Morgunblaðið - 29.07.1966, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.07.1966, Qupperneq 17
Föstudagwr 29 júlf 1966 MORGUNBLAÐIÐ 17 f SUMARFRÍINU sínu dvelj- ast um þessar mundir hér á landi ungur Akurnesingur, Leifur Magnússon og unnusta hans bandarísk, Jolee Crane. Leifur er 19 ára, stúlkan 25 ára. Þau eru bæði blind, hanu síðan hann fékk heilahimnu- bólgu 8 ára að aldri, hún írá fæðingu. Þau eru bæði við nám í New York, hann við einn bezta blindraskóla í Bandaríkjunum, þar sem hann leggur stund á píanó- stillingar, hún við háskóla, þar sem hún nemur sögu. Blaðamaður Mbl. hitti þau að máli á dögunum og ræddi stuttlega við þau. — Næsta vor lýk ég námi mínu erlendis, og þá ætla ég að koma heim. Ég ætla að Leifur Magnússon og Jolee Crane. „Með því að vanda okkur með alla hluti sýn- um við að við getum gert eins vel og aðrir" setja upp verkstæði í Reykja vík og vinna sjálfstætt við píanóstillingar og viðgerðir, sagði Leifur í upphafi sam- talsins. Unnusta mín lýkur einnig prófi næsta vor, svo þetta kemur heim og saman hún verður magister í sögu. Þá ætlum við að gifta okkur og flytja heim til Íslandíi. Ég reikna með að hafa jafn mikla atvinnumöguleika hér og í Bandaríkjunum, auk þess sem mig langar meira til að vera á íslandi. Mér þyk ir skemmtilegra að vera hér. Ég vona að unnusta min fái hér góða vinnu, þó það verði ekki strax við kennslu í sógu, þar sem íslenzkukunnátta er því til fyrirstöðu. En hún hef ur unnið í sumarfríunum sín um undanfarin ár við véhit- un hjá tryggingafélögum er- lendis og hefur því reynslu í almennum skrifstofustörfum, auk þess sem hún getur kennt ensku í aukatimum og tek- ið að sér fjölrítun, — það ætti allt að ganga vei.. Og seinna þegar íslenzkukunn- áttunni er ekki lengur áfátt langar hana til að kenna hér sögu, sem er hennar áhuga- mál. — Hvernig er náminu hátt að hjá ykkur erlendis? — Skólinn sem ég er á, segir Leifur, The New York Institute for Educatioa of the Blind, er heimavistarskóli, sem eingöngu er ætlaður blindum. Þegar ég lýk námi mínu hef ég verið þar í 3 ár. Námstíminn árlega er 10 mánuðir og kennt er 10 stund ir á dag, 5 daga vikunnar. Við byrjum klukkan hálf átta á morgnana og vinnum til klukkan fimm á daginn. Kennt er eftir venjuiegam kennsluaðferðum og eru verk færin sem við notum venjuleg verkfæri. En þar sem skól- inn er eingöngu ætlað ,ir btind um, fer öll bókleg fræðsla fram á blindraletri. Kennslan fer þannig fram að við eig- um að geta staðið öðrum mönnum fullkomlega jafnfæt is, þegar út í lífið er komið. Við leggjum okkur lika meira fram almennt, held ég, bæði í skóla og starfi, og með því að vanda okkur með allt sem við gerum reynum við að sýna mönnunum að við get- um gert eins vel og aðrir. — Hver er ástæðan fyrir því að þú lagðir stund á píanóstillingar? — Margir blindir menn fara út í þessa iðngrein og erlendis er sérstaklega mælt með henni fyrir okkur. Frá barnæsku hef ég haft áhuga á tónlist. Heima á Akranesi lærði ég einn vetur á píanó hjá Hauki Guðmundssyni, ann ars er ég að mestu leyti sjáVf menntaður á sviði tónlistar- innar. Ég spila á 12 hljóð- færi, en einkum á píanó, bassa og saxofón. — Hvernig verjið þið tóm stundum ykkar i skólanum? — Við spilum mikið á hljóðfæri, nú og svo skemmt um við okkur, förum í góngu ferðir, sitjum á kaffihúsum og röbbum. Við gerum svona hitt og þetta okkur til dund- urs. — Annað árið mitt í skól anum var rr^ér kennt að ferð ast um eins mins liðs, og um helgar heimsæki ég oft syst- ir mína, sem býr ekki all- fjarri skólanum. Ferðin til hennar tekur mig ekki nema einn og hálfan tíma í lest. Að Framhald á bls. 22 Er Háskóli Islands að verða wppeldisstöð fyrir akademisk Stofublóm eða undirbúnings- stofnun fyrir menn, sem eru bæði færir og fúsir til að vinna nauðsynleg störf í þjóðfélaginu? Er ekki von að þannig sé spurt, þegar ekki fást menn með akademiska menntun til em- bættisstarfa út um landið, svo sem héraðslæknar, sóknarprest- og lögreglufulltrúar? Hér skal læknaskorturinn einn gerður að umtalsefni, enda ekki ástæðulaust, þegar menn fást ekki til að sækja um hér- aðslæknisembætti í slíkum stöð- um sem Vestmannaeyjum, ísa- firði og Patreksfirði. Patreksfjarðarhérað hefur nokkuð á annað þúsund íbúa og er um helmingur búsettur á Patreksfirði. Þar er sæmilegt sjúkrahús með um 20 legurúm- um; læknisibústaður, sem er að vísu ekki gerður að mestu úr gleri né þiljaður með palisand- er; talsverð útlendingapraxis og tekjur einshversstaðar í nánd við eina milljón króna á ári. Þessu fylgja að vísu gallar. Staðan kostar mikla vinnu, ef ekki er aðstoðarlæknir né ann- að hjálparlið utan sjúkrahúss- ins; það getur þurft að fara í læknisferð út fyrir kauptúnið í læknisvitjun einu sinni eða tvisvar í mánuði — skv. heil- brigðisskýrslum voru slíkar ferðir 19 allt árið 1961. Það er úti lokað að hafa aðeins 6-8 klst. reglulegan vinnutíma á dag og vera svo ábyrgðarlaus alla aðra tíma sólarhringsins. Héraðslækn irinn verður ennfremur að láta svo lítið að fást við alla mann- skepnuna í heild, en getur ekki látið sér nægja að fást við ein- staka skanka hennar eða skoða sérstaka vessa hennar í mæli- glasi eins og fínu mennirnir innan stéttarinnar, sérfræðing- arnir. Læknaskorturinn úti á landi er orðinn til vansæmdar fyrir þjóðina, Háskólann og sér í lagi fyrir læknastéttina sjálfa. Þetta virðast ungu mennirnir innan hennar vera farnir að skilja eins og grein eitis þeirra sýnir, Gísla G. Auðunssonar, sú sem birtist í Mbl. nýlega. Margt var þar vel og viturlega sagt, þótt komizt hefði fyrir í styttra máli og bæri of mikinn keim af mikl- un þeirra erfiðleika, sem hér- aðslæknar búa við nú orðið. Þetta er ef til vill ekki tiltökumál því að allar stéttir í þessu þjóð- félagi alast nú upp við sjálfs- meðaumkvun. Það skal þegar tekið fram, að heilbrigðismálin úti um land eru ekki alls staðar í ólestri og sumsstaðar býr fólkið þar við meira öryggi að vissu leyti en hér í Reykjavík, vegna þess að ábyrgðin hefur ekki kafnað í þeirri dreifingu, sem íhlaupa- vinna sífelldra vaktaskipta hef- ur í för með sér. Hér í Reykja- vík eru skráðir hátt á annað hundrað læknar, en þó er það svo, að maður með bráða botn- langabólgu eða sprunginn maga getur verið í meiri hættu með að fá ekki aðgerð í tæka tíð heldur en þótt hann ætti heima í Skagafjarðardölum, 80 km. frá lækni. Það var, eins og tekið er fram að fjöldi hcraðslækna hefur Páll Kolka skrifar Vettvanginn í dag og nefnir greinina: „Læknaskortur- inn“. Þar segir m.a.: Er Háskólinn að verða uppeldisstofnun fvrir akadem- isk stofublóm? — Enginn sækir um læknishérað er gefur um milljón kr. árstekjur. — Sjúklingur í Reykjavík er óöruggari um læknisþjónustu en víða úti á landi, þó hátt á annað hundrað læknar starfi í Reykjavík. — Hér vantar skipulagningu og aga innan læknastéttarinnar. — Tryggingastofnunin vaknaði of seint. í grein þessa unga kollega, næsta furðuleg ráðstöfun að skipa nefnd til að gera tillögur um bætur á læknaskortinum og breytingar á læknaskipuninni, og hafa ekki í henni neinn hér- aðslækni eða neinn ungan lækni, sem gátu komið viðhorfum sín- um á framfæri, þótt það sé full- mikið sagt, að enginn nefndar- mannanna hafi komið út fyrir Reykjavík síðustu 30 árin nema á skemmtiferðalagi. Nefndin virðist hafa séð í ó- ljósum hillingum þörf á sam- steypu fámennra læknishéraða og þurfti ekki skarpa sjón til, því að fjöldi héraðslækna hefur undanfarið orðið að þjóna ná- grannahéraði ásamt sínu eigin. Hún sá aftur á móti ekki þá brýnu þörf, sem er á því að bæta nú þegar við aðstoðarlækni á Patreksfirði, Húsavík og Blönduósi, þar sem héraðslækn- ar verða að hafa sjúkrahús ásamt stóru læknishéraði. Til- lögur hennar gengu aðallega í þá átt að reyna að halda við á pappírnum 17-22 fámennustu héruðunum með því að bjóða félitlum kandídötum 50% launa- uppbót, meðan þeir eru að kom- ast úr skuldum og afla sér fjár til þess að sigla og verða sér- fræðingar. Langbezt er sú tillaga nefnd- arinnar, eins og tekið er fram af Gísla G. Auðunssyni, að hér- aðslæknir skuli eftir fimm ára útlegð í slíku héraði eiga rétt á áisfríi á fullum launum til framihaldsnáms erlendis, þó án allrar skuldbindingar til áfram- haldandi héraðslæknisstarfa og fá að auki ferðakostnað fram og aftur fyrir sig og fjölskyldu sína til og frá einhverjum stað milli Kaliforníu og Kákasus, að báðum meðtöldum. Ljóminn fer þó nokkuð af þessu, af því að það er á valdi ráðherra að ákveða . hversu margir skuli njóta þessa árlega, og einkum þegar borið er saman við þá sérfræðinga, sem vinna að ein- hverju leyti í þjónustu ríkis- ins eða Reykjavíkurborgar og fá á tveggja ára fresti — vænt- anlega fram að sjötugu — þriggja mánaða frí til utanlandsferðar með greiðslu ferðakostnaðar og uppihalds erlendis. Nefndin reyndi að stagla nýja bót á slitið fat, en gerði ekki, þegar frá eru teknar vanga- veltur um árlegt hlutskipti héraðslækna, neina tilraun til að gera ákveðnar og afmarkaðar tillögur um aðkallandi lausn þess ara mála. Sú varfærni hefur vafalaust verið höfð til þess að sneiða fram hjá blindskerjum ná grannarígs og afdalamennsku, sem búast má við hjá þing- mönnum og hreppapótintátum, ef færa á embættisskipun lands- ins í tímabært horf. Nú hefur reynslan sýnt á yfir- þyrmandi hátt, að þetta nægir ekki. Enn fjölgar ágætum hér- uðum, sem enginn ungur læknii sækir um, því að þá er sýnilega ekki hægt að kaupa með fé- mútum einum. Þeir vilja breytl og bætt skipulag, ef grein Gísla G. Auðunssonar túlkar viðhori þeirra, sem líklegt má teljast enda þótt þar kenni nokkurs ókunnugleika á starfsskilyrðun héraðslækna. H^pn gerir t.d. allt of mikif úr emangrun þeirra nú orðið. ★ Ég og nágrannalæknar mínii á Hvammstanga og Sauðárkrók fórum t.d. allmargar ferðir ár- lega hvorir öðrum til aðstoðai við meiriháttar aðgerðir, sam- eiginlega fundi í svæðisfélag: okkar, sem tók yfir Strandasýsli Húnavatnssýslu, Skagafjörð o| Siglufjörð. 0 Gísli gerir aftur á móti eki of mikið úr þeim æfingarskor og iðjuleysi í fámennustu héi uðunum, sem hlýtur að leiða t: forpokunar, ef til lengdar læl ur, og alltaf hefur fælt men frá þeim. Hann bendir réttileg á samsteypu fámennra hérað með sameiginlegri læknamið stöð, þar sem starfi a.m.k. þrí læknar, er geti skipt með sé vöktum. Ég tel hann ganga hel ur langt í þessa átt, því að víð megi komast af með tvo lækní ef til vill með læknanema a auki, en í hverju héraði er sjálí

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.