Morgunblaðið - 19.12.1967, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DES. 1967
▲
Páll Bóasson -Minning
Fæddur 14. maí 1881.
Dáinn 9. desember 1967.
PÁLL Bóasson var sonur hjón-
anna Rósu Bjarnadóttur og Bó-
asar Pálssonar, bónda að Sléttu
í Reyðarfirði. Barn að aldri flutt-
ist Páll í fóstur til föðurömmu
sinnar, Sæbjargar Jónsdóttur, er
þá bjó ekkja að Seljateigi í
Reyðarfirði. Var hún annáluð
búsýslu- og rausnarkona og talin
auðug. Hjá þessari ömmu sinni
ólst Páll upp við mikið ástríki
og komst til góðs þroska.
Ungur að aldri byrjaði Páll
sjóróðra á opnum bátum frá
ýmsum verstöðvum við Reyðar-
fjörð, en þegar vélbátaöldin
hófst eystra gerðist hann for-
maður á vélbátum. Sótti hann
sjóinn fast, enda kappsfullur, en
t
Eiginkona min, móðir og
tengdamóðir
Sigríður Blöndal,
Miklubraut 52.
lézt á Landsspítalanum að-
faranótt 17, desember.
Lárus Þ. Blöndal.
Björn Blöndal
Ragnheiður og Gísli
Blöndal
t
Móðir mín, tengdamóðir og
amma,
Þorvaldína Jónsdóttir
andaðist á Elli- og hjúkrun-
arheimilinu Grund 16. desem-
ber.
Ingunn Jónasdóttir
Helgi Gíslason,
og börn.
t
Útför systur okkar
Þórdísar Þórðardóttur
frá Börmum
er lézt 8. desember, fer fram
frá Reykhólakirkju fimmtu-
daginn 21. des. kl. 2.
Ólafía Þórðardóttir
Sigurlína Þórðardóttir.
t
Útför eiginkonu minnar og
móður okkar
Hafdísar Haraldsdóttur,
Hólmgarði 25.
fer fram að Fossvogskapellu
fimmtudaginn 21. des. kl.
13:30.
Magnús Tómasson,
og dætur.
t
Útför
Sigurður Þórðarsonar
skipasmiðs
Vesturgötu 21.
verður í Fossvogskirkju
miðvikudaginn 20. þm. kl.
10:30. Blóm vinsamlegast af-
þökkuð, en þeir sem vilja
minnast hans eru vinsam-
lega beðnir að láta líknar-
stofnanir njóta þess.
Vandamenn.
jafnframt var hann forsjáll, og
aldrei 'hlekktist honum á við sjó-
mannsstörfin,
Eftir nokkur formennskuár,
gerðist Páll verkstjóri á Eski-
firði og varð brátt eftirsóttur í
slík störf, enda fór'saman hjá
honum húsbóndahollusta, dugn-
aður og góð hæfni til að stjórna
fólki, auk þess sem hann var
verkhygginn, ákveðinn og sann-
gjarn eins og ljúfmenninu
sæmdi.
Nálægt miðju aldursskeiði
gerðist Páll sjálfstæður atvinnu-
rekandi á Eskifirði. Tók hann
fisk til verkunar í stórum stíl
og keypti einnig fisk. Hafði hann
þá fjölda fólks í vinnu. Var til
þess tekið, hversu vel hann vand
aði til fiskverkunar, og ekki
horfði hann í kostnað við að
gera fiskinn að fyrsta flokks
vöru. Voru vörugæðin honum og
meira virði en gróðavonin. Þekk
ing hans og reynsla í meðferð
fisks var svo traust, að naumast
munu aðrir hafa staðið honum
þar framar. Um þetta leyti var
t
Útför konu minnar
Gróu Árnadóttur
fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 20. des. kl. 2
e.h.
Þorsteinn Jónsson.
t
Útför móður okar, fóstru
tengdamóðvu: og ömmu
Sigríðar Björnsdóttur,
fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 20. þm. kl. 3
síðdegis.
Markús Signrjónsson
Björg Sigurjónsdóttir
Jóhanna Sigurjónsdóttir
Helga Egilsson
Rögnvaldur Sigurjónsson
Hlíf Sigurjónsdóttir
Óiöf Magnúsdóttir
Hörður Sigurjónsson
og barnabörn.
t
Jarðarför
Málfríðar Tómasdóttur
Waage
Ljósheimum 18.
sem lézt 13. desember s.l. fer
fram frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 20. þ.m. kl. 1:30.
Skarphéðinn Waage.
Steinar og Klara Waage
Baldur og Kristín María
Wage.
Tómas og Guðrún Waage.
Magnús og Kitty Waage.
Þeim, sem vildu minnast
hinnar látnu er vinsamlegast
bent á Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra.
t
Alúðarþakkir fyrir auð-
sýnda samúð og virðingu við
andlát og útför móður okk-
ar
Þórdísar Einarsdóttur
Börn og aðrir
ættingjar.
Austfjarðafiskur og Bíldudals-
fiskur eftirsóttur og jafnframt í
hærra verði en annar saltfiskur,
sólþurrkaður.
Árið 1934 fluttist Páll til
Reykjavíkur. Stundaði hann þar
í byrjun ýmisleg störf, unz hann
gerðist starfsmaður í .fjármála-
ráðuneytinu árið 1942. Þar vann
hann síðan til ársins 1962, er
hann veiktist og hætti störfum.
Var starfstíminn þá og orðinn
ærið langur og þrekið á þrotum.
Hinn 30. nóvember 1908 kvænt
ist Páll heitmey sinni, Vilborgu
Einarsdóttur frá Helgustöðum
við Reyðarfjörð, hinni ágætustu
konu. Var hjónaband þeirra svo
ástúðlegt og farsælt sem framast
má verða. Þau eignuðust fimm
syni og ólu auk þess upp eina
fósturdóttur. Af sonum Páls og
Vilborgar eru á lífi Gunnar
Axel hæstaréttarlögmaður, Ein-
ar Halldór verzlunarmaður og
Friðrik lögregluþjónn, mann-
kostamenn. Fósturdóttirin var
Oddný Guðmundsdóttir Þórar-
inssonar frá Eskifirði, nú gift
kona hér í borg.
Frú Vilborg, kona Páls, lézt á
síðastliðnu sumri. Sá harmur,
sem greip Pál þá, virtist valda
því, að lífslöngun hans dvínaði,
og að síðustu þráði hann það
heitast að mega sem fyrst ná
endurfundum við konu sína, en
um það var hann sannfærður, að
svo yrði, þegar hérvist lyki.
t
Hugheilar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Þórarins Ólafssonar,
húsasmíðameistara,
Keflavík.
Börn, tengdabörn og
barnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auð-
sýnda samúð, við andlát og
útför
Sigurlínar Erlendsdóttur
Garðakoti Mýrdai.
Einnig færum við öllum,
sem heimsóttu hana og veittu
henni aðstoð í langvarandi
veikindum hennar alú'ðar
þakkir.
Þorsteinn Bjarnason,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda
samúð við fráfall eiginmanns
míns, föður tengdaföður og
afa
Halldórs Friðrikssonar
frá Helgastöðum
Þorgerður Sigtryggsdóttir,
Steinunn Halldórsdóttir,
Leifur Ingimarsson
og börnin.
Páll gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum um ævina. Hann sat um
skeið í hreppsnefnd Eskifjarðar-
hrepps, var mörg ár formaður
sóknarnefndar þjóðkirkjunnar á
Eskifirði og sáttanefndarmaður
þar. í Reykjavík gegndi hann
starfi sem stefnuvottur í mörg
ár. Öll þessi störf rækti Páll af
mikilli alúð og samvizkusemi.
Páll Bóasson var hið mesta
prúðmenni, hörkuduglegur og
kappsfullur við öll störf, vel gef-
inn, ráðvandur maður, sem ekki
mátti vamm sitt vita, samvizku-
samur drengskaparmaður, orð-
var og góðgjarn. Ég varð þess
aldrei var við löng kynni, að
hann talaði illa um nokkurn
mann. Ef einhver hafði orðið til
þess óviljandi eða af gáleysi að
gera á hlut Páls, því Páll átti
aldrei óvildarmenn, færði Páll
allt slíkt til betri vegar með ljúf-
mennsku sinni, sneri því jafnvel
upp í gamanmál og erfði aldrei.
Ég get ekki á þessari kveðju-
stund látið hjá líða að minnast
á eitt atvik úr lífi Páls, er lýsit
vel ljúfmennsku hans og því,
hvernig hann tók erfiðleikum
við störf. Hann gegndi um skeið
innheimtustörfum í Reykjavík, á
tímabili, þegar illa gekk að fá
greiðslu á réttum tíma. Einn
vina Páls að austan, sem stadd-
ur var í borginni, mætir honum
þá eitt sinn og spyr meðal ann-
ars, hvernig athafnamanninum
frá Eskifirði falli innheimtustarf
ið. Páll brosir og svarar með
Runólfur
ólfsson —
Kveðja frá konu og börnum.
Fæddur 19. júlí 1900
Dáinn 11. des. 1967
Nú rí'kir vetur og voðamyrkur
í vorsins löndum við dauðans ós.
En þó að geysi nú hel og harmar
við höfum samt okkar jólaljós.
Og gegnum tárin þar tindra
geislar,
sem tendra vonir í þreyttri sál,
svo gullin stjarna í gegnum
sortann,
hún gefur jólanna englamál.
Við Ijósblik jóla ég lít til baka
um liðnu árin og farna slóð.
Ég sé þig ungan á sumardegi,
ég sé þig veita úr hjartans sjóð.
Þú varst mér ávallt svo vænn og
góður.
t
Innilega þökkum við öllum
sem sýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og jarðar-
för
önnu Snjólaugar
Þorvaldsdóttur
Kristjana Magnúsdóttir
Þorvaldur Guðmundsson
og systkin.
t
Við þökkum hjartanlega öll-
um, er sýndu
Kristínu Eggertsdóttur,
Sörlaskjóli 90. Reykjavík,
vinsemd á lífstíð hennar og
virðingu við lát hennar og út-
för. Sér í lagi þökkum við
læknum, hjúkrunarkonum og
öðru starfsliði á Vífilsstöðum
fyrir hlýleik og alú'ðlega
hjúkrun. Þá þökkum við stofu
systrum hennar fyrr og síðar
fyrir næman skilning og vin-
semd.
Jóhannes Guðmundsson,
Lára Jóhannesdóttir og
systkin hinnar látnu.
hægð, að sér falli það vel, hann
hafi við svo gott fólk að eiga,
sem flest bjóði sér að komra aft-
ur. Þetta hnyttna svar lýsir bet-
ur en langt mál afsakandi dóm-
mildi Páls og viðhorfi hans til
erfiðleika í starfi.
Vitandi það, að þú átt góða
heimkomu, vinur minn, Páll
Bóasson, kveð ég þig og sendi
jafnframt ættingjum þínum
hérna megin samúðarkveðjur í
tilefni aðskilnaðarins.
Eiríkur Bjarnason.
Salnn gekh vel
SALA Lionsklúblbsins Njarðar
um síðustu helgi á jólapappír til
ágóða fyrir heyrnardaufa gekk
mjög vel. Nam hagnaður af söl-
unni rúmlega 70 þús. kr. Verður
hagnaðinum varið til kaupa á
smáisjá til notkunar við heyrnar-
bætandi skurðaðgerðir. En eins
og fram hefur komið í fréttum
vantar smásjá í væntanlega
háis-, nef- og eyrnadeild, sem
ætlunin er að koma á móts við
eitt af sjúkrahúsum borgarinn-
ar. Þess skal getið, að Erlingur
Þorsteinsson, læknir, hefur
mörg undanfarin ár unnið að
vissum heyrnarbætandi skurð-
aðgerðum á heyrnardaufum og
hefur hann notað eigin smásjá
við þær aðgerðir. Hins vegar
vantar smásjá í hina nýju deild.
(Fréttatilkynning frá Nirði)
S. Run-
Minning
Þú varst mitt sólskin á myrkum
stig.
í fátækt, sorgum og sjúkleik
veittir
þú söng og brosum í kringum
þig-
Við þökkum allt, sem þú veittir
vinur
og verndar biðjum af Drottins
náð,
því engar vaka í vetrars'kuggum
og veita jarðheimi guðleg ráð.
Og sál þín heitt unni söng og
gróðri
og sumarangan á breiðri strönd,
þar sem þú áttir á æskudögum
við ölduljóðin þín draumalönd.
Og þegar vorið á vængjum
ljóssins
allt vefur angan í blóðbergsþey,
þá sindrar Ijós'haf um Sjónarhóla,
þá syngUr ’báran við lífsins ey.
Þá komum við þar og krjúpum
þögul
í kvöldsins friði og minnumst
þín.
Þá blessar andi þinn afabörnin,
er aftanljóminn á fjöl'lin skin.
á.
Ég þakka öllum þeim er
glöddu mig á 70 ára afmæli
mínu 5. des. Bömum mínum
og tengdafólki, barnabömum
og frændfólki svo og starfs-
fólki Kaupfélags Hafnfirðinga
þakka ég góðar gjafir. Inni-
legar kveðjur færi ég ykkur
öllum. Lifið heil.
Þórarinn J. Björnsson.
Hjartans þakkir færi ég öll-
um þeim mörgu, sem glöddu
mig á áttræðisafmælinu.
Gleðileg jól.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir,
Stað, Reykjanesi.