Morgunblaðið - 31.10.1967, Page 5
WfOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967
5
Fimm daga frí vegna
hátíðahaldanna
Rœtt við dr. Kristin Cuðmundsson,
um undirbúning vegna 50 ára afmœlis
rússnesku byltingarinnar
ana, og hér er verið að koma fyrir heljarstóru skilti. Á því
er mynd af hermanni, og áletrunin: „Verndun ættjarðar-
innar — heilög skyida hvers borgara Sovétríkjanna. AP—).
MIKILL undirbúningur er
hafinn í Rússlandi í samibandi
við ihátíðahöld vegna hálfrar
aldar afimælis byltingarinnar
7. nóvem/ber. Morgunblaðið
hafði í gær samband við dr.
Kristinn Guðmundsson, aan-
bassador í Moskvu, og sagði
hann m.a.:
„Undirbúningurinn er geysi
legur og það er auðséð að
þetta verður stórkostleg há-
tíð. í>að er löngu toyrjað að
skreyta göturnar, og hefja
annan undirtoúning og það
Dr. Kristinn Guðmundsson,
ambassador.
dylst engum. að það er mik-
ið í aðsigi. Ég hefi ekki enn
orðið var við neina gesta-
komu, a.m.k. ekki frá íslandi,
en hefi heyrt að m.a. sé von
á Einari OlgeirssynL
Nokkur hluti hátíðahald-
anna fer fram í Leningrad,
en þangað verður ekki boðið
erlendum fulltrúum, það er
bara fyrir Rússana sjáilfa.
Hinsvegar verður öllum
skandinavísku sendiherrun-
um boðið til hátíðar í Friðar-
húsinu, 2. nóvemtoer, og þar
verða fluttar ræður og erindi.
Meðal þeirra sem tala eru
Iskov, sjávarútvegsmálaráð-
’herra, sem fór í heimsókn til
íslands í vor, og Alexei N.
Krassilinikov, sem var fyrsti
sendiherra Rúsisa á íslandi, og
ko.m hingað í stríðslok".
„Verðið þið varir við að
það sé mikið meira um að
vera en venjulega fyrir þessa
hátíð?“
„Já, blessaður vertu, þetta
er ekkert sambærilegt. Blöðin
eru búin að vera yfirfull af
fréttum um hátíðina, í langan
tírna, og það er varla hægt að
férðast um göturnar að nóttu
til vegna herfylkinga. Það
verður gríðarleg hersýning á
Rauða torginu þann 7. og þeir
eru þegar byrjaðir að æfa sig.
Svo hef ég líka heyrt að það
verði öllum landslýð gefið
fimm daga frí í ti'lefni þessa.
Það er líka auðséð að fólkið
hlakkar til hátíðarinnar, og
það verður áreiðanlega mikið
um dýrðir. Ég býst líka við,
að þetta fari friðsaimlega og
skemmtilega fram allt saman,
það er gött h,ljóð í öllum, sem
ég hefi talað við. Ég var t.d. í
boði hjá Tyrkjum í dag, það
er þeirra þjóðhátíðardagur, og
þar voru allir hinir blíðustu.
Meira er varla um þetta að
segja að sinni, en ég vildi
biðja ykkur fyrir kveðjur frá
okkur til allra heima á ís-
landi“ .
Ummæli Chal-
fonts
rangtúlkuð
Lundúnum, 30. okt. — AP-NTB
CHALFONT lávarður, formað-
ur brezku nefndarinnar, er
semja á um aðild Breta að Efna
hagsbandalagi Evrópu, sagði í
ræðu í dag, að ummæli sín varð
andi ráðstafanir Breta, ef þeim
yrði neitað um inngöngu í EBE,
hefðu verið mjög rangtúlkuð.
Samkvæmt fregnum af óform-
legum fundi Chalfonts og nokk-
urra blaðamanna eftir EFTA-
fundinn í Lausanne í síðustu
viku, á lávarðurinn að hafa sagt
að komið gæti til greina, að
Bretar segðu sig úr NATO og
kölluðu heim hermenn sína í
V-Þýzkalandi, er Bretum yrði
meinuð aðild að EBE.
Wilson, forsætisráðherra
Stóra-Bretlands, sagði eftir að
þessar fregnir komust á kreik,
að stjórn sín hefði ekki í hyggju
að svifta Chalfont formanns-
embætti í EBE-nefndinni, þar
eð ljóst væri að ummæli hans
á fyrrgreindum fundi hefðu
verið rangtúlkuð. Þetta stað-
festi Chalfont sjálfur í símavið-
tölum við ráðamenn í Bonn í
dag.
Parísarblöðin sögðu í dag, að
ummæli Chalfonts hefðu gert
Bretum meira ógagn en gagn
viðvíkjandi tilraunum þeirra
til að fá aðild að EBE. Kemur
í ljós að flest dagblöð í Frakk-
landi telja, að rétt hafi verið
skýrt frá ummælum Chalfonts
á blaðamannafundinum.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIOSLA«SKRIFSTOFA
SÍMI io*ioa
HVAÐ ER ROUX ? ?
Það er mest notaða hárlitunarefnið í Bandaríkjunum.
Fæsí nú á íslandi.
Á HÁRGREIÐSLUSTOFUM er hægt
að velja á milli u.þ.b. 1000 LITA og
blæbrigða.
Fæst í hinum góðu AEROSOL-brús-
um, sem ROUX hefur einkarétt á.
Biðjið um ROUX næst. þegar þér farið
á hárgreiðslustofu yðar.
Notið SUPEROXIDE,
festinn, sem heldur styrkleika
sínum í eitt ár a.m.k., eftir að
flaskan hefur verið opnuð.
Og 111 að reka endahnútinn
á verkið!
Notið það bezta!
FANCITONE ’TWEENTIME CREME OYE SOLVENT
CREME HAIR TINT HAIR CRAYON ROULITE SUPEROXIDE
NICECHANCE CREM D'LITE ROULITE CREME
rANCI-FULL RINSE RAPID HAIR LIGHTENER DEVELOPER
FANCI-FULL rinse FANCI-FIX C0L0R APPLICATOR
EXTRA CLEAN TOUCH LASH t BROW TINT
HQLTSAP»TIK
Laugholtsvegi 84, R.
Snyrtivöruverzl,
L/VUGAVEGI76
AKUREYRI::
HÁRALITUR — IIAIR TINT
Hvers vegna er ROUX betra?
Hárið verður mýkra og fær fallegan
gljáa.
ROUX gerir hárið ekki þurrt, eins og
svo margir háralitir gera.
ROUX er mjög auðvelt í notkun.
(ath,- blandist í hlutföllunum:
2 SUPEROXIDE festir á móti 1 FANCI
TONE háralit).
er einnig nýjung.
Hárskolun með litblæ, Hárnæring, hár-
lagning, allt þetta í senn.
RINSE er skol, sem þvæst úr við næsta
CRYSTALLIZID CREME
HAIR LIOHTINIR
er dásamlegasta aflitunin.
Reynið hana og þér verðið
samreála.
DYE SOLVENT
tekur allan ekta lit úr hári yðar
en skilur eftir yðar eiginlega lit.
DYE SOLVENT ÞURRKAR
EKKI HÁRIÐ.