Morgunblaðið - 19.12.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DES. 1967
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
fy—-=*BUAirrGAM
RAUÐARARSTÍG 31 SlMI 22022
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar, séu þær ekki
lagL — Fullkomin bremsu-
þjónusta.
Stilling
Skeifan 11 - Sími 31340
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
■jAr Maður fær ónógar
upplýsingar
Þ.V.E. skrifar:
Kæri Velvakandi.
Þú varst að minnast á jóla-
bækurnar í pistlum þínum á
sunnudaginn og þar langar mig
tiil að leggja orð í belg. Ég hef
líka verið að ganga um bóka-
búðimar undanfarna daga í leit
að bókum handa vinuim og
kunningjum og eins að hyggja
að, hverju ég gæti átt von á.
Ég tek undir það með þér, að
þær eru margar svipfallegar
núna, bækurnar, en erfiðara er
að geta sér til um innihaldið,
eða innri gæði oft og tíð-
um. Og það finnst mér
dálítill galli á jólasölunni,
að maður fær ónógar upp-
lýsingar í búðunum og
þessvegna verðar enn sein-
legra að velja bók en ella,
ef afgreiðslufólk kynni betri
skil á einstökum bókum en mér
virðist raunin nú. Mig langar
tii að biðja þig að koma því
á framfæri við rétta aðila,
hvort ekki er á einhvern hátt
hægt að bæta úr þesau.
Þ.V.E.
^ Ritdómar í bókum
í verzlunum
Velvakandi getur vel
skilið það sjónarmið Þ.E.V., að
slæmt sé að geta ekki vitað
nokkurn veginn hvernig þær
bækur eru, sem maður hyggst
kaupa. Öllum má ljóst vera, að
það, sem útgefandi kann að
láta prenta utan á bókarkápu
er ekki einhlítt. En surns staðar
þar sem Velvakandi þekkir til
er þessu komið fyrir ó annan
hátt. Þá eru ritdómar klipptir
úr blöðum jafnharðan og þau
koma út og ritdómunum stung-
ið inn í eitt eintak bókar þar
sem hún liggur í jólabóka-
staflanum á búðarborðinu.
Með þessu móti getur kaup-
andi á tiltölulega skammri
AÐALFLIMDIiR
Hið ísl. Bókmenntafélags
verður haldinn í 1. kennslustofu Háskólans, fimmtu-
daginn 28. desember kl. 17.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓBNIN.
Gamlárs-
kvöld
lidó
PONIK OG EINAR leika
Borðpantanir og miðasala í Lídó (aðal-
dyr) miðvikudaginn 20. og fimmtudag-
inn 21. des. kl. 5—7.
Einnig miðasala fyrir nýjársdagskvöld.
stund fengið nokkra hugmynd
um bókina. Leyfir Velvakandi
sér að koma þeirri tillögu á
framfæri við bókaverzlanir,
að þær taki upp þennan hátt,
viðskiptamönnum til glöggvun-
ar og hægðarauka.
Einhverjir eiga pen-
inga
Næsta bréf, sem er frá Hafn-
firzkri sjómannskonu, hefur
legið nokkuð, en það er skrifað
dagana sem fólk var að búa sig
undir að taka við gengisbreyt-
ingunni. Enda þótt bréfið sé auð
vitað samið af því tækifæri og
við það miðað, er hér um það
algilt efni að ræða, að Velvak-
andi telur ekki úr vegi að birta
bréfið.
Komdu sæll Velvakandi!
Ég þarf að fá útrás og af því
ég er ein, þá ert þú beztur til
að taka við. Hvað er að ske í
okkar ágæta þjóðfélagi. hverjir
tala um peningaleysi, atvinnu-
leysi og manni hefur skilizt alis
leysi. Allir eiga að leggja að sér
og spara, svo heyrir maður og
sér annað eins brjálæði í kaup-
mennsku eins og skeð hefur síð-
astliðna þrjá daga. Það eru
keypt verðbréf upp á fleiri mill
jónir fyrir utan allt annað. Það
eru einhverjir sem eiga pen-
inga, það hefur lengi verið mið-
að við tekjur sjómanna þegar
talað er um miklar tekjur Minn
maður er búinn að stunda sjó
síðastliðin 8 ár og fyrir rúmu
ári greip okkur sú bjartsýni að
reyna að eignast íbúð sem var
keypt tilbúin undir tréverk og
má heita að hún sé í því ástandi
enn í dag þó við búum þar með
fjögur börn og þó ég vinni líka
vitum við ekki hvernig við eig-
um að halda íbúðinni, öU gjöld
ógreidd, engin lán að fá það er
allt peningalaust! í mesta lagi
hægt að fá víxil og svo fer mað-
ur og betlar út annan til að
borga þann síðasta. Það þarf
ekki að segja þér, eða öðrum
Ihvaða kostnaður fylgir því að
framfleyta sér á þennan hátt.
Ég hef ekkert á móti því að
spara, hefi ek‘ká þekkt annað
fná fæðkigu og kannski þess
vegna verð ég svo reið þegar
ég heyri um allt þetta kaupa-
æði að ég sé rautt, ég held ég
sé á mörkunuim að verða komm
únistL
Sjómannskona í Hafnarfirðl.
Skrifstofuherbergi
Skrifstofuherbergi er til leigu á fyrstu hæð í stein-
húsi við Miðborgina. — Upplýsingar í símum
20433 og 35068.
Iðnaðarfyrirtæki
til sölu í Kópavogi á góðum stað. Tilvalið fyrir
málara eða vana sprautara. Upplýsingar í síma 41018
milli kl. 20 og 22 í kvöld og næstu kvöld.
Komið og gerið
góð innkaup
Ótrúlega ódýrt.
G.8. búðin
Traðarkotssundi 3.
ATHIJGIÐ!
Breytið verðlífilli krónu
i vandaða vöru:
Húsgagnaverzlun Þorsteins Sigurðssonar, Grettis-
götu 13 (stofnuð 1918) sími 14099, leysir vandann.
Saumakassar — Sjónvarpsborð
Teborð — Blaðagrindur
Blómakassar og blómasúlur
Svefnbekkir frá kr. 2.800,00.
2ja manna svefnsófar — Kollar
Svefnstólar — Símabekkir
Vegghúsgögn, mikið úrval
Svefnherbergishúsgögn — Kommóður
Rennibrautir — Sófasett — Skrifborð o. m. £L
J
Allt á gamla verðinu
Barnanáttföt
frá kr. 90
Herrasokkar frá kr. 25,00.
G.S. búðin
Traðarkotssundi 3.
Gamlárskvöld
Á HÓTEL BORG.
Almennur dansleikur til klukkan 4.
Veitingar innifaldar í verði aðgöngumiðans.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu
hótelsins og upplýsingar í síma 11440.
HÓTEL BORG.