Morgunblaðið - 17.01.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.01.1967, Blaðsíða 28
Lang stæista og fjölbreyttasta blað londsina Helmingi útbreiddaia en nokkurt annað íslenzkt blað ÞftlÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1967 Gífurlegar skemmdir á vegakerfi landsins Nær allir vegir suiinanlands hafa laskazt — Skemmdir í Borgarfirði og vfðar MIKLAB vegaskemmdir urðu bæði sunnanlands og Borgarfirði í stórrigningunni sem skall á nú um helgina. Einnig hlýnaði í veðri og safn aðist mikið vatnsmagn í allar ár, sem streymdu yfir hakka sína og í Árnessýslu urðu miklar rafmagnsbilanir eins og getið er annars staðar hlaðinu. í Borgarfirði flæddu Norðurá og Hvítá yfir hakka sína og myndaðist mikil tor- færa við Ferjukotssíki. í Ár- nessýslu var ástand svo slæmt, að sögn VegagerSar ríkisins, að flestir vegir voru meira eða minna laskaðir. Þá flæddu Héraðsvötn yfir hakka sína og var ófært um Norðurlandsveg á Vallabökk um. Ingimundur Magnússon ljós- myndari, var um helgina stadd- ur í Borgarnesi og ætlaði suður til Reykjavíkur í gærdag, varð frá að hverfa við Ferju- kotssíki, sem var ófært öllum bílum, þar til í dag, að stórir bílar gátu brotizt yfir. Gerði Ingimundur þá tilraun til að kom ast yfir síkið, en varð að snúa við og fara til baka upp Norð- urárdal og Reykholtsdal, um Kleppsjárnsreyki og niður hjá Hesti, skammt fyrir austan Hvít- árbakka. Tók þessi ferð um tvær klukkustundir, en við venjuleg- ar aðstæður er unnt að fara Ferjukotssíkið og er það þá inn- an við fimm mínútna akstur. Að sögn Ingimundar var veg- urinn sæmilegur frá Hesti til Reykjavíkur en mörg slæm hvörf og aurleðjukaflar voru á leiðinni. Alls var Ingimundur 5 klukkustundir frá Borgarnesi til Reykjavíkur. Við Ferjukotssíki voru stórir jakar og í gær var mikill straumur á vatninu. Mun ísinn hafa verið um 25 — 30 cm þykkur. Samkvæmt upplýsingum Vega gerðar ríkisins var fært öllum bilum austur að Selfossi í gær, en þaðan stærri bílum austur að Seljalandsá, en unnið var að við- gerð á veginum þar og var von- azt til, að fært yrði þar um í gærkvöldi. Brúin á Jökulsá á Sólheima- sandi laskaðist mjög mikið og er Framhald á bls. 10. Myndin er tekin í fyrradag við Ferjukotssíki í Borgarfiröi, en vegurinn þar um var þá ófær. Mikill straumur var á vatninu og braut á veginum, en þar er einnig mikið af klaka. (Ljósm.: Ingim. Magnússon). Hátt á annað hundrað bæir rafmagnslausir í Árnessýslu — Mjög bagalegt ástand á kúabúum — Handmjólka verður kýrnar — Matvæli undir skemmdum — Kalt i húsum MIKLA stórrigningu gerði nú um helgina, sem samfara þíðu olli miklum skemmdum á raflínum og vegum, svo að víða sunnanlands var allt umflotið vatni. Mbl. hafði tal af Guðjóni Guðmundssyni hjá Raforkumálaskrifstofunni og tjáði hann því, að mjög tilfinnanlega bilanir hefðu orðið á raflínum á tveimur stöðum, við Auðsholt í Biskupstungum og við Skógastaði skammt frá brúnni á Brúará. Vor« í gær, og verða enn um hríð, því að erfitt er um viðgerðir, á annað hundrað bæir rafmagnslausir. Er hér um að ræða oft og tíðum stór kúabú og verður að handmjólka kýrnar, en víðast hvar er fátt um mannskap. Er ástandið því mjög bagalegt. Einn fréttaTÍtara Mbl. I Árnes sýslu, Jón Ólafsson í Geldingar- holti lýsir ástandinu á eftirfar- andi hátt: „RAPMAGNIÐ fór á aðfaranótt sunnudags. Þá brotn- uðu tveir staurar á Auðsholts- mýri. Sl. nótt brotnuðu staurar við Brúará og mun okkert vera farið að gera við skemmdirneir Ástandið er mjög s'læmt á flestum bæjum, því Ijóslaust er og ekki unnt að hita upp húsin. Hvergi er unnt að mjalta með vélum. Miðstöðvarnar ganga allar fyrir raímagni. Vatni er víða dælt með rafmagni og á- standið á þeim bæjum er sérlega slæmt. Bftir því sem lengra líður vensnar ástandið, fiólkið þreyt- Framhald á bls. 19. 15 teknir íyiii meinto ölvnn við nkstur MIKIL ölvun var í fyrrinóttj í Reykjavík og sem dæmi má. nefna að um helgina tók lög-' reglan 15 ökumenn fyrir | meinta ölvun við akstur. Bóndi bíður bana er dráttarvél hvolfir Flateyri, 16. janúar. — BANASLYS varð skammt fyrir utan bæinn Selaból í önundar- firði síðari hluta laugardags, er dráttarvél rann til á svelli á veginum og hvolfdi. ökumaður Kommúnistar skera upp herör gegn Alþýðubandalaginu — Hyggjast tryggja sér úrslita- ahrif á framboð þess í vor — Hóta samstarfsslitum að oðrum kosti SÓSÍALISTAFÉLAG Reykja víkur hefur nú skorið upp herör gegn samstarfsaðilum sínum í Alþýðubandalaginu. Á fundi í Sósíalistafélaginu, sem haldinn var fyrir nokkr- um dögum var ákveðið að knýja fram aðild Sósíalistafé- lagsins, sem heildar að Al- þýðubandalagsfélaginu í Reykjavík en um það hefur meginágreiningurinn staðið og jafnframt var skorað á þá meðlimi Sósíalistafélagsins, sem enn hafa ekki gerzt með- limir í Alþýðubandalagsfélag inu, að gera það hið fyrsta til þess að fylgja eftir kröf- unni um félagsaðild. Þessi ákvörðun kommúnista er í beinu framhaldi af að- gerðum Lúðvíks Jósefssonar í framkvæmdanefnd Alþ.bl. er hann beitti sér fyrir því, að Hannibal Valdimarsson féll við kjör formanns fram- kvæmdanefndar. Með þessu skrefi hyggjast kommúnistar fylgja eftir þeim sigri, sera Framhald á bls. 21 dráttarvélarinnar, Guðmundur Majason, bóndi á Veðrará varð undir vélinni og beið bana. Uim kl. 16 á laiugardag kom Snorri Sturluson, bóndi í Neðri- Breiðaidal í önundarfirði að dráttarvél, sem farið hafði út af vegimim skammt fyrir utan bæinn Selaból og var þar á hvolfi. Reyndist Guðmundur Majason vera fastur undir vél- inni. Snorri íór hekm að bænum Kaldá, sem er skammt frá slys- staðnum og hringdi þaðan til Flateyjar og bað um hjálp. Hjálparmenn komu fljótt á stað- inn eftir um það bil 15 mínútur og var héraðslæknirinu einn hjálparmanna. Einnig fór bónd. inn á Kaldá með Snorra til að» stoðar, en ebki tókst þeim að ná dráttarvélinni ofan af Guð- Framhald á bls. 21 Stórgjöf Ás3»jörns ÆT Olafssonar heildsala ÁSBJÖRN Ólafsson stórkaup- maður, afhenti Morgunblaðinu 50 þús. kr. í gær, með þeirri ósk að þetta fé skyldi skiptast að jöfnu milli Hnífsdalssöfunarinn- ar vegna sjóslyssins fyrir jóUn og litla drengsins, sem þarf a leita sér lækninga erlendis vegn hjartasjúkdóms. Morgunhlaði þakkar þessa stórhöfðinglegi gjöf og þann hug, sem á bak vi hana liggur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.