Morgunblaðið - 29.07.1966, Síða 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
nangsiærsiu uy
íjölbreyttasta
blað landsins
Tvö banaslys af völd-
um landbúnaöarvéla
f GÆR og á þriðjudag urðu tvö banaslys. Annað í Ölfusi, þar sem
15 ára gamall drengur varð undir dráttarvél, og hitt á Fáskrúðs-
firði, þar sem 14 ára gainall drengur varð undir rakstrarvél.
Slysið í Ölfusi.
í>að hörmulega slys varð á
bænum Auðsholti í Ölfusi, að 15
ára gamall drengur úr Hafnar-
firði, sem var þar í sveit varð
undir dráttarvél og lézt.
Engir sjónarvottar urðu að
slysinu, sem varð rétt fyrir há-
degið í gærdag og var drengur-
inn látinn, þegar að var komið.
Gerðar voru lífgunartilraunir, en
þær báru ekki árangur. Dreng-
urinn var fluttur á sjúkrahúsið
á Selfossi og þar var lífgunar-
tilraunum haldið áfram og reynt
að gefa súrefni. Sennilegt er að
drengurinn hafi látizt samstund
is.
Slysið á Fáskrúðsfirði
Sá hörmulegi atburðiir gerðist
á bænum Tunguholti í Fáskrúðs-
firði um 5 leytið á þriðjudag, að
Leitinni holdið
ófrnm
SAMKVÆMT upplýsingum
lögreglunnar á Patreksfirði er
leit að Sigurði Theodórssyni,
sem týndist á Barðaströnd ekki
með öllu hætt enn sem komið
er eins og kom fram í tilkynn-
ingu eða frétt í ríkisútvarpinu og
blöðum í gær.
Hefur verið ákveðið að ganga
á fjörur næstu daga og smáhóp-
ar manna fara til leitar í Móru-
dal og nágrenni um óákveðinn
tíma.
14 ára drengur, Gunnar Vil-
hjálmsson varð undir rakstrar-
vél og beið bana.
Gunnar heitinn var að vinna
með raksttarvél, þegar bakki bil
aði undir öðru afturhjóli vél-
arinnar, svo að henni hvolfdi
ofan í skurð, sem var fullur af
vatni. Varð Gunnar heitinn und
ir vélinni og var látinn þegar
hann náðist og hafði þá mikinn
áverka á höfði. Gerðist þetta í
túninu fyrir framan bæinn í
Tunguholti.
Grænmetisverzlunin kærö fyrir
sölu á skemmdum kartöflum
— Krefjast rannsóknar og jafnframt
Jbess oð gerb verði grundvallarbreyting
á innflutningsfyrirkomulaginu
STJÓRN Neytendasamtakanna
bar i gær fram kæru fyrir Sjó-
og verzlunardómi Reykjavíkur á
hendur Grænmetisverzlun land-
búnaðarins vegna verzlunar-
hátta fyrirtækisins hvað snertir
innfluttar kartöflur, undanfarna
Brezku sjómennirnir
fengu 70 þús. kr. sekt
Akureyri, 28. júlí.
RANNSÖKN í máli brezku tog-
arasjómannanna er lokið með
réttarsætt. Þrír Bretanna játuðu
að hafa barið íslending um borð
í togaranum til verulegs skaða
með beltisólum og gengust þeir
undir að greiða samtals 70 þús-
und krónur í sektir, málskostn-
að og bætur.
Tveir sjómenn aðrir, sem riðn
ir voru við spjöll i Sjálfstæðis-
húsinu greiddu 3000 krónur í
skaðaibætur til hússins og dyra-
varðar, auk þess sem þeir
greiddu sektir. Sv. P.
mánuði, en eins og kunnugt er
hefur Grænmetisverzlunin einka
leyfi á innflutningi kartaflna.
Jafnframt því skrifuðu Neyt-
endasamtökin landbúnaðarráðu-
neytinu og fara fram á það að
því fyrirkomulagi verði breytt,
þar sem þau telja að Grænmetis-
verzlunin hafi brugðizt svo skyld
um sínum að ekki verði lengur
við unað.
í kæru Neytendasamtakanna
segir m.a. að kartöflur þær sem
fluttar hafi verið inn síðustu
mánuði hafi veri'ð meira og
minna skemmdar, en verið seld-
ar í lokuðum umbúðum með vill-
andi einkennum. Nú síðast hefðu
hinar innfluttu kartöflur verið
seldar sem fyrsti flokkur, enda
þótt um væri að ræða blöndu af
ætum og óætum, skemmdum og
óskemmdum kartöflum í öllum
hugsanlegum hlutföllum, þannig
að oftsinnis hefði helmingur
þeirra og jafnvel meira verið
stórsikemmdur og að mestu hefði
þurft að fleygja. Ekki væri
skylt að flokka innfluttar kart-
öflur svo sem þyrfti með inn-
lendar, en eigi áð síður hefði
Grænmetisverzlunin selt þær í
umibúðum, sem ætlaðar væru fyr
ir innlendar, flokkaðar kartöflur
og þannig væri ranglega gefið til
kynna að um flokikun hefði verið
að ræða. Grænmetisverzlunin,
d Framhald á bls. 31
I MYNDIN sýnlr hvar unniö eri
að síldarsöltun í söltunarstöð,
1 inni Ströndinni á Seyðisfirði.
Það var Reykjaborg sem kom'
með þessa síld til Seyðisfjarðl
ar af Jan Mayenmiðum, og \
var aflinn isaður um borð,,
sem hafði það í för með sér
að nýting síldarinnar varðl
| mun betri en ella. (
(Ljósm. Bjarni) (
Skipaður
lomaður
æskulýðsráðs
BORGARSTJÓRI hefur skipað
Styrmi Gunnarsson formann
æskulýðsráðs og var það til-
kynnt á fundi borgarráðs sL
þriðjudag.
Fimm í varðhaldi,
átta í farbanni
vegna smyglmálsins úr Skógafossi
Benzín í Sovétríkjunum
skaðlegt fyrir bifreiðir
— segir sovázkur sérfræðingur
POLITÍKEN í Kaupmanna-
höfn hefur það sl. miðviku-
dag eftir sovézkum sérfræð-
ingi að rússneskt benzín og
olíur séu beinlínis skaðleg fyr
ir bifreiðir.
Upplýsingar þessar hefur
Politiken úr sovézkum blöð-
um, sem nýlega birti grein
um málið eftir aðstoðar yfir-
verkfræðing Mozachin að
nafni, við eina stærstu bíla-
smiðju Sovétríkjanna. Hann
segir að benzínið og olíurnar
standist ekki kröfur nútím-
ans og séu beinlínis hættuleg.
Og ekki fær hann séð hvernig
á að vera unnt að aka þeim 5
til sex hundruð þúsund bif-
reiðum, sem samið hefur ver
ið um að Fiat verksmiðjurn-
ar ítölsku. smíði í Sovétríkjun
um.
Mozachin verður um og ó
við tilhugsunina um að í Sov
étríkjunum er notað eingöngu
bezín :neð okteinatölunni 66
— en sá gæðaflokkur nægir
varla til brennslu í úreltum
Vélum og orsakar sótmyndun
og kveikjubank.
— Við verðum að fara yfir
í þann gæðaflokk, sem tíðk-
ast í vestrænum löndum, seg-
ir Mozachin. Þó okteintalan
yrði ekki hækkuð nema í 85,
næmi sparnaðurinn 16,8 mill
jörðum króna innan fimm
ára.
Hann ber heldur ekki sér-
staka virðingu fyrir sovézk-
um srr.urolíum. Hann gagn-
rýnir þær sundur og saman,
og heldur því fram að þær
standi langt að baki öðrum
olíum. Hann gengur jafnvel
svo langt að ráðleggja daglegt
eftirlit með bifreiðunum, ef
þær eiga að endast við þau
olíugæði, sem boðin eru í Sov
Framhald á bls. 31
í GÆRDAG var yfirheyrslum
yfir skipsmönnum á m.s. Skóga
fossi haldið áfram, og sátu enn
fimm menn í varðhaldi vegna
smyglmálsins, en eins og kunn-
ugt er af fréttum komst upp um
stórkostlegt smygl á 2500 vindl-
ingalengjum og 19 kössum af
áfengi, sem 13 skipverjar játuðu
sig eiga hlutdeild í.
Samkvæmt upplýsingum, er
blaðið fékk frá Jóni Abraham
Ólafssyni, rannsóknardómara, en
hann hefur rannsókn málsins
með höndum sitja enn 5 skip-
verjar í varðhaldi, en hinir átta
eru í farbanni. f gær voru tekn-
ar skýrslur af mönnunum .átta,
sem eru í farbanni og kom þá
fram að varningurinn er keypt-
ur í Hamborg. Síðan fór skipið
til Gautaborgar og Kristiansand
og loks til Seyðisfjarðar og Þor-
lákslhafnar, þar sem smyglvarn-
ingnum var skipað upp.
Jón Abraham tjáði blaðinu I
gær að búið væri að gangast
við öllu smyglinu og sagði hann
aðspurður að skipstjórinn hefði
ekki dregizt inn í málið. Yfir-
heyrslum verður haldið áfram
í dag.
Togarinn Akur-
ey til Noregs
TOGARINN Akurey verður seld
ur til Noregs og voru kaupand-
inn og bæjarstjóri Akraness að
ganga frá samningum um söluna
í gær. Þar sem því var ekki lok
ið fengust ekki nánari upplýsing
ar um söluna.
Kaupandinn er Bjarne Bene-
diktsen, útgerðarmaður frá
Tromsþ í Noregi, og mun hann
ætla að gera Akurey út til troll-
veiða og láta hann leggja upp
í Hammerfest.
Akurey AK T7 er stálskip,
byggt í Englandi árið 1947. Tog-
arinn er nú í slippnum í Reykja
vík.