Morgunblaðið - 08.01.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.01.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1967. % Viögerð á Herðubreið lýkur í næsta mánuði í VTÐTALI, sem Mbl. átti við framkvæmdastjóra Skipaútgerð- ar ríkisins í gær kom það fram að viðgerð á Her'ðuibreið er nú því sem næst hálfnuð. Skipið hefur verið í slipp og er enn og ætlunin að það hefði aftur strand ferðasiglingar að lokinni við- gerð. Skemmdir á skipimu voru að gat mi'kið var á botni þess að aftan og einnig komst sjór í vél- ar þess. Hafizt var handia um að hreinsa sjó úr vélunum strax og skipið kom til Reykjavúkur og hefur rafkerfi skipsins verið í Lagi sfðan. Viðgerð á Susönnu Reith að Ijúka Björgun hf hefur fengiÖ nýtf athafnasvæði í Elliðavogi SUSANNA REITH, skipið, sem strandaði á Raufarhöfn á síð- astliðnu ári og Björgun h.f. bjargaði í tveimur hlutum, er nú í Glasgow, þar sem farið hef- ur fram á skipinu gagnger við- gerð og það lengt í fulla stærð aftur. Samkvæmt upplýsingum Krist ins Guðbrandssonar, forstjóra Björgunar h.f. vonast félagið til að skipið geti komið til lands- ins um næstu mánaðamót, en lokið er viðgerð á því, en eftir er að setja á það krana. Ætlun félagsins er að nota skipið til malar- og sandflutninga bæði í Reykjavík og úti á landi. Hef- ur reynzt tímafrekt verk að út- vega hentugan krana á skipið og bíður það í Glasgow. Björgun h.f. hefur nú fengið úthlutað í Elliðavogi athafna- svæði næzt fyrir innan svæði það, sem Sementsverksmiðjan hefur þegar hafið framkvæmdir á. Er ætlun félagsins að fylla upp undir svæðið, en það er nú í sjó. Stærð svæðisins verður um 4 hektarar. Mun þar fara fram sala á möl bygginga- og fyiling arefnum. I>á sagði Kristinn, að ekki hefði enn verið ákveðið hvað Susanna yrði kölluð í framtíð- inni, en ákveðið hefði verið að gefa henni íslenzkt nafn. Liðsauki lögreglunnar í Reykjavik réði úrslitum Á ÞRETTÁNDANUM ætluðu nokkrir hafnfirzkir unglingar að vera með ærsl og reyndu að flytja bifreiðar, sem stóðu mann lausar á Strandgötunni út á göt- una. Ennfremur sprengdu þeir heimatilbúnar sprengjur, en lög- reglan kom í veg fyrir að nokk- uð slys hlytist af, handtók ungl- ingana og flutti í einn skóla bæj arins. I’oreldrar unglinganna voru síðan látnir sækja þá í skólann, en á undanförnum árum hefur borið töluvert á skrílslátum þennan dag. Samkvæmt upplýs ingum lögreglunnar í Hafnar- firði liefur aldrei verið tekið hart á þessu fyrr en nú, að lög- regian íékk liðsauka frá Reykja- vik, 8 lögregluþjóna undir for- ustu Guðmundar Hermannssonar og gekk allt lögregluliðið vask- ir ólátunum. lega íram og stemmdi stigu fyr- Fyrsfa leikritinu sjónvarpað í dag ÞÁTTUR barnanna í sjónvarp- inu, Stundin okkar, verður eftir- leiðis reglulega í sjónvarpinu á sunnudögum, og verður þeim fyrsta sjónvarpað í dag. Meðal efnis sem verður í þeim þætti er leikritið Tcbías tréálfur, sem Hin rik Bjarnason, umsjónarmaður þáttarins, hefur sami'ð, og er þetta fyrsta leikritið sem sjón- varpað er í íslenzka sjónvarp- inu. Leikendur eru allt saman börn. HÁÞRÝSTISVÆÐI mikið var Grímsstöðum, en 12 á Raufar- í gær yfir íslandi og Græn- höfn. Er því hætt við, að landi, og veðrið var stillt og lagnaðarís fari að myndast bjart um allt landið. Frostið þar í fjörðum. — Á Græn- var því allhart, einkum til landi voru hins vegar mikil landsins, 10 stig á Þingvöll- hlýindi, 12 stiga hiti í Bratta- um, 11 á Hveravöllum og hlíð. Myndin sýnir verkakonu í Kalkútta á Indlandi fá sinn vikulega hveitiskammt hinn 28. desem- ber eftir að ríkisstjórnin lét þau boð út ganga, að hrísgrjónabirgðir væru gjörsamlega á þrot um. í staðinn fyrir hrísgrjónin var gefinn minni hveitiskammtur, sem nú er aðalfæðutegund 6 milljón manna í Kalkútta. (AP-símamynd). Ríkisskip vill leigja Blikur 3 mán. í viðbót Uniiið að teikningu og úflioðslýsingu tveggja nýrra strandferðaskipa f APRÍL rennur út leigutimi Blikur, færeyska skipsins, sem verið hefur í leigu Skipaútgerð- ar ríkisins í vetur og anniazt strandferðir á vegum útgerðar- innar. Guðjón Teitsson, framkvæmda stjóri Ríkisskips, tjáði Mbl., að útgerðin hefði sótt um framleng- ingu á leigutímanum um þrjá mánuði, en eigendur skipsins ihaía hinsvegar mun meiri áhuga á að selja skipið en leigja. Aðspurðiur um það, hvort ekki kæmi til greina að Ríkisskip keypti skipið, sagði Guðjón. áð skipið hefði reynzt óvenjiu gott, en hins vegar væru að'allega þrjú atriði, sem stæðu í veginum fyr- ir kaupum á skipinu. Þau væru, að hentugra væri að hafa bóg- SVO sem bifreiðaeigendur í Reykjavík og nágrenni hafa orð- ið varir við hafa götur í borg- inni skemmzt mjög í vetur og myndazt hafa slæmar holur í malbik gatnanna. Mibl. hafði tal af gatnagerðar- stjóra Reykjavíkurborgar Inga Magnússyni og spurði hann um skemmdir þessar. Ingi sagði að mestar skemmdir hefðu orðið á Laugavegi milli Höfðatúns og Kringlumýrarbrautar, á Lang- holtsvegi og á Suðurnesjavegi. Fundur um fjár- hagsáætlun Akurcyrar SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Akur- eyrar boðar til fundar um fjár- hagsáætlun Akureyrar árið 1967 í Sjálfstæðishúsinu uppi á morgun, mánudag, kl. 20. Árni Jónsson, bæjarfulltrúi, er frummælandi á fundinum. Fundurinn er opinn öliu Sjálfstæðisfólki. skrúfu á strandferðaskipum til tþess að auðvelda að og frásigl- ingu við bryggjur, einnig væri frystirúm skipsins ófullnægj- andi og í þriðja lagi vantaði 'hliðarlista til þess að verja þa'ð 'fyrir skemmdum við bryggjur Og bólvirki. Kostnaður við breytingar á skipinu væru of miklar, þegar ■tekið er tillit til að kaupia þarf skipið fullu verði af eigendum. Á Blikur eru hins vegar góð lest- unartæki, þokkalegt og gott far- þegarými og lestar skipsins eru ágætar. Skipaútgerð ríkisins vinnur nú að undinbúningi að teikningu og útboðslýsingu tveggja nýrra strandferðiaskipa til vöruflutn- inga. Sagði Guðjón að vonast Sett hefur verið í gang minni malbikunarstöð borgarinnar og hafizt handa um að fylla í hol- urnar, en erfitt er að gera við skemmdir þessar til hlítar fyrr en hlýnar í veðri og sagði Ingl að varanlegar viðgerðir hæfust ekki fyrr en í fyrsta lagi í maí. Skemmdirnar stafa aðallega af mikilli umhleypingatíð og einn- ig fer keðjuakstur mjög illa með göturnar. Naglahjólbarðar skemma og mjög göturnar, því að notkunartími þeirra er mun lengri en keðjanna. Tiiraunir sem gerðar hefðu verið í Banda- ríkjunum og Kanada sýna það að slit er mjög mikið á vegum vegna keðja og nagla. Reyndi að rta sér í FYRRINÓTT reyndi stúlka að fara sér með því að kasta sér í sjóinn skammt vestan við Klöpp á Skúlagötu. Lögreglan brá skjótt við og náði konunni, flutti hana á Slysavarðstofuna, þar sem hún jafnaði sig brátt. væri til a'ð unnt yrði að leita tilboða í skipasmiíðarnar síðar á þessum vetrL Skip þessi yrðu um 1000 brúttólestir með álíka burðargetu og Blikur. | Frumsýnin" ! í Lindarbæ ■ ■ : í KVÖLD, sunnudaginn 8. ;i ■ janúar, frumsýnir Þjóðleik- ;l : húsið tvo einþáttunga eftir ij ■ Matthías Johannessen, á litla •! ; sviðinu í Lindarbæ. Leikritin I; j eru Eins og þér sáið... og ;' ; Jón gamli. Þetta er í fyrsta : ■ sinn, sem leikrit eftir Matt- ;j ■ hías er sýnt á leiksviði. Leik- j : stjóri er Benedikt Árnason, en ;| ■ aðalleikendur eru Valur Gísla *| j son, Lárus Pálsson og Gísli ;J ■ Alfreðsson. Leikmyndir eru \ ; gerðar af Lárusi Ingólifssyni. I ■ Myndin er af Vali Gíslasyni. ■ Malbikun gatna hafin vegna skemmda m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.