Morgunblaðið - 13.02.1968, Page 8

Morgunblaðið - 13.02.1968, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1968 SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR Nýja bíó Morituri Amerisk kvikmynd Leikstjóri: Bernhard Wicki Meðal leikenda: Marlon Brando Yul Brinner , Vafasamt er, hvoxt kvik- myndahúsunum er nokkur akk ur að því lengur að auglýsa, að kvikmynd gerist í heimsstyrj öldinni síðari, svo sem gert er með þessa mynd. Mönnum gæti flogið í hug, að um væri að ræða einhverja afburða lélega hernaðarmynd, útþvælt efni, þar sem faUbyssudrunur og flugvélagnýr eiga fullt í fangi með að halda fólki vakandi. — Við könnumst við margar slík- ar. Ég gerði mér, að minnsta kosti, ekki háar vonir, er ég skrapp að sjá mynd þessa um helgina. Og þvi ánægðari er ég yfir því að geta eindregið mælt með mynd þessari, fyrir þá ald ursflokka, sem kost eiga á að sjá hana. Þótt myndin eigi að gerast á styrjaldarárunum — nánar til- tekið 1942 — þá fjallar hún ná- lega ekkert um orustur. Stríð- ið er fremur bakgrunnur mynd arinnar, að vísu allnáinn. — Þýzkt flutningaskip er á leið frá Japan til hins hernumda hluta Frakklands. Flytur það mikið magn af gúmmí, eða eins og brezkur erindreki orðar það: „nægjanlegt magn, til að halda Öllum þýzka hernum gangandi í þrjá mánuði“. Bretar hafa nefnilega fengið fregnir af ferð um skipsins og ætla sér nú að slá tvær flugur í einu höggi: koma í veg fyrir að Þjóðverjar fái gúmmíið til afnota og ná þvi sjálfir til sinna þarfa, enda voru Japanir um þetta leyti að leggja undir sig þau lönd i Suð- Austur Asíu, þar sem mest allt hrégúmmí heims er að finna. Þrír menn eru mest í sviðs- Ijósinu á skipinu. Skal þar fyrst telja skipstjórann (Yul Brinn- er), sem er hollur föðurlandi sínu, að minnsta kosti ódrukk- inn, en hins vegar lítill vinur nazista. Þegar hann fréttir, til dæmis, að Hitler hafi sæmt son hans heiðursmerki fyrir að sökkva brezku sjúkraskipi. fær það mikið á hann, svo hann fer á „grenjandi túr“. Fyrsti stýrimaður er einnig á- berandi presóna í myndinni, harður maður og framgjam, flokksbundinn og fanatískur nazisti. Hann er lítill vinur skipstjórans, Stundum virðist hann eiga í nokkurri innri bar áttu. Hann er. þess að vísu full- viss, að framar beri að hlýða JJitler en mönnum. en hins veg ar er hann lögum samkvæmt skyldur að hlða nánasta yfir- manni sinum, að minnsta kosti á meðan hann gerir sig ekki ber an að beinum drottinssvikum. Á svipaðan hátt og skipstjórinn er tilneyddur að hlýða skipun- c»n „foringjans", ef hann vill þjóna sínu föðurlandi, þannig er stýrimaður neyddur til að vera skipstjóra hlýðinn, til að þjóna hinum sama foringja. Svo er það „farþeginn" (Mar lon Brando). Hann hafði komið á skipið í Japan sem Gestapó- spæjari, og ekki líður á löngu áðuT en kastast í kekki milli skipstjóra og hans út af pólitík. Brando verður brúnaþungur og ógnandi, sýnir lögregluskírteini sitt og lætur í það skína, að skipstjóra sé betra að halda sér á mottunni, ella kunni hann að gefa óþægilegar upplýsingar um hann, þegar til hafnar komi í Evrópu. En skipstjóri lætur engan bil bug á sér finna og harðbannar „farþeganum" að vera að snuðra um skipið. Segist vera húsbóndi á sínu skipi og vilji ekki láta neina spæjara vera að hrella skipshöfnina. Fyrir- mælum sínum verði hann að lúta, meðan hann sé á skipi með sér. — Farþeginn gengur brott þungur á brún, en fyrsti stýrmaður vottar honum fljót- lega hollustu sína. En hver er hann í rauninni þessi „farþegi"? Hann laumast um skipið i myrlkrinu og leitar þeirra staða, þar sem Þjóðverj- ar hafa komið fyrir sprengjum, til að sprengja skipið í loft upp, ef það kynni að verða yfirbug að af óvinaskipum. Treysti hann skipstjóra kannski illa til að hafa þann útbúnað í sem beztu lagi? Eða ætlaði hann kannski að gera sprengjurnar óvirkar 1 þeirri fullvissu, að ekki mundi þurfa að nota þær? Eða var hann---------Nei, það varðar vist við lög að færa þann grun á blað . . . Hugmyndin að baki myndar þessarar er snjöll, en hefði þó auðvitað getað ónýtzt í höndum klaufa. En myndin er vel gerð og leikur afbragðsgóður. Minn- isstæðastir verða þeir að sjálf- sögðu í stærstu hlutverkunum, Brando og Brynner, og má ekki á milli sjá. hvor fer betur með sitt hlutverk. — Annars sýna flestir leikendur góðan leik. Helzt mætti finna það að kvik myndinni, að þegar til úrslita- átaka kemur um borð í skipinu undir lok myndarinnar, þá ger- ast fremur ólíklegir atburðir, vissir menn eru látnir geispa golunni af of mifclum auðveld- leika, meðan aðrir halda sinni með jafnósennilega lítilli fyrir- höfn. En fram að þeim atburð- um, er efninu framfleytt á sann ferðugan hátt, án þess það bitni á spennunni, en það er meira en sagt verður um allar njósna- eða stríðsmyndir. Og sjálf lokin eru vel við myndina í heild. Fastefgnir til sölu Húsnæði fyrir skrifstofur, heildverzlanir, iðnað, verzl- anir, minniháttar verkstæði, læknastofur, snyrtistofur o. m. fl. íbúðir á hgstæðum skilmál- um í Miðborginni, og víðar um borgina og í nágrenn- inu. Hús og íbúðir í smíðum. Einbýlishús. Akureyringai Hús við Hrauntungu (Sig- valdahús), skipti æskileg á fasteign á Akureyri. Austurstrætl 20 . Strnl 19545 Hafnarfjörður Hef kaupendur að einbýlis- húsum og íbúðarhæðum í smíðum og fullgerðum. — Nánari upplýsingar á skrif- stofunni. Guðjón Steingrímsson, hrl. Linnetstíg 3, Hafnarfirði Sími 50960 Kvoldsími sölumanns 51066. íbúbir óskast Höfum kaupendur að fullbúnum 2ja—6 herb. hæðum, ennfremur einbýl- ishúsum og raðhúsum í Kópavogi, Reykjavík, Sel- tjarnarnesi. I smíðum Til sölu 4ra og 6 herb. hæðir í Foss- vogi, og 2ja, 3ja og 4ra herb. hæðir í Breiðholts- hverfi, seljast tilb. undir tréverk og málningu. Gott verð. Raðhús í Fossvogi á góðu verði, 6 herb. 6 herb. raðhús við Kapla- skjólsveg. Tilb. nu undir tré verk. Vill taka upp í 4ra—5 herb. hæð í góðu standi. Einar Sigurðsson hdl. Ingólfsstræti 4. Sími 16767, kvöldsími 35993. Til sölu 2ja herb. íbúðir við Ásbraut, Hraunbæ og Rauðarárstíg. 3ja herb. íbúð við Drápuhlíð og Hringbraut. Lóð undir iðnaðarhúsnæði við Reykjanesbraut, 350 ferm. steyptur grunnur. Sverrir Hermannsson ÍMAR 21150 • 21370 Höíum fjársterkan kaupanda að: 2ja—3ja herb. nýrri eða ný- legri íbúð. 3ja herb. góðri íbúð. 4ra herb. góðri íbúð, helzt í Heimunum eða nágrenni. Til sölu 2ja—3ja herb. íbúð við Hraun bæ. Góð kjör. 2ja herb. íbúð við Leifsgötu með nýrri eldhúsinnrétt- ingu og sérhitaveitu. 3ja herbergja rishæð í góðu steinhúsi í Vogunum. Útb. aðeins kr. 200 þús. 3ja herb. rúmgóð hæð við Leifsgötu með nýrri eldhús innréttingu og sérhitaveitu. Stór bílskúr fylgir með hita lögn. 3ja herb. rishæð í Kópavogi. 4ra herbergja góð rishæð í Vogunum með sérhitaveitu, svölum og bílskúrsrétti. Góð kjör. 4ra herb. góð rishæð við Sig- tún. Vel umgengin. 4ra herb. nýleg og óð íbúð í Heimunum með sérhita- veitu. 5 herbergja gglæsileg efri hæð við Rauðalæk með sérhitaveitu. I smíðum glæsilegt raðhús í Fossvogi. Skipti á 3ja—4ra herb. íbúð æskileg. Glæsileg 6 herb. íbúð á 3. hæð í Fossvogi, fokheld með mið stöð. Sérþvottahús á hæð- inni. 140 ferm. glæsileg efri hæð í Hafnarfirði. Allt sér. Verð kr. 625 þús. Iðnaðarhúsnæði 240 ferm. í smíðum í gamla Austurbænum, nú fokhelt með miðstöð. ALMENNA FASTEIGNASALAH LINDAR6ATA 9 SÍMAR 21150-21570 FÉLAGSLÍF Sundmót Armanns verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur fimmtudaginn 29. febrúar kl. 8,30. Keppt verð- ur í eftirtöldum greinum: 100 m skriðsundi karla (bik arsund), 200 m bringusund karla (bikarsund), 100 m bak sund karla, 100 m skriðsund kvenna, 200 m fjórsund kvenna (bikarsund), 100 m baksund kvenna, 50 m skrið- sund drengja (bikarsund) 100 m bringusund stúlkna, 50 m bringusund teilpna, fæddra 1956 og síðar 4x100 m fjór- sund karla, 4x100 m skriðsund Bílstjóri helzt með meistarapróf, óskast til að aka einkabíl, einnig til lagerstarfa. Tilboð með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mongunblaðsins fyrir 16. febr. merkt: „BíLstjóri — 5272“. JNauðungaruppboð sem auglýst var í 50., 51. og 52. tbl. Lögbirtingablaðs- 1967 á v/s. Gullbjörgu VE. 89, talinni eign Guðmund- ar Þórðarsonar, fer fram að kröfu Fiskveiðasjóðs fs- lands o.fl. í skrifstofu bæjarfógeta að Víðigrund 5b Sauðárkróki, föstudaginn 16. febr. 1968 kl. 16. Bæjarfógetinn á Sauðárkróki. Til leigu er 3. hæð í húseigninni Ármúla 5. Stærð 540 ferm. Möguleikar eru á að skipta hæðinni, þar sem um tvo stigaganga er að ræða, sinn í hvorum enda. Uppl. á staðnum veitir Karl J. Karlsson c/o Neon. iNauðungaruppboð sem auglýst var í 50., 51. og 52. tbl. Lögbirtingablaðs- ins 1967 á hraðfrystihúsi fiskimjölsverksmiðju- og fiskmóttökuhúsi norðan hafnargarðs á Eauðárkróki, þinglýstum eignum Guðmundar Þórðarsonar fer fram að kröfu Jóns Hjaltasonar, hrl. og ofl. á eignunum sjálfum, föstudaginn 16. febr. 1968 kl. 14. Bæjarfógetinn á Sauðárkróki. Samband íslenzkra fegurðarsérfræðinga Fræðslufundur verður haldinn í Snorrabúð, Hótel Laftleiðum þann 15. febrúar n,k. kl. 8.30 a.h. stund- víslega. 1. Venjuleg fundarstörf. 2. Fræðsluerindi: Vignir Andrésson, íþr.kennari. 3. Frú Elísabet Breiðfjörð kynnir megrunaraðferð- ir með nýtízku tækjum. Félagskonum er heimilt að taka með sér gesti. STJÓRNIN. INauðuíigaruppboð Húseignin Hafnarstræti 4, Flateyri, eign Rafns A. Péturssonar, forstjóra, Flateyri verður eftir kröfu Iðnaðarbanka íslands, Reykjavík og Harðar Ólafs- sonar hrl. Reykjavík seld á opinberu uppboði, sem fram fer í sýsluskrifstofunni á ísafirði mánudaginn 13. marz n.k. kl. 13.30. Uppboð þetta var áður auglýst í Lögbirtingablaði nr. 23. 25. og 27/1966. Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 8. 2. 1968. Jóh. Gunnar Ólafsson. Skólavörðustíg 30, sími 20625 Kvöldsími 24515. Til leigu nú þegar 3jo herbergja íbúð á Melunum. íbúðin leigist í a. m. k. 6 mánuði. Sími getur fylgt. Þeir sem áhuga hafa leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt: „5269“. kvenna. Ennfremur verður keppt um afreksbikar Í.S.S. er vinnst fyrir bezta afrek móts- ins samkvæmt gildandi stiga- töflu. Þátttökutilkynningar berist til Siggeirs Siggeirsson ar, Grettisgötu 92, sími 10565 fyrir föstudaginn 23. febrúar. Stjórnin. - f.o.G.r. - St. Dröfn og Verðandi halda sameiginlegan fund í G.T.-hús inu í kvöld kl. 8,30. — Æt. 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.