Morgunblaðið - 31.10.1967, Side 23

Morgunblaðið - 31.10.1967, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967 23 Níræður í gær: Halldór Kr. Júlíusson SUNNUDAGINN 29. október varð Halldór Kr. Júlíusson, fyrr- verandi sýsluimaður Stranda- manna 90 ára. Hann lauk s+.ú- dentsprófi við Menntaskólann í Reykjavik er hann var 19 áxa og prófi í lögfræði við Hafnar- Háskóla 28 ára. Fulltrúi bæjar- fógetans í Reykjavík var hann frá 1905 til 1909. Þessi 4 ár, sem Halldór var fuilltrúi bæjarfóget- ans, var orð á því gert, hver at- gerfismaður uppboðsbaldarinn var, og uppboðin urðu að skemmtun, sem fólkið sótti ekki síður, til að komast í gott skap en til þess að kaupæ Halldóri er 'létt um að varpa fram snjöll- um setningum og vekja þá stemmingu, sem nauðsynleg er á slíkum mannfundum. Árið 1909 tekur Halldór við sýslumannsembættinu í Stranda sýslu og sezt að á Borðeyri. Þessi 29 ár, sem hann gegnir sýslumannsembættinu í Stranda sýslu býr hann á Borðeyri í svo nefndu Bryde-'húsi sem hann keypti af Riis kaupmanni á Borð eyri. Það er ekki ætlan min að reka ævisögu Halldórs, það munu aðrir gera, sem gera því betri skil en ég er íær um. Mig langar samt til að bregða upp nokkrum svipmyndum, sem geymst hafa í huga mínum frá þeim árum, er ég var á Borð- eyri og sá þá Halldór, og það oft daglega. Halldór er fríður maður, and- litið sviphreint og öer votl um skarpa hu.gsun og gáfur, vöxí- urinn hlutfallagóður og ailar heryfingar formfastar og . fyrir- mannslegar svo af oer. Haiidór er svo sterkur persónuleiki, að hann þurfti ekki að klæðast sýslumannsúniforminu, tii þess að alir sæu, að þar fór sýsiu- maður Strandamanna, er hann gekk norður eftir Eyrinni sinni, sem hann gerði svo oft, er hann vildi vera einn, og ræddi þá gjarnan við sjálfan sig. Þessi Eyri, sem Halldór sótti svo oft tii og undi sér vel á, var lítt gróin grund, er hann tók hana til rækt unar og gerði að grasgefnu túni, sem skilaði sérstaklega góðri og mikilli töðu árlega. En þó Halldór væri svona sterkur persónuleiki, að allir sæu að þar gekk sýslum.aðurinn er hann fór, þá vil ég taka það fram, að engan sýsiumann 'hef ég séð bera sýslumannsskrúðann ja.fn tignarlega og hann. Aldrei sá ég eða heyrði að menn töluðu yfir höfuðið á Halldóri Kr. Júl- íussyni. Nei, því hann var ávallt sá, er rætt var við. Eitt réttar- hald hiustaði ég á þar sem Hall- dór sýslumaður yfirheyrði sak- borning og vitni. Og þá komst ég að þeirri niðurstöðu, að erfitt ætti sá, sem lýgi að Halldóri sýslum.anni fyrir rétti. Sá sem slíkt reyndi mátti vera þjálfaður í iðninni og kjarkmaður, sem ekki léti sér bregða við óþaegi- lega og óvæntar spurningar sýslumanns. Það var hyggilegt að segja satt frá, er maður stóð frammi fyrir Halldóri Kr. Júlíus- syni. Mér verður það jafnan í fersku minni, er ég sá þá þrjá, Halldór Kr. Júlíusson, Guðmund Ögmundsson á Fjarðarhorni og Hallgrím á Valdasteinsstöðum spila lombar. Að sjá svipbriigði þeirra og vangaveltur, er þeir voru að ákveða sagnirnar og heyra tilsvör þeirra. Það var skemmtilegt. Ég min.nist þess með þakkiái- um huga, hve gott er að sækja sýslumannshjónin heim. Þau taka af sérstakri alúð og höfð- ingsskap á móti gestum sínum og rmaður finnur glökkt að mað- ur er velkominn. HaUdór er líka fljótur að átta sig á hvað gestunum er hugþekkast að ræða. Málflu' ningur Halldórs er jafnan á þann veg, að maður skil ur og man betur það er hann segir en flestir aðrir. Oft bar við, er memn gengu á fund Halldórs sýslumanns, að þeim advldist þar inni lengur en ætlað var, er inn var gengið. Það var til orgel í sýslumanns- húsinu, og' Hjörtur, sonur Hall- dórs, var fús til að taka í orgel- ið, er faðir hans óskaði eftir því. Og þá opnaði Halldór stofulhurð- irnar og gerði þrjár stofur að einni og .gekk svo um gólf og söng með sinni sterku rödd, ásamt gestum sínum. Og er hljómur söngs og orgelspils barst út um opna glugga bættist oft liðsauki, og svo var sungið og spilað fram eftir kvöldi. Þessar myndir minninganna eigum við, sem dvöldum á Borð- eyri í tíð Halldórs Kr. Júlíusson- ar, en við Strandamenn eigum eina minnimgu sameiginlega og hún er sú, að Halldór Kr. Július son var sýslumaður okkar í 29 ár og að hann var fallegasti og tig-n arlegasti sýslumaður, sem Strandamenn. hafa átt. Hann er éins og sýslumenn eiga að vera. Á þessum merku tíma-mótum í ævi H-alldórs vil ég bera fram heillaóskir mínar og bið Guð að blessa honum komandi tíma. Br. SL. sunnudag 29. þ.m. varð Hall- dór Kr. Júlíusson, fyrrum sýslu- maður Strandamanna, nír-æður að aldri. Halldór er sonarsonur Halldórs yfirkennara Aiðriks- sonar, sem var með beztu og merkustu fslendingum á nítj- ándu öld. Júlíus, faðir Halldórs sýslumanns, var lengi læknir Húnvetninga. Hann þótti at- kvæðamikill læknir fluggáfaður og lærður vel, jafnframt var hann stórbóndi og mikill atorku- maður. Halldór sýslumaður er eigi síð ur kynborinn í móðurætt: Ingi- björg móðir hans var dóttir sr. Magnúsar prests á Grenjaðar- stað Jónssonar, en þeir voru á sinni tíð taldir með m.erkustu prestum norðanlands. Þeir voru báðir orðlagðir fyrir vel heppn- aðar lækningar þó ekki væru þeir sérlærðír í þeirri grein. Sr. Jón hafði konunglegt lækninga- leyfi. Þessir merku feðgar áttu skammt ætt 9Ína að rekja til sr. Halldórs Hallssonar prests á Breiðabólstað í Vesturhópi, sem að ýmsu leyti kom við sögu átjándu aldar og hélt virði-ngu sini óskertri þó við ofstopamenn væri að eiga á þeirri rysjuöld. Ég, sem þessar línur rita, hefi haft kynni af Halldóri Júlíus- syni, sýslumanni, í marga tugi ára. Allar minningar mínar um þennan merka mann eru mér kærar. í fjölmörg skipti fyrr og síðar hefi ég otið gestrisni han-s og alúðarvináttu. Stundum hefi ég letað til hans um lögfræði- legar ráðleggingar og gefizt vel, en borgun fyrir slíka aðstoð vildi hann aldrei þiggja. Halldór er einn svipmesti og glæsilegasti persónuleiki, sem ég hefi þekkt á langri ævi, mikill á velli, fríður sýnum, málró-mur- inn sterkur og djúpur og fyrir- ma-nnlegur í fasi og framgöngu svo að af bar. Manna er hann hreinskilnastur svo enginn sem þekkir hann myndir ætia að hann kynni að tala urn hug sér, hvað sem um væri sð ræð-a. Oft hefi ég notið yndisstunda á heim ili hans og fræðzt af honum. Hann er óþrotlegur sjór í mann- kynssögu og málfræði, en-da er hann latínumaður góður og hef- ur lesið vel hina fornu latnesku höfunda. Það eitt kann ég frá embættis ferli hans að segja, að reglu- semi hans var viðbrugðið og það er mér kunnugt um, að yfir- mönnum hans þótti vart aðrir kom-a til greina, þegar mikinn vanda þurfi að leysa. Ekki hefur Halldór sýslumað- ur haft mikil afskipti af stjórn- málum á langri ævi, enda hefði honum varla verið h-ent, að binda sig fastan við neinn ein- stakan stjórnmálaflokk þótt hann hafi margsinnis átt þess kost. Jónas Jónsson, fyrrum ráð- herra, færði það eitt sinn í tal við hann, að hann gengi í Fram- sóknarflokkinn, sem Jónas stjórn aði þá og efldi mjög. Ekki lét Halldór þes kost og kvað sér skapfellt að vera óháður. Jónas sótti þá ekki það m-ál fastar, en lét -svo u-mmælt að hann væri eins og maður, sem hefð-i tvo stóla, en settist þó á gólfið. Halldór sýslumaður virtist haaf tekið í arf frá feðrum sín- um hneigð til búskapar. Halldór yfirkennari hafði jafnan nokk- urn kindastofn og Júlíus læk-nir var hinn mesti búforkur. Þegar Halldór var sýslumaður á Borð- eyri hafði hann löngum búskap á lí+illi jörð þar í grend. Þegar hann gekk sjálfur í búsannir, klæddist hann verkamannaföt- um án alls tilhalds. Einn gáfaður og glöggur samtímamaður hans þar á staðnum, lét þess eitt sinn getið við mig, að þó Halldór klæddist lörfum og gengi í verstu skarnvinnu, myndi eng- in-n þó alókunnugur væri, vill- ast á því að þar væri þó sýslu- maðuri-nn, svo langt bar hann af öðrum mönnum af allri gerð. Ég vil hér með færa þessum háaldraða góðvini mínum hug- heilar heillaóskir með þökk og virðingu. Magnús S. Jónsson. Til leigu rúmgóð 2ja herb. íbúð með baði og geymslu á góðum stað í Hafnarfirði. Stutt í strætisvagna. Aðeins reglusamt fólk kemur til greina. Fyrirframgreiðsla. Tilboð merkt: „5879“ sendist Mbl. fyrir n.k. föstu- dag. Síldarstúlkur Getum bætt við nokkrum söltunarstúlkum. Upplýsingar gefur, Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna, eftirlitsdeild — sími 22280. Söltunarstöð Síldarvinnslunnar, Neskaupstað. Til sölu fokhelt raðhús í Fossvogshverfi. Tilbúið til afhend- ingar strax. Tilboð óskast send afgreiðslu Mbl. fyrir miðvikudagskvöld merkt: „463“. SKRR - leikfimi Leikfimi fyrir skíðamenn hefst í ÍR-húsinu í kvöld kl. 19,50. S.K.R.R. Chevrolet 1955 Til sölu er Chevrolet fólksbifreið smíðaár 1955. Bifreiðin er nýstandsett og sprauiuð. Til sýnis við bifreiðaverkstæði okkar Sólvalla- götu 79, næstu daga. BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS. Sími 11588. Bazar Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík held- ur BAZAR á morgun, miðvikudag 1. nóv. kl. 2 í Góðtemplarahúsinu, uppi. NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ — GJÖRIÐ GÓÐ KAUP. Garðahreppur Börn óskast til að bera út Morgunblaðið í Garðahreppi. Upplýsingar í síma 51247. Skotfélagar - skotfélagar Aðalfundur Skotfélags Reykjavíkur verður hald- inn í húsi Slysavarnarfélagsins við Grandagarð sunnudaginn 5. nóvember og hefst kl. 9 stundvís- lega. Venjuleg aðalfundarstörf. Áríðandi lagabreytingar. Greint frá Fmnlandsferð. Fjölmennið. STJÓRNIN. Sími 14226 - Skipti 4ra herb. góð íbúð í Heimunum, í skiptum fyrir góða 2ja herb. íbúð. 5 herb. hæð við'Rauðalæk ásamt bílskúr, í skiptum fyrir góða 3ja-—4ra herb. íbúð. Eldhús við Sogaveg, í skiptum fyrir 4ra—5 íbúð. SKIPA OG FASTF.IGNASALA, KRISTJÁNS EIRÍKSSONAR, Laugavegi 27, sími 14226.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.