Morgunblaðið - 17.11.1966, Side 1
32 síður
264. tbl. — Fimmtudagur 17. nóvember 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vetrardagur í Reykjavík
Skurðaðgerðirnar á
Johnson tókust vel
Æx/ið i hálsinum góðkynja
Stjórnarkreppan í
Hollandi að leysast?
Bethesda, Maryland, 16. nóv.
AP — NTB.
• Lyndon B. Johnson, Banda-
ríkjaforseti, gekkst nndir tvo
minni háttar uppskurði í dag í
Bethesda sjúkrahúsinu í Mary-
land. Uppskurðirnir tókust báðir
ágæta vei, að sögn lækna forset-
ans, og er búizt við, að hann nái
sér að fullu á fimm til sex vik-
um.
• Fjarlægt var stilkæxli á öðru
raddbandinu í hálsi forsetans ;
og kom í ljós við rannsókn, að
það var góðkynja Jafnframt
var gert að kviðsliti í örinu eftir
gallsteinauppskurðinn, sem gerð
ur var á honum í fyrrahaust.
Forsetinn var á skurðarborð-
inu í u.þ.b. klukkustund. Sex
skurðlæknar sáu um aðgerðirn-
ar, undir forystu dr. Wilbur
Goulds, sem sá um að taka æxl-
ið, og dr. George Hallenbecks,
sem annaðist kviðslitið, en hann
hafði séð um gallsteinaupp-
skurðinn í fyrra. Viðstaddir
voru fimm aðrir sérfræðingar
auk leynilögreglumanna, sem
fylgdust með aðgerðunum,
klæddir hvítum sloppum og
með andlitsgrímur eins og
læknarnir.
Forsetanum var ráðlagt, að
tala ekki eða mjög lítið fyrsta
sólarhringinn og reyna ekki á
raddböndin að óþörfu á næst-
unni. Búizt er við, að hann verði
Framhald á bls. 31.
50 fórust
í iárnbrautarslysi
Rio de Janeiro, 16. nóv.: —-
50 MANNS fórust og 70 særðust
er farþegalest og flutningalest
rákust saman 40 km frá Rio de
Janeiro í Brazilíu í morgun. —
Flestir farþeganna voru verka-
menn á ieið til vinnu frá Rio.
Sjónarvottar segja að flutn-
ingalestin hafi staðið kyrr er far
þegalestin ók á hana. Farþega-
lestin fór af sporinu og reif hlið
ina úr mörgum flutningavögnum
og ultu tveir þeirra.
Myndina tok ljosm. Mbl. 61. K. Magnusson við Tjörnina og þarfnast hún ekki frekari skýringa.
Deilur ísraels og Jórdaníu
ræddar j Úryggisráðinu
New York. 16. nóvember.
— AP — NAB —
BANDARÍKIN og Bretland
fordæmdu aðgerðir ísraels-
manna sl. sunnudag, gegn
Geimfararnir til
Kennedyhöfða.
Cape Kennedy, 16. nóv. —
AP-NTB: —
GEIMFARARNIR Lowell og Al-
drin komu til Kennedyhöfða í
dag flugleiðis frá flugvélamóður
skipinu Wasp, sem tók þá um
borð eftir að geimfar þeirra lenti
á Atlantshafi.
Sögðu þeir við komuna að ferð
in hefði verið stórkostleg þrátt
fyrir smávægileg óhöpp. Lowell,
eem nú hefur alls verið 18 daga
í geimnum þakkaði öllu starfs-
liði á Kennedyhöfða fyrir frá-
bæran undirbúning að ferðinni
©g skipshöfninni á Wasp fyrir
góðar móttökur.
Jórdaníu er Öryggisráð SÞ
ræddi kæru Jórdaníustjórnar
á fundi í dag. Hvatti stjórnin
Öryggisráðið til að hefja að-
gerðir gegn ísrael, sem hefur
virt samþykktir þess að
vettugi.
fsraelsstjórn hefur lýst því yf-
ir, að aðgerðir þessar séu rétt-
lætanlegar mótaðgerðir gegn
hryðjuverkunum sem Jórdaníu-
menn hafi hvað eftir annað unn-
ið á landamærum landanna.
f árásunum sem fsraelsmenn
gerðu á þrjú landamæraþorp í
Jórdaníu biðu 20 manns bana að
sögn fuíltrúa Jórdaníu. .
Fulltrúi ísraels sag'ði að að-
gerðirnar hefðu verið smávægi-
legar og aðeins til þeirra gripið
sem síðasta ráðsins gegn hryðju-
verkum Jórdaníumanna.
Fulltrúi Breta sagði að aðgerð-
ir ísraelsmanna hefðu verið vand
lega skipulagðar og væru þær
gróft brot á vopnahléssamningn-
um milli ísraels og Jórdaníu.
Slíkar aðgerðir hefðu í för með
sér aukna hættu á að til enn
meiri átaka kynni að draga milli
landanna. ísraelsstjórn bæri á-
Framhald á bls. 2
Hag, 16. nóv. — NTB:
JÚLÍANA Hollandsdrottning fól
í kvöld Jelle Zijlstra fyrrum fjár
málaráðherra að gera tilraun til
stjórnarmvndunar í Hollandi.
Drottningin hafði áður falið
Beel aðstoðarforsætisráðherra að
gera tilraun til stjórnarmyndun
ar, en hann varð að gefast upp.
Zijlstra sem er 47 ára að aldri
hefur fengið loforð um samvinnu
af hálfu Kaþólskra og gagnbylt-
ingarflokksins og loforð um
stuðning Frjálslyndra og Sögu-
lega Kristilega flokksins, en Sós
íalistar, sem tóku þátt í stjórnar
samvinnu Cals fyrrv. forsætis-
ráðherra, virðast vera ákveðnir
í að vera í stjórnarandstöðu.
Stjórnmálafréttaritarar í Hol-
landi segja að útlit sé nú fyrir
að unnt reynist að leysa stjórn
arkreppuna, sem nú hefur stað-
ið í mánuð.
Edward Heath til íslands
Kemur í boði Blaðamannafélagsins og
verður heiðursgestur á Pressuballinu
EDWARD HEATH, leiðtogi
brezka thaldsflokksins og for-
ystumaður stjórnarandstöð-
unnar í Bretlandi kemur til
tslands i marzmánuði næsta
ár í boði Blaðamannafélags
Íslands, og situr Pressuball
félagsins.
Stjórn Blaðamannafélagsins
hóf í sumar undirbúning
næsta Pressuballs og var
snemma leitað til Edwards
Heath. i gær barst Tómasi
Karlssyni, formanni félagsins,
bréf frá hinum brezka stjórn-
málamanni, þar sem hann
þiggur og þakkar boðið til ís-
lands.
Það er mikill sómi sem
þ e s s i mikilsmetni brezki
stjórnmálamaður sýnir Blaða-
mannafélaginu — og raunar
íslendingum, með því að
þiggja boð um að vera heið-
ursgestur á Pressuballinu.
Edward Heath mun koma
hingað um miðnætti aðfara-
nótt 17. marz næsta ár og
væntanlega verður Pressu-
ballið haldið föstudaginn 17.
marz.