Morgunblaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1967.
• Átökin í Kiná að und-
anförnu eru að því leyti svip-
uð átökunum í Póllandi árið
1956, að þau gerast innan
kommúnistaflokksins sjálfs —
þó með nokkrum öðrum hætti
sé. En meðal annars þess vegna
eru fréttir af þeim allar óljósari
en ella — og erfitt að henda
reiður á stöðu valdaskákarinn-
ar, sem þar er verið að tefla.
• Árum saman hefur svo
virzt sem friður og eining
ríkti í röðum kínverskra komm
únista — en nú hefur einingar-
ábreiðunni verið lyft og í ljós
komið, að þar hefur um ára-
bil verið háð hin illskeyttasta
valdabarátta, þótt lágt hafi far-
ið, — og þar virðast berjast um
völdin tvær eða öllu heldur
þrjár fylkingar, sem í ljós kem
ur að hafa unnið að því mark-
visst að efla áhrif sín og fylgi.
• Annars vegar, til vinstri ef
svo mætti segja, er hinn öfga-
fulli heimsbyltingarflokkur
Mao Tze-tungs formanns, Lin
Piaos, landvarnarráðherra og
Chiang Ching, eiginkonu Ma-
os. Hins - vegar, til hægri, eru
svonefndir „endurskoðunarsinn
ar“ Liu Shao chi, forseti, Teng
Hsiao ping, aðalritari komm-
únistaflokksins og stuðnings-
menn þeirra — og miUi þessara
fylkinga standa, eða stóðu a.
m.k. til skamms tíma, Chou
En-lai, forsætisráðherra, Chen
Yi utanríkisráðherra og fylgis-
menn þeirra.
• Að vísu herma sumar
fregnir, að Chou en-lai hafi tek
ið afstöðu með Mao. Reynist
þær á rökum reistar, gæti það
bent til þess að armur Maos
hafi betur í viðureigninni og
«é líklegur til sigurs. Því að
Chou En-lai hefur að baki
langa reynslu í því að sigla
milli skers og báru í átökum
innan kommúnistaflokksins og
lenda að lokum í þeim hópn-
um, sem fer með sigur af
hólmi.
Geysimikið hefur verið rætt
og ritað um Mao Tze tung, æfi-
feril hans og sögu kínverskra
kommúnista. Minna hefur ver-
ið fjallað um aðra forystu-
menn, starfsferla þeirra og
skoðanir. Verður nú reynt að
bæta úr því og segja stutt-
lega frá þeim mönnum helzt-
um sem komið hafa við sögu
Kína undanfarnar vikur.
LIN PIAO
Talið er víst, eins og kunn-
ttgt er, að næstur Mao að völd-
um standi Lin Piao, landvarna-
ráðherra, sem er 58 ára að
aldri. Hann er einnig varafor-
maður kommúnistaflokksins
og fyrsti varaforsætisráðherra
og á að baki langan starfsfer-
fl og merkan í hernum og
flokknum. Hann var einn af
aðal hershöfðingjunum í Göng
unni miklu.
Lin Piao hefur jafnan verið
maður hermennsku og hörku
og hefur verið talið, að hann
nyti áunóta vinsælda innan kín-
verska frelsishersins, sem tel-
ur um þrjár milljónir manna,
og Mao Tze-tung naut innan
flokksins. Lin Piao var einn
helzti frumkvöðull menningar-
byltingarinnar og hefur verið
aterkasta ráðandi aflið að baki
framkvæmd hennar. Eru marg
ir stjórnmálafréttaritarar þeirr
ar skoðunar, að hann stjórni
Mao að miklu leyti — hann
og eiginkona Maos, þau eru
bæði miklu yngri en Mao og
hafa mælt fyrir hans munn
Liu Shao?chi og kona hans.
Mao Tze-tung, leiðtogi kínverskra kommúnista tók sl. föstudag á móti albanskri sendinefnd og
var þessi mynd þá birt. Þetta var í fyrsta sinn, sem Mao kom fram opinberlega frá því i nóv-
ember sl. Albanirnir á myndinni eru Hysni Kap t.v. og Beqir Ballaku.
Hinir stríöandi aðilar
í valdabaráttunni í Kína
síðustu mánuði, — en formað-
urinn sjálfur staðið hjá, lítið
eða ekkert sagt, en borið ýmis
merki þess, að aldurinn sé far-
inn að segja til sín svo um
munar.
Ljúki átökunum í Kína nú
með sigri Mao sinna þykir lít-
ill vafi leika á því, að Lin Piao
verði hinn sterki maður Kína
í framtíðinni. Hins vegar hefur
stuðningur hans meðal eldri
flokksfélaga farið dvínandi eft
ir því sem á menningarbylt-
inguna og valdabaráttuna hef-
ur liðið.
Lin Piao var ofursti í her
Chiang Kai-cheks, leiðtoga
þjóðernissinna, alinn upp og
þjálfaður í Whampoa herskól-
anum, sem Kuomintang flokk-
urinn kom upp með aðstoð
Rússa. Þar stjórnuðu þeir
Chiang Kai-chek og Chou En-
lai í sameiningu og þegar slitn
aði upp úr samstarfi kommún-
ista og kuomintang árið 1927
fylgdi Lin Piao kommúnistum.
Lin Piao er af borgaralegum
ættum frá Hupeh-héraði. Fað-
ir hans átti spunaverksmiðju
en varð gjaldþrota. Sú saga
er sögð í Kína af Lin Piao —
og hefur verið haldið mjög á
lofti að undanförnu, að þeg-
ar Lin Piao var aðeins ellefu
ára hafi komið til heimabæjar
hans ungur gáfaður maður, —
25 ára, klæddur sólhjálmi og
bættum samfestingi og boðað
fagnaðarerindi kommúnismans.
Þessi maður, sem var enginn
annar en Mao Tze-tung, kenndi
að því er sagan segir, nokkrum
ungum drengjum, — þeirra á
meðal Lin Piao, sósialísk fræði
Teng Hstao-ping, dvergvaxinn
maður. Við hlið hans er Peng
Chen.
í gamalli hrörlegri hlöðu.
Kennslan fór fram með ýtrustu
leynd en þó fór svo, að bæjar-
yfirvöldin komust að þvi, hvað
þar fór fram og lokuðu þess-
ari kennslumiðstöð. Kommún-
istar staðhæfa, að Lin Piao hafi
gerzt byltingarmaður þegar þá
— en ekki fara af honum sög-
ur í flokki kommúnista fyrr en
eftir vinslitin 1927, sem fyrr
segir.
Þegar kínverskir kommún-
istar höfðu komið sér upp
bækistöð sinni í Yenan var
þegar komið upp herskóla þar
og veitti Lin Piao honum for-
stöðu. Árið 1945 var hann í
Manchuriu og tók þar við mik-
ilvægum stöðvum, hergögnum
og herstyrk jafnóðum og Jap-
anir voru sigraðir þar. Atti
staða sú, er hann kom sér þar
upp, stóran þátt í sigri kamm-
únistahersins í borgarastyrj-
öldinni.
Lin Piao er maður fremur
lágvaxin og grannur vexti.
Hann er fyrrverandi berkla-
sjúklingur og hefur, að sögn,
tvívegis farið til Sovétríkjanna
og dvalizt þar langdvölum til
lækninga. Þá ber hann menjar
sára, er hann hefur hlotið í
bardögum, fyrst í orrustunni
við Japani í Ping — Hsing
skarði 1937 og aftur í Kóreu-
styrjöldinni, en þar var hann
yfirmaður kínversku „sjálf-
boðaliðanna."
Lin Piao tók við embætti
landvarnaráðherra 1958 af
Peng Te-huai og tók þegar til
við að æfla aga og áhrif Ma-
os í öllum greinum hers og
landvarna, en þar hafði gætt
óánægju og ósamlyndis undir
stjórn Pengs. Nú virðist Lin
Piao sá spegill, sem Mao vill
að spegli skoðanir hans í fram
tíðinni. Verði hernum beitt af
afli gegn andstæðingum Maos
eru fæstir í vafa um að þeir
Mao og Lin Piao verði sigur-
Chou En-lai
vegarar I yfirstandandi átök-
um. Þrátt fyrir fregnir af
klofningi og óánægju í hern-
um, sem án efa eiga við rök
að styðjast, eru stjórnmála-
fréttaritarar flestir þeirrar
skoðunar, að innan hersins
eigi Lin Piao engan svo hættu-
legan keppinaut um vinsæld-
ir og völd, að hann riði til
falls.
CHIANG CHING
Chiang ching, 55 ára fyrrver
andi leikkona, danskona og
söngkona frá Shanghai er
fjórða kona Maos formanns,
kynntist honum í Yenan er hún
kom þangað með leikflokk að
skemmta kommúnistum. Mao
var fljótur að losa sig við þá-
verandi eiginkonu og móður
barna hans, sem hafði staðið
hetjulega við hlið hans í mestu
erfiðleikunum, — og kvæntist
ungu leikkonunni. Þá gekk
Chiang Ching undir nafninu
Lan Ping, — bláa eplið — og
segja illgjarnar tungur, að
Mao hafi látið eyðileggja allar
myndir sem hún lék í.
Aður en menningarbyltingin
hófst hafði Chiang ching aldrei
verið orðuðu við stjórnmála-
starfsemi, — en þá var hún
skipuð menningarráðgjafi hers
ins og stjórnaði herferðinni
gegn mennta- og listamönnum
landsins. Framan af þótti ekki
óhugsandi, að hún tæki við for-
ystuhlutverki af manni sínum
— en margs konar mistök, sem
henni hafa orðið á, vegna aug-
Ijóss reynsluleysis, eru talin
Liu Piao.
hafa spillt fyrir þeim mögu-
leikum hennar. Og nú undan-
farið hefur nokkrum sinnum
mátt sjá gagnrýni á hana á
spjöldum Rauðu varðliðanna.
UU SHAO CHI
Forystusauðurinn í flokki
svonefndra and- maoista, end-
urskoðunarsinna og borgara-
legra hægri sinna, er Liu Shao-
chi, forseti landsins. Hann er
í hópi þeirra manna, sem
kommúnistar í öðrum löndum
kalla „pragmatista" og fylgis-
menn hans hafa á hendi lykil-
stöé ' mörgum greinum, eink
um t I stjórnum flokksdeild-
anna. Lin er sagður heldur lit-
laus persónuleiki, gæddur lít-
illi kímnigáfu og fremur kald-
ur í framkomu. En hann er
skapmikill og afar viljasterk-
ur. Einn helzti veikleiki hans
eru reykingar — hann keðju-
reykir og er nær alltaf með
hrjúfan reykingahósta.
Árásirnctr á Liu Shao-chi og
Teng Hsiao-ping aðalritara
kommúnistaflokksins eru því
athyglisverðari, sem þeir eiga
báðir að baki áratuga órofa
samvinnu við Mao og hafa
verið honum tryggir í stríðu
jafnt sem blíðu. Liu hefur tek-
ið að sér framkvæmd flestra
erfiðustu og vanþakklátustu
verka fyrir Mao og flokkinn,
en ljóst er að á síðustu árum
hafa leiðir þeirra skilið. Er
sagt eftir Mao, að það hafi ver-
ið 1958, vegna ágreinings um
stóra framfarastökkið — en
upp úr því hafi Liu Shao-chi
neytt sig til að láta af forseta-
embættinu.
En þeir, sem til þekkja, telja
líklegt, að ágreiningur þeirra
eigi einnig rót að rekja til
mismunandi eiginleika og hugs
unarháttar. Liu hefur alltaf ver
ið tryggari kenningum Marx
og Leníns og viljað taka meira
tillit til sovézkra kommúnista
og þeirra stefnu. Mao aftur á
móti lagði frá uphafi sína eigin
hönd á mótun kommúnismans
í Kína, vildi þróa hann svo og
breyta honum að hentaði að-
stæðum Kínverja, enda taldl
hann það sama henta Kínver]-
um og öðrum vanþróuðum
rikjum Asíu og Afríku. Hann
breytti kenningum kommúnis-
mans í trássi við fyrirskipanir
Marx og Lenins, með það í
huga að bændumir kínversku
gætu orðið aðal afl byltingar-
innar Hugur Maos var allur
hjá bændunum og stefna hans
miðuð við þá. Liu Shao-chi aft-
urá móti hafði frá upphafi
meira fylgi meðal verkalýðs-
ins í borgunum og var jafnan
þeirrar skoðunar, eins og rúss-
neskir kommúnistar, að verka-
lýðsstéttirnar væru hið sterka
afl kommúnismans. Liu Shao-
chi sem er nú 68 ára að aldri
var fæddur og uppalinn í Hun-
an fylki eins og Mao, en hóf
starfsemi sína sem kommúnisti
í verkalýðsfélögum í borgun-
um. m.a. í Shanghai, sem hon-
um hefur alltaf þótt vænt um.
Mao aftur á móti gat aldrei
fellt sig við Shanghai. Hann
taldi þá borg ekki gefa rétta
mynd af kínversku þjóðlífi.
Þess má geta í þessu sam-
bandi, sem sagt er, að Mao
hafi frá upphafi kunnað vel
við sig í Moskvu, þegar hann
kom þangað, þessari fjölmennu
sveitaborg, sem margir kalla,
sem er svo laus við þéttbýlis-
Framhald á bls. 19
Chiang Ching, kona Maos