Morgunblaðið - 10.02.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 10.02.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1967. BÍLALEICAN FERÐ SÍMI 34406 Dagrgjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM MAOMÚSAR skipholti 21 símar2U90 eftirlokun stmi 40381 l-SSntíM11-44-44 mnwÐ/fí Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA bíloleigon Ingólfsstræti 11. Hagrstætt leigugjald. Bensín innifalið í leigrugjaldl. Sími 14970 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugravegr 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 ogr 36217. RAUDARÁRSTlG 31 SlMI 22022 Laugavegi 31 - Simi 11822. PÁSKAFERDIR 1967 RHODOS U DAGAR . 19. MARZ • Óþægindi af skellinöðrum „Kæri Velvakandi! Einhvern tíma minnir mig, að talað hafi verið um hávaðann af skellinöðrunum í dálkum þínum, og hefur lögreglan svar að því til, að fylgzt sé með því, að hávaðinn af þeim fari ekki fram úr vissu marki; annars séu þær teknar úr umferð. Ég leyfi mér að efast um, að þessu sé vandlega framfylgt, því að alltaf er maður að verða fyrir því, að skellinöðrustrákar bruni framhjá manni með ær- andi hávaða. Sl. þriðjudags- kvöld, laust fyrir kl. níu, varð ég vitni að ósvífnu framferði þriggja stráka á hrossabrestum í hjarta Miðbæjarins. Þeir léku sér að þvi að bruna hring eftir hring á sjálfu Lækjartorgi, — æddu fram með Stjórnarráðs- blettinum, snarbeygðu inn I Austurstræti og þaðóui inn með Útvegsbankahúsinu, þar sem strætisvagnar eiga einir að aka, og aftur út á Lækjargötu. Hávaðinn ætlaði alla að drepa, en verst var þó, hve þeir óku hratt og glannalega. Ég sá hóp manna ganga mót grænu ljósi frá „eynni“ á miðju torginu og yfir Austurstræti, þegar strák- arnir þrír komu á fleygiferð. Ekki var annað sýnna en þeir ætluðu að aka beint á hópinn, enda munu þeir ekki hafa tekið eftir honum fyrr en að beygj- unni vel hálfnaðri. Tveimur tókst þó að snarhemla og skrensa hjólunum til hliðar, en sá þriðji ók milli fólksins, sem var dauðhrætt að vonum. Mann sá ég þarna, sem ætlaði að ná númerunum á hjólatíkunum, en þær voru auðvitað eins skít- ugar og knaparnir, sem sátu þær, svo að ekkert var hægt að lesa, áður en strákarnir hófu hringferð sína að nýju. — Eng- an lögregluþjón sá ég þarna í grenndinni. — Er nú ekki kom- inn tími til þess að taka í lurg- inn á þessum stórhættulegu skellinöðrustrákum? Hjólin á umsvifalaust að gera upptæk, ef þeim er ekið of hratt eða þau framleiða of mikinn hávaða. — Löghlýðinn". • Er Cybulsky látinn? „Ægir“ skrifar: „Kvikmyndahús eitt sýnir um þessar mundir sænsku myndina ,Att alska“, og leika þau Harriet Anderson og Zbigniew Cybulsky aðalhlut- verkin. í auglýsingum er Cybulsky sagður „pólskur kvik myndaleikari og kvennagull“, og í efnisskránni er sagt, að hann sé „nú 37 ára gamall og hefur þegar hlotið heimsfrægð fyrir leik sinn — og er orðinn eins konar „verðlaunaknapi" á leikvelli pólskrar kvikmynda- gerðar“. Það er sem sagt talað um hann, eins og hann sé lif- andi, en ég veit ekki betur en hann sé látinn. Kvikmyndahús- in hljóta þó að fylgjast með því, hvort heimsþekktir leik- arar í myndum, sem þau taka til sýningar, eru lífs eða liðnir, svo að kannske hef ég rangt fyrir mér. Getur Velvakandi upplýst þetta fyrir mig? Ægir“. Velvakandi veit þetta ekki fyrir víst, en þó er eins og hann rámi í að hafa séð í þýzku blaði fyrir nokkru frétt um, að Cybulsky hefði orðið undir járnbrautar- eða sporvagni í Kraká. Fróðir menn geta sjálf- sagt upplýst þetta og sent Vel- vakanda línu þar um. — Aftur á móti veit Velvakandi, að Martine Carol er dáin (í Monte Carlo). • Hugarfar Velvakanda \ Hinn 31. jan. sl. var birt hér inntak úr bréfi frá Akur- nesingi, sem hafði verið að velta því fyrir sér, hvort Vel- vakandi væri „kommi eða Framsóknarrolla". Ekki hafa allir jafnmiklar áhyggjur af því, eins og eftirfarandi bréf ber með sér:. „Seltjarnarnesi, 31. 1. 1967. Fengsælli virðast mér önnur mið en þau, er þú hefur lagt út á, Akurnesingur minn góður, er þú vænir Velvakanda um vinstrisinnað hugarfar (Mbl. 31. jan.). Hélt þó ykkur Skaga- menn jafnvíga á andlegt og líkamlegt spark í mark. Við ættum að geta orðið sammála um ýmislegt annað, eins og t. d. að áhyggjuefni á stærð við væna síldartorfu sé sá rauði grautur, er vellur inn á heimili landsmanna frá fréttastofu rík- isútvarpsins og ekki í réttu hlutfalli við vilja kjósenda. Þarna er neytt ofan í okkur meðali, sem við kærum okkur ekki um. Heilaþvottur heitir víst og er því miður ekki allt mannfólk þvottekta fyrir þeim óþverra. Það virðist auðsætt, að einhverjir þeirra, sem gæta eiga hagsmuna meirihlutans, sofa á verðinum. Hægri-sinnaður lesandi Morgunblaðsins. • Víðar áhyggjuefni en á íslandi LÆKNANEMI skrifar: „Það er víðar en hér, sem fólk hefur áhyggjur af rauð- eða bleiklitaðri „infiltration" á fjölmiðlunarstöðvum. í Bret- landi segja íhaldsmenn, að kommúnistar og fylgifé þeirra hafi unnið að því kerfisbundið frá upphafi BBC að smygla mönnum sínum þar inn, enda hafi þeir manna fyrstir gert sér ljóst mikilvægi þess að hafa sína menn eða menn sér vin- veitta á réttum stöðum. í Danmörku er höfð uppi sams konar gagnrýni, og er þá ekki alltaf vandað orðavalið. T. d. mátti lesa þessa setningu í „Politiken“ fyrir skömmu: „Den klike af selvglade, undir- livsbeskuende, akademiske fugleskræmsler og rifkabylere, der synes at berherske dansk TV“ — og hananú! í Berlingske Tidende" var sagt nokkrum dögum síðar af gefnu tilefni í kjallaragrein: „Danmarks Radio demonstrerede sin stþtte til de venstre-orienterede ved at bruge hr. Wivels kronik pá en máde, der fremhævede det antiamerikanske“. f Noregi hefur háværri gagn- rýni verið haldið uppi á ríkis- útvarpið og fréttastofuna NTB, sem matar íslenzk blöð og út- varp, fyrir að hafa vinstrisinn- að fólk í yfirgnæfandi meiri- hluta meðal starfsmanna sinna. Nýlega fór fram rannsókn á því, hvernig „programledere“ við norska ríkisútvarpið skipt- ust eftir stjórnmálaskoðunum. Kom þá í Ijós, að 68% voru ,radikale“, 7% voru .konserva- tive“ og 25% voru „uklassifis- erte“. — Rannsókn þessi var mjög umfangsmikil og náði m. a. til víðtækrar athugunar á „tendensum" eða pólitískum til- hneigingum útvarpsmanna. Hefur rannsóknin vakið mikla athygli, m. a. sú staðreynd, að langflestir sósíaldemókratískra starfsmanna voru meðal þeirra, sem lengst hafa hneigzt til vinstri innan flokks síns, og bendir það til þess, að slíkir menn sækist fast eftir að kom- ast að við fréttastofnanir. Hérlendis hefur pólitísk harka vissra ríkisstarfsmanna verið slík, að tveir þeirra hafa dylgj- að um það á fjölmennum fundi, að nafngreindur stéttar bróðir þeirra eða dagblað það, sem hann vann við, hefði skemmt tollpóstsendingu á leið- inni Shanghai — Moskva — Reykjavík! Hví fer Tollpóst- stofan ekki í mál? Hvað segir Siðanefnd Blaðamannafélags ís lands? LÆKNANEMI". Til sölu Hús sem þarf að flytja, er 90 ferm. 5 herb. og eld- hús. 8 ára gamalt. Hentugt fyrir sumarbústað eða á jörð í sveit sem vantar íbúðarhús. Upphaflega byggt flutningadregurum. BÍLA og BÚVÉLASALAN v/Miklatorg, sími 23136. Neodon og DLW gólfteppi VerS pr. ferm. 298 á Neodon, Verð pr. ferm. 345 á DLW. LITAVER, Grensásvegi 22 Símar 30280 og 32262. Staða röntgenlæknis (sérfræðings eða aðstoðarlæknis) við röntgendeild Borgarspítalans er Ifeus til umsóknar. Upplýsingar varðandi stöðuna veitir yfirlæknir deild- arinnar. Staðan veitist frá 1. maí eða síðar. Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri læknisstörf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur fyrir 15. marz n.k. Reykjavík, 7. febrúar 1967. SJÚKRAHÚSNEFND REYKJAVÍKUR. Staða aðstoðarlæknis við lyflæknisdeild Borgarspítalans, er laust til um- sóknar. Staðan veitist frá 1. maí n.k. til eins árs í senn. Laun samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Læknafélags Reykjavíkur. Upplýsingar, Varðandi stöðuna veitir yfirlæknir deild- arinnar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur Heilsuverndarstöðinni fyrir 10. marz n.k. Reykjavík, 7. febrúar 1967. SJÚKRAHÚSNEFND REYKJAVÍKUR. Afar ódýr frímerki frá Austurríki Tvö þúsund og átta hundruð falleg mismunandi safnfrímerki og sérfrímerki, raunverulegt verðmæti ■ um 320 mörk, en í auglýsingaskyni aðeins 300,00 íslenzkar krónur gegn póstkröfu, svo lengi, sem birgðir endast. — Póstkort nægir. MARKENZENTRALE, Dempschergasse 20, 1180 Wien.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.