Morgunblaðið - 10.02.1967, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.02.1967, Qupperneq 1
32 SfÐUR Kennedy vill nýja stefnu varöandi Kína Myndin sýnir hóp Rauðra varðliða á mótmælagöngu til sovézka senðiráðsins í Peking. Þeir bera strábrúðu, eftirlíkingu af Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, og spjöld með óhróðri um Sovétríkin. Síðar brenndu þeir brúðuna fyrir framan sendiráðið. (AP-símamynd). Chicago, 9. febr. NTB. í R/EÐU, sem Robert Kennedy öldungadeildarþingmaður hélt á umræðufundi um Kína í Chi- cago-háskólanum í gærkvöldi, sagði hann, að Bandaríkin yrðu að taka upp nýja stjórnmála- stefnu varðandi Kína, og byggja hana á þeim skilningi, að hægt sé að komast hjá vopnuðum átök um landanna tveggja. Kennedy sagði, að Bandaríkin ættu að notfæra sér iþað hlé sem nú er á samskiptum landanna, vegna óeirðanna í Kína, og móta áætlun um samskipti þeirra í framtíðinni. Hann áleit, að tæki færið væri einstætt, og að láta sér sjást yfir Kína eða vanmeta styrkleika landsins mundi þýða hættu fyrir Bandaríkin sjálf. Kennedy sagði m.a.: — Við þurfum að viðurkenna að við lif um í sama ’heimi og Kína, og þegar okkar er það ljóst getum við stigið skref í átt til lausnar á meginvandamálinu: að fá Kín- verja til að lifa með okkur og öðr um þjóðum í heiminum. — Það mun hafa í för með sér mikilvæga breytingu, ef við litum á Kína með mögulega hættu og útþensluríki í stað þess að líta á landið sem gefinn óvin og auðunninn. Bandarísku stefn- una verður að þróa með fullum skilningi á áhugamálum og skipt um landa, sem nánar eru tegnd Kína, t.d. Japan, Indland og Indó nesíu, sagði Kennedy ennfrem- ur. Framhald á bls. 31 Sovézka sendiráöið í umsátri í Drykkjarvatni safnað í sundlaugina matvæli sótt til Moskvu inn um hliðardyr »g Peking, 9. febrúar — NTB — | STARFSMENN sovézika sendiráðsins í Peking, sem verið hafa í herkví undan- fama daga, söfnuðu í dag að sér matvælum, fylltu sund- laug sendiráðsins af dryfckj- arvatni og bjuggu sig undir að verjast fyrir hinum æp- andi lýð kínverskra óeirða- seggja, sem hélt sig fyrir ut- an hlið sendiráðsins. Mörg tonn af matvælum höfðu verið flutt þangað frá Moskvu með flugvélum og starfsmenn austurevrópskra sendiráða hafa aðstoðað við að flytja matvælin til sendi- ráðsins 'þess. Kiínversku óeirðaseggirnir fyrir utan aðalhlið sendi- ráðsins sýndu engin merki þess, að þeir hyggðust draga sig í hlé, eftir að hafa geng- ið fram hjá sendiráðinu og hrópað ókvæðisorð í hálfan mánuð samfleytt. Hátalarnir héldu áfram að glymja gegn „endurskoðunar hundunum“, sem í raun og veru em orðn- ir fangar ba'k við 'hinn fimm metra háa múr, sem umflykur hið víðáttumikla sendiráð. Flestar konur og börn voru send frá sendiráðinu til Moskvu um síðustu helgi, er mótmæla- Vill ekki slíta stjórn- málasambandi við Kína London, 9. febrúar, NTB. KOSYGIN, forsætisráðherra Sovétríkjanna, sem nú er í opin- berri heimsókn í Bretlandi, sagði á fundi með blaðamönnum í dag, að stjórn Sovétríkjanna myndi aldrei gera neitt, sem lcitt gæti til slita á stjórnmálasambandinu við Kína. Þá kvaðst hann ekki álíta, að til ófriðar kynni að koma á landamærum ríkjanna. Varðandi kjarnorkuvopn, sagði Kosygin, að viðræður, sem fram hefðu farið að undanförnu um þau, hefðu sýnt fram á, að senn myndi skapast sameiginlegur skilningur á þeirri nauðsyn að koma í veg fyrir frekari dreif- ingu kjarnorkuvopna og -að samn ingur gegn dreifingu slíkra vopna yrði undirritaður, hvort sem Vestur-Þýzkalandi myndi lí'ka það eða ekki, því að Sovét- ríkin gætu ekki hugsað sér að sambandslýðveldið aflaði sér kj arnorkuvopna. Sovézki forsætisráðlherrann ávarpaði í dag báðar deildir brezka þingsins og bar þar fram þá tillögu, að Bretland og Sovét- ríkin undirrituðu vináttusamn- ing, þar sem ríkin hétu því að ráðast ekki hvort -á annað. „Af okkar hálfu“, sagði Kosygin, „er engin hindrun í vegi fyrir því, að samskipti Sovétrikjanna og Bretlands verði byggð á breiðum og traustum grundvelli friðsam- legrar samivinnu“. aðgerðir Kínverja urðu fjand- samlegri, en enn eru þar um tuttugu konur og starfsmenn þess eru rúmlega hundrað. Sovétstjórnin krafðist þess I dag, að kínversk yfirvöld létu þegar í stað hætta þeim aðgerð- um, sem ættu sér stað gegn sovézka sendiráðinu í Peking. I orðsendingu til kínverska sendi ráðsins í Moskvu, krafðist Sov- étstjórnin þess einnig, að sov- ézkir sendiráðsstarfsmenn í Peking fengju að fara frjálsir ferða sinna og að þetta yrði gert sem allra fyrst. Segir þar ennfremur, að Sovétstjórnin áskilji sér allan rétt til gagn- ráðstafana. Elisabet til Rússlands? Lundúnum 9. febrúar, AP. X DIPLÓMATÍSKAR heimildir^ *** í Lundúnum herma í dag, að{ sovézkir og brezkir stjóm-X X málaleiðtogar kanni nú mögu-J óleika á því, að Elísabst Eng-< .*. landsdrottning fari í opinbera’jj Aðeins friðsamlegra í Moskvu. *Í* heimsókn til Sovétrikjanní ' Mótmælaaðgerðum fyrir fram ♦*• eftir eitt eða tvö ár. í þess- an kínverska sendiráðið í X um heimildum segir einnig að Moskvu var haldið áfram í dag, *•* slík heimsókn mundi verða en það hafði greinilega dreg- !•* endurgoldin, þ. e. forseta Sov- ið úr þeim. Engir sérstakir at- X étríkjanna, Nikolai Podgorny, ❖ mnndi þá verða boðið til X Bretlands. ÍSömu heknildir herma, að engar líkur séu á, að drottn ingin fari ti'l Moskvu í ár, en -f nú er hálf öld liðin síðan bylt Ý ingin í Rússlandi var gerð. *!* Nærvera hennar nú kynni aðjj Berlín NTB. verða mistúDkuð, og sjáiq AUSTUR-þýzkir landamæraverð •£ mfndl d.rot1tninfin ^1 gang' ir skutu á mann á miðviku- t ** inn a sllka hejmsokn per- dag, er hann reyndi að kom- 4* sonulega, þar eð frændíólk ast yfir landamæri borgarhlut- anna til Y-Berlínar. Maðurinn særðist og handtóku iandamæra verðirnir hann og færðu á ný til A-Berlínar. Framhald á bls. 31 Særðu fldttamann hennar, síðasti keúsairinn og< fjölskylda hans var myrt íj bylting-unni. Þar að auki ná| ferðaáætlanir drottningar ár< fram í tímann. •:* •:* *:• *:* •:• •:* •:*•:• *:••:* •:• •:••:•*:••:**:• •:» *:• <• •:• •:• •:• •:•< Geysiharðir jarðskjálfta kippir í Suður-Ameríku — þúsundir missa heimili sín — tugir bíða bana Bogota, Colombia, 9. feb. — AP-NTB — LANDSKJÁLFTI í ríkinu Colombia í S-Ameríku varð í dag tugum manns að bana í höfuðborginni Bogota. Fyrstu fregnir hermdu að átta manns hefðu látið lífið í jarðskjálftakippunum, er urðu kl. 2.45 eftir hádegi, en í kvöld var talan komin upp í 50. Þá var algjörlega sam- bandslaust við þau fylki, sem harðast höfðu orðið útL Við Bogota rofnaði síma- og tal- samhand í tvær klukkustund ir. Þúsundir manna hafa misst heimili sín í þessum jarðhræringum, sem einnig varð vart í ríkjunum Vene- zuela og Equador. Samkvæmt fréttum AP-frétta stofunnar stóð fyrri jarðskjálfta kippurinn yfir í 15 sekúndúr. Hinn síðari kom fáeinum mín- útum seinna og stóð yfir í 25 sekúndur og var mun öflugri en sá fyrri. Jarðhræringarnar mæld ust 7 stig á Richter-jarðskjálfta- mæli, sem mest sýnir 10 stig. Þeirra varð vart í öllu Colom- bia-ríki, sem, nema hafnarborg unum á Atlantshafsströndinini. Jarðskjálftafræðingar ríkis- stjórnarinnar í Washington sögðu í dag, að upptök jarðskjálít. ans hefðu verið um 190 km. af Bogota í fylkjunum Huila og Valle, en þaðan hafa enn eng- ar fregnir borizt og má búastÞ við að dánartalan hækki að mun þegar fréttir berast frá þessum svæðum. 1 Bogota hrundu fjöknargar byggingar og hundruð þúsunda manna þustu út á göturnar í leit að öruggu hæli. Margt þessa fólks var nakið, en strætin voru víða þakin glerbrotum úr ná- lægum byggingum. Þá greip ofsahræðsla um sig í þeim bor*t Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.