Morgunblaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 16
16 MORÖUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKT. 1997 Slðbótargrei nar Lúthers sem festar voru upp á hurð hallarkirkju í Wittenberg 31. okt. 1517 Dyr hallarkirkjunnair í Wittenibelrg: einu og þær eru mú. AF kærleika ag áhuga á upp- lýsingium uim sannleikann, mun opinberlega rökrætt verða um neðansikráðar [greinar] í Witt- enberg undir forsæti æruverð- ugs Föður, Dr. Martieins Lút- hers, meistara 1 frjálsum list- um og helgri guðfræði, fasta- kennara sama staðar 1 síðar- nefndum fræðum. Fyrir þá sök fer hann þess á leit við þá, sem ekki geta rökrætt við oss nærstadda, að þeir leggi fram mál sitt skritf- lega, þótt fjairverandi séu. í nafni Drottins vors Jesú Krists. Amen. I. Þegar Drottinn vor og meistari Jesús Kristur sagði: Gjörið yfirbót o.s.frv. þá vili hann að allt líf hinna trúuðu sé stöðug yfirbót. 2. Þessi orð geta ekki átt við hina sakramentölu yfirbót (þ. e. skriftir og fullnægjugjörð, framkvæmda gegn um emlbætti presta). 3. Þó eiga þau ekki eingöngu ~ við hina innri [yfirbót]. Miklu fremur er innri ytfirbót einskis verð, ef hún kemur ekki til vegar margvislegri dieyðingu holdisins hinu ytna. 4. Refsingin varir þess vegna svo len'gi sem sjáLfsfyrirlitning in (það er hin sanna innri yf- iríbót), sem sé ál'lt til inngöngu í himnaríki. 5. Páfinn vill hvorki né get- ur veitt eftirgjöf á neinurn refs ingum umfram þær, sem hann hefir á lagt að eigin vilja, eða eftir [kirkjuréttarlegum] regl- um. 6. Pá:fi getur enga sekt fyr- irgefið, ncma með því að til- kynna og staðfesta að hún sé af Guði fvrirgefin, eða að svo miklu leyti sem hann fyrirgef- ur í þeim tilfellum, s'em falin eru sjálfum honum. En væri þetta fyrirlitið, þýddi það var- anlega vist í sekt syndarinnar. 7. Guð fyrirgefur engum' syndina, nema þeim sem hann ■ auðmýkir með því að gera hann í öllu undirgefinn prest- inum, staðgengli sínum. 8. Yfirbótarákvæðin eru ein- ungis lögð á lifandi menn, og ber á enga lund að leggja þau á deyjandi manneskjur. 9. Þess vegna gjörir Hieilag- ur andi vel, fyrir meðalgöngu Páfa, að undan skilja í ákvæð- unum dánartilfelli og neyðar- ástand. 10. Óviturlega og illa breyta þeir prestar, sem halda að deyj andi mönnum kirkjulegum yf- irbótarreglum til fullnægingar í hreinsunareldinum. II. Þessu illgresi, að breyta kirkjulegum yfirbótarákvæðum í hreinsunareldsnefsingar, virð- ist hafa sáð verið mejðan bisk- upar sváfu. 12. Kirkjuleg yfirbótarákvæði voru fyrrum ekki lögð á menn eftir aflausn, heldur á undan, að vissu marki sem próf raun sannrar iðrunar. 13. Deyjandi menn eru und- an öllu slíku leystir og eru þeg ar dánir frá öllum yfirbótar- ófcvæðum, og eru þar með laus ir undan þeim. 14. ófullkomin lækning [synd ar] eða ófullkominn kærleik- ur deyjandi manneskju hlýtur eðli samkvæmt að valda ótta, að sama skapi meiri sem hið fyrra hafði miður verið. 15. Þessi ótti og hræðsla (þótt þagað sé um annað) er • í sjálfu sér nóg til að valda refsingu hreinsunarelds, þar tsem hún nálgast mjög skelf- ingu örvæntingar. 16. Helvíti, hreinsunareldur og himinn virðast mér hvert öðru álíka mismunandi og ör- vænting, viðliggjandi örvænt- ing og vissa [um hjálpræði]. 17. Óhjákvæmilegt virðist að um leið og dregur úr hrelling- um sálnanna í hreinsunareld- inum, aukist kærleikur þeirra. 18. Hvorki virðist það sann- i að af skynsamlegum ástæðum né af Ritningunni að [þessum isálum] sé meinað að ávinna isér verðleika eða vaxa í kær- leika. 19. Jafn ósannað mál virðist það vera að þær, sumar eða allar, séu öruggar og viissar um hjálpræði sitt, þótt vér séum öruggir. 20. Þannig álítur Páfi að með „allsherjar afláti“ sé ekki blátt áfram átt við lausn frá öllum refsingum yfirleitt, heldur að- eins þeim, sem hann hefir sjálf ur við lagt. 21. Þess vegna villa þeir af- látsprédikanir um fyrir mönn- um, er segjar að fyrir aflát Páfa sé maður leystur og frels- aður frá öllum refsingum. 22. Þvert á móti gefur hann sálum í hreinsunareldinum ekki upp neinar refsingar, sem þær hefðu átt að sæta í þessu lífi sam.kvæmt kirkjulegum regl um. 23. Ef mögulegt er yfirleitt að gefa nokkrum manni upp allar nefsingar, þá vissulega að eins hinum fullkomnu, það er, mjög fáum mönnum. 24. Þess vegna hlýtur meiri hluti lýðsins að dragast á tál- ar af kærulausum og sikrum- kenndum loforðum um aflát. 25. Sama vaitd sem Páfi al- rnennt hefir yfir hreinsunareld inum., það hefir og sérhver bisk up og prestur innan síns bisk- upsdæmis og prestakalls sér- staklega. 26. Páfi gerir vel í því að veita sálum fyrirgefningu, ebki með lyklavaldinu (sem hann hefir efcki að því er hreinsun- areldinn varðar), heldur með fyrirbænum. 27. Manna verk prédika þeir, sem segja sálina frjálsa strax og hljómar í skilding þeim, sem kastað hefir verið í kass- ann. 28. Öruggt er að þegar skild- ingur hljómar í kassa, kanna ágirnd og nizka að aufcast. En fyrirbæn kirkjunnar ein er Guðs vilji. 29. Hver veit, hvort allar sál ir í hreinsunareldinum óska sér lausnar, eftir því sem sagt er um þá dýrlingana, Severin og Pacalis? 30. Enginn er öruiggur um næga einlægni iðrunar sinnar, og miklu síður um eftirfylgj- andi heildarlausn frá syndum sínum. 31. Svo sjaldgæfur sem sann iðrandi maður er, þá er viðtak- andi sannrar syndaaflausnar það ekki síður, það er afar sjaldgæfur. 32. Um eilífð fyrirdæmir, á- samt kennifeðrum sínum, munu þeir, sem hyggjast að verða ör uggir um sáluhjálp sína fyrir aflátsbréf. 33. Vara skyldu mienn sig á þeirn, sem segja að þetta af- lát Páfa sé ómétanleg Guðs gjöf, fyrir hverja maðurinn muni friðþægður verða við Guð! 34. Því þessar velgjörðir af- látsins taka aðeins til refsinga, sem menn hafa við lagt, til að þekn skuli fullnægja sakra- mentalt. 35. Enga kristna [kenningu] prédifca þeir, sem boða að fólk, sem kaupa vill sálna/bréf eða aflátsibréf, þurfi ekki iðrunar við. 36. Sérhver sannkristinn mað ur á sér rétt til fullrar lausn- ar frá refsiákvæðum og sekt, án nokkurra aflátsbréfa. 37. Sérhver kristinn maður, hvort heldur lífs eða látinn á hlutdeild í öllum gæðum Krists og kirkjunnar, fyrir Guðs gjöf, einnig án aflátsbréfa. 38. Lausn fyrir meðvirkni Ráfa ber þó engan veginn að fyrirlíta, því hún er (svO sem ég sagði), yfirlýsing um fyrir- gefningu Guðs. 39. Það er afar erfitt, jafn- vel fyrir lærðustu guðfræðinga, að vegsama fyrir lýðnum hvort tveggjá í senn, mikilileik afláts ins og sanngildi sannrar iðr- unar. 40. Sönn iðrun þráir aifplán- un synda og hefir á henni mæt ur, en ríbulegt aflátsframíboð dregur þar úr og fær menn til að hafa [afplánun synda], a.rn.k. við sum tækifæri. 41. Með gát ber að prédika postullegt aflát, svo að fólk leiðist ekki í þá villu að taka það fram yfir önnur góð verk kærleikans. 42. Kenna ber kristnum mönnum að það sé ekki mein ing Páfa að lausn fengin fyrir aflát sé á neinn hátt samlbœri- leg við verk miskunnseminn- ar. 43. Kenna ber kristnum mönnum að sá sem gefur fá- tæku fólfci eða lánar þurfandi, gerir betur en þótt hann keypti aflát. 44. Því að mieð kærleiksverk um vex kærleikurinn til náung ans og manneskjan verður betri af, en verður sízt betri fyrir aflát, heldur aðeins frjáls ari undan refsiákvæðum. 45. Kenna ber kristnum mönnum að sérhver, sem sér einhvern þurfandi, og vanrækt an, en samt greiðir fé fyrir af- lát, ávinnur sér enga aflausn frá Páfa, heldur reiði Guðs. 46. Kenna ber kristnum mönnum, að hafi þeir ekki um fram eigin þarfir, beri þeim að halda því nauðsynlega til heim ilis síns, en á enga lund sóa því fyrir aflátsbréf. 47. Kenna beri kristnum mönnum, að kaup aflátsbréfa eru frjáls, en ekki fyrirskipuð. 48. Kenna ber kristnum mönnuim að því meir sem Páfi g'efur sig að aflátsveitingum, því frernur þarf hann á guð- rækilegri fyrirbæn að halda en skjótfenignum peningum. 49. Kenna ber kristnum mönnum að aflát Páfa eru gagn leg, meðan menn setja ekki traust sitt til þeirra, sem skað- 1-egust af öllu, ef menn glata guðhræðslu sinni út af þeim. 50. Kenna ber kristnum mönnuim, að vissi Páfi af fé- græðgi aflátssalanna, vildi hann fremur að basilika Heil- ags Péturs brynn-i til kaldra bola en að hún væri smiðuð úr húð, holdi og beinum hans ei-gin sauða. 51. Kenna ber kristnum mönnum að Páfi myndi, eins og honum og skylt væri, jafnvel selja basiliku Heilags Péturs (ef nauðsyn til bæri) til að gefa af eigin fé þeim mörgu, er sumir aflátssalar féfletta. 52. Fánýtt er traust á sálu- hjálp fyrir aflátsbréf, enda þótt aflátsforstjórinn — já enda þótt Páfi sjálfur — setti sálu sína að veði fyrir þeim. 53. Óvinir Krists og Páfa eru þeir, sem með aflátsprédikun bjóða að Guðs orð skuli gjör- samiega niður þaggað í sumum kirkjum. 54. Rangindi eru frarnin gagn vart Guðs orði þegar í einni og sömu ræðu er varið lengri tíma eða jafn löngum til afláts og til þess [að boða Guðs orð]. 55. Það hlýtur að vera ætlun páfa að sé aflátið (sem er mjög lítilvægur hlutur) hátíðlega boðað í einni klukfcu, einni skrúðgöngu og einu helgisiða- formi, þá sé fagnaðarboðskapur inn, (sem er hið æðsta af ölilu) prédikað með hundrað klukk- um, hundrað skrúðgöngum og hundra helgisiðaformum. 56. Þeir fjársjóðir kirkjunn- ar, sem Páfi veitir aflát úr, eru hvorki nægilega skilgreind ir né kynntir fyrir lýð Guðs. 57. Það er vissulega greini legt að þeir eru ekki timan- l'egir, því flestir prédikarar strá slífcu ekfci gálauslega um isig, heldur draga þá m iklu fremur saman. 58. Ekki eru það heldur verð leikar Krists eða dýrðlinganna, því án aðstoðar Páfa verfca þeir náð í hinum innra manni, en knossfestingu, dauða og Hel hinuim ytra. 59. Heilagur Lárentíus nefndi hina fátæku „fjársjóðu kirkjunnar", en mœlti á máli sinnar eigin aldar. 60. Án nokkurrar ofdirfsku segjum vér að þessir fjársjóð- ir séu lyklavald kirkjunnar, (sem verðleikar Krists hafa veitt henni). 61. Það er því girieinilegt að tiíl efirgjafa refsinga og afl- lausnar í sérstökum tilfellum dugir vald páfa eitt saman. 62. Kirkjunnar rétti og sanini fjársjóður er hinn allra helg- asti boðskapur um dýrð Guðs og náð. 63. En þessi fjársjóður er eðiilega mjög illa séður, með þvl að hann setur hina fyrstu síðasta. 64. Sjóður aflátsin® er eðli- ilega mjög vel siéður, því að hann setur hina síðustu fyrsta. 65. Þess vegna voru fjársjóð ir fagnaðarlboðskaparins net, sem menn forðum veiddu með auðuga menn. Fjlársjóðir aflátsins eru net, sem menn veiða nú með auðæffi, almennings. 67. Aifllátið, sem prédikarar þess vegsama svo sem háleit- ustu náðargæði, nýtur skiljan- lega svo mikils álits saikdr þess ávinnings, sem það gefur. 68. í reynd er það samt mjög lítilvægt náðaratriði miðað við Guðs náð og trúarsamfélag ið fyrir krossinn. 69. Biskupar og prestar eru skyldir til að taka með alliri virðingu við urniboðsmönnum postullegs aflláts. 70. Ennfremur ber þeim að halda opnum augum og eyrum til að umboðsmenn þessir pré- di-ki ekfci eigin heilaspunia í stað erindis Páfa, 71. Sá sem talar gegn sann- indum páfalegs afláts, veri bannsettur og bölvaður. 72. Sá sam setur sig uipp á móti dremlbilæti og léttúðartali aflátssalanna, sá veri biessað- ur. 73. Svo réttilega sem Pá/fi beinir banngeisla sínum gegn þekn, sem fara sviksamlega fram í aflátssölunni, 74. Svo mifclu fremur mun hann með banngieislanum hitta þá, sem undir yfirskini afláts beita brögðum gegn heilöguim kærleik og sannleika. 75. Að álíta afllát Páfa svo öflugt að það gæti veitt synda lausn manni, er amánað hefði Guös móður — s'ern er ómögu legt — það er að láta sem óð- ur. 76. Þvert á móti segijum vér að páfalegt aflát geti jafnvel ekki aflmáð hina minnstu yen- ialsynd, að því er tekur til sekt ar hennar. 77. Að segja að jafnvel Heil agur Pétur [ef hann væri pátfi nú], igæti ekki veitt neina meiri náð, er að lastimæla bæði gegn Heilögum Pétri og gegn Páfa. 78. Hér á rnóti segjum vér, að núverand'i og sérhver Páfi ann ar, hafi stærri náðargáfur en þessar, það er fagnaðarboðskap urinin, dyggðirnr, lækningagáf- ur o.s.frv., svo sem skrifað sitendur í I. Kor. 12. 79 Að segja aflátskrossinin, uppreistan í kirkjunni, sfcreytt an páfaleguim skjaldarmerkj- uim, j'afn áhrifaríkan krossi Krists, það er guðlast. 80. Biskupar, prestar og guð- fræðingar, þeir sem viðgang- ast láta að slíkar ræður sé fluttar lýðnum, muni verða að gera reikningsskil fyrir það. 81. Þess háttar [freklegar og] ósvífnar aflátsprédikanir valda því að það feíllur jafn- vel lærðum mönnum þungt að halda uppi vörn fyrir heiðri Páfa gegn stoopræðum eða slyngri gagnrýni leikmanna. 82. Sem dæmi: Hvers vegna tæmir Páfi ekki hreinsunareld inn aif heilögum kærleika sín- uim og vegna átakanlegrar neyðar sálnanna, er væri hið mesta réttlætismál, þegar hann leysir þaðan ótal sálir fyrir allra auðvirðilegustu peninga, sem gefnir eru til byggingar einnar kirkju, það er af mjög léttvæguim ástæðum? 83. Ennfremur: Hvers vegna er áfram haldið sálumessuim og ártíðamessum framliðinnai, og greiðslum fyrir þær ebki afltur skilað, né leyft að taka þær aftur, þegar það reyndar er ranigt að biðja áfram fyrir þeim, sem þegar eru endur- leysitir? 84. Ennfremur: Hvers kionar ný guðrækni er það fyrir Guði og Páfa að láta guðleysingja og fjandmanni haldasit það uppi að afleysa guðrækna og guði þófcnanlega fyrir peninga, af afleysa þó ekki sjálfir þessa guðræknu og elskuðu sál af fúsuim fcærlei'ka og þörf bennar sjálfrar? Framhald á bls. 24 I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.