Morgunblaðið - 30.12.1966, Qupperneq 16
16
MORCUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 30. des. 1966
SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA:
Stórglæsilegur jólafagnaður
Heimdallarfélaga í MR
1 fyrrakvöld efndu Heimdall
arfélagar í Menntaskólanum í
Reykjavík til jólafagnaöar í
Félagsheimili Heimdallar. Fagn-
aðinn sóttu nokkuð á annað
hundrað menntaskólanemar.
Jón Magnússon formaður und
irbúningsnefndar setti fagnaó-
inn og bauð gesti velkomna.
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, sagði frá skóla-
árum sínum í Menntaskólanum
þ. e. árunum 1920—1926. Sigurð
ur Rúnar Jónsson lék á fiðlu
við undirleik Halldórs Jónssonar
Flutti hann með öðru frum-
samið tónverk, sem heitir: Þegar
amma sagði afa brandara. Jónas
og Júlíus skemmtu með margvís
legu spaugi.
Þá flutti Guðsteinn Guðmunds
son frumsamin l'jóð. Kristín Sig-
urðsson las smellnar ritsmiðar
úr gömlum skólablöðum og Sig
urður Arnalds las minningar úr
Lærða skólanum eftir Einar H.
Kvaran.
Að loknum þessum dagskrár-
atriðum var gengið til borðs og
gæddu gestir sér á meðlæti, er
menntaskólastúlkurnar lögðu tLL
Ljósm. tók Árni Ól. Lárusson, menntaskólanemi.
Loks Iék hljómsveit 6. bekkjar
fyrir dansi fram eftir nóttu.
Níu manna nefnd menntaskól
anema undirbjó og stjórnaði fagn
aðinum. 1 henni voru:
Jón Magnússon, form. Árni Ól.
Lárusson, Bessí Jóhannsdóttir,
Júlíana Lárusdóttir, Óli Hilmar
Jónsson, M. H. en nokkrum
Heimdallarfélögum í M. H. var
boðið til fagnaðarins, Sjöfn
Magnúsdóttir, Sveinn Þorgríms-
son, Ágúst Einarsson, Vilhemína I
Dr. Bjarnl Benediktsson
! Ólafsdóttir sem jafnframt var
kynnir kvöldsins.
Jólafagnaður Heimdallarfélaga
í M. R. einkenndist af glæsibrag
og prúðmennsku og var mennta
skólanemum til hins mesta sóma
í hvívetna.
Guðsteinn Guðmundsson.
Hljómsveit 6. bekkjar talið frá vinstri: Oddur Eiriksson, Guð-
mundur H. Jónsson, Kristján Ingvarsson, Smári Ólason, Jón Jón-
asson og Magnús S. Magnússon (trommur).
Jónas og Júlíus.
Sigurður Rúnar Jónsson, (fiðla),
og Halidór Jónsson.
Sigurður Arnalds.