Morgunblaðið - 17.11.1966, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. nóv. 1966
Bretar ræða um
inngöngu í
I DAG hófust í neðri málstofu
brezka þingsins tveggja daga um
(ræður um inngöngu Breta í
Efnahagsbandalag Evrópu. Georg
Brown utanríkisráðherra flutti
fyrstu ræðuna. Sagði hann að
Bretar myndu ekki hvika frá
stöðu sinni í heiminum né varnar
samböndum sínum við Banda-
rikjamenu, þótt þeir nú sæktu
um inngöngu í EEC. Hann sagð
ist álita að löndin sex myndu
þrátt fyrir þetta vera reiðubúin
til viðræðna við Breta.
Brown nefndi ekki Frakkland
sérstaklega í þessu sambandi, en
álitið er að ástæðan fyrir við-
ræðuslitum Frakka 1963 hafi ver
ið samningurinn sem Bretar og
Bandaríkjamenn gerðu með sér
í Nassau sama ár, er Bretar fengu
yfirráðarétt yfir Polariseldflaug
um. Brown sagði að varnir Ev-
rópu krefðust þess að Banda-
ríkjamenn ættu þar hlut að máli.
Stjórnmálafréttaritarar í Lond
— Deilur
Framhald af bls. 1.
byrgðina og bæri að íoraæma að
gerðir hennar.
Goldberg, sendiherra Banda-
ríkianna hjá SÞ, sagði að aðgerð-
ir Israels væru algerlega ófyrir-
gefanlegar og miklu alvarfegri
en öll hryðjuverk sem það hefur
kært. Að þessum ræðum lokn-
um var fundum ráðsins frestáð
um stund ti'l þess að fulltrúarnir
gætu ræðst við einslega sín á
milli.
Ag hálfu Bandaríkjamanna er
lögð mikil áherzla á að ráðið
taki afstöðu til málsins sem
fyrst
on telja að ræðu Browns verði
ekki vel tekið í París, en hún
er stuðningur við yfirlýsingu
Wilsons um Evrópumálin nú fyr
ir skömmu. Brown drap einnig á
hina umdeildu spurhingu um þró
un stjórnmála í löndum EEC.
Stjórnmálafréttaritararnir segja
að Brown hafi í ræðu sinni vilj
að leggja áherzlu á hlutleysi
Breta í deilum Frakklands og ann
arra aðildaríkja EEC. — Hann
sagði í lok ræðu sinnar að hann
og Wilson myndu bráðlega fara
í heimsókn til aðildaríkjanna, eða
strax eftir EFTA fundinn sem
haldinn verður í London 5. des.
nk.
Talið að miði í átt til
stiórnarsamvinnu Willy
Brandts og Erichs Mende
Bonn, 16. nóv. - NTB.
WILLY BRANDT, leiðtogi sósíal-
demókrati í V-Þýzkalandi og Er-
ich Mende, leiðtogi Frjálsra
demókrata, ræddust við í dag,
um stjórnarkreppuna í Bonn og
hugsanlegt stjórnarsamstarf
þeirra. Er talið, að þeir færist æ
nær því að taka saman höndum
og mynda stjórn, en sameinaðir
mundu flokkarnir hafa sex at-
kvæða meirihluta á Sambands-
þinginu í Bonn.
Frjálsir demókratar hafa lagt
fram stefnuyfirlýsingu, sem í
mörgum atriðum svipar til
ísland fékk aðeins hálfan
vinning gegn A-Þjóðv.
Heldur hallar nú undan fæti |
hjá íslendingum á olympíuskák
Auglýseifidur
afhugið!
Auglýsingaskrifstofan er
opin frá kl. 9 f.h. til kL
S e.h. virka daga, nema
laugardaga frá kl. 9—12.
—★—
Handrit að auglýsingum
þurt'a að hafa borizt aug-
lýsingaskrifstofunni fyrir
hádegi DAGINN ÁÐUR
en þær eiga að birtast.
—★—
Handrit að STÓRUM
AUGLÝSINGUM. sem
birtast eiga í SUNNU-
DAGSBLAÐI þurfa að
hafa boriz* auglýsinga-
skrifstofunni FYRIR KL.
5 Á FIMMTUDEGI, en
handrit að smærri aug
lýsingum í síðasta lagi
kl. 4 á föstudögum.
Myndamót þurfa að
fylgjí* auglýsinga.iandriti.
ef mynd á að birtast í
auglýsingu. — Við get-
um séð um að láta gera
hvers konar myndamát
með etuttum fy.Lvara.
—★—
mótinu á Kúbu. f tíundu umferð
tapaði ísland fyrir A-Þjúðverj-
um, íengu aðeins Vi vinning
gegn 3'zá. Friðrik tapaði fyrir
Uhlmann, Guðmundur Pálmason
tapaði fyrir Pietzsch, Gunnar
gerði jafntefli við Malich og Guð
mundur Sigurjónsson tapaði fyr
ir Zinn.
Viðureign annarra landa lykt-
aði þannig að Tékkar unnu Rúm
ena með 3 vinningum gegn 1,
Argentína vann Kúbu með ZVi
gegn Vt vinning Rússar unnu
Norðmenn á öllum borðum, Ung
verjar unnu Spánverja með 3%
gegn Vi, Bandaríkin og Búlga-
ría skildu jöfn með tvo vinn-
inga hvor og Júgóslavar unnu
Dani með 3 vinningum gegn 1.
1 11. umferð tefla íslendingar
við Ungverja.
Staðan eftir 10 umferðir er
þannig:
1. Sovétríkin 30y2
2. Bandaríkín 27
3. —4. Júgóslavía 25M>
3.—4. Ungverjar 25%
5. Argentína 23%
6. Tékkóslóvakía 23
7. Búlgaría 22%
8. Rúmenía 20y2
9. A-Þýzkaland 18%
10. Danmörk 15%
11. ísland 14%
12. Spánn 14
13. Noregur 10%
14! Kúba 9
stefnu Sósíaldemókrata, m. a.
virðast stefnumið flokkanna í
utanríkismálum og að því er
varðar samskipti Austur- og
Vestur-Þýzkalands einkar svip-
uð.
Leiðtogarnir vildu ekkert segja
fréttamönnum um árangur af
viðræðum þeirra í dag. Erich
Mende sagði aðeins, að Frjálsir
demókratar væru opnir fyrir
stjórnarsamvinnu við hvorn
flokkinn sem vjeri, Sósíaldemó-
krata eða Kristilega demókrata,
með vissum skilyrðum.
Vitað er, að margir helztu for-
ystumenn Krisilegra eru andvíg-
ir stefnu Frjálsra demókrata í
mörgum málum. Einkum mun
andstaðan hörð meðal systur-
flokksins í Bayern, Kristilegra
sósíalista.
Talið er víst, að stjórnarmynd-
un í Þýzkalandi muni taka lang-
an tíma, í dag var jafnvel látið
að því liggja, að vart væri að
vænta úrslita fyrr en um 10.
desember nk.
Enn er rætt um, að Kristilegir
demókratar og Sósíaldemókratar
myndi stjórn saman, en því mun
margt til fyrirstöðu sem áður, —
einkum er Frans Josef Strauss,
fyrrum landvarnaráðherra og
leiðtogi flokksins í Bayern sagð-
ur þröskuldur í vegi slíks sam-
starfs. Er talið ólíklegt, að Kristi-
legir demókratar geti neitað hon-
um um sæti í ríkisstjórn, sem
flokkurinn ætti aðild að, — og
jafn ólíklegt, að Sósíaldemókrat-
ar vilji samþykkja aðild hans að
stjórn, er þeir taki þátt í. Sama
mun reyndar um Erich Mende og
hans menn að segja, þeir vilja
helzt ekki starfa með Strauss.
Á fimmtudag er fyrirhugaður
nýr fundur þeirra Kurts Georgs
Kiesingers, kanslaraefnis Kristi-
legra demókrata og Erichs Mend-
Sl. sunnudag hrundi brú
nokkur á þjóðveginum milli
Antverpen og Liege. 7 bílar
steyptust í ána og biðu 2 menn
bana en 16 særðust. Myndin
sýnir vegsummerkin.
Leysist vinnudeil-
an við Búrfell
dag?
KL. 20 í gærkvöldi var haldlnn
fundur á vinnustaðnum við Búr-
fell með starfsmönnum Fosskraft
og forustumönnum verkalýðsfé-
laga og sambandanna, sem að
samningunum stóðu í vinnude.i-
unni við Búrfell.
Framkvæmdanefnd Vinnuveit-
endasambandsins lagði samkomu
lagið fyrir vinnuveitendur í
Reykjavík í gær og mælti með
samkomulaginu við þá. Fór síð-
an fram lokuð og leynileg at-
kvæðagreiðsla og verða atkvæði
talin í kvöld.
Niðurstöður beggja fundanna
verða birtar samtímis, en þær
átti fyrst að kunngera í morgun.
Finnsk ráðherra
nefnd I Moskvu
Böeíng varð fyrír v&Sinia
New York, 16. nóv. — AP.:
BANDARÍSKA blaðið „The
Wall Street Journal" skýrði frá
því í dag, að bandaríska flug-
málastjórnin hefði ákveðið að
i fela Boeingflugvélaverksmiðjun-
um að smíða fyrstu bandarísku
1 farþegaþotuna, sem fljúgi hrað-
ar en hljóðið.
Aðalkeppinautur Boeing var
Lockheed, sem fékk aðeins nokkr
um atkvæðum færra. Ákvörðun
SpibkvöSJ
öýrfirfíingEkél.
Dýrfirðingafélagið í Reykja-
vík heidur spilakvöld í kvöld í
átthagasal Hótel Sögu. Hefst það
kl. 8,30.
Allir Dýrfirðingar og gestir
velK.omIia-.
in var tekin eftir að rætt hafði
verið við forstjóra 10 innlendra
og 20 erlendra flugfélaga, sem
taldir eru væntanlegir kaupend-
ur.
Segir blaðið að bandaríska
flugmálastjórnin segi að áætlun
in muni standast, en ýmsir hátt-
settir embættismenn segja að
ekki sé ólíklegt að löng töf verði
j á framkvæmdum vegna mikilla
anna við smíði hergagna til styrj
aldarnotkunnar í Víetnam.
DJÚPA lægðin suðvestur af
Hvarfi var á hreyfingu norð-
austur eftir, og leit helzt út
fyrir snjókomu og suðvestan-
kalda um suðvesturhluta
landsins fyrir hádegi í dag,
en rigningu, þegar líður á dag
inn. —
í gær var N-gola eða kaldi
og frost um allt land, víðast
6-10 stig, og á Hveravöllum
16 stig um nónbilið. Sunnan
og vestan lands var léttskýj-
að, en víða él fyrir norðan.
Moskvu, 15. nóv. NTB.
9 RAFAEL Paasio, forsætis-
ráðherra Finnlands og fleíri
ráðherrar finnsku stjórnarinnar,
komu í morgun til Moskvu í
opinbera heimsókn, Dveljast þeir
þar í nokkra daga en halda síð-
an til Leningrad, þar sem þeir
verða í þrjá daga áður en þeir
fara heimleiðis aftur.
Alexei Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, tók á moti
gestunum á flugvellinum. í
ræðu sem hann hélt í miðdegis-
verðarboði, er þeim var haldið
lýsti hann enn á ný stuðningi
við þá hugmynd Uhro Kekkon-
ens, forseta Finnlands, að geia
Norðurlönd að kjarnorkuvopna-
lausu svæði. Kvaðst Kosy; m
telja þessa hugmynd Kekkonens
mjög mikils virði.
í för með Paasio eru þeir Athi
Karjalainen, utanríkisráðhe; ra
og Aarre Simonen, iðnaðarmáia-
ráðherra. Fréttamenn telja, að
heimsókn þessi marki nýtt skeið
í samskiptum Sovétríkjanna og
Finnlands. Skammt er um liðið
frá því fjölmenn sendinefnd so-
vézkra kommúnista Var í Finn-
landi undir forsæti Mikhails
Suslovs helzta hugmyndafræð-
ings kommúnistaflokksins. Á
það er einnig bent, að Paasio
er sósialdemokrati — en Sovét-
stjórnin var lengst af andvíg því
að sósíaldemókrtar fengju á
hendi stjórnarforystu í Binn-
landi.