Morgunblaðið - 27.06.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1S67.
Guðmundur og Hraf nhildur unnu 13 meistarast.
á glæsilegasta sundnnati sem
hér hefur verið haldið
Sundmeistaramót íslands sem háð var um helgina, og er hið
28. í röðinni, er glæsilegasta sundmót sem hér hefur verið haldið.
Nýja laugin í Laugardal var ógleymanlegur rammi mótsins sem
bæði áhorfendur og sundfólkið kunni að meta. Sundfólkið á ekki
siður sinn þátt þvi ellefu ísl. met voru sett þar af níu nú í aðal-
hluta mótsins. Voru met bætt í sex greinum en auk þess fimm
sett í greinum sem ekki höfðu áður verið syntar í 50 m laug.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Á var efst á metalistanum
með 4 met sett auk boðsunds-
mets. Hún bar höfuð og
herðar yfir stöllur sínar nú
hvað snertir fjölhæfni og al-
mennt góð afrek — vann m.
a. bezta afrek kvenna á mót-
inu. Hún varð fimmfaldur ís-
landsmeistari auk meistara-
stigs í boðsundi.
En hún á marga skemmti-
lega keppinauta og ber þar
hæst Sigrúnu Siggeirsd. Á, 13
ára sem setti tvö met á mót-
inu (í sömu grein) og var
einnig undir gamla metinu í
fjórsundi þó hann biði lægri
hlut fyrir Hrafnhildi þar á
lokasprettinum. Sigrún er
kornung og á glæsta framtið
fyrir höndum.
Þá má og nefna Ingunni
Guðmundsdóttur Selfossi,
sem vakti mikla athygli og
færði félagi sínu öðrum frem
ur fslandsmeistaratitil og nýtt
met í 4x100 m skriðs. kvenna.
Hún og systir hennar Guð-
munda eru þegar í fremstu
röð og segja má að allur hóp-
urinn frá Selfossi, sem þjálf-
að hefur undir stjórn Hrafn-
hildar Guðmundsdóttur hafi
vakið mesta athygli í heild
og sýnt mestar framfarir í
sundlagi og bættum afrekum.
Guðmundur Gíslason var
hinn ókrýndi konungur þessa
móts, vann bezta afrekið og
þar með Pálsbikarinn og varð
fimmfaldur meistari auk
meistaratitla í 2 boðsundum.
Hann sýndi einna bezta æf-
ingu sundfólksins ásamt
Hrafnhildi og Sigrúnu, og
fékk eiginlega hvergi keppni
nema í bringusundinu. Aðrar
greinar vann hann með yfir-
burðum.
Þáttur unga fólksins var og
góður Það fjölmennti til móts-
ins og gerði sitt til að gera það
glæsilegt. Ótalin unglingamet
voru sett og ekki hægt að telja
þau upp að sinni.
Úrslit mótsins urðu:
100 m skriðs. íslm. Guðm.
Gíslason Á 59.1, 2. Guðm. Þ.
Harðarson Æ 1.00.6, 3. Gunnar
Kristjánsson SH 1:01.8.
100 m bringus. Islm. Árni Þ.
Kristjánsson SH 1:18.7, 2. Leikn-
irJónsson Á 1:18.7, 3. Fylkir
Ágústsson Vestra 1:18.8, 4. Óla-f-
Framhald á bls. 31
Afreksbikararnir
Á ÍSLANDSMEISTARAMÓT-
INU voru afhentir tveir af-
reksbikarar. Kolbrúnarbikar-
inn (gefinn til minningar um
Kolbrúnu Ólafsdóttur sem
veitist fyrir bezta afrek í
kvennasundum yfir árið (frá
meistaramóti til meistara-
móts) hlaut Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir ÍR fyrir 100 m.
bringusund 22. feb. sl. 1:24.5
mín. sem gefur 832 stig. Hún
átti einnig næstbezta afrek
kvenna í 200 m. bringusundi
3:01.2 sem gefur 831 stig.
Þriðja bezta afrek kvenna
átti Matth. Guðmundsd. Á
1:24.8 í 100 m. bringusundi
823 stig og 4. bezta Hrafnh.
Kristjánsd. Á 1:04.9 í 100 m.
skriðsundi 816 stig.
„Pálsbikarinn“ sem gefinn
var til minningar um Pál
Erlingsson og veitist fyrir
bezta afrekið á meistaramóti
hverju sinni hlaut Guðmund-
ur Gislason Á fyrir 200 m.
fjórsund 2:24.9 sem gefur 876
stig. Næstbezta átti Hrafnh.
Kristjánsd. 1:05.7 í 100 m.
skriðs. sem gefur 828 stig, 3.
bezta afrek átti Guðm. Gísla-
son 1:03.6 í flugsundi 787 stig,
4. bezta er 100 m. sund Guð-
mundar 59.5 og 5. bezta af-
rekið er 100 m. bringusund
Matthildar Guðmundsdóttur
1:28.1.
imiii
Guðmundur Hermannsson
varpaði 17.78 m. í Dublin
Islendingar i 3. sæti i undanrásum Evrópukeppni bar
ÍSLENZKA landsliðið í frjálsum
íþróttum keppti um helgina í
undanrásum landsliða Evrópu-
landa í bikarkeppni frjálsíþrótta
manna í Evrópu. Keppnin var í
Dublin á írlandi og auk íra
kepptu íslendingar og Belgíu-
menn en Luxemborgarmenn sem
áttu að vera í þessum riðli hættu
við þátttöku. ísland varð í 3.
sæti í þessum riðli. Belgíumenn
sigruðu með 115 stigum, írar
hlutu 98.5 og Island 86.5 stig.
Tvö isl. met voru sett í
keppninni. Guðmundur Her-
mannsson sigraði í kúluvarpi,
varpaði 17.78 m og bætti sitt
eigið met sem var 17.44 m.
sett fyrir nokkrum dögum.
Þorsteinn Þorsteinsson setti
ísl. met í 800 m. hlaupi, hljóp
á 1:50.2 en eldra metið átti
Svavar Markússon 1:50.5.
Bæði þessi afrek eru mjög
góð.
Aðeins tveir fslendingar sigr-
uðu í keppninni í Dyflinni, Guð-
mundur sem áður segir og Jón
Þ. Ólafsson í hástökki, stokk
1.96.
Árangur ísl. keppendanna fer
hér á eftir og í svigum sætið er
þeir hlutu í keppninni. Einn mað
ur frá hverju landi keppti í
hverri grein:
100 m. hlaup: Ólafur Guð-
mundsson (3) 11.6.
200 m hlaup: sami (3) 23.1.
400 m hlaup: Þorsteinn Þor-
steinsson (3) 48.6.
800 m hlaup: sami (3) 1:50.2.
1500 m hlaup: Halldór Guð-
björnsson (3!' 3:59.6.
5000 m hlaup: Þórarinn Arn-
órsson (3) 16.09.4.
10.000 m. hlaup: Agnar Levy
(3) 33:32.2.
11C m grindahlaup: Sigurður
Lárusson (3) 16.3.
400 m grindahlaup: Trausti
Sveinbjörnsson (3) 59.0.
3000 m. hindrunarhlaup Hall-
Þorsteinn Þorsteinsson
— íslandsmet í 800 m hlaupi.
dór Guðbjörnsson (3) 9:44.2.
4x100 m (3) 46.1.
4x400 m (3) 3.28.8.
Langstökk: Ólafur Guðmunds-
son (3) 6.96.
Þrístökk: Jón Þ. Ólafsson (3)
13.58.”
Hástökk: Jón Þ. Ólafsson (1)
1.96.
Stangarstökk: Páll Eiríksson
(2-3) 3.60.
Kúluvarp: Guðmundur Her-
mannsson (1) 17.78.
Kringlukast: Erlendur Valdi-
marsson (2) 47.42.
Sleggjukast: Jón Magnússon
(3) 51.34.
Spjótkast: Björgvin Hólm (3)
51.98.
Margir fþróttamannanna náðu
sínum bezta árangri í þessari
keppni og í heild tókst hún all-
vel frá ísl. sjónarmiði. Forföll
voru í ísl. landsliðinu og kom
verst út að Valbjörn Þorláksson
gat ekki verið með sakir meiðsla.
Þeir sem mest komu á óvart
voru Guðmundur Hermannsson,
Þorsteinn Þorsteinsson og Er-
lendur Valdimarsson.
í tveim greinum töpuðu ís-
lendingar sæti með 1 sentimetra,
Ólafur Guðm. var 1 sm á eftir
sigurvegara í langstökki og Jón
Þ. ólafsson var 1 sm frá öðru
sæti í þrístökki.
KR vann
Val 5-1
KR og Valur léku í Islands-
móti 1. deildar í gær. KR-ingar
unnu stærsta sigur til þessa í
mótinu, sigruðu fslandsmeistar-
ana með 5:1. f hálfleik stóð 4:1.
KR sýndi mjög góðan leik í fyrri
hálfleik og var Eyleifur Haf-
steinsson „stjarna" leiksins.
Mörk KR skoruðu: Eyleifur
3, Baldvin 1 og Gunnar Felixson
1. Nánar um leikinn á morgun.
Eftir þennan leik • er staðan
þessi: Valur 5 3 1 1 9—9 7
KR 4 2 0 1 10—5 6
Fram 4 2 1 0 6—4 5
Keflavík 4 2 0 2 6—4 5
Akureyri 4 1 0 3 6—7 2
Akranes 4 0 0 4 3—8 0
f kvöld eru tveir leikir:
Fram—ÍBK í Laugardal.
Akureyri—Akranes á Akux-
eyri.