Morgunblaðið - 13.02.1968, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 19«8
pIiarjgiíiíMtóilí
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
f lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
NORÐ URLANDS-
ÁÆTLUN OG UM-
MÆLI FJÁRMÁLA-
RÁÐHERRA
í síðustu viku urðu á Alþingi
* miklar umræður um gerð
Norðurlandsáætlunar, enda
eru miklar vonir bundnar
við það átak, sem nú er gert
til þess að treysta atvinnulíf-
ið á Norðurlandi og eins við
þær opinberu framkvæmdir,
sem gert er ráð fyrir að
Norðurlandsáætlunin taki yf-
ir.
í fréttaflutningi af þessum
umræðum gerði Tíminn sig
enn einu sinni sekann um
freklegustu falsanir og sagði
í aðalfyrirsögn á forsíðu, að
fjármálaráðherra hefði hald-
ið því fram, að Norðurlands-
áætlunin væri „ekki um
stuðning við atvinnulíf“. Og
síðan hefur blaðið haldið á-
fram að hamra á þessari fár-
ánlegu fullyrðingu sinni.
Það er mál útaf fyrir sig,
að með fréttaflutningi á
borð við þennan hafa ráða-
menn Tímans afrekað að
sannfæra landslýð allan um,
að ekkert mark sé takandi á
fréttaflutningi þessa blaðs.
Það er réttnefnt fréttaföls-
unarblað og enginn heilvita
maður les það til þess að
afla sér réttra og óbrengl-
aðra frétta.
En í þessu máli er aðalat-
riðið að sjálfsögðu, að Norð-
urlandsáætlunin er áætlun
um stuðning við atvinnulífið
norðanlands, gagnstætt því,
sem Tíminn heldur fram —
og ætti nógsamlega að vera
búið að undirstrika það.
Hitt er annað mál, sem
fjármálaráðherra vék að í
ræðu sinni á Alþingi, að það
er ekki tilgangur þeirra, sem
standa að samningu Norður-
landsáætlunar, að taka fram
fyrir hendur manna og skipa
þeim að gera eitt en ekki
annað, heldur að leggja á
ráðin um, hvaða atvinnu-
rekstur sé heppilegastur á
hverjum stað og síðan verð-
ur yfirstjórn lánamála beitt
þannig, að leitast verði við
að hafa áhrif á það, að fjár-
festingu verði hagað á sem
skynsamlegastan veg.
Það hefur aldrei verið
ætlunin að ríkisvaldið kæmi
upp fyrirtækjum í hverju
einstöku byggðarlagi. Norð-
urlandsáætlunin er ekki áætl
un um þjóðnýtingu atvinnu-
vega, heldur þvert á móti um
að styrkja einstaklinga og fé-
lög þeirra til þess að koma
upp sem öflugustu og heil-
brigðustu atvinnulífi.
Framsóknarmenn vita það
jafnt og aðrir, að þetta hefur
frá fyrstu tíð verið tilgangur
Norðurlandsáætlunar, og þess
vegna eru árásirnar á Magn-
ús Jónsson, fjármálaráð-
herra, þann mann, sem mest
og bezt hefur beitt sér fyrir
eflingu atvinnulífs norðan-
lands, ekki einungis ómak-
legar heldur líka til minnk-
unnar fyrir þá menn, sem að
þeim standa.
FORMANNA-
SKIPTIN HJÁ
FRAMSÓKN
U’ysteinn Jónsson hefur nú
látið af formennsku
Framsóknarflokksins, en í
hans stað hefur verið kjör-
inn Ólafur Jóhannesson.
Ekki er líklegt að af for-
mannaskiptum leiði nokkra
stefnubreytingu hjá Fram-
sóknarflokknum. Ólafur Jó-
hannesson hefur verið hægri
hönd Eysteins Jónssonar í
formannstíð hans sl. 5 ár.
Báðir eru þessir menn glögg-
ir og greindir. En ýmsum
mun hafa fundizt, að Ey-
stein Jónsson skorti nokkuð
víðsýni og yfirsýn um ís-
lenzk stjórnmál til þess að
verða farsæll forustumaður í
svo stórum og áhrifamiklum
flokki, sem Framsóknarflokk
urinn hefur lengstum verið.
Enda þótt margir ágætir
menn hafi verið og séu í for-
ustuliði Framsóknarflokks-
ins, hefur málafylgja hans
mótazt mjög af hentistefnu,
sem torveldað hefur sam-
starf flokksins við aðra stjórn
málaflokka og rýrt traust
hans meðal almennings.
Framsóknarflokkurinn hefur
ýmist verið lengst til vinstri
eða lengst til hægri í íslenzk-
um stjórnmálum. Þrátt fyrir
það segist hann á stundum
vera „hinn eini sanni milli-
flokkur“. Sjálfir líkja Fram-
sóknarmenn sér ýmist við
róttæka vinstriflokkinn í
Danmörku, bændaflokkinn í
Finnlandi, miðflokkinn í Nor
egi, demókrata í Bandaríkj-
unum, eða jafnvel verka-
mannaflokkinn í Bretlandi,
allt eftir því hvernig þessum
stjórnmálaflokkum vegnar í
kosningum í heimalöndum
sínum!
Þessi mynd var tekin, eftir a ð stór þota flugtélagsins „Cana dian Pacfic Airlines“ varð fyr-
ir óhappi í lendingu sl. mið vikudag í lendingu á flugvellin um í Vancouver og stöðvaðist
ekki fyrr en hún skall á hús i við flugbrautina. Að minnst a kosti tveir menn hafa látið
lífið af völdum þessa slyss o g 14 hlotið alvarleg meiðsli. SI ysið var, þegar þotan, sem var
með 61 farþega, flaug inn ti 1 lendingar í mikilli þoku, e n flugvélin var að koma frá
Honolulu.
Sæmundor Eddu ú ensku hjú
Oxford Universify Press
OXFORD University Press er að
undirbúa útgáfu af Sæmundar
Eddu og vonast til að 1. hefti
verði tilbúið snemma á árinu
1969, Það er frú Ursuiía Dronke,
frá Clare College í Cambridge,
sem vinnur að því að búa bók-
ina til prentunar.
í fréttatilkynningu frá útgáf-
unni er vitnað í þessi stórkost-
legu íslenzku 13. aldar ljóð, sem
geymzt hafa í handritinu Codex
Regius, nú í Kaupmannahöfn. I
fyrsta bindi ensku útgiáfunnar
verða m.a. tvö af elztu og drama
tískustu hetjul'jóðunum, seen
skýra frá morði Atla og ósigri
JÖTmunreks. í öðru bindi verða
goðfræðileg Ijóð, m. a. Völuspá
og í 3. og 4. verða hetjuljóð og
trúarljóð, hvort í sínu bindi.
Hefur frú Dronke unnið textann
beint úr handritinu, og gert skýr-
ingar og athugasemdir. Með
hverju ljóði er formáli. Þetta
verður fyrsta útgáfan af Sæ-
mundar Eddu með skýringum
á ensku, og fyrsta útgáfan síðan
1931.
Gamlir nazista
ioringjnr
dæmdir
ÞRÍR fyrrverandi nazistaforingj-
ar voru í gær dæmdir til ævi-
langrar fangelsisvistar fyrir
morð á óbreyttum borgurum,
pólskum og rússneskum meðan
á heimsstyrjöldinni seinni stóð.
SS mennirnir þrír eru Kráhnes
fyrrum kapteinn, Goldapp fyrr-
verandi lögregluforingi og
Drews lögreglumaður. Þeir
stjórnuðu sérstökum aðgerðum,
sem beindust að því að fjarlægja
vegsummerki eftir fjöldaaftökur
á Gyðingum, sem nazistar létu
framkvæma í Sovétíkjunuim og
í Póllandi.
Er 110 ára
og vinnur
í mjólkurbúð
Lowestoft, Englandi, 6. febr.
AP. —
FRÚ Ada Roe hélt hátíðlega
110 ára afmælis dag sinn án
mi'killar viðhafnar, og af-
greididi mjólk til viðskipta-
vina sinna í mjól'kurbúðinni,
þar sem hún starfar dag
hvern.
Hún sagði þeim, er vildu
bera fram hamingjuóskir í
tilefni dagsins, að enn væri
hún ekki komin á eftirlauna-
aldur. Bezta ráðið til að halda
góðri heilsu væri að vinna
sem mest.
Frúin hefur rekið mjólkur-
búðina síðustu fimmtíu árin
með aðstoð dóttuir sinnar. Er
hún var spurð, hvort hún
hefðí einhverjar sérstakar
óskir og vonir, svaraði hún
að hún vildi gjarnan verða
áttraéð aftur.
Það verður erfitt fyrir
hinn nýja formann Framsókn
arflokksins að láta flokk sinn
líkjast í senn öllum þessum
flokkum. En Ólafur Jóhann-
esson er samvizkusamur og
traustur maður. Þess vegna
má vel vera að honum tak-
izt að draga úr stefnureiki
flokks síns og gera hann að
ábyrgara og gagnlegra afli í
íslenzkum stjórnmálum og
þjóðlífi en hann hefur verið
undanfarin ár.
ÚTHLUTUN LISTA■
MANNALAUNA
Uthlutun listamannalauna
er nýlega lokið. 95 lista-
menn hafa öðlazt þá viður-
kenningu, sem í úthlutun
listamannalauna á að vera
fólgin. En þessi síðasta
úthlutun mun eins og
aðrar valda deilum og sár-
indum. Svo mikið álita-
mál hlýtur það jafnan að
verða, hvað sé verðlauna-
vert og hvað ekki í íslenzkri
list. Úthlutunarnefndin hef-
ur vafalaust unnið verk sitt
af samvizkusemi og réttlætis-
tilfinningu. Engu að síður
hlýtur að vera saknað
nafna margra ágætra lista-
manna, sem ekki getur
að líta á úthlutunarlistan-
um að þessu sinni. í því
sambandi verður auðvitað
að gera sér Ijóst, að út-
hlutunarnefndin hefur tak-
mörkuð fjárráð. Það verður
einnig að koma fram, að því
fleiri listamenn sem Alþingi
setur í hinn háa heiðurs-
launaflokk, þeim mun erfið-
ari verður aðstaða úthlutun-
arnefndarinnar. Sú ósk út-
hlutunarnefndarinnar að tek-
in verði upp sérstök fjárveit-
ing til heiðurslaunaflokksins,
sem Alþingi skipar í við af-
greiðslu fjárlaga, verður að
teljast eðlileg og sjálfsögð.
íslenzka þjóðin vill gera
vel við listamenn sína. Því
miður gerir hún enn ekki
nægilega vel við þá. Aðeins
örfáir listamenn hér á landi
lifa í dag á list sinni. Lang-
samlega flestir verða að
stunda allskonar aukastörf,
og nýtast því ekki hæfileik-
ar þeirra eins vel og skyldi.
Úr þessu verður að bæta eft-
ir fremsta megni á komandi
árum.