Morgunblaðið - 06.04.1967, Page 27

Morgunblaðið - 06.04.1967, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1967. 27 Unga fólkið ræðir mál- efni Norðurlandaráðs HELSINGFORS 5. apríl. Frá Styrmi Gunnarssyni, blaðamanni. Á Norðurlandaráðsfundinum, er staðið hefur hér í Helsingfors nndanfarna daga, hafa setið á- heyrnarfulltrúar frá stjómmála- samtökum ungs fólks á Norður- löndum. Af fslands hálfu hafa sem slíkir setið fundinn Ámi Grétar Finnsson, formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna og Björn Tcitsson, fulltrúi Sam- bands ungra framsóknarmanna. Fulltrúar stjórnmálasamtaka unga fólksins á Norðurlöndum héldu blaðamannafund í dag, þar sem þeir lýstu afstöðu sinni til hinna ýmsu mála, sem fram hafa komið á Norðurlandaráðsfundin- um. Árni Grétar Finnsson, formað- ur Sambands ungra sjálfstæðis- manna lýsti yfir því á þessum fundi, að samtök hans styddu fyllilega óskir Færeyja um aðild að Norðurlandaráðinu og hið sama gerði fulltrúi Sambands ungra framsóknarmanna. Full- trúar Dana og Norðmanna tóku í sama streng, en fulltrúi Finna sagði, að þá yrðu Álandseyjar einnig að fá aðild. Áheyrnarfulltrúarnir h ö f ð u mjög mismunandi sjónarmið gagnvart starfi Norðurlandaráðs. Norski fulltrúinn lét í ljós þá skoðun, að ráðið ætti að fá á- kvörðunarvald í ýmsum málum og það sjónarmið kom einnig fram, að Norðurlandaráð ætti að einbeita sér að stórum grund- vallarmálum Norðurlandaþjóð- anna, en að embættismanna- nefndin gæti auðveldlega sinnt ýmsum þeim málum, sem rædd hafa verið á þessum fundi. Danski fulltrúinn kvaðst vona, að Noregur, Danmörk og Svíþjóð fengju aðild að Efnahagsbanda- laginu og jafnframt, að ísland og Finnland tengdust því með einhverjum hætti. Nýjar hyrnur og fer- kantaðar umbúðir VTÐ fréttum í gær, að nýjar mjólkurhyrnur væru komnar í umferð í borginni og hringd- um til Stefáns Björnssonar, forstjóra Mjólkursamsölunn- ar til að kanna málið. Tjáði Stefán okkur, að þær hyrn- ur, sem nú eru komnar á markað, væru ekki um annað frábrugðnar þeim sem fyrir eru en að lit, en hins vegar væri senn að vænta úrbóta í hyrnu- málum borgarinnar. Er þar í fyrsta lagi um að ræða nýja gerð af mjólkurhyrn- um, sem verða plasthúðaðar bæði að utan og innan. Þær hyrnur, sem nú eru á markaði éru aðeins plasthúðaðar að inn- an. Þessar hyrnur verða væntan- lega á markaði hér seint í maí Mælifell ekki Blikur í FRÉTT af skipsstrandi á Djúpavogi, sem birtist í Mbl. hinn 4. april sl. stendur, að Blikur hafi strandað þar eystra í vetur. Hér mun um ranghermi að ræða. Það var Mælifell, en ekki Blikur, sem strandaði. E.'U Ihlutaðeigendur beðnir afsökun- eða í júní nk. Þá tjáði forstjóri Mólkur- samsölunnar okkur ennfremur, að ferkantaðar mjólkurumbúðir væru senn væntanlegar á ís- lenzkan markað. Standa vonir til að þær verði komnar hér í búðir í næsta mánuði. TundurspiiSar í heimsókn HINN 26. þ.m. munu fjórir tundurspillar koma i heimsókn til Reykjavíkur. Skip þessi taka nú þátt í hinum árlegu flotaæf- ingum Atlantshafsbandalagsins og er eitt þeirra hollenzkt, eitt brezkt og tvö bandarísk. Þau sigla út aftur 29. þ.m. (Frá utanríkisráðuneytinu). Teheran, 5. apríl AP. # íranskeisari og frú fara í opinbera heimsókn til Banda- ríkjanna 12. júná n.k. og dvelj- ast þar tvo daga sem gestir Johnsons, forseta. Er þetta fimmta opinbera heimsókn keisarans til Bandaríkjanna og þriðja heimsókn keisarafrúar- innar. Frk. Gutarp með nokkrum n emenda sinna. — (Ljósm. Mhl. Sv. Þ.) Husqvarnasöluenenn Bæra viðgerðir og meðfferð FYRIRTÆKIÐ Gunnar Ásgeirs- son h.f. bauð fyrir skömmu um- boðsmönnum sínum víðs vegar af landinu til Reykjavíkur, til að kynna sér meðferð og við- gerðir á Husqvarnasaumavéium. Var þar sérstaklega tekin fyrir Husqvarna 2000, fullkomnasta vélin. Tveir sænskir sérfræð- ingar komu hingað til lands til að stjórna námskeiðinu, þau fröken Gutarp, deildarstjóri Horfir iila með fóður* birgðir ÆRLÆK 5. apríl. — Frá 20. febrúar hefur verið argasta ótíð með frosti og stórhrið. Jarðbönn hafa verið um allt og vegir ó- færir. í gær og dag er verið að moka Kópaskersveg vegna fóð- urvöruflutninga. í gær lögðu nokkrar jeppa- bifreiðar með fólk og flutning frá Kópaskeri suður Axarfjörð, en þá skall á ofsa norðvestan stórhríð. Hlóð niður fönn svo að bílarnir komust ekki nema að Núpsmýri. Fólkið náði að Núpi til gistingar. Tveir bílanna eru bilaðir. í dag er gott veður svo að von- andi kemst fólkið áfram. Horfur með fóðurbirgðir eru ekki góðar. — Fréttaritari. Athugasemd v/ð Jbáttinn ,Ur verinu' í GREININNI „Úr verinu“ sl. sunnudag ræðir Einar Sigurðs- son m.a. um sölur sjö togara í Bretlandi í sl. viku og segir: „Skipunum var fyrst haldið 2 sólarhringa án þess að fá að selja vegna forgangs brezkra togara. Þegar kom að því, að þeir máttu selja, var helming- urin af aflanum orðinn skemmd ur. Hér er aðeins talið það magn, sem seldist.“ Þessi frásögn er mjög villandi að því leyti, sem í henni er rætt um skemmdan fisk. Það er rétt, að söluörðugleikar voru miklir og var mikið af aflanum óselt, eða selt til söltunar eða vinnslu 1 dýrafóður, þótt neyzluhæft væri, en þó var hjá skipunum nokkuð, en mismikið magn skemmt, og má vera að biðin í Bretlandi hafi átt sinn þátt í því. Verð á fiski til söltunar og til dýrafóðurs er miklu lægra en á fisM tll venjulegrar neyzlu, en þó margfalt betra en á fiski sem fer í mjölvinnslu. Þegar fiskur er óseldur á markaðnum, er það vegna þess, að enginn áhugi er á kaupum á honum, þótt neyzlu- hæfur sé, og er þá ekki um ann- að að ræða en að selja hann til mjölvinnslu á sama verði og skemmdan fisk. Til glöggvunar fer hér á eftir yfirlit yfir fiskmagn skipanna í tonnum, eftir því hvernig því var ráðstafað, svo og söluverð. sölureikningum umboðsmann- anna í Englandi. Um bið skipanna eftir löndún í Bretlandi er það að segja, að b.sv. Röðull og Svalbakur þurftu að bíða, b.v. Harðbakur, Sigurður og Egill Skallagríms- son biðu löndunar einn dag, en b.v. Sléttbakur og Víkingur tvo daga. í sambandi við frásögn Ein ars um aflahæsta skip Breta árið 1966, „skottogarann” Somerset Maugham, skal þess getið til fróðleiks, að hér er ekki um skuttogara að ræða, heldur venjulegan síðutogara. Er hann 789 brt. að stærð, smíðaður í Beverley í Bretlandi árið 1961. Þetta skip hefir tvívegis áður verið aflahæsta skip brezka tog- araflotans. kennsludeildar verksmiðjanna og Vinquist, deildarstjóri við- gerðardeildar. íslenzki aðilinn sem kennsluna annaðist var Erla Ásgeirsdóttir en hún hef- ur annast þessa kennslu í átta ár fyrir G. Ásgeirsson. Námskeið petta er haldið m. a. til þess að umboðsmennirn- ir geti sjálfir lagfært smávægi- legar bilanir, sem verða kunna, þannig að ekki þurfi að eyða fé og tíma í að senda vélarnar suð ur. Á fundi með fréttamönnum sagði Gunnar Ásgeirsson að nýj ar og fullkomnar saumavélar væru nokkuð dýr tæki og fólk ætti tvímælalaust heimtingu á því að öll þjónusta væri góð, bæði í sambandi við viðgerðir og kennslu. Því hefðu þeir t.d. þann háttinn á að láta kaupend um í té ókeypis kennslustundir, auk þess sem alltaf er hægt að ná sambandi við Erlu ef nán-i ari leiðbeininga er þörf. Sparikaup, nýtt greiðslukerfi GUNNAR Ásgeirsson h.f. hefur tekið upp nýja söluaðferð sem hann nefnir „Sparikaup“ og er til þess ætluð að auðvelda kaup á ýmsum hlutum, sem fólk þarfnast en á í erfiðleikum með að eignast vegna fjárhags sins. Gunnar Ásgeirsson tók sem dæmi unga stúlku, sem væri í þann veginn að fara að gifta sig. Hún gerði samning við fyr irtækið á þá leið, að í átta mán uði greiðir hún mánaðarlega 1/14 hluta af andvirði vélarinn- ar. Að þeim tíma liðnum fær hún vélina afhenta og greiðir eftirstöðvarnar á næstu sex mánuðum. Gagnstætt því sem er með af borgunarskilmála, sagði Gunnar kemur enginn aukakostnaður til greina, hluturinn er fenginn á staðgreiðsluverði. Ef til þess kæmi að til pen- inganna þyrfti að grípa í neyð- artilfelli, er hægt að rifta kaup- samningum, þá er það fé sem búið var að borga inná, end- urgreitt með. Að vísu er hlut- urinn ekki afgreiddur fyrr en eftir átta mánuði, en þá kemur til. heldur engin aukagreiðsla aðeins staðgreiðsluverð. Þeir sem eru að koma sér upp íbúð eða húsi eiga oft í erfið- leikum þegar kemur að því að kaupa heimilistæki, sagði Gunn ar. Þeim yrði greinilega mikil hagræðing að því að byrja á Sparikaupum átta mánuðum áður en íbúðin á að vera ti 1- búin og greiða svo eftjrstöðv- arnar á næstu sex. Gunnar kvaðst hafa látið reikna út sparnað við Spari- kaup, miðað við afborgunarskil- mála, þar sem einn þriðji er borgaður út og eftirstöðvarnar á átta mánuðum. Á Husqvarna saumavél (cl. 2000) sparast. 940 krónur, á Blaupunkt sjónvarps- tæki Palermo 1900 krónur, á eldavélasamstæðu, fjögurra hellna, 1200 krónur og á þrett- án feta bát með Utanborðsmót- or, 1400 krónur. Sparikaup hafa rutt sér mjög til rúms víða um heim og nú er vart sá hlutur til sem ekki er hægt að fá með því móti. Fólk er jafnvel farið að leggja fyrir fé á þennan hátt til sum- arferðalaga. Selt Seltí Óselt, Skemmt, til salt og fór í fór í Nafn skips Sölud. Heildarm. neyzlu dýraf. mjölv. mjölv. Söluv. Röðull 28/3 168.1 98.1 26.5 38.7 4.8 8.538,— Svalbakur 28/3 154.5 121.1 30.5 2.9 10.073,— Harðbakur 30/3 223.5 137.9 34.1 28.6 22.9 10.485.— Sigurður 30/3 184.2 25.3 14.9 38.8 105.2 4.882,— Egill Skallgr. 31/3 192.7 108.6 43.9 1.0 39.2 8.246,— Sléttbakur 31/3 160.1 111.4 28.3 6.9 13.5 7.090,— Víkingur 31/3 270.2 89.3 109.5 37.0 34.4 8.909 — Mest af óselda fiskinum var 5. apríl 1967. í gær var no’-ðan áttin að ganga niður austan til á land inu en heldur vaxandi A- kaldi á Vesturlandi. Víðast var léttskýjað siðdegis en smám saman að þykkna upp vestanlands. Lægðm við Hvarf fer norðaustur. Ætti að vera slydda og rigning á vestanverðu landinu fyrst í dag, en sennilega mun vind- ur svo verði suðlgar með rigningu eða súld. steinbítur. Taflan er gerð eftir Fél. isl. botnvörpuskipaeigenda. J-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.