Morgunblaðið - 17.01.1967, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1967.
Tvœr bílveltur -
tveir árekstrar
ANNRÍKT var hjá lögreglunni í
Hafnarfirði í gær. Tveir bílar
ultu út af Reykjanesbraut í
hálku í gærmorgun, annar í
Kapelluhrauni, hinn fyrir sunn-
an tollheimtuskýlið. Ekki urðu
meiðsli á mönnum, en bílarnir
skemmdust talsvert.
í>á urðu tveir árekstrar í Hafn
arfirði í gær, annar kl. 9.30 á
mótum Reykjavíkurvegar og
Hellisgötu, en hinn í gærkvöldi
á mótum Hafnarfjarðarvegar og
Vífilstaðavegar. Ekiki urðu
meiðsli á mönnum og litiar
skemmdir á bílunum.
CÞá verður lögreglan að hafa
vakt frá kL 7 til 22 á mótum
Reykjanesbrautar og Hringbraut
ar, því umferð hefur verið stöðv
uð á kafla Reykjanesbrautar í
í Hafnarfirði, þar sem nú er haf
inn undirbúningur að steypu og
gangna undir brautina fyrir veg
farendur.
Verða bílar að beygja út á
Hringbraut og aka upp Öldugötu
og þar inn á Reykjanestoraut aft
ur.
Bírœfið banka-
rán á Ítalíu
Turin, Ítalíu, 16. jan.
MTT bffæfnasta bankarán,
■em um getur í annálum lög-
jpeglunnar á Ítalíu var fram-
10 í dag. Skutu bankaræningj
-arnir einn mann til bana og
böfðu á brott með sér þrjá
gísla og rændu tvo banka á
sama klukkutímanum.
Ránið frömdu grímuklæddir
menn vopnaðir vélbysisum og
gkammbyssum. Þeir höfðu sam-
tals upp úr krafsinu um 400.000
krónúr. Fyrri bankinn er þeir
rændu var í smábænum Cirie í
grennd við Turin. Þar létu þeir
M) viðskiptavini og 12 starfs-
œenn bankans leggjast á gólfið
meðan einn þeirra lét greipar
sópa um hirzlur gjaldkerans.
Lækni þorpsins, sem stakk
höndinni í vasann eftir veski
sínu, skutu þeir samstundis til
bana. í bankanum tóku þeir þrjá
gísla og óku til Alpignano í 20
km. fjarlægð og rændu þar
annan banka. I>ar skildu þeir
eftir tvo gíslana en höfðu með
aér 18 ára gamla stúlku, Mariella
Farinella. Henni fleygðu þeir út
6r bílnum skammt fyrir utan
" beeinn. Nokkrir sjónarvottar
bil
segja, að þeir hefðu ekið
sínum inn í geymslurúm vöru-
flutningabifreiðar, sem beið
þeirra fyrir utan Alpigntano.
Ránsmennirnir hafa enn ekki
fundizt.
Þessa ljósmynd tók ljósmyndari Mbl. á Selfossi, Tómas Jónsson, fyrir hádegi í gær. Vatnsbora
árinnar var þá að gizka 4 metrum hærra en venjulega og fór hækkandi eftir þvi sem leið á
daginn. Jakaburður var mjög mikill. Eins og sjá má er vatnsborðið ekki langt frá brúargóif
inu og í gærkvöldi var hætta á að fljóta færi að Tryggvaskáia,
— Vegaskemmdir
Framhald af bls. 28
vegurinn lokaður þar um og
einnig austan árinnar við ána
®Klifandi, sem er rétt vestan við
Pétursey. Þaðan er vegurinn tal
inn illfær á Mýrdalssandi í Ár-
nessýslu allri er ástand vega yfir
leitt slæmt og á Suðurlandi er
varla nokkur vegur sem ekki
hefur laskazt.
IJIWPJIU Jl Wf IWWWPWWWR
Maður á vöðlum fer
fjarska má sjá bíla,
yfir Ferjukotssíki til að kanna aðstæður. Hægra
sem bíða handan sikisins, á norðurieið.
megin á myndinni í
Rúml. 17 millj. hefur verið
varið til Hallgrímskirkju
IAMKVÆMT upplýsingum Her-
manns Þorsteinssonar, gjaldkera
byggingarnefndar Hallgríms-
kirkju hefur rúmlega 17 milljón-
un króna verið varið til bygg-
tngar, en áætlað var 1963 að hún
kostaðt fullgerð 41,6 milljónir
krona. \
Hermann skýrði Morgunblað-
"tnu frá því, að nú væri unnið
við turninn, bæði úti og inni, en
grunnur hans væri 500—600 fer-
metrar. í nyðri álmu fyrstu turn
hæðar væri verið að ljúka við
•afnaðarheimili. í desembermán
uði hefði díakonissa safnaðarins
byrjað að nota safnaðarheimil-
Ið til föndurkennslu fyrir yngstu
börnin. í nyrðri álmunni væri
•innig salur, sem m. a. væri ætl-
aður til kennslu fermingarbarna
og fundi safnaðarfélaganna. Við
hann væri lítið eldhús, skrifstof-
ur presta yrðu og í álmunni og
bækistöð Hins íslenzka biblíu-
félags, svo og herbergi kirkju-
varðar, snyrtiherbergi og fata-
geymsla.
LOFTÁRÁSIR
Saigon, 16. jan. NTB.
Bandarískar sprengjuflugvél
ar gerðu í dag loftárás á olíu
stöðvar í nánd við Hanoi í
fyrsta sinn frá 15. des. s.I. Sam
timis réðust orrustuþotur af
gerðinni Thundercv'ief á eid-
flaugastöðvar um km. frá
borginni.
„f syðri álmunni er búið að
múrhúða og þar er hiti kom-
inn“, sagði Hermann, ,en þar
verður einn salur, sem ætlaður
er fyrir kapellu kirkjunnar í
framtíðinnL“
Hermann sagði, að mikið hús-
rými væri í sjálfum turninum
og yrði það í tengslum við safn-
aðarheimilið og kapelluna.
Hann sagði, að í síðustu viku
hefði verið steypt þriðja hæð
turnsins, sem væri nú orðinn
31.5 metrar á hæð. Turninn yrði
45 metrar, en 74.5 metrar á hæð
með spíru og krossL
„Fyrir rúmum þrem árum, eða
1963, var gerð framkvæmda- og
kostnaðaráætlun við kirkju-
smíðina,“ sagði Hermann. „Var
þá miðað við að hún verði full-
gerð árið 1974 á 300 ára dánar-
dægri síra Hallgríms Pétursson-
ar og 1100 ára afmæli fslands-
byggðar. Þessi áætlun var gerð
með tilliti til þess, að hæfilegur
hraði yrði á framkvæmdum.
Áætlunin hefur staðizt í aðal-
atriðum,“ bætti hann við.
Þá sagði Hermann Þorsteins-
son, að áframhald framkvæmda
færi eftir fjármagninu. Sam-
kvæmt áætluninni frá 1963 væri
talið, að heildarbyggingarkostn-
aður yrði 41,6 milljónir króna,
miðað við þáverandi verðlag. í
árslok 1965 hefði 12,2 milljón-
um króna verið varið til smíð-
innar og líklega hefði verið unnið
fyrir rúmar 4 milljónir árið
1966.
Byggingarframkvæmdir við
Hallgrímskirkju hófust árið 1945
að sögn Hermanns, og var kapell-
an tekin í notkun 1958. En þá
var hlé á framkvæmduin til 1955
eða 1956.
Loks kvað Hermann Þorsteins-
son byggingarnefnd og safnaðar
stjórn bjartsýna á áframhaldið,
enda væntu menn stuðnings frá
einstaklingum um land ailt, rík-
isstjórn og höfuðborg.
Er Mbl. hafði samband við lög-
regluna ú Selfossi í gærkvöldi
var áin rétt að segja farin að
flæða upp á bílþvottaplan vest-
an Ölfusárbrúar og var þá sagt,
að flóðið í ánni væri ekki í rén-
un. Voru að sögn lögreglunnar,
vegir í Flóa enn undir vatni og
ekki öll kurl komin til grafar
með skemmdir, því að þær verða
ekki kannaðar til fulls fyrr en
vatnið sjatnar.
Samkvæmt upplýsingum Vega
gerðarinnar var Vesturlands-
vegur aftur orðinn fær um
Ferjukotssíki í gærkvöldi og
Borgarfjarðarbraut var orðin
sæmilega fær öllum bílum, en á
Dragavegi neðan við Skorradals-
vatn er vegurinn skemmdur
og er hann lokaður.
Á Snæfellsnesi var Útnessveg-
ur í Breiðuvík ófær, einnig
Grundarfj arðarvegur I Fróðár-
hreppL en vonast var til, að
þessir vegir yrðu færir aftur i
gærkvöldi.
í Dalasýslu rann Reykjadalsá
í Miðdölum á veginn og var hann
ófær, nema stærstu bílum. Þá
urðu mjög víða skemmdir í Dala
sýslu, en þær eru ekki mjög stór*
vægilegar.
Mikill vatnagangur var á Vest-
fjörðum, en ekki var kunnugt
um meiri háttar skemmdir, nema
hvað á nokkrum stöðum rann
frá ræsum í Barðastrandarsýslu.
Norðurlandsvegur var fær
norður Holtavörðuheiði til
Blönduóss og um Svínvetniriga-
braut til Skagafjarðar. Fréttarit-
ari Mbl. á Blönduósi, Björn Berg
mann hefur þetta um ástandið
í sýslunni að segja:
„í fyrradag og fyrrinótt var
mikið flóð í ám í Austur-Húna-
vatnssýslu en ekki er vitað um
neinar skemmdir af völdum
þeirra. Blanda ruddi sig að
mestu en í Langadal mynduðust
stíflur og áin flæddi víða hátt
yfir bakka og lokaði veginum
á nokkrum stöðum. Svartá og
Vatnsdalsá eru enn að mestu á
ís enda þótt mikill vöxtur væri
í þeim báðum“.
í Skagafirði flæddu Hréaðs-
vötn yfir bakka sína og lokuðu
Norðurlandsvegi á Vallabökkum.
Flæða vötnin yfir veginn á Ví
km kafla.
Vegaskemmdir hafa orðið víða
á vegum norðanlands. T. d. er
vegurinn um Svínadal lokaður
vegna vatna og er hann í sund-
ur á 10—15 m. kafla. Þá eru
skemmdir á vegum við Ás 1
Vatnsdal og í Skagafirði í Lít-
ingsstaðahreppi í Sæmundarhlíð
og víðar.
Á Austfjörðum hafa ekki orð-
ið neinar skemmdir á vegum en
víða er þar mikil hálka á veg-
um einkum á suðurfjörðunum.
Samkvæmt upplýsingum Vega
gerðarinnar er um gífurlegt tjón
á vegakerfinu að ræða og er
ástand þeirra langt frá því að
vera fullkannað enn. Er því ekki
unnt að nefna neinar tölur um
tjónaupphæð enn enda ekki ÖU
kurl kominn til grafar enn ein*
og áður er sagt.
Ofan við Ferjukotssíki í Borgarfirði hafði myndazt stóðuvatn af framburði Norðurar. Þar *r vi*
venjulegar aðstæður mýri og móar.