Morgunblaðið - 13.02.1968, Page 21

Morgunblaðið - 13.02.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1968 21 Wilson styður San Antonio-áætlunina Washington, 11. feb., AP-NTB. FORSÆTISRAÐHERRA Stóra-Bretlands Harold Wil- son, sagði í viðtali, sem sjón- varpað var um Bandaríkin á sunnudag, að San Antonio- áætlunin um stöðvun loft- árása á N-Vietnam væri „veg urinn til friðar*. Viðtalið við Wilson var tekið upp á föstu- dag sl„ en forsætisráðherr- ann ræddi við Johnson for- seta í Washington daginn áð- ur. Kvaðst Wilson hafa lagt áætlunina fyrir Kosygin, for- sætisráðherra Sovétríkjanna, á fundi þeirra í Moskvu í síð- asta mánuði. Bandríkjaforseti lagði fram San Antonio áætlunina í ræðu, sem hann hélt í samnefndri borg í Texas í september s.L f áætl- uninni er heitið að stöðva loft- árásir é N-Vietnam, ef giM trygging er sett fyrir því, að það muni leiða til árangursríkra samningaviðræðna. Willson sagði í fyrrgreindu við tali ,að vanda.málið, sem við væri að e'tja væri það hvernig hægt væri að tryggja, að stjórn- in í Hanoi settist að samninga- borði, þegar eftir að loftárásirn- ar hefðu verið stöðvaðar, og þá einnig að samningaviðræður bæru einhvern árangur. Wilson sagði, að íitlu munaði, að hægt væri að komast að samkomu- lagi í Vietnamstyrjöldinmi, þótt atburðir undanfarinna 10 daga hefðu breikkað bilið miikið. - TOLLALÆKKUN Framh'ald af bls- 12. það að þeir yrðu samþykkir þeim fjáröflunaraðferðum sem ríkisstjórnin kæmi til með að beita við öflun fjár til tollaiækk-, unarinnar. Sveinn Guðmundsson lýsti yf- ir ánægju sinni með tollalækk- anirnar og s.agði að þær mundu t.d, hafa mikla þýðingu fyrir ís- lenzkan járniðnað. í þessari tolla lækkun kærni einnig fram vilja. yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um aðstoð við innlendan iðnað. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, þakkaði nefndarmiönnum fyrir skjóta og góða afgreiðslu mlál'sins. Hann sagðist skilja það að fraim kæmu fyrirspumir um hvaða liði fjáhLaga ætti að skera niður. Þvi miður gæti hann ekki svarað þeim fyrirspumum á þessu stigi málsins. Ymis atriðd væru enn í athugun og gætu enniþá breytzt. Hinsvegar væri það ekki liétt verk að skera nið-' ur um 100 miHjónir, jafnvel þótt sú upplhæð væri ekki nema lítill hluti ríkisútgjalda. Tillög- ur ríkisstjórnrinnar yrðu lagðar fyrir Alþingi jafnskjótt og þær væru tilbúnar, og væri þeirra að vænta bráðlega. Einnig tók Karl Guðjónsson til mláls og Einar Ágústsson, Ólaf ur Björnsson og Sveinn Guð- mundsson töl'uðu aiftur- Málið var síðan afgreitt til Neðri- deildar- Wilson stakk upp á því, að stjórnin í N-Vietnam ræddi mál in í alvöru við annan eða báða formenn Genfarráðstefnunnar, Bretland og Sovétrikin. Hann ga't þess, að hann hefði beðið Kosygin aftur en árangurslaust að kalla saman Genfarráðstefn- una, skipaða sömu aðilum og reyndu að koma á friði í Indó- Kína árið 1954. Þá sagði for- sætisráðherrann, að engin lauen fengist á vandamálinu í Viet- nam með hernaðaraðgerðum og bætti því við, að sérhver tillaga um notkun kjarnorkuvopna í Vietnam væri „hreinræktað brjálæði". Blaðafulltrúi Hvíta hússins var þegar að því spurður hvort komið hefði til tals að beita kjarnorkuvopnum í Vietnam. Kvað hann það fráleitt og aldrei hefði verið um það rætt. Wilson fór heim til Lundúna á sunnu'dag og samdægurs veitt- ist leiðtogi íhaldsm.anna í Bret- landi, Edward Heath, harðlega að forsætisráðherranum fyrir að ha.fa reynt að „kenna“ John- son hvað gera ætti í Vietnam í stað þess að styðja hann. Sagði Heatih, að brezkir fhaldsmenn styddu stefnu Johnsons í Viet- nm eindregið. í ávarpi, sem Wilson hélt í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu á föstudagskivöld ráðlagði hann Johnson, að virða að vettugi ör- vinglunarkröfur um aukna bar- daga í Vietnam. f brezku blöð- unum var þetta túlkað sem til- mæli til Johnsons um að taka meira tillit til friðarsinnanna beima fyrir en hann hefur gert til þessa, Fram að þessu heifur Wilson ekki látið undan þeim kröfum vinstri arms Verkamannaflokks- ins, að láta af stuðningi sínum við stefnu Bandaríkjanna í Viet- nam. Nú telja brezku blöðin, að ýmislegt bendi til að hann muni taka einbei'ttari afstöðu í þessu máli til að bæta pólitíska af- stöðu sína 'heima fyrir. S. Helgason hf. SÍMI 36177 Súðarvogi 20 Árshátíð Barðstrendingafélagsins verður haldin í Tjarnarbúð laugardaginn 17. febrúar og hefst með borðhaldi kl. 19. Góð skemmtiatriði. Aðgöngumiðar verða seldir í Tjarnarbúð miðviku- dagiinn 14. og fimmtudag 15. febrúar kl. 17—19 Borð tekin frá á sama tíma. STJÓRNIN. — Nigeria Framh. af bls. 1 trúa Biafra. Er haft fyrir satt, að ferðin hafi verið vel undir- búin — hann hafi síðustu vik- urnar rætt ýtarlega við fulltrúa beggja aðila í London og enn- fremur fulltrúa samveldisland- anna. Brezka stjórnin styður þessar tilraunir Smiths án efa mjög rækilega því að ástandið í Bi- afra hefur á margan hátt skaðað hagsmuni Breta, m.a. hafa þeir farið á mis við olíuna frá Biafra og segir AP, að þáð hafi átt ekki svo lítinn þátt í því, að Bretar urðu að fella gengi sterlings- pundsins í vetur. Eftir því, sem næst verður komizt um hugmyndir Smiths um vopnahléð, munu þær byggj ast á því, að herli'ð frá Sam- veldislöndum hafi eftirlit á Biafralandamærunum og tryggi öryggi Biafra gegn stjórnar- hernum. Hefur verið óttast, að stjórnarherinn muni hreint og beint útrýma Ibounum í austur- hlutanum; lengi hafa verið vær- ingar með Iboum og öðrum íbú- um Nígeriu, einkum Hausum í norðurhlutanum — sem eru fjöl mennari en á allan hátt skemmra komnir í tækni og menntun og hafa tíðum ofsótt Iboana mjög. Búizt er við, áð stjórnir Bret- lands, Kanada, Indlands og Pak- istan mundu bregðast skjótt við og senda herlið til Nígeriu, ef þess væri óskað. Ekki er Ijóst hvort gert er ráð fyrir, að Biafra verði tryggt áframhaldandi sjálfstæði í ein- hverri mynd. Lagosstjórn hefur krafizt þess, að Biafra falli frá sjálfstæðiskröfunni áður en sam ið verði um vopnahlé og leið- togi Biafra, Odumegwu Oju- kwu aftur á móti krafizt þess, að sjálfstæ’ðisyfirlýsingin verði við- urkennd, — þar til nú síðustu daga, að hann virðist vera að slaka eitthvað til í þeim efnum. 1 síðustu viku fóru sendimenn Páfagarðs til fundar við Ojukwu og erkibiskupinn í Enugu, I. M. Ozudike. Höfðu sendhnennirnir eftir báðum, að þeim vildu gjarna að vopnahlé kæmist á, því að Iboarnir í Bi- afra væru orðnir þreyttir á blóðsúthellingum. Útvarpið í Enugu sagði frá því í dag, að sendimenn Páfa hefðu gefið 20.000 dollara til hjálpar bág- stöddum í Biafra. Stjórnarherinn hefur, eins og kunnugt er af fréttum, náð nokkrum hluta Biafra á sitt vald, þar á meðal nokkrum stærstu borgunum, en í raun segir það lítið um gang styrj- aldarinnar. Ibúarnir hafa eftir megni reynt að flýja borgirnar af ótta við fjöldamorð og hafast við í skógunum og mestur hluti landsvæðsins er enn í höndum Biafrahersins. í dag lýsir Biafra stjórnin því yfir, að hermenn hennar hafi aftur ná'ð háskóla- bænum Nsukku, sem er 64 km norður af Enugu. Ekki hefur stjórnin í Lagos fengizt til að samþykkja það — og segir Oju kwu hugga sig við „ímyndaða sigra“, eins og Gowon hershöfð- ingi komast að orði. — Rockefeller Framh. af bls. 1 ast, ef ekki væri gripið til rót- tækra ráðstafana. Sums staðar I borginni hófu sorphreinsunar- mennirnir vinnu þegar á laugar- dagskvöldið. Rockefeller skýrði frá afstöðu sinni og ákvörðun í útvarps- og sjónvarpsræðu á laugardag. Ljóst er, að hún hefur vakið mikinn úlfaþyt í herbúðum repúblikana í Bandaríkjunum. Þeir Lindsay og Rockefeller eru báðir framar- lega í flokknum og a.m.k. Richard Nixon, sem hefur boðið sig fram til útnefningar fram- bjóðanda flokksins í forsetaem- bættið í haust, hefur tekið af- stöðu með Lindsay. Hann sagði að verkfall sorphreinsunar- manna hefði verið ólöglegt og meðferð Rockefellers á því gæti orðið til þess að hvetja til svip- aðra aðferða í öðrum borgum Bandaríkj anna. Frá hinum heimsþekktu tóbaksekrum Kentucky í Ameríku kemur þessi úrvals tóbaksblanda SIRWALTER RALEIGH Sir Walter Raleigh... ilmar ffnt... pakkast rétt... bragðast bezt. Geymist 44% lengur ferkst í handhægu loftþéttu pokunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.