Morgunblaðið - 16.04.1967, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.04.1967, Blaðsíða 17
MOROUNBLAÐH), SÚNNUDAGUR 16. AFRf?TÍ9S5. 'v VL Ánægjuleg heim- •í'% W»V"W!.' s" 'X' sókn Heimsókn mssneska fiskimála Háðherrans, ískofs, og fylgdar- manna hans hingað til lands er íslendingum mikið ánægjuefni. ískof er kominn nokkuð á sjö- tugsaldur, hress og kátur, fullur álhuga á að kynnast aðstæðum hér og fús til að veita allar upp- lýsingar, sem hann er spurður um varðandi fiskimál Sovét- Rússlands. Hann er nú búinn að vera fiskimálaráðherra frá því á árinu 1940 og hafa fiskveiðar Rússa margfaldazt á þeim árum. f Sovétsamveldinu eru nú um það bil 160 þúsund fiskimenn á úthafsflotanum. Frá Murmansk- svæðinu eru gerð út fiskiskip, sem á eru um það 60 þúsund menn. Þeir eru bæði við fisk- veiðar á norðanverðu Atlants- hafi og við Afríkustrendur, því að sovétmenn hafa ekki sömu andúð á fiskveiðum við Afríku- strendur og lærisveinn þeirra Lúðvík Jósefsson virðist hafa. íslendingum. er það mikill vinn- ingur, að svo áhrifaríkir menn sem rússneski fiskimálaráðherr- ann og förunautar hans kynnist aðstæðum hér. Ráðherrann er ekki myrkur í máli um það, að hann vilji stuðla að því, að þrátt fyrir auknar fiskveiðar sovét- manna sjálfra, þá haldi þeir á- Mynd þessi er úr Eyjafirði og sýnir hina miklu vatnavexti við Hólmana í leysingunum undan- farið. Venjulega er þarna þurrlendi. Neðst á myndinni fellur vatnið undir ræsi í vegi. (Ljósm.: Sv. P.) REYKJAVIKURBREF ^^^-^.Laugardagur 15. apríL fram að kaupa íslenzkar fiskaf- urðir. Þá leggur hann á það höfuðáherzlu, að þjóðirnar þurfi að vinna saman að vísindarann- sóknum og friðun fiskistofna til að koma í veg fyrir eyðingu þeirra. Sannarlega má ekki standa á íslendingum um þvílíka samvinnu og er þýðingarmikið, svo voldugt ríki sem Sovét-Rúss- landi styðji hana. Davíð Ólafsson seðlabankastjóri Vandfundinn mun hæfari mað ur til þess að taka að sér stöðu sieðlabankastjóra en Davíð Ólafsson. Hann er gerkunnugur höfuðatvinnuvegi íslendinga, sjávarútvegi. Stöðu fiskimála- stjóra eða formennsku Fiskifé- lagsins er hann búinn að gegna í meira en aldarfjórðung, og kemur öllum saman um, að starf sitt hafi hann leyst af hendi með þeim ágætum, að á betra verði ekki kosið. Davíð nýtur trausts allra þeirra, sem honum kynnast, og trúnaðarstörfin, sem honum hafa verið falin, eru fleiri en tölu verði á komið í fljótu bragði. Hann hefur verið í fjölda sendinefnda erlendis fyrir ís- lands hönd og verið valinn til formennsku í alþjóðlegum stofn- unum vegna frábærra hæfileika sinna. Davíð átti sæti á báðum Genfarráðstefnúnum um land- helgismálið á árunum 1958 og 1960. í því máli sem öðrum var hann bæði tillögu- og úrræða- góður og á manna mestan þátt í því, sem þar hefur áunnizt. Á Alþingi hefur hann setið síðasta kjörtímabil sem fulltrúi Reyk- víkinga þótt landkjörinn væri að nafni og hafði áður komið öðru hvoru á þing sem varafulltrúi. Davíð er enginn málskrafsmað- ur, en ekki fer á milli mála, að hann var í hópi starfshæfustu þingmanna, og er mikil eftirsjá að honum af Alþingi. En Seðla- bankanum er styrkur að því, að Davíð ákuli verða einn af stjórn- endum bankans. Maður ehki mikilsháttar Ekki verður það sagt um Jón Skaftason, að hann sé labbakúts- legur í útliti, hann er puntuleg- ur maður að sjá og býður af sér sæmilegan þokka í augum þeirra, sem þekkja hann lítið. En hann reynist ekki mikill í sér. Þegar allir vissu, að Ólafur Thors var sárveikur og hafði horfið af Alþingi fyrir tveimur mánuðum sökum sjúkleika, hafði þessi samþingmaður hans geð í sér til að segja í alþjóðaráheyrn um Ólaf: „Hann viðurkenndi ósigur sinn í verki og sagði af sér stjórnar- forystu, er verðbólguglíman var töpuð og stjórnin stóð uppi ráðalaus og gat ekki komið fram löggjöf á þingi, sem hún hafði bundið heiður sinn við að fram- kvæma.“ Réttum 10 dögum eftir að Jón Skaftason flutti þessi margföldu ósannindi um Ólaf Thors, and- aðist hinn mikilsvirti þjóðskör- ungur. En Jón lætur ekki enda- sleppt um minningu Ólafs Thors, því að í útvarpsumræðum nú í vikunni vitnaði Jón mjög vill- andi í síðustu áramótaræðu Ól- afs, sem hann flutti 31. des. 1962. Af þessum sökum er fróðlegt að rifja upp það, sem Ólafur Thors lagði síðast til íslenzkra stjórn- mála. Ólafur tók þátt í flokks- ráðsfundi Sjálfstæðismanna 8. og 9. okt. 1964. í lok fundarins flutti hann ræðu og bar fram tillögu um ályktun flokksráðs- ins. r Alyktunarorð Ólafs Thors Tillaga Ólafs, sem samþykkt var í einu hljóði var á þessa leið: .„Flokksráðsfundur Sjálfstæð- isfíokksins, haldinn í Reykjavík 8.—9. október 1964, lýsir ánægju sinni yfir, að tekizt hefur að standa vörð um gengi íslenzku krónunnar eins og flokksráðið lagði megináherzlu á í ályktun sinni í október í fyrra. Fundurinn fagnar þeim al- hliða árangri, sem viðreisnar- stefnan hefur áorkað í íslenzku þjóðfélagi, þar sem nú ríkir frelsi í stað fjötra og hafta áð- ur og tekizt hefur að endurvekja fjárhagslegt álit íslendinga með öðrum þjóðum. Fundurinn þakkar forystu rxk- isstjórnarinnar um það víðtæka samkomulag, sem tókst milli launþega og atvinnurekenda sl. vor og milli bænda og neytenda nú á þessu hausti, en hvort tveggja hefur treyst vinnufrið og samstarf stéttanna í þjóðfélag- inu. Fundurinn vekur þó athygli á, að framundan er að leysa ýmis vandamál, er leiða af þessu sam- komulagi og treystir fundurinn, að sem víðtækast samstarf geti um það skapast. Fundurinn leggur áherzlu á, að með vinnufriði verði unnt að einbeita orku þjóðarinnar að al- hliða eflingu atvinnulífsins, þ. á m. stórvirkjunum og stóriðju, til þess að tryggja sífellt betri lífs- kjör og skapa skilyrði fyrir blómlegri menningu Íslendinga í nútíð og framtíð“. „Fylgt fast eftir af öðrum Magnxis Kjartansson, maður- inn, sem í vetur talaði um sálar- háska vegna þess að „búksorg- ir“ væri að hverfa af íslandi og lýsti síðar aðdáun sinni á „út- smoginni illkvittni" þykist nú hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Fyrir nokkrum vikum hóf hann í Þjóðviljanum einkenni- legan áróður. Hinir og þessir menn í öðrum flokkum voru nefndir, atferli þeirra vítt en jafnframt berum orðum tekið fram, að vítunum væri einnig beint að öðrum ónefndum. Hinn 18. febrúar birtist t.d. í Þjóðvilj- anum greinarstúfur undir heit- inu „Ættarþjóðfélag.“ Þar segir m.a.: „Sú einkennilega stefna ryð- ur sér til rúms á íslandi um þessar mundir að opinber trún- aðarstörf skuli ganga í arf. — — Og nú virðist eiga að taka upp þann hátt að láta þingsæti ganga í arf. — — — Sóttu feðurnir þessa erfðatilhögun svo fast að þeim tókst að bægja til hliðar öllum félagslegum og stjórnmálalegum sjónarmiðum. Þessir valdamenn telja sig auð sjáanlega eiga þingsætin á sama hátt og þeir eiga íbúðir eða bíla og telja sér heimilt að afhenda afkomendunum eign sína. Má telja líklegt að þessu fórdæmi verði fylgt fast eftir af öðrum á næstunni.------- Þetta nýja ættarlþjóðfélags- kerfi myndi að sjálfsögðu gera alla stjórnmálabaráttuna ein- faldari en nú er. Innri átök í flokkum myndu leggjast niður ásamt öllum þeim viðkvæmu umsvifum sem fylgja starfsemi kjörnefnda og annarra hlið- stæðra stofnana. Eina óvissan er tengd kosningunum sjálfum; til þess að koma arfinum örugglega til skila þurfa menn helzt að eiga atkvæðin einnig. En fyrir því eru raunar einnig forn for- dæmi að ættarhöfðingjar teldu sig eiga liðsmenn sína.“ „Sérf ræðingur í að smjúga64 Hinn 12. marz sagði svo í Þjóð- viljanum, að „ekki væri seinna vænna“ að hindrá framboð manna, sem lýst var svo: „Þeir eru ekki valdir til þing- mennsku vegna þess að þeir hafi reynzt ötulir forustumenn stétta eða samtaka; ekki sökum þess að þeir kunni að boða merkileg sannindi og kynna þarflegar hug sjónir; ekki af því að þeir séu sérfræðingar; þeir hafa aðeúis valið sér stjórnmálin sem at- vinnu, sem leið til fjár og frama og otar sér áfram samkvæmt lögmálum valdastreitunnar. Ung ir menn af þessu tagi hafa mjög látið að sér kveða innan Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins um skeið; þeir eru eins og verksmiðjuframleiðsla og verða naumast aðgreindir, slétt- ir og felldir og háttvísir í um- gengni, forðast að segja frum- lega hugsun, eða valda ágrein- ingi enda skoðanalausir, þægir og hlýðnir við leiðtoga sína, sér- fræðingar í að ýt?x sér, troðast og smjúga.“ Þó að skeytinu væri í orði kveðnu beint að tilteknum mönn um innan annarra flokka, duld- ist engum að það var einnig ætl að til heimabrúks í Alþýðu bandalaginu. Hin „útsmogna“ lævísi leyndi sér ekkL Spilling metorða- strits og einkahags muna Til þess að taka af allan vafa, var svo Þjóðviljinn látinn birta fopustugrein um frambjóðend'a- valið, rétit áður en Alþýðubanda , - 'lagið skyldi ákveða framboð sitt tíér í 'Reykjavík. Hinn 5. apríl segir þar: „Alþýðubandal agið var ekkl stofnað og hefur aldrei verið til þess a&tlað að verða vettvang- xir manna, sem stunduðu stjórn- mál af metorðastriti og persónu- legu framapoti; það er höfuð- villa i aliþýðusamtökum setji einhver persónulegan metnað og völd ofar heildarhagsmunum samtakanna og fólksins. í alþýðu samtökunum hlýtur það að vera algild krafa, að trúnaðarmenn samtakanna og þeir sem samtök- in ætlast til að sýndur sé trún- aður, séu menn sem reyndir eru að hæfileikum til starfa og sam- starfs við félaga sína og aðra, og eigi þá trúmennsku við alþýðu- málstaðinn, sem útilokar að spill ing metorðastritsins og einba- hagsmuna nái að smjúga inn i samtökin------------- Alþýðubandalagið er ungt og enn mjög í mótun. Þó munu bregðast þær vonir andstæðinga alþýðunnar, að það eigi eftir að leysast upp í klíkur, sem ekki hafi annað þarfara að starfa en rífast og sparka hver í aðra. Séu þeir menn til innan Alþýðu- bandalagsins, sem halda að inn- anflokksbarátta, barátta við fé- laga sína, sé mikilvæg og ómiss- andi íþróttagrein, hljóta þeir sem stærri skammt eiga af heil- brigðri skynsemi og ríkari á- byrgðatilfinningu að sannfæra >á um, að Alþýðubandalagið var til annarar baráttu ætlað.“ Ekki vantar nú helgislepjuna, enda hefur hinn „útsmogni“ tal- ið hyggilegra að láta meðrit- stjóra sinn setja sinn staf undir þessa grein. Um upphafið og til- ganginn verður þó ekki villst. „Nú er byi >6 Þegar Magnxis Kjartansson var með þessum aðferðum og öðr- um ámóta búinn að smjúga upp efsta sæti á lista Alþýðubanda- lagsins hér í bæ, skrifaði hann sigri hrósandi grein, sem hann kallaði: „Nú er byr“. Barnaleg gleði yfir að hafa náð þráðu marki metorða og einkahagsmuna blasti við öllum. En lævísinni er ekki unnt langr- ar hvíldar. Hinn 13. apríl segir í Þjóðviljanum: „Og á framboðslistanum nú er Jón Snorri Þorleifsson — — — staðfesting þess að samtökin eru nú mun víðtækari en þau voru áður. Að sjálfsögðu mun Jón Snorri eins og aðrir mega una því að vera kallaður kommún- isrti í andstæðingablöðunum, en skyldi ekki til að mynda minn- isgóðum lesendum Tímans finn- ast sú nafngift næsta einkenni- leg?“ Ögrunin til Tímans er skiljan- leg, því að það blað hampaði lengi Jóni þessum og taldi hann jsauðtryggan Framsóknarlegáta. Meðan því fór fram hældust kommúnistaforsprakkarnir yfir því að leiika þannig á Framsókn og koma laumukomma þar til verulegra áhrifa. I fyrra þóttust kommar hins vegar þurfa á Jóni að halda í heimahúsum og var hann þá ekki seinn á sér að gegna kalli húsbænda sinna. Á gagnstæðan veg telja kommún- istar sig nú vera búnir að hafa þau not af Hannibal Valdemars- syni, sem hann geti veitt þeim. Honum er þá sýnt í tvo heim- ana og fyrir allra augum lát- inn vita að hafi hann sig ekki hægan sé ekkert auðveldara en að kippa alveg undan honum fót unum. Til frekari áherzlu er sonur hans hrakinn og hrjáður til að sýna gamla manninum fram á, hverju hann sjálfur megi við búast, ef hann gegni ekki kalLL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.