Morgunblaðið - 27.06.1967, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1967.
25
Þorsteinn B. Císlason
próf. í Steinnesi 70 ára
hériaðstófðinigium þessa lands
' SÁ HINN virðulegi prófastur
Húnvetninga, séra Þorsteinn B.
Gislason í Steinnesi var.ð 70 ára
í gaer. Hann er fæddur í Por-
sæludal í Vatnsdal 26. júní 1897
sonur hjónanna Gísla Guðlaugs
sonar bónda í Sunnuhlíð og konu
hans Guðrúnar Magnúsdóttur.
Hann gekk menntaveginn og
tók stúdentaspróf í Menntaskóla
Reykjavíkur árið 1918, og guð-
frœðipróf í Háskóla íslands í
febrúar 1922. Bæði þessi próf
tók hann með góðri 1. einkunn.
Hann var ráðinn aðstoðarprest
ur hjá séra Bjarna Pálssyni pró-
fasti í Steinnesi árið 1922 og
settur í embættið strax eftir að
sr. Bjarni andaðist. Honum var
svo veitt Þingeyraprestakall í
érslok 1922 og hefur hann
gegnt því alla tíð síðan. Hann
flutti á prestsetrið Steinnes í
Þingi vorið 1923 og hefir búið
þar óslitið alla tíð frá þeim
tíma.
Hann fevæntist 13. júlí 1922 Ól-
ínu Benediktsdóttiur frá Hrafna-
björgum, sem er systurdóttir
Guðmundar Ólafssonar alþm. í
Ási. Er það ágæt kona, mjög
myndarleg, vel greind og fyrir-
myndar húsfreyja. Hefir þeirra
hjónaband verið farsælt og gott.
Þau eignuðust þrjú börn, sem
nú eru öll fullorðið fólk.
Þau eru: 1. Sigurlaug, gjald-
keri i Búnaðarbanka Islands,
ógift, 2. Guðmundur prestur á
Hvanneyri, kvæntur Ásu Bjarna
dóttur frá Reykjavík. 3. Gísli,
kvæntur Lilju Jónsdóttur frá
Sauðárkróki. Hefir hann verið
undanfarin 1% ár aðstoðarlækn-
ir á sjúkrahúsinu á Kleppi, en
er nú á förum til framhaldsnáms
í Svíþjóð.
Öll eru þessi systkin hið ágæt
asta fólk, svo sem ætt og upp-
eldi gefa efni til.
Fyrir 16 árum var síra Þor-
steinn skipaður prófastur í
Húnavatnssýslu og hefir gegnt
því embætti alltaf síðan með
mifelum skörugsskap.
Þorsteinn prófastur hefir ver-
lð frekar hlédrægur til opin-
berra starfa í okkar félagslífi.
Hefir honum þó eigi undan því
komist, að slík störf hafa á
Ihonum hlaðizt meira en hann
hefir óskað. Eru þessi þar helzt:
í hreppsnefnd Sveinsstaðahrepps
var hann í 41 ár og jafn lengi
formaður sikólanefndar í sömu
sveit. Hann hefir verið í stjórn
Kaupfélags Húnvetninga í 31 ár
og er þar enn. í skattanefnd
Sveinsstaðahrepps í rúm 30 ár.
I stjórn Sögufélags Húnvetninga
hefir hann verið í mörg ár og
einnig , stjórn Prestafélags
Húnavatnssýslu. Fulltrúi á
Kirkjuþingi íslands hefir hann
verið síðan það var stofnað og
verður áfram.
1 Á menntamálum hefir síra
Þorsteinn mikinn og einlægan
áhuga, enda er hann mjög vel
menntaður maður, ekki einasta
1 kirkjulegum fræðum, heldur
líka í þeim fræðum er mestu
máli skipta í okkar daglega lífi,
sem eru: íslenzk saga og stærð-
fræði.
Hann tók líka það sér fyrir
hendur, sem mörgum þótti
miklu máli skipta, að stofna
unglingaskóla á heimili sínu
Steinnesi og stóð hann á hverj-
um vetri í 15—20 ár. SjáJfur
var prófasturinn alltaf aðal-
kennarinn og þótti það miklu
skipta. Var skóli þessi mikið
sóttur og margir unglingar fengu
þar æskilegan undirbúning
rundi æðri skólamenntun, auk
þess, sem margir fóru þaðan vel
á vegi staddir í aðra skóla
í okkar landi.
Af því sem hér er sagt má
það ljóst vera, að okkar pró-
fastur er enginn meðalmaður,
en með því er þó lltið um það
sagt, hvernig er þessi maður:
Ég sem þessar línur rita er
sannfærður um það, að hann
er einn af virðulegustu og mik-
ilhæfustu embættismönnum og
og ber þar margt til. I 45 ár
samfleytt hefir hann verið and-
legur leiðtogi í hinum fjölmenna
söfnuði Þingeyra presta.kalls,
þar sem ekki hefir alltaf verið
friðvænlegt fyrr á árum.
í 16 ár hefir hann svo verið
trúmála höfðingi í báðum Húna
vatnssýslum. Og á báðum þess-
um sviðum hefir hann starfað
við vaxandi vinsældir og traust.
Þetta stafar af því, að maður-
inn er mikilhæfur maður. Hann
hefir boðað okkar heilaga krist-
indóm hreint og afdráttarlaust,
og hann hefir sýnt það með
allri sinni starfsemi í söfnuðin-
um og öllu félagslífi, að hann
er friöarins maður. Á öllum svið
um hefir hann forðazt að gefa
sig að deilumálum, en vera til
sátta, hvar sem því hefir mátt
við tooma. Þetta er meira virði
en flestir halda og áreiðanlega
er það til fyrirmyndar fyrir alla
ofekar prestastétt. Það er líka
vóst, að í okkar héraði er það
alls staðar talið til sæmdar og
gleði á öllum mannamótum, að
hafa þennan mikilvirka héraðs-
höfðingja með í spilinu. Hann
þykir alls staðar miikils virði. En
þó þessu sé þannig varið, þá er
ekki þar með sagt að okkar
ágæti prófastur hafi getað sneitt
hjá öllum annmörkum. Hann er
háður sama lögmáli eins og aJlir
aðrir prestar fyrr og síðar.
Eins og alþingismenn, fram-
bjóðiendur og margir aðrir emb-
ættismenn, að fólkið greinir á
um það, hvort þessi ræðan eða
hin sé svo sköruleg, vel flutt og
ágæt, sem bezt verði á kosið.
Þetta þefekjum við a-Hir og
öll. Þarna er ofekar prófastur
engin undantekning. En ég hefi
margsinnis orðið þess var, að
þegar aðfinnslurnar hefjast af
þessu tagi um sr. Þorstein pró-
fast, þá þanf venjulega eklki
milkið á þær að anda. Þær
hjaðna fljótt. Og það er af því,
að allt fóLkið viðurkennir, að
hann er skyldurækinn og virðu-
legur embættismaður. Og þó
einbum vegna þess, að öllum
almenningi þykir vænt um
hann.
Því til sönnunar, sem hér er
sagt, vil ég geta þess, að á síð-
asta vetri þegar fólkið í söfnuð-
unum fór að hugleiða það, að
nú væri ofefear ágæti prófastur
séra Þorsteinn að bomast að þvi
tafemarkL vegna aldurs síns,
þegar heimsikuleg löggjöf ákveð
ur, að allir embættismenn sfeuli
hætta starfi og aetjast á eftir-
launakassann, þá voru hafin
samtöfc og söfnun undirskrifta
þar sem allir fóru fram á það
við þennan ágæta embættis-
rnann og leiðtoga, að hann héldi
áfram starfi sínu meðn hann
hefði heilsu tiL
Um þetta urðu al.menn sam-
tök, og vonandi hefir það áhrif.
Enn er þó í óvissu hver árang-
urinn verður. En hvernig sem
það fer, þá sýnir þetta, að mað-
urinn er elskaður og virtur af
sínu sófenarfólki. Það vill fá að
njóta hans leiðsagnar og mann-
kosta sem allra lengst, að nokk-
ur kostur tr á.
Séra Þorsteinn er mjög gest-
risinn, veitull og glaðlyndur.
Alúð og ljúflyndi em einkenni
heimilisins. Þar líður öllum vel
og óska þess að mega gefa sér
tíma til, að njóta ánægjunnar á
þeim stað sem allra lengsh Á
umræðuefmum er aldrei skortur
og það getur engum dulizt, að
maðurinn er mikill gáfumaður
og fjölmenntað'Ur. Heilbrigðar
og fastmótaðar trúarskoðanir
eru Iffea þar það leiðarljós, sem
lýsir bjart hvenær sem talið
berst á þær leiðir.
Prófa&turinn er mjög mynd-
arlegur maður. í hærra meðal-
lagi á vöxt, þrekinn og vel vax-
inn. Hann hefir fitnað nokkuð
á S'íðari árum, eins og nokkuð
títt er með heilsugóða menn,
þegar aldurinn færist yfir og
efeki er gengið að erfiðisvinnu.
Nú þegar þessi ágæti héraðs-
höfðingi stendur á þeim tíma-
mótum ævinnar sem 70 ára ald-
urinn er, þá vil ég fyrir héraðs-
ins og héraðsbúa hönd flytja
honum innilegustu þakkir fyrir
öll þau þýðimgarmiklu og á-
hrifariku stönf, siem hann hefir
unnið tE heiðurs og velferðar
Ofekar héraði í þau 45 ár, sem
hann hefir starfað sem ernib-
ættismaður í héraði okkar.
Er þar margs að minmast, en
af því að ég sem þetta rita lít
svo á, að toristilieg kenning og
kristilegar skoðanir séu undir-
staða aEs hins bezta í mannlíf-
inu, þá vil óg geta þess, að á
því sviði eigum við Húnvetn-
imgar meira að þaifeka okkar
prófastL en flestir gera sér
grein fyrir. Og víst er það hon-
um meira að þakfea, en öðrum
mönnum, að hér í sýslu bólar
efefei á neinum trúarlegum deil-
um á síðustu áratugum.
Persónulega flyt ég þessum
vini mín'um, séra Þonsteini, inni
Jegar þakkir fyrir góða vináttu
mér og mimni fjölskyldu til
handa á liðnum áratugum. Þar
hafa mismunandi sfeoðanir
aldrei vanpað neinum slfeugga á
einlæga vináttu, og það tel ég
mér ákaflega mikils virði og
milkla gæfu.
Að síðustu er svo að þvi að
víkja, sem ætti að vena aðal-
atriðið í þessu greinarkorni og
það er: að ég óska þes&um stór-
merfea manni allrar hamingju á
þessum tfrnamótum. Ég óska
honum til hamingju með það
hve vel honum hefir heppnazt,
að rækja sín vandasömu störf á
liðnum árum og hve mikið gagn
hann hefir unnið landi voru og
Framhald á bls. 24
VOLG/V
STATIOM
Getum afgreitt með stuttum fyrirvara Volga Station bifreiðar.
Glæsilegur vagn og sterkbyggður. Sýningarbíll á staðnum.
Helstu tækniatriði: Vél 80 ha., 4ra strokka gírkassi, 3 gírar
áfram og 1 aftur á bak, rafkerfi 12 volt. Hæð undir lægsta punkt
20 cm.
Verð um. 282.000,00. Hagstæðir greiðluskilmálar.
BJFREiDAR & WIMRVELAR HF.
Suðurlandsbraut 14 — Sími: 38600.
NATURANA
BRJÓSTAHÖLD OG MAGABELTI.
Nýr snmarbrjóstahaldarí
á markaðinam
ASAMT BELTI ALVEG EINS
FÆST í REYKJAVÍK HJÁ:
1. FL. GÆÐVARA
PERLONEFNI
GÓÐ FRAMLEIÐSLA
SETTUR FALLEGUM
RÓSUM í HVÍTT
BELTI ALVEG EINS
Verzl. Sísi, Laugavegi
— Stella, Bankastræti
— Tíbrá, Laugavegi
— Oculus, Austurstræti
— Gyðjan, Laugavegi
— Sokkabúðin, Laugavegi
— Aðalbúðin, Lækjartori
— Þorsteinsbúð,
Snorrabraut.
NATURANA-UMBOÐIÐ, LAUFÁSVEGI 16. SÍMI 18970.