Morgunblaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967 — Marteinn Lúther , Framhald af bls. 13 „allar meinsemdir trúarinnar væru runnar frá hirð páfa“. Hans naut aðeins við hluta af tímanum 1522—23 og gat ekki framkvæmt siðbótaráfrom sín, en afmarkaði svið kaþólskrar siðbótar. Þá tók við Klemens páfi VII, „hinn mesti óheilla- páfi“, segir Barry — lenti í vandræðum og deilum við Karl keisara og styrjöld að auki, en það studdi óbeint framgang siðbótarinnar næstu ár. Árið 1524 skrifar Lúther bókina: „Til ráðherra allra borga Þýzkalands, að þeir skuli stofna kristiiega skóla“. Þann 23. júní /það ár hefst uppreisn bænda gegn yfirvöldum sunn- an til í Svartaskógi. Skömmu síðar var haldið þing í Regens- burg og kaþólskt samband stofnað til að fullnægja dóms- ákvæðum yfir Lúther. í sept- ember komu út tvö stríðsrit gegn Lúther, annað eftir Eras- mus frá Rotterdam, hitt eftir Thomas Miintzer, eins helzta leiðtoga vingltrúarmanna. III. Árið 1525 er viðburðarríkt — og saga þess á margan hátt átakanleg. Þá gaf Lúther út rit gegn vingltrúarmönnum, svonefndum „himneskum spá- mönnum“. Þann 24. febrúar vann Karl keisari sigur yfir Franz I. Frakkakonungi og tók hann til fanga. í marz birtu uppreisnarbændur í Þýzka- landi kröfur sínar í 12 greinum. Þann 19. apríl hvatti Lúther til friðar með riti sínu: „Frið- arhvatning samkvæmt tólf greinum bændanna". Fri'ðrik vitri, verndari Lúthers, dó þann 5. maí og við tók Jóhann hinn staðfasti. Sama dag skrif- ar Lúther rit gegn „rænandi og myrðandi bændum“, þar sem hið fyrra og margar til- raunir aðrar höfðu ekki borið árangur. í maí og júní voru uppreisnarbændur sigraðir, en bændabyltingar höfðu við og við áður blossað upp í Þýzka- landi um aldar skeið. Th. Múnzer var með bændahern- um og tekinn til fanga þann 15. maí. Uppreisnin hafði ó- heillavænleg áhrif á framgang siðbótarinnar. Hjónaband Lúthers og Kath- arínar von Bora var stofnað þann 13. júní þetta ár. I næsta mánuði ritaði Lúther bréf út af síðari bók sinni um bænd- urna, sem honum fannst of hörð. Þann 19. júlí stofnuðu þjóðhöfðingjar í Mið- og Norð- urþýzkalandi samband gegn útbreiðslu evangeliskrar kenn- ingar, kennt við Dessau. Um jólaleytið gaf Lúther út „Deut- sche Messe", það er um guðs- þjónustu á móðurmáli. í lok desember kom út bók hans „Um ófrjálsan vilja“, ritúð sem svar gegn árás Erasmusar, á latinu, en sú bók hefir aftur vakið mikla athygli á síðustu árum meðal fræðimanna. Árið 1526 gerðu Saxland og Hessen bandalag til verndar evangeliskri kenningu þann 23. febrúar. Þann 22. maí var „Heilagt bandalag", kennt við Cognac, stofnað gegn Karli keisara, og átti páfi aðild að því. Ríkisþing var haldið í Speyer dagana 25. til 27. ágúst, og hlutu evangeliskir menn þar með betri aðstöðu en vænta mátti, og upp frá því tóku að myndast litlar, evangeliskar kirkjur víðs vegar um Þýzka- land. Seinni hluta þessa árs vehður styrjaldarástand milli páfa og keisara, og seint í september rændu Spánverjar Vatikanið og páfi varð að flýja. Stríðsástand helzt fram á næsta ár. Árið 1527 er Lúther mjög heilsutæpur. Þó vinnur hann að ritstörfum og kennslu og byrjar á skýringum á spádóms- bók Jesaja og tóku þær þrjú ár. í apríl skrifaði hann gegn vingltrúarmönnum og öðrum, sem hann taldi ranglega til þeirra, þ. á. m. Zwingli. Katha- rina, kona Lúthers, reyndist honum — og reyndar siðbótar- hreyfingunni í heild, hinn mesti bjargvættur á þessum tíma og næstu árum. Á þessu ári hófst annað stríð keisara og Frakka- konungs og stóð til 1529. I maímánuði var barizt í Róm og varð páfi að flýja öðru sinni. Segir Barry: „Þannig kom áð páfi af Medici-ætt og kaþólsk- ur keisari seldu höfuðborg kristninnar á vald Lúther- manna sex árum eftir að Karl hafði bannfært Lúther" (Páfad. bls. 84). Meðal hermannanna voru þá einnig lútherskir menn. Árið 1528 gaf keisari út til- skipun um að endurskírendur skyldu sæta dauðarefsingu fyr- ir trúarkenningar sínar. Lúther gaf út stóra bók „Játningu um kveldmáltíð Krists“. Svisslend- ingar í Zurich og Bem gera með sér bandalag til verndar evangeliskri trú. — Næsta ár var haldið annað ríkisþing í Speyer, frá 26. febrúar til 12. ápríl. Þann 19. apríl báru evan- gelisku fulltrúarnir, undir for- ystu Filippusar frá Hessen, fram þau frægu mótmæli, sem evangeliskir menn eru kenndir við síðan, þ. e. mótmæli gegn því að þeir yrðu sviptir þeim rétti, sem þeir hlutu á sama stað þrem árum áður. Keisari og Frakkakonungur gerðu það ár með sér varanlegan frið. Þá voru haldnar samræður með svissneskum og þýzkum sið- bótarmönnum til að koma á samstöðu í trúfræðilegum efn- um, en samstaða náðist ekki með Lúther og Zwingli, en upp úr samræðunum samdi Lúther Marborgargreinar, og urðu þær árið eftir aðalstofn fyrri hluta Ágsborgarjátningar, er Me- lanchton samdi. Þá samdi Lúther tvær af útbreiddustu bókum sínum, „Fræðin meiri“ í apríl, og „Fræðin minni“ sennilega í júlí, til kennslu Leó páfi tíundi, sá sem bannfærði Luther. lítilla bama. Þá tók hann sam- an „Herprédikun gegn Tyrkj- um“. Árið 1530 voru sættir komn- ar á með páfa og keisara, og krýndi nú páfinn Karl V. bæði til keisara ríkisins og konungs yfir Langbarðalandi. Ríkisþing hófst í Ágsbörg þann 20. júní og stóð til 19. nóv. og voru að- almálin trúin og herferð gegn Tyrkjum, eða öllu heldur varn- ir. Melanchton hafði samið nýja játningu, Ágsborgarjátn- ingu, upp úr Marborgar- og Torgauar-greinum, á latínu. Var hún lesin upp þann 26. júní og færð Karli keisara. Lúther sat þá á Kóburg (frá 16. apríl) og fylgdist með verk- inu og lét sér vel líka, en gat auðvitað ekki mætt á þing- inu, bannfærður af páfa og réttlaus og útlægur gerr af keisara. Frá þessu ári telja menn að til sé lúthersk kirkja, ekki aðeins einstakir söfnuð- ir. Þetta ár vinnur Lúther mjög að málefnum barnaskólanna og sambandi skóla og kirkju. Fræg er prédikun hans um skóla- fræðslu barna, frá 5. júní 1530. I apríl árið 1531 semur Lúther „Aðvörun til sinna kæru Þjóðverja". Þann 11. okt. þ. á. féll siðbótarmaðurinn Zwingli í orrustunni við Kap- pel. Árið 1534 er lokið biblíu- þýðingu Lúthers og heildarút- gáfa þýzkrar Biblíu gefin út. Segir Lútherfræðingurinn Franz Lau, að einu sinni hafi menn endurbætt Lútherbiblí- una og að það hafi mistekizt og ekki verið gert síðan — þótt hins vegar séu til margar góðar þýðingar aðrar. Öðrum bókum fremur hefir hún mót- að háþýzkt ritmál til þessa dags. Með tilkomu Calvíns færist nýtt líf í svissnesku siðbótina, og aðalverk hans, „Institutio religionis Christianae" kom út árið 1535. Calvin er miklu meira mótaður af Lúther en Zwingli var, en kirkja hans kennir sig ekki við hann, held- ur ber jafnan heitið „Reformi- erte Kirche“ með viðeigandi þýðingum á önnur mál. Þetta ár hóf Lúther að semja mikið skýringarrit við fyrstu Móse- bók, er tók tíu ár að ljúka við. Árið 1537 voru trúargreinar eftir Lúther lagðar fyrir þing Schmalkaldensambandsins og síðar kenndar við fundarstaðr inn. Urðu þær síðan játningar- rit margra lútherskra krikna, þó ekki í ríkjum Danakon- unga og því heldur ekki hjá oss. Bókina „Um kirkjuþing og kirk,jur“ samdi Lúther í marz og apríl 1539. Það ár hófst heildarútgáfa af ritum hans, og þá skrifaði hann forspjall fyrir þýzkum ritum sínum. Forspjall áð latnesku ritunum skrifaði hann árið 1545, og sama ár enn eitt ádeilurit gegn páfa- dóminum. En þann 13. des. sama ár hófst hið mikla siS- bótarþing kaþólsku kirkjunnar, kennt við Trient (eða Trident) undir forsæti Páls in., er varð páfi 1534, og stóð það, að meðtöldum hléum, í 18 ár, og voru þrír páfar hver á eftir öðrum áður en því lauk, 1563. Ákvæði þess móta í stórum dráttum kaþólska kirkju fram til vorra tíma. Lúther andaðist þann 18. febrúar 1546 í Eisleben og var jarðáður þann 22. febrúar í Wittenberg, í þeirri sömu kirkju sem hann gerði víð- fræga með siðbótarsetningun- um. Karl keisari kom árið eft- ir í kirkjuna, Ieit á gröf Lúth- ers og lét hana í friði. Katha- rína, kona Lúthers, lifði mann sinn í sex ár, dó þann 20. des. 1552 og var jarðsett í borgar- kirkjunni í Torgau. Melanch- ton, nánasti vinur og samverka maður Lúthers, dó árið 1560 og var jarðaður í sömu hallar- kirkjunni, andspænis gröf Lúthers. IV Reynt hefir verið að segja í örstuttu máli sögu Lúthers í sambandi við nokkra helztu menn samtíðar hans. En til að gera málinu sæmileg skil, þyrfti helzt jafn mörg bindi og dálkarnir eru í þessari grein. Það er enginn hörgull á mönnum, sem þykjast eitthvað geta sagt um Lúther, og það er eðlilegt á öld útþynninga, fals- ana (og sögulegra lyga, svo notuð séu orð Alberts Sohweitz ers). Margt af þessu er létt- vægt, ef vegið er, oft og einaít tuggið upp eftir öðrum. Þá eru til ýmis afbrigði af lúthersku, útþynntri og afbakaðri, sem lít ið eiga skylt við trúarfhetjuna sjálfa. Það kann að vera nauð- synlegt hér á landi, að minna menn á að Lúther var hvorki konungur í Danmörku né keis- ari Þýzkalands. Sumt af því, sem sagt er um Lúther, er þó án efa rétt. Það er ekki umdeilt mál, að Lúther grundvallar háþýzkt ritmál. Margir Þjóðverjar, og reyndar aðrir, telja hann „mesta son þýzkrar þjóðar“; það er auðvit að matsatriði. En að han-n kom móðurmálinu til virðingar, sem það naut ekki áður, og það hjá mörgum þjóðum, sem þýðingu Biblíunnar og messuflutningi á móðurmáli, það er almennt við urkennt. Að Lúther gæddi marga menn nýju hugrekki, einkum með játningu sinni í Worms, það sýnir sagan. Það er einnig augljóst, að sumir menn gerðust of djarfir og nei- kivæðir. Oft benda menn á framlag Lúthers til andlegs frelsis og samvizkufrelsis, og það framlag er ekki lítið. En ekki má ofmeta þann þátt út frá nútíma sjónarmiðum, því þar kemur fjöldi annarra ágætra manna við sögu, meðal þeirra starfsbræður Lúthers í Wittenberg, það sem um svip- að leyti var prentuð bók Kóp- ernikusar og Biblía Lúthers, hin fyrrnefnda undir umsjón Rheticusa-r, lærisveins Melanch tons. En Lúther glæddi mjög sannleiksást og sannleiksvit- und manna, og köm-andi kyn- slóðir nutu mikils góðs af Kona Luthers, Katrín von Bora. þessu, þótt það skapaði óróa, deilur og stríð á sínum tíma. Framlag Lúthers til alþýðu- fræðslu er miklu meira en menn hérlendis gera sér ljóst. En vísa má til doktorsritgerða ungra menntamanna erlendis um uppeldiskenningar Lúthers, og til sex veigamestu verka hans um það mál. Fræðin minni, sem ætluð eru börnum, teljast almennt til hinna beztu kennslubóka, sem samdar hafa verið. Margar lútherskar kirkj ur og skólar nota enn þetta verk og hafa í hávegum. Lærðu skólarnir, menntaskólarnir, voru hins vegar m-eir mótaðir af Melanchton en Lúther, enda ber hinn síðarnefndi heiðurs- heitið „kennari Þýzkalands" en sjálfur var hann að V 9T Q- legu leyti lærisveinn Erasmus- ar. Áhrif Lúthers á kirkjur, aðr- ar en hina evangelisk- lúthersku, hafa sýnt sig meiri og dýp.ri en menntamenn gerðu sér fyrrum ljóst. Lúther vakti einnig kaþólsku kirkjuna til siðbótar. En margir ágætis- menn kaþólskir, ekki sízt frá Parísarháskóla fyrir daga Lúthers, börðust fyrir slíkri siðbót, og þess vegna voru hald in nokkur kirkjuþing, sem fræg eru í sögunni, þótt sið- bótarhugsjónirnar næðu ekki fram að ganga. Valdamiklar ítalskar aðalsættir, stórlega sið spilltar af anda endurreisnar- aldar, héldu páfaembættinu í sínum greipum, og komu því til vegar að siðbót náði ekki fram að ganga. Má lesa um þetta í kaþólskum söguritum. Áhrif Lúthers á siðabótina á Bretlandseyjum voru þó nokk- ur, en áhrif Calvins miklu meiri, svo sem kunnugt er. Hins vegar berast sterk lúthersk áhrif til Bretlandseyja í methódismanum, sem varð til< alllöngu síðar, og leiddi til stofnunar stórra kirkjudeilda. Margir hafa gagnrýnt Lúther fyrir að tengja kirkjuna svo fast við ríkið, sem ra>un hefir orðið á í þjóðkirkjuskipulaginu. En ekkert er það í kenningum hans, sem hindrar lútherska kirkju síðari alda frá því að vera frjáls og ríkinu óháð stofn un, enda er hún fríkirkja í mörgum löndum. Hins vegar eru til önnur rök en guðfræði- leg gegn því að breytt sé um kirkjuskipan í grundvallarat- riðum. Rit Lúthers eru talsvert á fjórða hundrað, og fáir menn, aðrir en „Lútherfræðingar" hafa lesið þau öll. Efni hinna svonefndu siðbótarrita (re- formatoríske skrifter) er hins vegar almennt kunnugt flest- um menntamönnum, kennurum og fjölmörgum lei-kmönnum í lútherskum kirkjum.. Um skeið vann Lúther svo mikið að rit- störfum að við lá. að hann yrði heilsulaus, og var reyndar oft mjög heilsutæpur síðustu ár ævinnar, þótt andans gáfur væru óskertar. Líf undir bann- færingu og útlegðardómi mik- nn hluta ævinnar er ekki vel fallið til hressingar sál og líkama. Hörð ádeila Lúthers gegn andlegum og veraldlegum valdhofum er alkunn, en hafa verður í huga að ádeilan v-ar hans verkfæri til að létta ánauð aroki af ótal manneskjum, og ber ekki að leggja misskiidar „nútímatilfinningar" inn í löngu liðna sögu, sízt þar sem vér búum við mannúðlegt stjórnarfar og mjög rólega kirkju. Lúther viðurkenndi líka — einnig í Worms — að hann hefði stundum verið of harður, en þar fyrir vildi hann engan veginn afturkalla kenn- ingar, sem hann vissi í sam- ræmi við Guðs orð. Gerði hann það, þá yrði ánauðarok aftur lagt á menn, og þá yrði hann samsekur kúgurunum. Huggun- arbréf, sem hann skrifaði mörg um einstaklingum, gjafmildi hans og örlæti, sýna hins vegar hjartahlýju hans, og hann um- breytir mati manna á heimilis- lífi, húsmóðurstörfum og hjóna bandi svo mjög, að erfitt er að meta svo sem vert væri. Spyrja mætti hvenær LUther sé fullmótaður, og hvað hafi mótað hann mest. Nokkuð hef- ir verið vikið að pessu, en rétta svarið að hann hann sé ekki fullmótaður fyrr en hann hefir lengi unnið að kennslu og þýð- ingu Ritningarinnar. En Ritn- ingin var honum uppsprettu- lind innblásturs, ekki aðeins í siðbótarstarfinu, heldur einn- ig til skáldskapar. Líkt og forn- skáld íslenzk ortu einatt nokk- uð í sambandi við stórviðiburði, þannig einnig Lúther, en það sem hann yrkir, t.d. í tilefni af lífláti fyrstu píslarvottanna og í tilefni af iífláti fyrsta lútherska lútherska prédikar- ans, eru að efni til Davíðs sálmar, sem hann tekur til sín á líðandi stund, og setur fram í nýju formi. Lúther fylgdist frábærlega vel með í samtíð sinni, stóð í bréfaskiptum við miarga fremstu menn aldarinn- ar — gerði árásir með penn- anum, og varð fyrir árásum, og veitti oft harðskeytt svör, í kappræðum, bókum og bréfum. En Ritningin rnótar hann meir en allir samtíðarmenn, og úr henni tekur Lúther guðfræði sína. Skilji menn ekki áhrif Ritningarinnar á Lúther og hugsun hans, þá geta þeir ekki komist að orkulindinni í sið- bótarverki hans. Hugtökin „hulinn Guð, opinberaður Guð" (Deus absconditus, d. revelat- us), „eiginlegt verk og fram- andi verk Guðs“ (opus propri- um, opus alienum Dei) guð- fræði dýrðarinnar og guðfræði krossins (theologia gloria’e, theologia crucis) er nauðsyn- legt að skilja, til þess að standa ekki framandi andspænis þungamiðjunni í hugsun hans. Annars verður tal manna um „skoðanir Lúthers" að heldur litlu gagni. Spyrja mætti hvað Siaga þessa óigleymanlega manns hafi oss að segja, hvað hann vildi við síðari tíma sagt nafa. Einfald- ast er að grípa til tveggja ör- stuttra greina frá Páli postula til að setja þetta fram, orða, sem höfðu afar djúp álhrif á líf og verk Lúhers. — Ég fyrir- verð mig ekki fyrir fagnaðar- boðskapinn, því hann er kraft- ur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir. Róm. 1,16. I örstuttu máli var Lúther mað- ur, sem fyrirvarð sig ekki fyr- ir fagnaðarboðskapinn. Fyrir þann boðskap vildi hann leggja Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.