Morgunblaðið - 06.04.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1967.
19
Halldóra Einarsdóttir
Thoroddsen - Minning
Föstudaginn 31. marz sl. lézt
hér í bæ Halldóra Einarsdóttir
Thoroddsen, öldruð kona, um
nírætt, en ern vel þó fram til
hins síðasta. — Var þar löng-
um og iðjusömu verkdegi lok-
ið.
Halldóra var mörgum Reyk-
víkingum kunn og öllum að
góðu, sem til þekktu. Margir
munu kunna betri skil á lífs-
ferli hennar en ég, svo að hann
verður ekki rakinn hér.
Fædd var hún í Vatnsdal í
Rauðasandshreppi í Barða-
strandasýslu. Ólst hún þar upp
í foreldrahúsum ásamt fimm ai
systkinum og tveim hálfsystr-
um. Er hún fór að heiman, ung
stúlka var hún skamma stund
á höfðingsheimili Ólafs Jóhann
essonar á Vatnseyri, en hélt svo
fljótlega til Reykjavíkur og þar
dvaldi hún lengstan part ævi
sinnar. — Aldrei sleit hún þó
tryggð og tengslum við fæðing-
arhérað sitt og fór allajafnan
árlega vestur á Barðaströnd á
meðan móðir hennar var á lífi.
Lét hún sér og alla tíð mjög
annt um ættingja sína, bæði
vestra og hér syðra, því að hún
var vinföst og trygglynd, og
mér lætur nærri að segja vest-
firzk í bezta skilningi þess orðs.
Kynni míns fólks af Halldóru
hófust fyrir um það bil fimm-
tíu árum, þegar foreldrar mínir
voru að stofna heimili og við
börn þeirra fórum að koma til
sögunnar. Mun viðkynningin
hafa orðið til fyrir atbeina Sig-
rúnar Eiríksdóttur, vinkonu
móður minnar, en Halldóra var
móðursystir hennar. — Þá var
efnahagur fólks ekki betri en
svo að barnafatasaum fólst mik
ið í að „venda og sauma upp
úr gömlum flíkum og var Hail-
dóra frábærlega nýtin í þeim
efnum. T.d. man ég enn eftir
forláta frakka, sem nún saum-
aði á mig upp úr gamalli yfir-
höfn af Franz sýslumanni afa
mínum og fylgdu sýslumanns-
hnapparnir með, sem ekki þótti
lakara. Mestu skrautklæði þe«s-
ara ára voru og blá flauelisíöt,
sem hún gerði mér og þóttu
praktulegur búningur.
Er tímar liðu varð Halldóra
ekki einungis hjálparhella móð
ur minnar við saumaskap, held-
ur líka góð vinkona. Síðar erfð-
um við börnin þann vinskap og
oft hljóp undir bagga með okk
ur, þegar við fórum að stofna
til eigin búskapar. — Það munu
margir aðrir Reykvíkingar á
okkar reki eiga sömu sögu að
segja af henni.
Auk góðrar verkmennsku
hafði Halldóra marga aðra kosti
til að bera. Hún var greind kona
og margfróð, fylgdist vel með
atburðum líðandi stundar, ekki
sízt stjórnmálum og var þar
sem endranær einörð í skoðun-
um. Enda þótt hún gæti verið
viðskotahörð í deilu, var hún
mjög umtalsgóð og bar hverjum
söguna sem bezta, enda vönd-
uð til orðs og æðis, og hlaut
af því vináttu margra sem mátu
mannkosti hennar að verðleik-
um. — Annars fór hún löngum
sínar eigin leiðir og var sjálfri
sér nóg, þótt hún vildi ógjarn-
an missa sjónir af ættfólki sínu.
Þau eru ýms verkefnin í
hverju þjóðfélagi, og kannski
flest þar sem fámennið er mest
og fjárráðin minnst. Án þess að
á nokkra starfsstétt sé hallað
kann það löngum að hafa ver-
ið ein brýnasta nauðsynin að
smíða þak yfir fjölskylduna,
gera henni skó og sauma fatn-
að á börn og fullorðna fyrir ut-
an matbjörgina. Ég held að þeir
sem slík störf vinna, hvort held
ur er í smáum eða stórum stíl,
gegni enn þörfu verki.
Þagar ég með þessuni línum
kveð konu, sem að nokkru
klæddi tvo ættliði minnar ættar,
vildi ég gjarnan mega benda á
að þau eru mörg nálarsporin,
smá og stór, sem þarf til þess að
fella eitt þjóðfélag saman og að
þar ræður velvirknin, iðjusemin
og skylduræknin miklu um að
til takist, hvar á stalli, sem
menn kunna að sitja í þjóðfé-
lagsbyggingunni.
Ég veit að ég er ekki einn um
það, þeirra vegfarenda sem urðu
á leið Halldóru Einarsdóttur
Thoroddsen, sem telja að hún
hafi vel setið sinn sess þótt lítt
væri hljóðbært um hana. Minn
ingu hennar fylgir hlýtt hug-
arþel og þakkir móður minna^'
og okkar systkina.
Birgir Kjaran.
Stúlka óskast
til skrifstofustarfa, vélritunar og símavörzlu. Bók-
haldskunnátta æskileg. Tilboð er greini fyrri störf
sendist Mbl. merkt: „Iðngarðar — 2126“.
PILTAR, =
EFÞIÐ EIGIP UNNUSTDNA
ÞÁ Á ÉG HRINGANA /
fC/c>rfá/j tem/ni(s$onk Wz.
Jtetefr'xr/8 v=
LOFTUR hf.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 1-47-72.
BJARNI BEINTÉINSSOH
LÖGFRÆÐINGUR
AUSTURSTRÆTI 17 (silli & VALD*
SlMl 13536
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar,
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símar 12002 - 13202 - 13602.
Chiffon kjólar
Jersey kjólar
Crimplene kjólar
Dökkar blússur, pils.
LÓLÝ
Vesturveri
Sími 22822 - 19775.
Pottamold
Blómaáburður
nsHsnii
ROTODATE
Sjálfvirkt 44 steina
100% vatns- og rykþétt úr með
dagatali Verksmiðjuábyrgð
Merkið tryggir gæðin!
Úrsmiður
HELGI JtJLlUSSON
Akranesi.
GEFIÐ ÞESSA
HUGÞEKKU OG
FALLEGU BÓK
TIL
FERMINGA
GJAFA
ÚTGEFANDI
ÆSKULÝÐSNEFND
KIRKJUNNAR
zlitafg
Tilboð óskast í sölu og uppsetningu á
þremur lyftum í Landspítalabygging-
unni í Reykjavík. Útboðsgagna má vitja
á skrifstofu vora gegn 1000 kr. skilatrygg-
ingu.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Orðsending til
viðskiptavina
Þar sem ekki hefur tekizt að fá framlengt
leigusamningi um húsnæðið á Snorra-
braut 38, verður verzluninni þar lokað um
miðjan apríl n.k. Til þess tíma seljum
við allar vörur í verzluninni með miklum
afslætti. ATHUGIÐ AÐ ALLAR VÖRUR
ERU SELDAR MEÐ AFSLÆTTI, HVORT
SEM UM ER AÐ RÆÐA NÝKOMNAR
VÖRUR EÐA ELDRI.
Eftir að verzluninni hefur verið lokað
biðjum við viðskiptavini okkar að snúa
sér til verzlananna á Laugavegi 38 eða
Skólavörðustíg 13.
-e Ifu r
Snorrabraut 38, sími 10766.
ÚTGERÐARMENN
Ltvegum yður frá einum stærstu
netaverksmiðjum Japans nótaefni
Höfum einnig nótaflot og lóg
Athugið hina góðu greiðsluskiSmála
l Tl SjAvaiafuidadeild