Morgunblaðið - 19.12.1967, Page 1
32 SÍÐUR
54. árg. 289. tbl. ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1967. Prentsmiðja Morgunblaðsins
Alit á huldu um framtíð Konstantíns
Þingmenn handteknir í Aþenu,
hershöfðingjum vikið úr starfi
Konstantín Grikkjakon-
ungur, sem enn dvelst í Róm,
beið um helgina eftir skila-
boðum frá herstjórninni í
Aþenu, sem annaðhvort
munu staðfesta útlegð hans,
eða heimila honum að snúa
aftur til Grikklands sem kon-
ungur. Tvö áreiðanleg dag-
blöð í Róm, La Stampa og
Corriere della Sera, sögðu á
sunnudag, að konungur hefði
sett þau skilyrði fyrir heim-
för sinni, að frjálsar kosning-
Danir hækka
forvexti
Kaupmannahöfn, 18. des. NTB.
DANSKI þjóðbankinn upplýsti í
dag, að frá og með þriðjudegin-
um 19. desember yrðu forvextir
hækkaðir úr 6.5% í 7.5%.
Þjóðbankinn gerði eftirfarandi
grein fyrir forvaxtahækkuninni:
Skilyrðin til þess að fiá hagstæð-
asn árangiur af gengisfellingu
dönsku krónunnar voru þau, að
fljótlega yrðu settar hömlur á
efnahags- og tekjumynduinina
þannig, að unnt væri að skapa
grundvöll fyrir aukningu á út-
flutningi iðnaðarins.
Eins og nú stendur á mun líða
nokkur tími þar til hægt verður
að setja á slíkar höimliur. Þess
vegna greip Þjóðbankinn til
þeirra ráða, að hafa hemil á pen-
ingamynduninni að nokkru leyti
með hækkun forvaxta og einnig
með ýmsuim öðrum ráðum.
ar verði háðar í Grikklandi
við fyrsta tækifæri. I Cor-
riere segir. að konimgur hafi
einnig krafizt þess, að her-
stjórnin hætti tilraunum sín-
um til að breyta stjórnarskrá
landsins Engin staðfesting
hefur fengizt á þessum fregn-
um frá Konstantín sjálfum.
Fréttamaður NTB-fréttastof-
unnar, staddur í Aþenu, segir,
að gríska herstjórnin hafi komið
saman til fundar á sunnudags-
kvöld til að ræða skilyrði þau,
sem konunngur setti fyrir heim-
komu sinni. Af opinberri hálfu
var ekkert um fund þennan sagt
en álitið er, að á honum hafi
örlög konungs verið fastráðin.
Fullvíst er talið, að konungur
sé reiðubúinn að semja um þær
kröfur herstjórnarinnar, að hann
víki úr hefðbundinni valdastöðu
sinni og afhendi herstjórninni
umboð sitt til að taka mikilvæg
ustu ákvarCanir og viðurkenni
þar að auki herstjórnina sem
löglega stjórn landsins. Konung
ur krafðist þess hins vegar á
móti, að pólitískir fangar verði
náðaðir og að herstjórnin leggi
fram viðurkenningu á því, að
lýðræðisstjórn verði tekin upp
í iandinu í náinni framtíð. Þá
á konungur að hafa krafizt þess,
að Pipinelis utanríkisráðherra
verði gerður að forsætisráðherra
nýju stjórnarinnnar. Pipinelis,
sem ræddi við konung 1 Róm,
kom til Aþenu á sunnudags-
kvöld ásamt Hieronymusi erki-
biskup, og sat fund stjórnarinn-
ar sama kvöld. Við komuna til
Aþenu sagði erkibiskupinn, að
það væri undir stjórninni kom-
Framhald á bls. 31.
Forsætisráðherra Ástralíu
talinn af
iMýr ráðherra sver embættíseið
Ótfast að Harold E. Holt, forsœtis-
ráðherra hafi drukknað
Melbourne og Canfoerra,
18. des. — (AP) —
★ Talið er fullvíst, að Harold
Holt, forsiætisráðherra Ástralíu,
hafi drukknað á sunnudag er
hann var að synda í sjónum við
Portsea, um 60 kilómetra fyrir
sunnan Melbourne.
★ Miklir hafstraumar eru á
þeslsu svæði, og var ráðherrann
að synda þarna með vini sínum
er hann kkyndilega stakk sér í
eina ölduna. Holt var góður
sundmaður og vanur straumun-
um á þesisu sivæði, en þegar
hann hvarf í ölduna og kom ekki
strax aftur í ljós, smeri vin,ur
hans sér til lögreglunnar og bað
um aðstoð. Leitað hefur verið
síðan með þyrlum um nálæga
strandlengju auk þeas sem frosk-
menn hafa leitað á hafslbotni og
björgunarsveitir á landi, ein leit-
in hefur engan árangur borið.
Holt var 59 ára, og tók við em-
bætti forsætisráðherra í janúar
1966 þegar sir Robert Menzies
sagði því lausu fyrir aldurs siak-
an áirangur á mánudag ákvað
landsstjóri Ástralíu, Casey lá-
varður, að fela Jo’hn McEwen
að giegna emíbætti forsætisráð-
herra, en McEwen hefur verið
vara-forsætisráðlherra landsins
undanfarin tíu ár. Sver hann
embættiseið sinn sem forsætis-
ráðherra á morgun.
'Harold Holt átt suimarsetur
skamimt frá slysstaðnum, og
Framhald á bls. 11.
Anna María
ic Harold Holt tók við forustu
Frjálslynda flokksdns eftir sir
Robert Menzies og leiddi flokk-
inn til sigurs i þingkosningunum
í nóvember í fyrra. Eitt helzta
kosningamálið þá var hvort
Ástralíu bæri að sienda 4.500
Erik Eriksen verður
ekki í kjöri —
ERIK Eriksen, fyrrum fonmaSur
danska Vinstri flokksinis hefur
lýst því yfir að hann muni ekki
verða í kjöri við kosningarnar,
sem fram fara í Danmörku í
janúar n.k. Erik Eriksen er einn
af merkustu stjórnmálamönnum
Dana. Hann er aðeins 65 ára
gamall, en hefur átt sæti á þingi
síðan 1935. Hann var landbún-
aðarráðherra árin 1945 til 1947
og forsiæfiisráðherra árin 1950
—53. Hann hefur gengt fjölda
mörgum trúnaðarstöðum, m.a.
átt sæti í danska útvarpsráðinu,
verið fiormaður dönsku semdi-
nefndarinnar á þingi Norður-
iandaráðs og nokkur undanfarin
ár hefur hann verið formaður
Norræna félagsins í Danmörku.
Eriik Eriksen hefur að jafnaði
verið mjög velviljaður íslandi og
íslendingum. Hann var meðal
þe^rra stjórnmálaleiðtoga Dama,
sem höfðu mikill og góð áhrif á
lausn handritamálsins. Erik Erik
sen sagði af sér formennsku í
Vinstri flokknum fyrir þremur ár
um og tók þá Paul Hartling við
formennskunni. Erik Eriksen á
fjölda vina hér á íslandi.
Harold Holt
manna liðsauka til Suður-Viet-
nam eins og stjórn Holtsi hafði
ákveðið. Bætti flokkurinn við
sig 11 þingmönnum í kosningun-
um, hlaut 82 af 124 sætum i
Fulltrúadeildinni.
Þagar leitin að Holt bar eng-
Hundar drepa börn
Lynchburg, Virginia, 17. des.
(AP)
FJÓRIR hundar réðust á sunnu-
dag á tvo litla drengi, þriggja og
fjögurra ára, og bitu þá til bana.
Gerðist þetta í Madison Heights
skammt frá Lynchburg í Virgi-
níuríki í Bandaríkjunum. Faðir
drengjanna kom á vettvang er
hann heyrði hróp þeirra, en
fékk ekkert að gert.
Hundarnir fjórir voru af
þýzku fjárhunda'kyni, og voru
tveir þeirra skotnir á árásar-
staðnum, en hinir tveir náðust
heima hjá eiganda þedrra, al-
blóðugir að sögn lögreglunnar.
Drengirnir tvieir voru bræður,
Eugene og Kennetih Goodman.
Faðir þeirra, Eugene H. Goad-
man, var við vinnu sína á sunnu
dag, er hann heyrði óp sona
sinna, sem voru að leik skammt
frá heimili þeirra. Hljóp Good-
man þegar út, greip hrífu, siem
stóð við húsdyrnar, og hljóp
þangað sem drengirnir voru, um
200 metra frá húsinu. Þar voru
hundarnir að rífa í sig drengina,
og réðst Goodman þegar á hund-
ana. Barði hann hundana með
hrífunni, skóm sínum og hverju
öðru vopni, sem til náðist, en
tókst ekki að hrekja þá frá
drengjunum. Tókst honum að-
eins að ná sundurtættu Mki ann-
ars sonarins og staulast með það
hieim.
Meðan á þessu gekk höfðu
nágrannarnir hringt til lögregl-
unnar ,sem kom þegar á veitt-
vang og tókst að skjóta tvo hund
anna og flýðu þá hinir tveir
heim til sín. Þar náðust þeir
hjá eiganda sínum, Ernest
Framhald á bls. 2.
Þingsályktunartillaga um:
Aðild Islands að GATT
— lögð fram á Alþingi í gær
I GÆR var lögð fram á Al-
þingi þingsályktunartillaga
um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til þess að gerast fyrir
íslands hönd aðili að GATT,
Hinu almenna samkomulagi
um tolla og viðskipti svo og
bókun þeirri við Hið almenna
samkomulag, sem gerð var 30.
júní 1967 og nefnist Genfar-
bókun.
Sfðari hluta árs 1963 fékk ísl.
ríkisstjórnin boð frá aðalfram-
kvæmdastjóra GATT um þátt-
töku í starfsemi GATT á bráða-
birgðagrundvelli. Væri tilgang-
urinn sá, að ísland gæti með því
tekið fullan þátt í Kennedyvið-
ræðunum og að þeim loknum öðl
azt áðild að GATT ef um semd-
ist. Var ákveðið að taka þessu
boði. í marz 1964 var bráða-
birgðaaðild Islands samþykkt á
aðalfundi GATT og gilti hún til
ársloka 1965 en var síðan endur-
nýjuð til ársloka 1967. Aðildar-
samningur íslands að GATT var
staðfestur hinn 30. júní sl. en
16. okt. sl. var samningurinn
undirritaður fyrir Islands hönd
að áskildu samþykki Alþingis
en gildistaka verður 30 dögum
eftir að GATT hefur verfð til-
kynnt um að sú staðfesting sé
fyrir hendi. Mbl. mun síðar skýra
nánar frá aðild íslands að Kenne
dyviðræðunum á grundvelli
þeirra upplýsinga sem fram
koma í greinargerð þingsálykt-
unartillögunnar.