höfðu verið mótsgestir í Vala- skjálf. Ræðumenn kvöldsins voru Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, Sverrir Hermannsson, við ekiptafr. og Ólafur Bergþórsson kennari. — Bessi og Gunnar hlutu verð ekuldað lófatak fyrir gaman- þætti sína, sem þeir fluttu af innlifun. Spurningakeppni var með svipuðu sniði og áður, þótt hér væru spurningar á marga lund annars konar. í keppninni tóku þátt: Jóhann Antóníusson, Már Hallgrímsson, Sigurbjörg Helgadóttir, Árni Stefánsson, Kristján Garðarsson og Stefan- ía Aronsdóttir. Jafnframt því, sem Anna Vil- hjálms syngur um „sæta gæja, eem eru agalega svaiir“, ræðum við um atvinnumál Fáskrúðfirð- inga við Ottó Vestmann, mjöl- vigtarmann hjá Síldarverk- emiðju Fáskrúðsfjarðar. — Ég flutti hingað frá Vest- mannaeyjum 8 óra gamall, segir Ottó, — og hóf sjóróðra úr ver- inu i Skúlavík hér á yztu ann- esjum 12 ára gamall. Ég man það, að ég þurfti að koma hing- að heim úr verinu, gagngert til að láta ferma mig. — Við erum búnir að taka á móti meiri síld nú hér í verk- smiðjunni á Fáskrúðsfirði en á sama tíma í fyrra, en hins veg- ar hefur ekkert verið saltað eða fryst af síldinni. Ég held að útilitið með síldina sé svipað og í fyrra og hún heldur sig á svip- uðum slóðum. — Það þarf að geta þess, hve ástandið í atvinnumálum þjóðar innar er gjörbreytt frá því er var fyrr á árum. — Fólk er miklu frjálsara og hefur ólíkt meiri peninga handa á milli. Það hefur ríkt sann- kölluð velsæld á Austfjörðum á undanförnum árum. I>að sem Otto Vestmann mér finnst hins vegar ábótavant hér á Fáskrúðsfirði er hversu lítil útgerð er stunduð héðan, eða einungis á tveimur bátum. Það vantar áræði í útgerðar- mennina hér. Stærri útgerð tel ég hiklaust brýnasta nauósynja- mál Fáskrúðsfirðinga í dag. Og meðan Vilhjálmur Vil- hjálmsson syngur um vor í Vagla skógi, skýrir Ragnar Björgvins- son okkur frá búskaparháttum í Fáskrúðsfjarðanhreppi, en Ragnar er bóndi að Víkurgerði. — Jarðir eru yfirleitt litlar í hreppnum, segir Ragnar, — og gefa ekki mikið í aðra hönd. Ég ' ÉIIII Halldór Guömundsson, Súðavík - Minningarorð Þessi minningarorð um gaml- an vin koma á prent eftir dúk og disk. Halldór Guðmundsson á Bólstað í Súðavík andab.it 24. janúar árið 1964. Með hon- um var til moldar hniginn einn af traustustu og myndarlegustu íbúum þessa litla kauptúns, drengskapar- og atorkumaður. Halldór Magnús Guðmunds- son var fæddur að Ósi í Bolung- arvik 28. nóvember árið 1887. Foreldrar hans voru Guðríður Einarsdóttir, ættuð norðan af hef því annáð veifið stundað vinnu í síldinni í firðinum. Sjálf- ur rek ég útgerð þótt í örlitlum mæli sé, ræ á minni eigin trillu til fiskjar. — Hvað snertir búskapinn, Ragnar. Veldur kal þér búsifj- um eins og mörgum öðrum bænd um? — Það gerir það vissulega. Mitt tún er um 10 hektarar og af því liggur helmingur undir kali. Það stafar fyrst og fremst af hinni umbrotasömu veðróttu. Auk þess kæfði svell fyrir mér jarðveginn í vor. Því miður er landslagi þannig háttað í Vík- urgerði, að mjög erfitt er um vik að stækka jörðina. Ég hef heldur ekki nægilega fjölbreytt tæki til heyskapar, enda erfitt að koma við nútíma tækni á jafnlítilli jörð. Þá er fóðurbætis- kostnaður gífurlegur, en við bændur pöntuðum of lítil hey að sunnan í vetur sem leið, þeg- ar heyin þraut hjá okkur. — Hvað viðvíkur rafmagni, þá kom ég mér upp einkarafstöð fyrir 10 árum, en mér bauðst aldrei rafmagn frá Grímsár- virkjun. Vegasamgöngur eru af- leitar og þekki ég þær bezt af eigin raun, en ég hef verið póst- ur undanfarin ár og brauzt oft á milli á skíðum í vetur. Þá var ég þrjá daga í hverri póstferð. — Þú hefur aldrei þurft að grafa þig í fönn? — Nei, til þess kom aldrei, sem betur fór. En svo aftur sé vikið að samgöngum, þá hygg ég að betri samgöngur verði til þess, að bændur sitji jarðir sínar frek ar en verið hefur. Við Ijúkum spjalli okkar við Rangar bónda í Víkurgerði og þökkum honum fyrir. Skemmt- unin er nú á enda og héraðs- mótum Sjálfstæðismanna lokið um þessa helgi. Er það einlæg von þeirra, sem að mótunum standa, að sami menningarbrag- ur verði ríkjandi á þeim um verzlunarmannahelgina og raun varð á á Austurlandi. Ströndum og Guðmundur Árna- son frá Djúpi. Halldór ólst upp með móður sinni og fluttist ung- ur með henni að Bólstað í Álfta- firði, ef hún giftist Rósinkar Rósinkarssyni. Halldór fór að stunda sjó strax og hann hafði aldur til. Hann var með þeim fyrstu sem fengu vélar í báta þar um slóðir. Varð hann sjálf- ur formaður á bátnum er var gamall sexæringur. Síðan keypti hann ásamt nokkrum öðrum bát frá Danmörku, er Erlingur hét, og gerði hann út frá Súðavík. Var Halldór formaður á hon- um. Félag þetta keypti fleiri báta og var hann formaður á þeim öllum. Síðasti báturinn, sem þeir félagar áttu hét Högni. Halldór Guðmundsson hætti formennsku á þessum bát árið 1935, en þá tók við skipstjórn Sigurður sonur hans, er fórst með bátnum ári síðar. Halldór var mikill kjark og dugnaðarmaður. Hann réri bát- um sínum úr ýmsum verstöðv- um, eftir því sem aðstaða var til veiðanna. Nokkur sumur gerði hann t.d. út norður í Djúpu vík og ennfremur mun hann hafa gert út eitt vor norður á Siglufirði og á Flateyri. Síðar gerðist hann verkstjóri við síld- arsöltun á Siglufirði og rak þar sjálfur söltunarstöð um skeið, með tengdasyni sínum og fleir- um. Einnig vann hann að fisk- vinnslu í Súðavík, keypti fisk og verkaði, og stundaði jafn- framt nokkurn búskap. Halldór tók virkan þátt í fé- lagsmálum í Súðavík. Var hann þar bæði í hreppsnefnd og sókn- arnefnd, og í mörg ár formað- ur lestrarfélags. Hann kvæntist árið 1915 eft- irlifandi konu sinni Maríu S. Helgadóttur, ættaðri úr Gufu- dalssveit, ágætri og dugandi konu, sem nú er rúmlega átt- ræð. Þau eignuðust þrjú mann- vænleg börn og eru tvær dætur lifandi. Þær eru: Guðmunda Sig- ríður, gift Kolbeini Björnssyni, verkstjóra, búsett á Seltjarnar- nesi og Guðríður gift Gísla Sig- urbjörnssyni, en þau búa í Súða- vík. Síðustu ár ævi sinnar átti Halldór við verulega vanheilzu að stríða. Hann komst aldrei til fullrar heilsu eftir aðgerð sem framkvæmd var á honum árið 1958. Halldór Guðmundsson er einn þeirra 'manna, sem jafnan skilja eftir sterka og sviphreina mynd í hugum þeirra, er þeim kynn- ast. Hann var ágætlega greindur maður og margfróður. Mér er minnistætt er ég heimsótti hann á heimili hans í Súðavík fá- um árum áður en hann dó. Hann var þá rúmliggjandi, en engu að síður glaður og reifur, ræddi fjörlega og hressilega um menn og málefni. Hann var traustur maður og trygglyndur, góðgjarn og áhugasamur um öll málefni, er til heilla horfðu byggðarlagi hans og þjóðfélagi. Það er vissu- lega mikill fengur að því að hafa fengið að kynnast þessum góða dreng og njóta trausts hans og vináttu um ára skeið. Minningin um Halldór Guð- mundsson lifir hugþekk og björt í hugum ástvina hans, og allra þeirra er nutu manndóms hans, góðra kynna og vináttu. S. Bj. Þjónar mótmæla bráðabirgðalögum BLAÐINU hefur nýlega borizt ál.vktun sem almennur fundur í Félagi framreiðslumanna sam- þykkti s.l. mánudag. Er þar mót mælt harðlega settum bráða- birgðalögum í vinnudeilu fram- leiðslumanna og segir í álykt- uninni m.a. „að lagasetningin sé óréttlætanleg aðför að almenn- um mannréttindum launafólks í Samkomusalurinn í Miklagarði var þéttsetinn. landinu, þar sem bannað er verk fall, sem framkvæmt var af hóf- semi og með fullu tilliti til hags- muna almennings." Ályktuninni fylgir greinargerð þar sem félagið gerir grein fyrir málstað sínum og segir þar m.a. svo orðrétt: „Kröfur okkar f vinnudeilunni vlð Samband veitinga- og gisti- húsaeigenda voru að mestu kröf ur um samræmingar á vinnutil- högun í veitingahúsum og að látin yrði haldast vinnutilhög- un sú sem tíðkazt hefur hjá fram reiffslumönnum um langan aldui og gefizt vel. Okkur þykir í þvi sambandi rétt að benda á að nefnd vinnutilhögun er enn við- höfð á því veitingahúsi borgar- innar, sem lengst hefur starfað, þeirra er framreiðslumenn starfa hjá. Er hér um að ræða Hótei Borg, sem hinn reyndi og þekkti veitingamaður Pétur Daníelsson veitir forstöðu. Ástæðan til þesa að við settum fram umræddai kröfur er sú, að á síðustu árum hafa komið fram nýmæli í sam bandi við vinnutilhögun, er vif teljum ósæmileg. Er þar einkum um að ræða kassa þá, sem settii hafa verið upp á vínstúku nokk- urra veitingahúsa og framreiðslu mönnum í vínstúkunum er ætl- að að stimpla inn á hverja af- greiðslu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.