Morgunblaðið - 31.10.1967, Page 30

Morgunblaðið - 31.10.1967, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, I>RIÐJUDAGUR 31. OKT. 1967 Ungverjarnir koma ekki Valur leikur 2 leiki ytra - en Vasas greiðir allan ferðakostnað Valsliðsins UNGVERSKU meistararnir í knattspyrnu koma ekki til Islands — og það verður engin uppbót á knatspymutímabilið hér, sem gat orðið með því að sjá svo gott lið sem Vasas Budapest. Þetta er nýjasta staðreyndin i samningum Vals og Vasas, sem á Iaugardag virtist lokið. En nú er ákveðið að Valsmenn leika báða leikina í Ungverjalandi, þann fyrri í Búdapest 15. nóv. og hinn síðari senni- lega á öðrum stað 17. nóvember. Stjórn knattspyrnudeildar Vals og blaðamenn sátu saman yfir matborði í hádeginu í gær, og ræddu um undirbúning leiks hér á sunnudaginn, eins og samfð hafði verið um í síma. Þá var formaður knattspyrnudeildar- Elías Hergeirsson, kvaddur í sím ann og kom aftur með þau skila boð að Ungverjarnir hefðu til- kynnt Björgvin Schram, form. KSI, sem séð hefur um samning- ana fyrir Val, að þeir fengju engar breytingar gerðar á 1. deildar leikjum sínum heima fyrir — eins og þeir hefðu reikn að með — og gætu því ekki leik- ið um helgi. Buðust þeir til að leika hér miðvikudaginn 22. nóv. Me'ð því var grundvöllurinn fall inn fyrir leik þeirra hér á landi, í landi skammdegisins, sem á engan upplýstan völl. Ungverjamir buðu þess í stað að ganga inn á tilboð Vals um að báðir leikirnir yrðu í Ungverjalandi og Vas- Framhald á bls. 24 Danir óttuðust Gunnlaug Hjálmarsson sýnilega. Þeir slepptu honum aldrei lausum og fékk hann minna svigrúm en venju- lega. Hér er þó eitt skot hans — og ekki er dregið af. Fram var ofjarl bronsliðsins danska Liösauki til Dana - móti FH í KVÖLD kl. 8.30 er lokaleik urinn í heimsókn danska handknattleiksliðsins Stadi- on. Móthcrjar þeirra í kvöld verða hinar gömlu kempur FH, sem að vísu bera ekki meistaratitil nuna, en eru þó taldir bezta félagslið lands- ins í augnabliKinu. Víst er að leikmenn Stad- ion óttast þá, byrjuðu þegar á laugardag að spyrja um þá og gerðu uppskátt, að þeir legðu mest upp úr úrslitun- um í þeim leik — og vilja hverfa heim með sigur yfir FH. Kann það að stafa af nýafstaðinni dvöi FH í Dan- mörku. En hvað um það. Danir áttu á sunnudagskvöld von á liðsauka fyrir þennan leik. Átti þá að koma Ole Bay Jensen, 27 ára gamall liðs- maður Stadion, sem ekki átti heimangengt er liðið hélt til tslands. Komst hann í A-landsIið Dana einu sinni og hefur feikið í Kaupmanna hafnarúrvali. Hvort þetta nægir þeim til sigurs, skal ósagt látið, en fáir unnendur handknattleiks vilja missa af lokaleiknum í kvöld. Sigur Fram var aldrei ■ hættu og lokatölur 12:8 „HVAR væru félög eins og Fram í dönskum handknattleik?“ var spurning, sem skotið var fram undir lok leiks Fram og Stadion á sunnudag. Fram hafði allan tímann haft undirtök í leiknum, fleiri og betri skyttur, betri markvörð og alls ekki látið í minni pokann í skipulögðum og þéttum varnarleik móti Stadion, sem í fyrravor lenti í 3. sæti í 1. deild Danmerkur og er nú í 2. sæti — taplaust það sem af er keppnistimabilsins þar. Svarið verður hver að finna hjá sjálfum sér. Og svarið er harla gott frá íslenzkum mælikvarða eftir ágætan leik Fram — þar sem fátt skorti nema betri sóknar- leik. Lokatölur leiksins urðu 12-8 Fram í vil. Þa3 gætti nokkurrar tauga- spennu í báðum liðum í upp- hafi og urðu 3 upphlaup Stadion og 2 hjá Fram árangurslaus. — Tíminn leið og fyrst á 7. mín. skorar Gylfi Jóhannsson fyrsta mark leiksins. Örskömmu. síðar jafnar Werner Gárd — einn af ,silfurmönnum“ Dana frá HM í fyrra, en hann fékk Stadion með sér í íslandsferðina, en Gárd leikur annars me'ð HG. Þetta varð fljótt „leikur varn- araðferðanna" og tókst liðunum er á leið sjaldan að finna smugu í varnarveginn, sem ekki varð auðveldlega fyllt áður en hætta stafaði af. Er á leið liðu oft 3—5 mín. milli marka og markatala leiksins mjög óvenjulega lág. — En undantekning frá þessu er þó 3 mín. kafli í fyrri hálf- leik eða frá 7—10 mín. er Guðjón Jónsson skorar tví- vegis fyrir Fram með þ’»í að finna sér smugu inn á línu og skora. Breytti hann stöð- unni á þessum leikafla úr 1-1 í 3-1. Þegar Guðjón svo á 17. mín. skoraði 4. mark Fram úr vítakasti hafði Fram náð for- ystu sem aldrei varð ógnað eftir það— en heldur eki aukið neitt að ráði. Mikið var um stangarskot í leiknum og á fyrstu stundar- fjórðungunum átti Fram 4 stang arskot en Danir 3. í hálfleik var staðan 8-5 fyrir Fram. Upphafsmínútur síðari hálf- leiks hafa oft or’ðið íslenzkum larizt á línu Fram. Jörgen Frandsen er „kominn í gegn“. En Þorsteinn varði, þó færið væri stutt. (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.) Mörgum fannst gjöf Dana til Víkings og Fram í upphafi leikja óvenjuleg. — Og það er hún. liðum afdrifaríkar — ekki sízt móti dönskum handknattleiks- mönnum. En nú fór á annan veg. Eftir nær 5 mín. baráttu tókst Guðjóni að auka forskot Fram og 4 mín. síðar jók Gunnlaugur forsktið í 10-5. Þegar svo Þor- steinn varði vítakast litlu síðar, hafði Framliðið unnið „sálræn- an“ sigur og það sem eftir var, var tæknilegt atriði. Baráttan harðnaði að vísu — og Guðjón vabð að víkja af velli í 2 mín. fyrir leikbrot. En allt kom fyrir ekki. Forskotið varð aldrei minna en 4 mörk — þrátt fyrir að Gunnlaugur hæfði ekki mark Dana í vitakasti. Leiknum lauk með öruggum sigri Fram, 12-8. Þorsteinn Björnsson mark- vörður átti sérstakan heiður skilið fyrir góða frammistöðu. — Hann varði tvö vítaköst í leikn- um, annað frá „silfurmanninum" G&rd undir lokin. Að vísu voru skot Dana ekki þau föstustu eða hættulegustu sem sézt hafa í Há logalandi — og flest urðu Þor- steini auðveld vegna gó'ðra stað- Framihald á bls. 24 Stadion vann Víking 26-19 ■ I daufum leik VÍKINGAR, sem eru gestgjafar dönsku handknattleiksmannanna sem hér dvelja nú, veittu þeim vægast sagt ekki mikia mót- spyrnu í fyrsta leik heimsókn- arinnar á laugardaginn. Frá byrjun til leiksloka höfðu Dan- irnir tögl og hagldir í leiknum og spurningin var aðeins, hversu stór sigurinn yrði. Á fyrstu 10 mínútunum sköp uðu Danir sér þriggja marka forskot og um miðbik hálfleiks ins jókst það í 6 mörk. Eftir það var lítið í leikinn varið og deyfð og áhugaleysi einkenndi hann öðru fremur. í hálfleik var markamunurinn 7 mörk eða 6:13 og allri keppni í leiknum lokið um sigurinn. Forskot Dananna komst upp í 8 mörk (15:23), leiknum lauk með sigri Dananna 26 gegn 19. Danirnir verða ekki dæmdir eftir þessum leik, svo auðveld- ur var hann þeim. Víkingsliðið var allan tímann hálf feimið óg einhæfur leik- ur þess kringum Einar og Jón, stórskyttur liðsins, ekki ógn- vekjandi að marki, Þegar þar ofan á bættist að Jóni voru mjög mislagðar hendur við markskot- in í fyrri hálfleik, varð vopn Víkings aldrei beitt. Dómari var Óli Ólsen og var heldur daufur við verkefnið eins og allur svipur leiksins. Mörk Víkings skoruðu: Ein- ar Magnússon 7, Jón H. Magn- ússon 7, Gunnar Gunnarsson 3, Rósmundur og Páll 1 hvor. Mörk Stadion: J. Hansen 6, Lauridsen og Gárd 4 hvor, Frandsen og Carstensen 3 hvor, Sigurstand og Lienskiær 2 hvor, ísaksen og Andersen 1 hvor. Vnlur og Frum jöfn 2-2 VALUR og Fram hafa ekki hlgt knattspyrnuna á hilluna, enda er Ungverjalandsför fyrir dyr- um hj’á íslandsmeis'turum Vals. Liðin léku æfingaleik á sunnu- daginn og lauk honum með 2 mörkum gegn 2. Mörk Fram skoruðu Elmar Geirsson og Gunnar Guömundssion en mörk Vals Reynir Jónsson (úr víta- spyrnu) og Birgir Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.