Morgunblaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1967, 19 - KÍNA - Framhald af bls. 14 andrúmsloft. Liu Shao-chi þótti lítið til Moskvu koma, enda þótt hann dveldist þar lengi og tegndist Rússum sterk um böndum. Raunar eiga þeir Mao og Liu lítið sameiginlegt annað en áhuga á kommúnisma. Mao þekkir, betur en Liu sögu Kína, þjóðarsal og þjóðarmenningu, en Liu þekkir betur alþjóðleg- an kommúnisma. Mao er alltaf eins og hógvær og lítillátur bóndi gæddur dálítið hrjúfri og brokkgengri kímnigáfu. Liu aftur á móti sést sjaldan brosa og hefur yfir sér kuldalegt yf- irbragð stórborgarbúans — enn síður gefur hann tilefni til að aðrir brosi. Hann er strangur ogsiðavand ur eins og sönnum kommún- ista sæmir og bölvar aldrei. Og skáldskapur og draumórar eru honum víðs fjarri. Þegar Mao lagði upp í göng- una miklu var Liu skilinn eft- ir til þess að halda áfram að efla fylgi kommúnisfa í verka- lýðsstétt borganna. Var það eitt erfiðasta og hættulegasta verkefni, sem nokkur kommún isti tók að sér um þær mund- ur, smávaxinn maður, sem hef- ur byggt upp skipulag flokks- ins og valdastiga hans. Er það geysilega flókið og víðtækt net, sem nær til alls landsins og milljóna manna. Hefur Teng sína menn víða í lykilstöðum, og haldi þeir tryggð við hann, verður róðurinn Mao-sinnum ugglaust erfiður til fullnaðarsigurs. Sú lýsing hefur verið gefin á aðalritaranum, að hann sé harður í horn að taka, kreddu- fastur, ofsafenginn, metorða- gjarn í meira lagi, frábitinn hvers konar málamiðlunum og eldheitur andstæðingur Sovét- ríkjanna. Hann hefur verið að- altalsmaður stefnu Kína á fundum kommúnistaflokka heimsins um deilur kínverskra og sovézkra kommúnista og hann hefur stjórnað mörgum enduruppeldisherferðum heima fyrir. Eins og Liu Shao-chi er Teng algerlega mótfallinn því að herinn hafi nokkur afskipti af málefnum flokksins, — en jafn ákveðinn talsmaður þess, að flokkurinn hafi hönd í bagga með hernum. Um upp- runa Tengs er lítið vitað og .yfirleitt hefur hann ekki verið títtnefndur maður í kínverska um fréttum, fyrr en nú. Þjoðleikhusið hefur nu synt söngleikinn „Ö, þetta er indælt stríð“ yfir 30 sinnum við góða að- sókn, en síðasta sýning leiksins er i kvöld. — Myndin er af öllum karlleikurunum í sýningunni. Liu Shao-chi hefur skrifað margar bækur um kommúnis- mann. Hann tók, sem fyrr sagði við forsetaembættinu 1959 og hefur síðan unnið að því að efla völd sín og áhrif, með þeim árangri og afleiðing- um, sem fregnir herma að und- anförnu. Fram til síðasta hausts var Liu Shao-chi talinn standa Mao næst að völdum — en þá var honum allt í einu sparkað ofan í áttunda sæti og Lin Piao tók hans sess. Fyrir nokkrum dögum hermdu fregn ir frá Pekin að hann og-Hsiao ping hefðu verið sviptir völd- um opinberlega, en samkvæmt öðrum fregnum hefur hann farið frá Peking, leynist ein- hversstaðar í bækistöðvum andstæðinga Maos og stjórn- ar baráttunni gegn honum. WANG KUANG MEI Eiginkona Liu Shao-chis Wang Kuang-mei hefur ekki farið varhluta af árásum Rauðu varðliðanna og þeirrói, sem að baki þeim standa. Sagt er, að hún hafi upphaf- lega gefið eiginkonu Maos högg stað á sér. Þegar hún ráðgað- ist við hana um skartgripa- kaup á liðnu sumri. Sagan seg ir, að Wang Kuang-mei, sem er kona um fimmtugt, hafi komið til Chiangs Ching til að bera undir álit hennar háls- men, sem hún hugðist festa kaup á. Hafði kona Maos þá bent á að eiginkonum komm- únistaleiðtoga bæri að sýna sparsemi og hófsemi í klæða- burði, en Wang keypti menið eigi að síður. Hún hefur um árabil verið kunn löndum sín- um fyrir tveggja hluta sakir, annars vegar virk afskipti af stjórnmálum og fyrir að hafa alltaf, ein örfárra kvenna kommúnisa, hugsað vel um út- lit sitt og klæðaburð. Nú herma fregnir, að börn þeirra tvö hafi snúið baki við foreldrum sínum, m.a. fyrir að þau höfðu ekki leyft þeim að taka upp á segulband samræð- ur þeirra heima fyrir. Aðrar fregnir herma, að fylgismenn Maos hafi náð Wang Kuang- mei í sínar hendur með því að ljúga því að henni, að dóttir hennar hefði meiðzt í bifreiða- slysi og lægi á sjúkrahúsi. Er þangað kom hafi verið þar fyr- ir menn Maos og flutt hana burt með valdi. Fylgir fregn- inni, að hún hafi sætt illri með- ferð af þeirra hálfu og gert tilraun til að fyrirfara sér. TENG HSJAO PING Teng Hsiao Ping er bæklað- CHOU EN LAI Og þá komum við að þeim, sem fram til þessa hafa staðið á milli þessara hugsmunahópa, Chou En-lais og hans konu — og Chen yis utanríkisráðherra. Chou En-lai er sagður ger- ólíkur fyrrnefndum forystu- mönnum kínverskra kommún- ista. Sé það rétt, að hann hafi snúið til liðs við Mao, má af því draga þá ályktun, að hann telji hann sigurstranglegan. Reynist ekki svo, er það í fyrsta sinn, sem Chou legur lóð sitt í vitleysa vogarskál. Hann hefur sem fyrr sagði, áratuga reynslu í því að leiða hjá sér valdastreitur og lenda að lok- um réttu megin, enda hafa nafngiftir hans verið eftir því ..teygjanlegi bolsjevikinn", „hinn kínverski Talleyrand", „konfúsiusar kommúnistinn og „Pu Tao wong“, sem er nafn á kínverskri brúðu, sém þann- ig er gerð, að hvernig sem ýtt er við henni. veltur hún alltaf aftur í rétta stöðu. Hliðstæða Chous í Sovétríkj- unum er Anastas Mikoyan, sem lifði af allar hreinsanir, allt frá því hann tvítugur komst lífs af einn 27 kommún- istaforsprakka í Azerbajan, sem Hvítliðar létu taka af lífi. Nú lifir Mikoyan kyrrlátu lífi á ellilaunum og lauk sínum starfsferli með heiðri og sóma sem forseti Sovétríkjanna, — allra eftirlæti. Chou En-lai er mandarína- sonur, fæddur í Hopei-héraði, en alinn upp að miklu leyti í Manchuriu, þar sem faðir hans var embættismaður Manchu keisarans. Chou hlaut því strang borgaralega mennt- un og konfúsianskt uppeldi, enda hefur hann oft kvartað um það, að fortíðin hafi stað- ið sér fyrir þrifum. í skóla var hann allgóður leikari — og lék oft kvenhlutverk, af því að hann þótti svo laglegur og fínlegur. Segir sagan, að einn kennara hans hafi einu sinni sagt við hann „hvernig stóð á því að þú varðst kommúnisti. Mér fannst þú alltaf svo kven- legur.“ En byltingarferill Chous hefur verið engu lítilmótlegri en annarra kommúnistaleið- toga í Kína. Hann var frá upp- hafi fyrst og fremst þjóðernis- sinni, — eins og raunar Mao og fleiri forystumenn kommún- ista. Þeir risu allir öndverðir gegn niðurlægingu og spillingu kínverska keisaradæmisins. A árunum 1923-27 var Chou En- lai við nám í Frakklandi, Eng- landi og þýzkalandi og gerð- ist þá kommúnisti. Eftir heim- komuna varð hann flokksrit- ari í Kanton. Hann tók þátt í uppreisninni þar 1927 og var einn af stjórnarmönnum' borg- arinnar þá viku, er kommún- istar höfðu hana í hendi sér. Þegar Kuomingtang náði borginni á ný flýði Chou En- lai til Hong Kong um hríð en sneri aftur, þegar er tök voru á. Chou en-lai er dökkur yfir- litum, fjörlegur maður og hýr, virðist kunna vel við sig í ræðustól og er hrókur alls fagn aðar, syngur og dapsar, á opin- berum samkomum. Þó þjáist hann af þrálátum lifrarsjúk- dómi. Chou hefur alla tíð verið lipur samningsmaður, og eru flestir þeirrar trúar, að verði komið á einhvers konar mála- miðlun verði Chou atkvæða- mestur maður í Kína. Aðrar getgátur eru um, að hann verði beðinn að taka við að nafni til, meðan deiluaðilar leiða sín mál til ykta. TENG YING CHAO Eiginkona Chaos, Teng ying- chao er ein af fáum konum í miðstjórn kommúnistaflokks Kína. Hún er forseti kvenna- samtaka landsins og á að baki mikið starf í þágu flokkssins. Hún fylgdi manni sínum gegn- um mikla erfiðleika. Þau misstu einkabarn sitt á flótt- anum frá Kanton og síðar veikt ist Teng af berklum og varð að bera hana í sjúkrabörum dögum og vikum saman á Göng unni miklu. Hjónaband hennar og Chou En-lais hefur verið eitt hið haldbezta í forystuliði flokksins. Milli þeirra eiginkvenna Chous og Maos hefur aldrei verið sérlega hlýtt og í upp- hafi menningarbyltingarinnar réðst Chiang Ching með hörku á Teng. Sé það rétt hins vegar að Chou og kona hans hafi tekið sér stöðu við hlið Maos er ekki nokkur vafi, að hún reymst Chiang Ching sterkari í fylgisöflun, — í þeim efnum nýtur hún bæði meiri reynslu og hylli en eiginkona Maos. CHEN Yl Loks er að geta Chen yi, ut- anríkisráðherra, sem er nú 65 ára. Einnig hann er sonur em- bættismanns frá keisaratíman- um og hlaut borgaralegt upp- eldi í suðvesturhéraðinú Szev- hwan. Chen Yi var við nám í Frakk landi ásamt Chou og hafa þeir alltaf haldið tryggð hvor við annan. Chen yi vann sér frama sem hermaður og var einn af tíu hæst settu hershöfðingjum landsins, áður en tignargráð- ur voru lagðar niður opinber- lega í hernum. Chen Yi tók ekki þátt í göng unni miklu, hann var þá yfir- maður fjórða hers kommún- ista, sem var einangraður f suðvesturhluta landsins og komst ekki til Yenan fyrr en síðar. Enda þótt Chen Yi hafi bor- ið fram svæsnari ásakanir í garð Bandaríkjamanna en nokkur annar stjórnarmaður Kína og virzt harðari í horn að taka, er hann örugglega tal- inn í hópi þeirra, sem vilja forð ast hörð átök, bæði innanlands og utan- og leysa heldur deil- urnar með samningum, svo unnt sé að halda áfram upp- byggingu lands og þjóðar í Kína. Mbj. Stokkhólmi og Kaupmanna- höfn, 7. feb. (NTB). Kaupmannaliafnarblaðið „In- formation" segir í dag að sam- kvæmt leynilegum bréfaskiptum ríkisstjórna Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar við stjórn Sovétríkj anna, hafi sovézkum farþega- flugvélum verið tryggð heimild til að fljúga yfir dönsk og sænsk landsvæði, jafnvel á hættutím- um. Hefur sænska utanríkisráðu neytið borið á móti þessari stað- hæfingu blaðsins. Information segir að ofan- greind heimild komi fram í leyni legum bréfaskiptum ríkisstjórn- anna í sambandi við samninga um heimild fyrir Norðurlanda- flugfélagið SAS til að fljúga yfir Síberíu og önnur sovézk land- svæði á flugleiðunum til Asíu- landa. Mikil leynd á að hvíla yfir heimild sovézkra flugvéla til að fljúga yfir Norðurlönd. og segir Information að sænsk yfirvöld hafi heitið því að halda samningn um leyndum í 50 ár, en norsk og dönsk yfirvöld um óákveðinn tíma. Tóbaki stolið AÐFARANÓTT mánudagslns var brotizt inn í Borgarnesti við Miklubraut. Var þar stolið um 20—30 lengjum af CanieL sígarettum, og um 25 vindla- kössum, aðallega HofnarvindL um. Er verðmæti þýfisins eitt- hvað um 15 þús. kr. Málið er í rannsókn. I fyrrinótt var svo brotizt inn í Borgarkjör við Grensásveg 26. Þar var stolið 6 lengjuim af Camel-sígarettum, pípum, og eitthvað um 100 kr. í smápen- ingum. Madrid, 7. fabrúar. — NTB. Stúdentarnir við spænska há- skóla sóttu enga fyrirlestra f dag, í mótmælciskyni við stúd- entahandtökurnar í fyrri viku. Háskólarnir í Madrid og Barce- lona eru enn lokaðir eftir óeirð- irnar í síðustu viku. Hvert Norðurlandanna þriggja á að hafa gert sérsamning um flug sovéaku vélanna, en fulltrú- ar Noregs hafa ekki fallizt á neina samninga að því er varðar flug sovézkra flugvéla á leið til Kúbu. Information segir að sovézk yfirvöld hafi ekki óskað eftir lendingarleyfum í Stokkhólmi eða Kaupmannahöfn til að taka þar farþega. Hinsvegar veita samningarnir heimildir til lend- inga af tækniástæðum, og þegar svo stendur á geta vélarnar skil- ið eftir farþega og póst í þessum borgum, en aðeins á ferðum frá Moskvu. Blaðið segir að í þeim liðum samninganna við sovézk yfirvöld sem kunnir eru, sé ekki minnzt á Kúbu, heldur aðeins talað um „flug til staða í Ameríku“. Eins og að ofan greinir hefur sænska utanríkisráðuneytið mót mælt þessari fregn Information. En í mótmælunum kemur ekkert fram um það hvað sé rangt við fréttina. Dagblaðið Information segir: Leynisamningar um flug sovézkra véla yfir Norðurlönd á hættutímum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.