Morgunblaðið - 13.02.1968, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.02.1968, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1968 15 Nýja kirkjan á Reykhdlum stúrskemmdist í dveörinu Tugþúsunda tjón — Reykhóla- söfnuður í miklum vanda og heitir á alla velunnara kirkjunn ar að hjálpa til að bæta skaðann í FÁRVIÐRINU, sem geisaði á Vestfjörð'um um seinustu helgi stórskemmdist nýja kirkjan á Reykhólum. Allar rúður á norð- urhlið kirkjunnar brotnuðu í veðurofsanum og fennti þá óhindrað inn og var allt á kafi í snjó þegar að var komið á mánu- dag. Stormurinn æddi um kirkj- una og færði snjóinn í skafla og braut upp vandaðar hurðir fram í anddyrið og eru þær ónýtar. Sterkleg hurð fyrir útidyrum varð næst að láta undan og splundraði rokið henni einnig og hafði þá óveðrið brotið sér leið inn um gluggana og út um aðal- dyrnar og lék sér að vild í helgi- dóminum. — Ekki var viðlit að gera neitt til varnar eða bjargar, Vilja ekki Tito Jerúsalem, 6. feb. NTB-Reuter, ÍSRAEL hafnaði í dag ölluim möguleikum ó því að Tito Júgó- slavíuforseti tæki að sér sátta- semjarastörf í deilu Araba og fsraela. Tító er í opinberri heimsókn í Egyptalandi og hann hefur fullvissað Nasser um að Júgó- slavía styðji eindregnar kröfur Egypta um að ísraelar hverfi með lið sitt af svæðunum sem þeir náðu í stríðinu í fyrravor. Talsmiaður ísraelsstjórnar sagði, að það þjónaði engum til- ganigi, að Tító færi að hafa af- skipti aif þessu máli, þar sem hann hefði hvorki aðstæður né nægan myndugleika til að verða nokkuð ágengt. Auk þess hefðu Sameinuðu þjóðirnar fengið sáttasemjarahlutverkið öðrum í hendur. Síðast en ekki sízt hefði Tito hvað eftir annað lýst yfir stuðningi við sjónarmið Araba og kæmi því ekki til greina að hann tæki slíkt að sér. Þórarinn Þór því engum var stætt úti og man enginn hér um slóffir eftir aff svo vont veður hafi áffur komið hér á Reykhólum. Það var laust fyrir miðnætti aðfaranótt sunnudags að veðrið skall á og stóð látlaust þangað til á mánudagsmorgun. B'oðuð ’hafði verið guðáþjónusta á sunnudag og aðalsafnaðarfundur, en þá var engum manni úti stætt, enda kirkjan þá útleikin orðin, einis og að ofan er sagt. Nýja.kirkjan á Reykhólum var vígð haustið 1903 og Iþví aðeins 4 ára gömul. Vantaði raunar nokkuð á að hún væri fuiHgerð eins og hún á endanlega að verða, t.d. voru aðeins bráða- birgðasæti í henni, lausir stólar. Ætlaði söfnuðurinn að gera það að næsta átaki sínu að safna fyr- ir nýjum og varanlegum sætum til frambúðar, en hefur ekki get- að sinnt því tii þessa, þvi að allt kapp hefur verið lagt á að koma bygigingarskuldum í viðráðan- legt ihorf, og hefur 'hver einasti eyrir af litlum tekjum kirk'junn- ar farið til þess og þó ekki dugað til. Söfnuðurinn er fámennur og kirkjan á ekkert nema skuldir. Margir hér um slóðir hafa orðið fyrir meiri og minni skaða í f óveðrinu, sumir stórkostlegum og eru því fáir heimam'enn af- lögufærir til stuðnings kirkj- unni, fyrsta kastið að minnsta kosti, en brýna nauðsyn ber ein- mitt til að gert sé við mestu skammdirnar strax. Það verður óðara að útibyrgja kirkjuna, setja nýjar rúður í gluggana og hurðir fyrir útidyrnar og and- dyrið. Til þess er ekki grænn eyrir til í sjóði. Þess vegna leitar Reykhólasöfnuffur á náffir allra velunnara staffarins, hvar sem <$>-----—---------------------- Frakkar illa látnirvestra Princeton, New Jersey, 7. febrúar. AP. ANDBANDARÍSK stefna de Gaulles Frakklandsforseta hefur orffiff til þess, aff dregiff hefur gífurlega úr vinsældum Frakka í Bandaríkjunum, samkvæmt skoðanakönnun er Gallupstofn- unin gerffi nýlega. Hingað til hafa Bandaríkja- menn metið fáar þjóðir eins mik ils og Frakka, en nú eru aiðeins Egyptar, Rússar og N-Viet- namar, Kúbumenn og Kínverjar óvinsælli en þeir. Hins vegar eru tvær óvina- þjóðir úr seinni heimsstyrjöld- inni, Vestur-Þjóðverjar og Jap- anir, í miklum metum. Vinsælaista þjóðin eru Kanada- menn (94%), en síðan koma Svisslendingar (90), Ástralíu- m-enn (89), Hollendingar (88), Norðmenn (88), Svíar (87), Dan ir (85), Finnar (85), ítalir og Brasilíumenn (76). 50-70% þeirra sem spurðir voru létu vel af Vestur-Þjóð- verjum, Argentínumönnum, fsra elsmönnum, Japönum, Grikkjum, Austurríikismönnum, Uruguay- mönnum, Ohilebúum, Indverj- um, Suður-Vietnömum og írön- um, en Frakkar hlutu 49%, Egypt ar 39%, Rússar 19%, Norður- Vietnamar 7%, Kúbumenn 6% og Kínverjar 5%. Kirkjan á Reykhólum þeir eru, og biffur um hjálp til að bæta þann skaffa, sem orffinn er. Það er gréinilegt að tjónið skiptir tugum þúsunda, bara úti- hurðin eih kostar vart minna en 40 þúsund krónur, yfir 30 rúður brotnuðu, innri dyrnar og ýmis- konar minni skemmdir, og hefur söfnuðurinn enga fjárhagslega geíu til að kosta viðgerð, en fyrr en þetta hefur verið lagað, er ekki hægt að nota kirkjuna. Ef ekki verður fljótt brugðið við, er fyrirsjáanlegt að ekki verður hægt að messa né Ihalda uppi barnaguðsþjónustum í langan tíma. Reykhólakirkja hefur reynzt góð til áheita, hún er sómi sveit- arinnar og reisn Reykhólastaðar. Við setjum traust oikkar til gaim- alla sveitunga^sem fluttir eru að heiman, átthagafélaga og ann- arra samtaka sem tengd eru þessu héraði um hjálp í þessum mikla vanda. Morgunblaðið og Tíminn hafa góðfúslega fallizt á að veit.a gjöfum móttö'ku, sö-mu- lelðis séra Arelíus Níelsson, og er það ósk okkar að þeir, sem leggja vilja þessu máli lið komi gjöfum sín-urn þar á framfæri. Eins má senda framlög til sókn- arprestsins á Reykhólum og sóknarnefndarinnar. Reykhólasveitungar og aðrir vinir og velunnarar Reykhóla- kirkju og Reyklhólasveitar: Við treystum því að þið bregðist ok.kur ekki. Okkur vantar mikið fé og því þurfa margir að leggja lið, því ekki geta allir lagt mikið fram, það vitum við, en við trú- um þv'í að það hafist ef allir leggja eitt’hvað, hver eftir sinni getu. Það er ekki gaman að þurfa að fara um betlandi, en það er ein- asta úrræði okkur nú, við höfum engin önnur ráð, vegna þesis hve nauðsynlegt er að gera strax við mestu skemmdirnar og úti'byrgja kirkjuna. Þórarinn Þór. Rúmenar gagnrýna bandarísk-sovézka tillögu Genf, 6. febr. AP. RÚMENIA gagnrýndi í dag harff lega bandarísksovésku tillög- una sem lögff var fram 18. janú- ar á fundi afvopnunarráffstefn- unnar í Genf, sem felur í sér bann viff frekari útbreiffslu kjarn orkuvopna. Rúmienía er fyrsta ríkið sem gagnrýnir tillöguna opinberlega. Þegar hafa hins vegar allmörg ríki lýst yfir stuðningi við til- löguna, þar á meðal Bretland, Kanada, Tékkóslóvakía, Pólland og Búlgaría. Ambassador Rúmena sagði, að Rúmenar væru mjög óánægðir með þessa tillögu. Hann sagði, að henni væru í flestu áíbóta- vant, meðal annars væri þeim löndum engin trygging sett, sem ekki ráða yfir kjarnorkuivopn- um, um að þau yrðu ekki fyrir kjarnorkuárás. Hann krafðist þess einnig, að bætt yrði í til- löguna skuldlbindingu kjarnorku veldanna um að hefja þegar raurthæfa afvopnun. UM LANDSBÓKASAFN GRÆNLANDS ÞEGAR hringt var hingað í safn- ið sl. laugardag frá Morguntolað- inu og spurt, hvort við hefðum einhvern fróðleik um Land'S bókasafnið í Godtháb á Græn- landi, fundum við í þann svip- inn ekkert að gagni um það. Við nánari atJhugun nú eftir helgina kom hins vegar, svo sem vænta mátti, sitthvað upp og þá m.a, igott yfirlit um sögu græn- lenzkra bókasafna (De grþn- landske bibliotekers historie) eftir Hans Westermann lands- bókavörð í G-odthab. Er það 50 blaðsiðna rit, og gaf Bi'blioteks- centralen það út í Kaupmanna- höfn 1903 sem 5. foindi í rit- flokknum Biblioteker og læsn- ing, en ritstjóri flokksins er bókafulltrúinn danski, E. AUers- lev Jensen. I riti Westermanns er þess get- ið, að raddir hafi fyrst verið uppi um stofnun bókasafns á Grænlandi árið 1796. íbúar landsins voru þá um 6000, þar af um 290 Evrópumenn. Talið er, að Norður-grænlenzka lestrarfélag- ið hafi verið stofnað nokkru eftir aldamótin 1800. Árið 1833 átti félagið um 800 'bindi, en starfsemi þess ’hafði gengið nokkuð skrykkjótt. Eins og kunnugt er, beitti Carl Christian Rafn sér fyrir stofnun Stiftis'bókasafnsins í Reykjavík 1818, er sí'ðar hlaut naf.nið Landsbókasafn. Rafn stóð fyrir stofnun Amtsbóka- safns Færeyja 1827 og lo'ks Bóka- S'afns Suður-'Grænlands 1820. Á Rafn þannig heiðurinn af því að hafa 'hleypt a-ð sfcokkunum þrem- ur Landsbókasöfnum, í Reykja- vík, Tórsha-vn og Godfcháb. Það er ekki ætlun mín að rekja hér sögu Landsbókasafnsins í Godtháb né annarra grænlenzkra safna, heldur skal ég einungis, vegna hins hörmulega bruna safnsins í síðustu viku, birta það, er Hans Westermann segir í riti sínu um Grænlandsdeild Lands- bókasafnsins: „Sem Lands'bókasafn leggur safnið nú sérstaklega rækt við Grænlandsdeild sína. Bókakost- ur deildarinnar tekur ekki að- eins til þeirra grænlenzku rita eða rita um Grænland, sem léð eru út, heldur er það jafnframt rannsóknarbókasafn, þ.e. varð- veitir ekki óverulegan hlut þeirra rita, er prentuð hafa verið á grænlenzku auk fjölda danskra og erlendra rita um Grænland óg norðurheimsskautið. Safnið hlýtur að telja það eitt af höfuðverkefnum sínum að draga saman sem allra víðtækast safn rita á grænlenzku auk hvers konar rita, er nauðsynleg eru til rannsóknar á Grænlandi og græn lenzkri menningu. Safn græn- lenzkra bóka á Grænlandi er þjóðlegt metnaðarmál, en þar kemur fleira til greina. Á slíkt Landsbókasafn Grænlands í Godtháb. safn reynir æ því meira sem stundir líða. í Godtháb er nú barnaskóli og kennaraskóli, og það virðist ekki langt undan, að þar rísi einnig menntaskóli. Þeim fjölgar því stöðugt, er geta lagt og vilja leggja stund á Græn- landsrannsóknir, og því er nauð- synlegt, að unnt sé að fást við þær í landinu sjálfu. í Grænlandsdeild Landsbóka- safnsins eru ýmsir fágætir og dýr mætir hlutir. Má þar nefna m.a., að grænlenzka landsstjórnin veitti árið 1958 fé til kaupa á bókasafni prófessors Williams Thalbitzers, er mjög fékkst við rannsóknir á Eskimóum. í þessu safni einu eru um 4000 bindi, en mikill hluti þess er að visu sér- prentanir og smáprent". Hvert sem tjónið hefur orðið í brunanum fyrir helgina, er þess að vænta, að takast megi á næstu árum að bæta það, sem á annað borð verður bætt, og efla svo Landsbókasafnið í Godt- háb, að það geti gegnt sem bezt mikilsverðu hlutverki sínu. Finnbogi Guffmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.