Morgunblaðið - 29.07.1966, Síða 30
Í3U
MORCU N BLAOIO
Fðstudagur 29. júlí 196«
Portúgal í
PortúgElar unnu Sovét 2:1
PORTÚGALIR unnu bronsverðlaunin í Heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu. Unnu Portúgalir í gær lið Sovét með 2:1 í kappleikn-
um um 3. verðlaun keppninnar. Leikurinn var mjög tvísýnn og jafn
og aðeins tveim mínútum fyrir leikslok tókst Portúgölum að skora
sigurmarkið. Var hinn hávaxni miðherji Torrez (194 sm) að verki
með þrumuskoti. sem hinn frækni markvörður Rússa, Jashin, hafði
ekki möguleika á að verja.
Jafn leikur
Leikurinn var allan tímann
jafn og í hálfleik var staðan 1:1.
Leikurinn varð aldrei góður
knattspyrnulega séð. Hvorugu
liðanna tókst að ná upp hinum
rétta baráttuanda og hraðinn í
leiknum varð aldrei mikill. Upp-
hlaupin gengu hægt með þver-
sendingum og í heild var leikur-
inn aldrei skemmtilegur fyrir 70
Jþúsund áhorfendur sem lagt
höfðu leið sína til vallarins.
Flestir áhorfenda glöddust inni-
lega yfir sigri Portúgala, og
fannst fólki Portúgalir eigá
iþriðja sætið skilið eftir hinn
ágæta leik er þeir sýndu gegn
Englendingum á þriðjudaginn.
En enginn hefði getað haft neitt
við það að athuga þó úrslitin
hefðu verið þveröfug. Svo jafn
var leikurinn og svo fátt mark-
vert skeði.
Eusibio færði Portúgal forystu
er hann skoraði úr vítaspyrnu
eftir 12 mín. leik. Kurtsilava
bakvörður Rússa fór höndum um
knöttinn án þess þó nokkur
neyðarvörn væri nauðsynleg.
Vítaspyrnan var augljós og Eus-
ibio skoraði sitt 9. mark í keppn-
inni og er nú nokkuð öruggur
með að hljóta 1000 punda verð-
launin (120 þúsund ísl. kr) sem
veitt eru markhæsta manni
keppninnar.
Mínútu fyrir hlé náðu Sovét-
menn að jafna. Banishevsky
skoraði eftir að markvörður
Portúagia hafði hálfvarið hættu-
lítið skáskot Metrevelis.
Eftir hlé áttu Sovétmenn tæki-
færi til að ná forystu. Sýndu
þeir hættulegri og breytilegri
sóknarleik en Portúgalir og í
vörn voru Rússar áberandi betri.
Veronin elti Eusibio, og leysti
hlutverk sitt vel af hendi, án
ólögmætra aðgerða. Og í heild
var aldrei verulegur broddur í
sókn Portúgala.
Sagt eftir leikinn
— Hinir hörðu og erfiðu leikir
við Ungverja, Brasilíu, Búlgaríu
og Englehdinga hafa haft áhrif
á lið mitt, sagði Gloria þjálfari
Portúgala. Liðið er þreytt, en
það gat þó sýnt jákvæðan leik
allan tímann.
— Sóknarleikur Sovétmanna
var lakari en ég bjóst við, sagði
Gloria. Beztir voru Jashin, Vor-
onin og Metreveli.
Forsvarsmaður Rússa taldi leik
inn miður góðan og kvað síðara
mark Portúgala hafa verið
„ódýrt“.
Eusibio sagði: — Ég vona að
fólkið heima sé ánægt. Enginn
hafði í alvöru spáð okkur þriðja
sæti. Það er ekki svo langt síðan
að við í Benefica töpuðum 1:5
fyrir Manch. Utd í Englandi.
Puskas hinn frægi sá leikinn
og sagði eftirá: Ég varð fyrir
vonbrigðum með sovézka liðið
og sigur Portúgala var verð-
skuldaður. Það skorti nokkuð á
hraðann en liðið sýndi góða
knatttækni.
Akureyringar unnu 5:1
— Höfðu mýmörg fækifæri
Eusibio tárfelldi er Portúgal tapaði fyrir Englandi. I gær var
engin ástæða til að gráta.
AKUREYRINGAR unnu Þrótt í
gærkvöldi með 5 mönrkum gegn
1 í fjörugum og oft skemmtileg-
um leik, þrátt fyrir það að Ak-
ureyringar hefðu yfirburði
lengst af í lciknum. í hálfleik
stóð 2:1 fyrir Akureyri. Akur-
eyringar höfði: mýmörg tækifæri
við mark Þróttar og þar skall
knötturinn í stöngum og dans-
aði á línu — en vildi ekki oftar
en 5 sinnum í markið.
Fréttamanni Mbl. taldist svo
til að Akureyringar hefðu átt 7
opin tækifæri í fyrri hálfleik auk
markanna en Þróttur þrjú auk
marksins á sama tíma. í síðari
hálfleik voru misnotuð tækifær
in hjá Akurevringum 10 talsins
en tvö hjá Þrótti.
f síðari hálfleik var Magnúsi
Jónatanssyni vikið af velli eftir
áminningar og endurtekin gróf
brot en að öðru leyti var leik-
urinn fjörngur, ott skemmtileg-
ur og prúðmannlega leikinn.
Akureyringar áttu öll völd á
vellinum nema í síðari hluta
fyrri hálfleiks. Þá sóttu Þróttar
ar sig um tíma og 10—15 síðustu
mínúturnar var leikurinn ekki ó
jafn — en annars höfðu Akur-
eyringar tögl og hagldir.
Kári Árnason skoraði fyrsta
markið með skaila úr hornspyrnu
á 14. mín.
Þróttur jafnar 10 mín. síðar.
Skoraði Jens Karlsson eftir upp-
hlaup sem í fyrstu virtist hættu-
lítið.
Á 38. mín skoraði Valsteinn
faiiegasta mark leiksins. Spyrnti
hann utan frá kanti föstu og
snöggu skoti sem fór sem raketta
í markið.
Á 4. mín síð. hálfleiks hljóp
steingrímur alla vörn af sér og
skoraði af stutitu færi. Tæpl.
tveim mín síðar skoraði hann
aftur skaut í stöng til vinstri,
þaðan small knötturinn í hinni
stönginni og loks inn fyrir línu.
Á 11 mín skoraði Kári síðasta
markið, lék á alla varnarmenn
og loks á markvörðinn og skor-
aði auðveldlega.
Akureyringar sýndu nú eftir
langa bið sitt gamla eldsriögga
stutta samspil og framherjarnir
voru allir góðir. Þó bar Kári af
á vellinum, sívinnandi og virkur.
Góðan leik áttu og Guðni, sem
þó mistókst vítaspyrna og Sæv-
ar. í heild var lið Akureyrjnga
gott, og hefði verðskuldað stærri
sigur.
Keflvíkingar unnu Val 3-2
— og liðin eru jöfn og efst
KEFLVÍKINGAR hefndu ósig-
ursins fyrir Val á dögunum á
Laugardalsvelli er liðin mættust
í gærkvöldi suður á Njarðvíkur-
velli. Keflvikingar sigruðu með 3
mörkum gegn 2 og nú er aftur
mikil spenna um efsta sætið í 1.
deild, en Valur og Keflavík hafa
nú forystu, bæði með 7 stig.
Valur vann hiutkestið og hóf
leik undan sól og vindi, enda
kom í ljós að lág kvöldsólin og
norðankaldinn voru góðir banda-
menn þess liðsins er lék á syðra
markið á Njarðvikurvellinum.
Liðin skiptust á upphlaupum,
hvorugum aðiia tókst að skapa
verulega hættu eða tækifæri fyrr
en á 13. mín. er Valsmenn áttu
skot í hliðarnet eftir mikla bar-
áttu á vítateig ÍBK.
Tveim mín. sí'ðar hlutu Vals-
menn mark að gjöf fré heima-
mönnunum. Kjartani mistókst
spyrna frá markinu, knötturinn
fór til Hermanns sem skoraði við
stöðuláust með föstu skoti í stöng
og inn.
Við markið færðist mikið fjör
í Valsliðið, sem sótti fast og
reyndi að notfæra sér sólina með
því að spyrna háum boltum að
marki Keflvíkinga, sem flestir
fóru þó framhjá.
Annað mark Vals s-koraði Berg
steinn eftir að hafa fengi'ð knött-
inn út við hliðarlínu, einn leiki'ð
eftir endalínu framhjá hverjum
varnarmanni ÍBK af öðrum og
fyrir mitt markið og fengið ráð-
rúm til að skjóta. Ótrúleg mis-
tök hjá Keflavikurvörninni.
Áhorfendur voru farnir að
búast við að sagan frá leik iið-
anna í Rvík endurtæki sig. En
Keflvíkingar sækja í sig veðrið
og ná góðum upphlaupum. Á
36. mín sækir Jón Óiafur upp
hægra megin gefur vel fyrir til
Grétars Magnússonar, sem spyrn
ir jarðarbolta er rennur milli
Argentínumenn hylitir ssm sigurvegarar
ÞUSUNUIR Argentínumanna
stóðu í úrhellisrigningu á flug
vellinum utan við Buenos
Aires er landslið Argentínu
kom heim frá London. Fólkið
hrópaði af óllum lífs og sálar
kröftum: „Argentína vann,
Argentína vann!“ Fólkið hafði
lagt á sig 40 km ferð til flug-
vallarins, veifaði fánum og
ruddist gegnum lögregluvörð
Ungu stúlkurnnr ráku leik-
mönnunum rembingskossa —
og fólkið hyllti betjurnar sín
ar. Hápunhtur móttökunnar
var er nokkrir menn blésu
upp stóran knött með nafni
Argentínu og átti þetta að
vera tákn hins móralska sig-
urs sem. Argentínumenn þykj
ast hafa unnið á HM.
Forystumcnn knattspyrnu-
raála fögnuðu „hctjunum" og
síðan var ekið með leikmenn
ina til forseta landsins í opin-
bera móttökn. Þar var þcim
þökkuð hetjudáðin í London.
Argenlínumenn segja að
Englendingar og Þjóðverjar
hafi sameiginlega unnið sig
með svikum í úrslitin. Þýzkur
dómari hafi rekið Argentínu-
menn at vclli til að tryggja
sigur Englands og enskur dóm
ari hat'i rekið tvo Uruguay-
menn af velli til að íryggja
sigur Þjóðverja. Og þessu trú
ir fólkið í Argentínu.
Argentínuroenn héldu heim
eftir 1-0 tap fyrir Englandi í
átta liða úrslitum — í ein-
hverjum liótasta leik, sem
sézt hefur í keppninni.
fóta Sig. Dagssonar í netið.
Síðari hálfleikur hófst með
sókn Vals og á 3. mín á Her-
mann gott skot af stuttu færi sem
Kjartan ver.
Keflvíkingar hófu nú harða
sókn, sem endar með skoti
Magnúsar Torfasonar af vítateigs
línu og hafnaði knötturinn í mark
inu — jafntefli 2-2.
Sókninni héldu Keflvíkingar
áfram en ýmist voru spyrnur
þeirra of langar og knötturinn
fór fjarri marki eða Sigurður
varði.
Sigurmarkið kom á 18. mín.
Spyrnt var frá marki Keflavík-
ur langt fram völlinn. Varnar-
maður Vals ætlaði að stöðva
knöttinn rólega en Einar Gunn-
arsson kom þjótandi náði knett-
inum, gaf til Jóns Jóh. sem
skaut viðstöðulaust og skoraði.
Leikurinn gerðist nú nok.íuð
grófur en dómarinn Hannes Sig-
urðsson hafði góð tök á leik-
mönnum og veitti áminningar og
skrifaði menn upp á báða bóga.
Hjá Val áttu beztan leik Her-
mann og Bergsteinn en hjá Kefla
vík framverðirnir Magnús Torfa
son og Einar Magnússon. Einnig
átti Guðni góðan leik. En áber-
andi er hjá báðum liðum of
mikill einleikur.
Áhorfendur voru fjölmargir
sennilega yfir 2000.
I KVÖLD
í KVÖLD fer fram einn leik-
ur í 2. deild á Melavelli, milli
Vikings og Í.B.S. (íþróttabanda-
lag Suðurnesja), og hefst kl. 8.30.