Morgunblaðið - 13.02.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1968
5
Eintak bókar er fyrst var
prentuð í Skáiholti
— og margar aðrar ágætar
bækur á bókaupphoði í dag
SIGURÐUR Benediktsson
heldur bókauppboð í Þjóð-
leikhúskjallaranum í dag.
Verður þar margt góðra bóka
á boðstólum, og ef að líkum
lætur láta bókaunnendur- og
safnarar, ekki sig vanta.
Á uppboðskránni eru 96
númer. „Þetta er nú lítt frá-
sagnarvert, til að byrja með“,
sagði Sigurður við blaðamann
Mbl. sem leit inn til hans í
gær, „en þegar kemur aftur
fyrir miðja skrá, er margt
góðra bóka, — flestar komnar
úr erlendu safni“.
Sú bók sem sennilega mun
vekja mesta athygli er fyrsta
bókin sem prentúð var í
Skálholti. Nefnist hún Para-
dysar Likell, eða Paradísar
lykill. Er hún gefin út 1686
og þrátt fyrir að hún sé kom-
in vel til ára sinna, er hún
ótrúlega vel farin.
Þá má nefna nokkrar bæk-
ur sem fáir munu vita að til
séu. Nefnist ein Drauma dikt-
ur um Söknuð og sorglegan
missir Eggerts Ólafssonar.
Kver þetta er gefið út í
Kaupmannahöfn 1769.
Titilblað Drauma diktur um
Sóknuð og sorglegan missir
Eggerts Ólafssonar.
Verk og Laun herra Jóns
Teits Sonar, biskups, það
kver er gefið út á Hólum
1782 og Æruminning sál.
Guðrúnar Einars Dottur, gef-
in út á Hólum 1778. Sagðist
Sigurður aldrei hafa séð
þessi kver áður.
Af öðrum merkum bókum
má nefna Ævisögu Bjarna
Pálssonar eftir Svein Pálsson,
bókin er útgefin í Leirárgörð-
um árið 1800, Husspostilla
Fyrre Parturinn og Annar
Parturenn. Bækur þessar eru
gefnar á Hólum 1684 og 1710.
eftir Gísla Þorláksson og út-
Eftir Jón Vídalín er bók
sem nefnist Stutt og Einfölld
Undirviisun um Christen-
doomen, gefin út á Hólum
1748, og 6., 7., 9. og 10. útgáfa
af Huss Postilla.
Þá verður bo'ðin upp 14. út-
gáfa Grallarans, Kirkjusaga
Finns Jónssonar, Æfi og Minn
ing Magnúsar Gíslasonar,
Flateyjarbók og sérstaklega
fallegt eintak af tímaritinu
Óðinn, og er verkið allt og
bundið í samstætt skinnband.
Uppboðið hefst kl. 5 í dag,
Sigurður Benediktsson og áhugasamur
bækur þær er boðnar verða upp í dag.
bókainaður skoða
en milli kl. 10 og 4 í dag,
gefst bókaáhugamönnum kost
ur á að skoða uppboðsbækur
í Þjóðleikhúskjallaranum.
Jimmy Heoth leikur iyrir juzz-
unnendur í Tjurnurbúð í kvöld
HÍNN frægi bandariski jazz-
leikari, Jimmy Heath kom til ís-
lands í gær, og mun hann leika
í Tjarnarbúð í kvöld með íslenzk-
um jazzleikurum. Hann er á leið
vestur um haf frá meginlandi
Evrópu, þar sem hann var á
hljómleikaferð með Art Farmer.
Jimmy Heath er fæddur í Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum árið
1026, og er hann bróðir Persy
Heath, bassaleikara Modern
Jazz Quartet. Hóf hann að leika
á tenórsaxafón, og lék þá m.a.
á fimmta tugnum með Dizzy
Gillespie, Kenny Dorham og
Miles Davis. Hann sneri sér svo
að þverflautunni, og hefur getið
sér góðan orðstír á hana.
Hann hefur m.a. leikið með
Milt Jackson, Blue Mitohel, Art
Farmer, Cal Tjader og Donald
Byrd. Hann hefur einnig samið
fjölda jazzlaga.
- ÉG HEF ALDREI
Framh. af bls. 2
radíói að nota neyðarsendi-
stöð úr gúmbjörgunarbátnum
og senda út á neyðarbylgj-
unni 2182, en ekkert heyrð-
ist frekar.
Um mi'ðnætti vorum við
komnir á ftrandstað og geis-
aði sama ofsaveðrið. Var þá
orðið ljóst að veðrið var lang
harðast sunnan við Bjarnar-
núp. Vegna veðurofsans var
ekkert hægt að gera á strand-
stað og varð því að bíða fær-
is á björgunaraðgerðum.
Hálfri stundu eftir miðnætti
þann 5. febr. komu skilaboð
frá SVFÍ á Isafirði, hvort
þeir gætu gert eitthvað til
hjálpar, en þeim var tilkynnt
aftur að ekkert væri hægt að
hugszs til björgunar að svo
komnu máli vegna veðurofs-
ans.
Kl. 01,35 tilkynnti togarinn
Kmgston Andalusite að tog-
arinn Ross Cleveland hafi
sokkið um kl. 22,40 og mundi
enginn hafa komizt af. Loft-
skeytamaðurinn tilkynnti a'ð
þeir hefðu verið í nánd við
skipið þegar það sökk og sást
enginn maður yfirgefa skip-
ið.
Um kl. 02,00 var ljóst að
ekkert var enn hægt að gera
á strandstað og var lónað
vestur fyrir Bjarnamúp til
þess að svipast um eftir Heið-
rúnu II. og var því haldið
áfram til kl. 7 um morguninn,
en án árangurs. Ve'ður var þá
farið að lagast undir Grænu-
hlíð og vestur undir Bjarnar-
núp. Um 8 leytið þann morg-
in var svo aftur komið á
strandstað og var þá mun
meiri vindur undir Bjarnar-
núp, en vestan til í Djúpinu,
eða um 8 vindstig af NA.
Laust eftir 8 náðist slitrótt
samband við Notts County og
tilkynnti hann að mennimir
væru enn um borð í togar-
anum, en líðan þeirra væri
mjög slæm. Klukkustundu
seinna t.ilkynnti Notts County
að botninn væri að brotna
undir skipinu og að þeir væru
a’ð fara á flot um borð. Við
sendum þá fyrirmæli til skips
hafnarinnar um að fara ekki
frá borði, heldur bíða þess að
veður batnaði, svo að hægt
væri að bjarga þeim frá sjó.
Um 10 leytið tilkynnti Notts
County að hann heyrði í
flautu varðskipsins og var
það fyrsta vísbendingin um
að við værum á réttum sta'ð,
en aldrei sást til togarans
nema í ratsjá. Einnig var
Notts County tilkynnt að allt
yrði gert til þess að hjálpa
þeim, en ekki væri viðlit að
senda bát til þess að bjarga
þeim, eins og væri, vegna
veðurs.
Togarinn tilkynnti okkur
þá að 18 menn væru á lífi og
einn látinn, en 4 menn væru
með kal. Kl. rúmlega 11 kall-
aði togarinn aftur og þá voru
5 komnir með kal og 2 orðnir
veikir. Við sög'ðum þeim þá
að við myndum hefja björg-
unarstarf strax og mögulegt
væri. Um kl. 12 sást togar-
inn fyrst með berum augum,
en varðskipið var þá 0,2 sjó-
mílur frá honum. Veður var
þá NA 7-10 vindstig og snjó-
koma. Það var fyrst um kl.
13.35, sem fært þótti að hefja
björgunaraðgerðir. Varðskip-
ið lónaði upp undir togarann
og þegar hann var um 0,1
sjóm. frá settum við gúmmi-
bát með utanbor’ðsmótor á
flot, og hafði hann meðferðis
2 óútblásna gúmbjörgunar-
báta. í hraðbátnum voru Sig-
urjón Hannesson I. stýrimað-
ur og Pálmi Hlöðversson II.
stýrimaður.. Þeim gekk ferð-
in vel yfir í togarann, nema
hvað hægt gekk, vegna þess
hvað var hvasst. Þegar þeir
komu að síðu togarans blésu
þeir upp annan bátinn og
einnig notuðu þeir 10 manna
gúmbjörgunarbát, sem var út-
blásinn við síðu togarans.
Áhöfn togarans var þá sett
um bor’ð í bátana og þegar
þeir lögðu frá Notts County
lónaði Óðinn um 0,1 sjóm. þar
frá og komust bátarnir áfalla-
laust að síðu varðskipsins og
mennirnir um borð. Gúmmí-
hraðbáturinn dró hina bát-
ana. Eftir að greiðlega hafði
gengið að koma mönnunum
um borð var haldið til ísa-
fjar’ðar og mennirnir settir
þar í land. Þann 6. febr. náð-
um við svo í lík sjómanns-
ins, sem lézt um borð í Notts
County og því var komið til
ísafjarðar. Við tókum síðan
þátt 1 leytinni að HeiÖTÚruu
II og leituðum á Jökulfjörð-
um, en án árangurs. Annars
kemur bað einkennilega í ljós
að þegar skipin verða fyrir
áföllum sunnan við Bjarnar-
núp, er mun betra veður und-
an Grænuhlfð og í Jökulfjörð-
unum“.
LEIÐRÉTTIMG
Leiðréttar prentvillur. f grein
um fyrirtækið BRÆÐURNIR
ORMSSON í föstuidagsiblaðinu
átti að standa í 12 l'ínu ofanfrá
á bls. 16:, „Eftir að þar til valdir
menn voru búnir að atihuga okk-
ar tillögur og samþykkja þær,
gáfum við tilboð í virkjun ánna
Asamt háspennulínum og spenni-
stöðvum á ísafirði og Hnífedal.
Tilboðsupphæð um 900.000 kr.
fyrir ca. 1100 hestöfl."
Og 28 línum neðar hetfur fallið
niður lína. Lesist: „Síðan sendir
ísafjörður mann eftir mann til
lánsútvegunar, sem allir komu
með tvær hendur tómar o.s.frv."
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
Nýlegt steinhús
um 90 ferm. kjallari, tvær hæðir ásamt bílskúr og
ræktaðri og girtri lóð í Auisturborginni til sölu.
Á hvorri hæð er 3ja—4ra herb. íbúð en í kjallara 3ja
herb. íbúð. Hæðirnar lausar strax.
Útb. getur orðið eftir samkomulagi
NÝJA FASTEIGNASALAN,
Laugavegi 12. — Sími 24300.
<