Morgunblaðið - 13.02.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1968
3
- STRANDIÐ
Framh. af bls. 28
af öðrum persónulegum munum
og í ganginum framan við íbúð-
ir yfirmanna á Þór voru troðnar
ferðatöskur, segulbands og út-
varpsviðtæki, sjópokar og nokkr-
ir síldarmjölspokar merktir
Rauðku, Siglufirði, fulhr af far-
angri.
Skipbrotsmenn eru 10, sex
Danir, einn Færeyingur og þrír
Spánverjar. Þeir voru harla fá-
talaðir að undanteknum skip-
stjóranum ag þegar þeir sáu
framan í ljósmynda og kvik-
myndavélar fréttamanna, flýðu
þeir sem fætur toguðu inn í setu-
stofu yfirmanna .
Skipstjórinn, Knud Jensen,
maður á miðjum aldri, og alvan-
ur íslandssiglingum var ekki
nærri eins mannfælinn og fús til
að ræða við fréttamenn, þó ekki
um tildrög strandsins, fyrr en að
sjóprófum loknum.
— Hvenær varð strandið og
hvernig eru aðstæður á strand-
stað?
Knud Jensen, skipstjóri
á Hans Sif.
(Ljósm. Mbl. Svi. Þ).
Þessi mynd er tekin, þegar Þór yfirgaf Hans Sif á strandstaðnum um hádegisbil á laugardag.
Þá var farð að falla út og ko nin 8—9 vindstig af V-N-V. (Ljósm.: Hjálmar Bárðarson).
— Skipið tók niðri kl. 3.45, á
laugardagsnótt og þá var enn
sæmilegasta veður. Við reyndum
að ná loftskeytasambandi við
Reykjavík en það tókst ekki,
heldur kom loftskeytastöð á
Grænlandi boðum um það til
Reykjavíkur hvernig komið var
og bar síðan orðsendingar á
mil’li. Brátt kom Þór á strand-
stað og einnig slysavarnasveit
frá Raufarhöfn. Björgunarsveit-
nni tókst eki að koma til okkar
línu af því að vegaiengdin var
of mikil úr landi, en Þórsmenn
komu fljótlega dráttartaug yfir
í skipið enda styttra milli skip-
anna, eitthvað um 200 metrar.
— Þór reyndi þá strax að
draga okkur á flot og hafði
dregið okkur dálítinn spöl þegar
taug n slitnaði. Þá hafði veðrið
versnað ti‘1 muna, komin níu
vindstiga álandsvindur og sjóiag
fór óðum versnandi sivo að skip-
herrann á Þór náðlagði okkur ein
dregið að yfirgefa Hans Sif.
— Hann sendi síðan gúmbát
með utanborðsvél eftir okkur og
gekk björgun n ágætlega. Strák-
arnir gátu tekið með sér mikið
af farangri sínum en ég náði
ekki öðru en einum alfatnaði.
Svo tók ég náttúrlega með mér
skjöl og dagbók skipsins.
— Sjávarbotninn er stórgrýtt-
ur ó þessum stað svo að einhver
göt munu hafa komið á skipið
;n ekki var hægt að kanna þau
; inanfrá. Töluverður sjór var
kominn í vélarrúmið. Það fer
svo eftir veðri og sjó næstu daga
:vort tekst að bjaiga skipinu.
Fulltrúi útgerðarfélags skips-
ins, Arne Andersen, kom til ís-
iands þegar á laugardagskvöld
og til Akureyrar í morgun. Mtol.
náði tali af honum síðdegis í
dag og spurði hann um björg-
unarhorfur.
— Um þær get ég ekkert
sagt sagði Andersen, annað en
það að mér er tjáð að stormur
hafi verið á strandstað í gær ag
í nótt, og það spáir í sjálfu sér
ekki góðu. Annars ætla ég að
fljúga yfir skipið í fyrramálið til
að athuga aðstæður og engar
ákvarðanir verða teknar fyrr en
að loknum þeim athugunum.
Skipstjóri og skipshöfn af
Hans Sif fóru flugleiðis til
Reykjavíkur í kvöld en þar eiga
sjópróf að hefjast í fyrramálið.
Sjómenn fró Raufarhöfn fóru
vestur á Rifstanga í gær og
komuist þá ailnærri skipinu. Þá
stóð það á réttum kili en þeim
virtist það hafa færst nokkuð til
og nær landi. Töldu þeir senni-
legt að það væri illa farið þar
sem botn er mjög stórgrý-ttuir
á þessum stað. Þá var töluverð
vindkvika en ekki verulegur
sjór.
f dag hafur veður verið vont
á Raufarhöfn og ekki vitað um
neinar mannaferðir í nánd við
strandstaðinn. — Sv. P.
5 tíma ierð með um
100 skíðaunnendur
— úr KR-skálanum til bæjarins
Það var kalt i Reykjavík í gær, eins og víðar á landinu. Fóik
klæddi sig vel og var ekki meira úti við en það nauðsynlega
þurfti. En þa ðgátu ekki allir flúið inn í hlýjuna. Togarinn
Marz var nýkominn til hafnar, og áhöfnin hafði nóg að starfa
á svelluðum þiljunum. í baksýn er kolakraninn gamli sem
brátt hverfur af sjónarsviðinu. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
ALLSTÓR hópur unnenda skíða-
íþróttarinnar lenti í talsverðum
erfiðleikum seinni hluta dags í
gær, en fólkið var að yfirgefa
KR-skálann í Skálafelli eftir að
hafa rennt sér þar í brekkum
í þokkalegu veðri fyrr um dag-
inn og hugðist halda til bæjar-
ins aftur.
Margir voru í þann mund að
leggja af stað um kl. 4, en þá
skall á stórhríð, þannig að vart
sást út úr augum. Þótti mörgum
ökumönnum, er voru á litlum
einkabílum, ekki árennilegt að
Hafo hug ó uð
reynu nð bjurgo
Nott County
FTJLLTRÚAR vátryggingafé-
lags brezka togarans Notts
County, sem strandaður er á
Snæf jallaströnd, hafa grand-1
skoðað allar aðstæður til björg-
unar á togaranum. Er sjávarbotn
inn þarna nokkuð sléttur og
verður ekki séð að miklar
skemmdir séu á skipinu, og hafa
þeir því fullan hug á að reyna
að ná því út.
Hafa fulltrúarnir fengið sendar
dælur vestur á ísaijörð og ætla
að reyna að dæla betur upp úr
togaranum, en síðan verður
mjög sennilega reynt að fá
Landhelgisgæzluna til að veita
aðstoð með einhverju skipa
sinna.
leggja af stað í þessu veðri. Tveir
langferðabílar frá Ingimar voru
þarna við skálann og kusu því
margir að skilja bíla sína eftir
og fara með áætlunarbílunum til
bæjarins.
Ingimar Ingimarsson, sérleyf-
ishafi, tjáði Mbl. í gær að um
100 manns hefði farið með bíl-
um sínum í bæinn. Lögðu þeir
af stað litlu eftir fjögur frá
skíðaskálanum, og sóttist ferðin
mjög seint vegna skyggnisins.
Þurftu menn hvað eftir annað að
ganga á undan bílunum til að
vísa þeim veginn, og hópurinn
ekki kominn til bæjarins fyrr en
um kl. 10.30.
Róðherra og
þingmenn
til Osióar
DR. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráfflierra heldur til Osló á
miffvikudaginn, til að sitja þing
Norffurlandaráffs sem stendur
yfir dagana 17. til 22. febrúar.
Auk hans sækja þingiff fyrir ís-
lands hönd, Emil Jónsson, utan-
ríkisráffherra, og þingmennimir
Sigurffur Bjarnason, Matthías Á.
Mathiesen, Ólafur Jóhannesson,
Magnús Kjartansson og Sigurður
Ingimundarson.
Nýtt aðalumboð
Lloyd’s á ísl.
NÝTT fyrirtæki, Könnun hf.,
tók hinn 1. janúar sl. viff affal-
umboffi brezka tryggingafélags-
ns Lloyd’s á íslandi, en þaff var
áður í höndum fyrirtækisins
Trolle og Rothe.
Könnun hf. mun sjá um rekst-
ur Lloyd’s hér á landi, en fram-
kvæmdastjórn nú fyrst um sinn
annast Axel Kaaber, og aðal
skoðunarmaður er Agnar Guð-
mundsson, en þeir starfa báðir
hjó Sjóvótryiggingum.
- 5 BREZKIR
Framh. af bls. 28
endanlega ákveðið í þeim efn-
um fyrr en á morgun.
Tveir brezkir togarar aðrir
iigigja hér inni núna vegna við-
gerðar, og hafði annar þeirra
fengið gat á sig ofan við sjó-
línu vegna áreksturs við annan
brezkan togara á miðunum.
— Ásgeir.
STAKSTESMAR
Frjáls blöð eða
flokksblöð
ALLTAF öffru hvoru gjósa upp
kröfurnar um þaff, aff ríkisvaldið
taki að sér að standa fjárhags-
lega undir útgáfu blaða á íslandi
og festa í skorður þaff fyrirkomu-
lag, sem hér er á blaðaútgáfu, aff
þrir stjórnmálaflokkar eigi sin
dagblöff og gefi þau út í þeim til-
gangi aff vinna að hagsmunamál-
um flokks síns, en ekki eins og
víffast er annars staffar, aff dag-
blöff sem slík séu sjálfstæðar
stofnanir, sem aff vísu styffja
ákveffna stjórnmálaflokka í mis-
munandi rikum mæli effa ákveff-
inn stjórnmálaleg- og félagsleg
öfl í þjóðfélaginu, en aff öffru
leyti séu þau frjáls og hugsi
fyrst og fremst um eiginn heiður
og sjálfstæffa og heilbnigða
blaffamennsku. Morgunblaðiff
hefur áffur lýst þeirri skoffun
sinni, að rikisstyrkur til dagblaffa
sé fráleitur og mun áfram berj-
ast gegn því, aff fé skattborgar-
anna sé fengiff stjórnmálaflokk-
unum til þess aff gefa út mismun-
andi slæm dagblöð.
Ríkið greiðir fyrir sig
Hitt er allt annaff mál, aff fráleitt
er þaff fyrirkomulag, sem hér
hefur veriff, aff dagblöðunum sé
ætlaff aff styrkja ríkiff fjárhags-
lega. Þannig hafa blöff svo hundr
uffum eintaka skiptir hvern
stofnanir og þar á meffal til Al-
einasta dag veriff gefin á ríkis-
ins, dagskrá útvarps og ýmiskon-
ar fregnir, sem ríkisvaldiff þarf
að koma á framfæri, hafa veriff
birtar í blöffunum ókeypis. Á
þessu hefur orðiff nokkur breyt-
ing, þannig aff ríkiff er farið aff
greiffa aff hluta fyrir þá þjónustu,
sem það fær veitta af dagblöff-
unum. Sjálfsagt er að athuga aff
koma málum þannig fyrir, aff
ríkisvaldið greiffi að fullu fyrir
þá þjónustu, sem blöðin veita
því, og einnig er sjálfsagt, að
þeim gjöldum, sem blöðin greiffa
rikinu fyrir þjónwtu, sem þaff
lætur þeim í té, sé stillt í hóf
eins og verffa má, en hitt er frá-
leitt aff fé sé tekiff af borgurun-
um meff valdi — og áreiðanlega
að óviljan þeirra — til þess aff
greiffa tap blaffa, sem ilia er
stjórnaff.
Þróunin erlendis
Þróunin hefur víffa í nágranna-
löndunum orffið sú, að blöð, sem
stjórnmálaflokkarnir standa aff,
hafa veslazt upp og átt í marg-
háttuðum erfiðleikum, einfald-
lega vegna þess aff fólkiff hefur
ekki kært sig um að lesa blöð,
þar sem fregnir voru litaffar
flokkspólitískt og aldrei var vit-
að, hvort um heiðarlegan frétta-
flutning var að ræffa effa póli-
tískar falsanir. Þessi sama þró-
un hefur átt sér staff hér innan-
lands, og þá er þaff snjallræffi
fundið upp að fá rikið til að
standa undir hallanum, og þeim
mun ver sem aff stjórn blaða er
staffiff, þeim mun meira eiga
skattborgaramir að greiffa tíl
þess aff halda þeim gangandi.
Þessi stefna er fráleit og gegn
henni þarf að berjast, enda
mundi hún leiða til þess að efla
flokkavald og koma í veg fyrir
heilbrigffa þróun íslenzkrar
blaffamennsku. Því frjálsari sem
blöffin eru, þeim mun liklegra er
aff áhrif þeirra geti orffiff heilia-
vænleg. En blöð stjórnmála-
flokka gera lítiff annaff en endur-
taka það, sem foringjar viðkom-
andi flokks segja á öffrum vett-
vangi.