Morgunblaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1967.
KR vann Ármann létt
68:38 og ÍR - ÍS 62:44
— En það var enginn glans
yfir leik sigurvegaranna
ÍSLANDSMÓTINU í körfu-
knattleik var haldiff áfram á
miffvikudagskvöld með tveim-
ur leikjum í I. deild. KR sigr-
aið Ármann 68-38, í frekar dauf
um leik og ÍR sigraöi ÍS 62-44
eftir nokkuð jafnan leik framan
af.
KR — Ármann I. deild, 68-38.
Leikurinn hófst með talsverð-
um hraða og hitni beggja liða
var langt fyrir neðan meðal-
] lag og ber stigatala 26-12 í hálf-
leik þess glöggt vitni. Mega Ar-
menningar muna fífil sinn fegri
en að skora aðeins 12 stig á 20
mínútum. Reyndar var enginn
Slagsmál á Italíu
TUTXUGU manns I Napali
höfnuðu í sjúkrahúsi og 22 í
fangelsi eftir óeirðir er urffu í
lok kappleiks Burnley og Napoli
liðsins í knattspyrnu. Ekkert
mark var skoraff í leiknum en
þau úrslit nægffu til að Burnley
er komið í undanúrslit keppninn
ar. Þaff þótti heimamönnum ekki
nógu hagstætt.
Terrell á
sjúkrahús
ERNIE Terrell lagðist á
miðvikudag í sjúkrahús í
Philadelphiu en þar verða
framkvæmdar rannsóknir á
augum hans. Hann særðist illa
á augum í kappleiknum við
Clay. Býzt hann við að verða
á sjúkrahúsinu um 3 vikna
tíma.
Framkvæmdastjóri hans
hefur látið svo um mælt að
hann muni fyrir hönd Terrells
æskja þess við hnefaleiikayfir
völd í Texas að þau refsi Clay
fyrir „óheiðarlegar" bardaga-
aðferðir hans í leiknum.
Fréttir í gærkvöldi herma
að skurðaðgerð verði gerð á
vinstra auga Terrels á föstu-
dag. Bæði augun reyndust
sködduð.
Bæði áhorfendur og leikmenn
urðu ofsareiðir og allmikið lög-
reglulið var hvatt á vettvang til
að bjarga þjálfara Burnley sem
fólkið náði í.
Ólæti urðu strx í byrjun leiks
ins. 60 þús manns voru á vellin-
um og voru fyrir leikinn hand-
teknir 7 svartamarkaðssalar
miða. Snemma kom til áfloga
milli ensks og italsks leikmanns
og síðan voru hnefar á lofti milli
liðsmanna með jöfnu millibili.
Síðustu minúturnar var hreint
neyðarástand á vellinum, bæði
úti á leikvanginum og á áhorf-
endapöllunum. Meðan leikmenn
slógust af hjartans list köstuðu
áhorfendur skemmdium ávöxt-
um og öðru handhægu út á völl-
inn.
Rannsókn ólátanna er hafin
en Burnley er sem sagt í undan
úrslitum eftir að hafa unnið fyrri
leikinn 3-0.
Inniæfíngoi
í golfi
GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur
er nú að hefja innanhússæfingar
fyrir félagsmenn sína. Verða þær
á miðvikudags- og föstudagskvöld
um kl. 8-10 í fimleikasalnum í
byggingu Laugardalsvallarins. Á
þessum tímum verður félögum
GR veitt tilsögn og kennsla. Nán
ar verða æfingar þessar auglýst
ar eða gétið um þær síðar.
FH-ingor í
hrokningum
d heimleið
LIÐ FH sem veriff hefur i
Ungverjalandi, sem frægt er
orðið, átti aff koma heim um
miffjan dag í gær. FH-ingar
ferffast meff þotu frá Pan Am
og lögðu frá Kaupmannahöfn í
gærmorgun. 1 • Glasgow upp-
lýstist að þotan myndi ekki
lenda í Keflavík en fljúga beint
til New York. Stigu þeir því
úr sínum ágæta fararkosti, og all
an daginn í gær og langt fram á
kvöld var óvíst hvenær þeir
myndu komast síðasta spölinn.
Vonir stóðu þó til að einhverjir
og e.t.v. allir myndu komast í
Loftleiffaflugvél, sem væntanleg
var til Keflavíkur í nótt. Seint
J i gær staðfestu Loftleiðamenn að
| allir FH-menn væri í LL-vél sem
I koma átti kl. 1.15. í nótt.
MOL AR
Enska liðið Leeds tryggði
sér sæti í 8 liffa úrslitum í
Borgakeppni Evrópu er liðið
vann Valencia meff 2-0 Valen-
cia á miðvikudagskvöld.
Fyrri leiknum lauk meff jafn-
tefli 0-0.
glans yfir leik KR-liðsins enda
vantaði þá tvo af sínum sterk-
ustu mönnum Kristin Stefáns-
son og Hjört Hansson, og hef-
ur það sjálfsagt gert sitt til
þess að veikja liðið.
f síðari hálfieik ná KR-ingar
sér heldur á strik og gjörsigra
hina mistæku Ármenninga 68-38.
Hjá KR eru aðalmenn, Kolbenn
Gunnar og Einar, en geta Ágústs
hins unga miðherja kom
skemmtilega á óvart og Jón Otti
hinn gamalkunni leikmaður KR
Framhald á bls. 31.
Leikið í 2. ðeild
í kvöld
í KVÖLD verður Landsmóti
handknattleiksmanna haldið á-
fram í íþróttahöllinni og leiknir
2 leikir í 2. deild. Keflavík kepp-
ir við ÉR og síðan KR og Þróttur.
Á laugardaginn fer fram einn
leikur í 2. deild á Akureyri og
mætast þá Akureyringar og KR.
Kolbeinn var máttarstólpi KR að venju.
Frœgustu knattspyrmilið Evrópu S:
Þrisvar í 8-liða úrslitum
en ekki lengra — Hvað nú?
EINN mesti knattspyrnu-
maður sem Tékkar hafa
nokkru sinni átt, Josef Mas-
opust — hetja liðs þeirra í
tveim heimsmeistaramótum
— en 36 ára gamall, enn í
fullu fjöri.
Undir forystu hans hefur
Dukla Prag komizt í 8 liða
úrslit í keppninni um Ev-
rópubikar meistaraliða í nú
í fjórða sinn. í þetta sinn
ala forráðamenn og liðsmenn
Dukla Prag þær vonir í
brjósti, að liðinu takizt að
sigra Ajax í Amsterdam og
komast þar með í undanúr-
slit keppninnar í fyrsta sinn.
Leikir Dukla Prag og Ajax
eru ákveðnir í Amsterdam 1.
marz og í Prag 8. marz.
Masopust var í framvarða
línu tékneska liðsins í HM
í Svíþjóð 1958 og í Chile,
en þá urðu Tékkar í 2 sæti
á eftir Brasilíumönnum. Nú
skipar hann stöðu miðherja
og hann er aðalskipuleggjari
allra sóknartilrauna liðsins.
Hvernig Masopust byggir
upp sóknarloturnar, og hvert
auga hann hefur fyrir vell-
inum í vörn mótherjanna,
hefur verið lykillinn að vel-
gengi Dukla Prag um mörg
undanfarin ár. Fræg um alla
Evrópu og víðar er hvernig
hann nýtir manninn sér við
hlið, innherjann Ivan Mraz,
sem er ævinlega markahæsti
maður liðsins.
Dukla Prag hefur unnið
tékknesku meistarakeppnina
8 sinnum síðan 1953. En í
hvert sinn (3 skipti) sem lið-
ið hefur náð að komast í
8 liða úrslit um Evrópubik-
ar meistaraliða, hefur það
ævinlega orðið að láta í
minni pokann. Tottenham
sigraði liðið 1962, Benfica frá
Lissabon sigraði Dukla 1963,
Borussia Dortmund vann við
ureign liðanna í 8 liða úr-
slitum 1964.
Enn í ár hefur Dukla Prag
mikla möguleika á að vinna
tékknesku meistarakeppnina.
Að keppninni hálfnaðri í
haust var Dukla í þriðja
sæti, 2 stigum á eftir því
Hði er forystu hafði.
Af beztu leikmönnum liðs-
ins. auk Masopust og Mraz
má nefna Ivo Novak, sem er
mjög mark „gráðugur“ leik-
maður. Hann er mjög hávax--
inn og þess vegna er það
ein af baráttuaðferðum Dukla
manna að senda honum hóar
sendingar — og margar
þeirra afgreiðir hann meist-
aralega vel með skalla.
Jiri Cadek, miðvörður
mjög sterkur og reyndur
varnarleikmaður Stanlislav
Struns, h. útherji er mjög
fljótur og leikinn og Josef
Nedorost, innherji, hefur oft
vakið á sér miklá athygli.
(í fyrri 4 greinum I þess-
um greinarflokki hefur ver-
ið talað um 16 liða úrslit.
Þetta eru mistök. Það eru
aðeins 8 lið eftir í keppninni
og biðjum þá, sem ef til vill
geyma upplýsingarnar um
þessi „frægustu lið Evrópú*
að leiðrétta þetta. í stað 16
Hða á að standa 8 liða úr-
slit).
Evrópukeppni í handknattleik
FB-HONVED
fer fram í íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal,
sunnudaginn 12. febrúar 1967 og hefst kl. 8:15 sd.
• Leikurinn, scm allir handknattleiksunnendur
hafa beðiff eftir.
Forsala aðgöngumiða hefst í dag í Bókabúð Lár-
usar Blöndals, Skólavörðustíg 2, og í Vesjturveri.
í Hafnarfirði: Hjólinu, Reykjavíkurvegi 1.
Verff aðgögnumiða er 125 kr. fyrir fullorðnna,
og 50 kr. fyrir börn.