Morgunblaðið - 30.05.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1966.
%
*
Allir unglingar á til-
teknum aldri I
Vinnuskólann
Byrjað er að boða unglinga
þá, sem sótt hafa um vinnu hjá
Vinnuskólum Reykjavíkur, og
hefst vinna svo eftir hvítasunn
una.
f ár hafa fleiri unglingar sótt
um en áður. Verða allir umsækj-
endur á tilteknum aldri teknir,
þ.e. unglingar sem fæddir eru
1953 og 1954. Verður því vinnu-
skólanum skipt, þannig að ann-
ar flokkurinn vinnur fyrir há-
degi, en hinn eftir hádegi, og
unnið til að byrja með 4 klst.
á dag.
Ráðningastofan og forstöðu-
menn Vinnuskólans eru nú að
vinna að því að skipuleggja
þetta sumarstarf unglinganna.
Rllir krossarnir
komnir á sinn stað
HJÖRTUR Guðmundsson, for-
stjóri Kirkjugarða Reykjavikur,
tjáði Mbl. í gaer, að lokið væri
við að finna öllum þeim minnis-
merkjum, er unnið voru spell á
aðfaranótt þriðjudags, stað, en
f Mbl. í gær var það sagt að
óvíst væri hvort það yrði unnt
vegna ófullnægjandi upplýsinga
um leiðin í garðinum.
Til er skrá yfir öll leiðd í
kirkju'garðinum, sem merkt hafa
verið frá síðari árum og að aiuki
er tfl. mjög nákvæmt kort yfir
allan garðinn. Sýnir það kort
í fjölda tilfella mjötg nákvæma
gerð minnismierkjanna og hefur
það verið bætt mjög.
Verulegur hluti hins óskipu-
lagða hluta garðsins varð fyrir
Maður í
höfnina
UNDIR miðnætti í gærkvöldi var
lögreglunni tilkynnt að lík flyti
í höfninni nálægt kaffivagninum
á Grandagarði. Höfðu tveir pilt-
ar komið auga á það. Bar þarna
að fleiri, sem sáu að lífsmark
mundi með manninum í sjónum
og stakk stýrimaðurinn á Sæ-
finni Sk. 76, Ingólfur Karlsson,
Hraunbæ 186, sér umsvifalaust
út og náði honum í land. Bar
sjúkrabíl og lögreglu að í því,
og var maðurinn fluttur í Slysa-
varðstofuna, þar sem hann var,
er blaðið fór í prentun.
barðinu á spelivirkjanum. Þessi
hluti garðsins er aUstór, en á
undanförnum árum hefur hann
verið skráður og kortlagðuir og
þess vegna hefur nú veTið unnt
að koma minnismerkjunum á
sinn stað. Skipulagninigu garðs-
ins lauk á síðastliðnu sumri.
HjörtuT sagði, að þrátt fyrir
þetta, væri þó enn sú staðreynd
fyrir hendi að krossarnir eru
mölbrotnlr margir hverjir. Þarf
því margur að huga að þeim
og liáta lagfæra skemmdirnar. ^
Þyrlon bilaði
yiir Ár-
bæjarhverfi
ÞYRLA landhelgisgæzlunnar,
sem hefur verið við umferðar-
gæzlu í Reykjavík og nágrenni
síðan á H-dag, bilaði í gær, er
hún var yfir Árbæjarhverfi. 1
henni voru Óskar Ólason, yfir-
lögregluþjónn umferðarmála og
Einar Pálsson, verkfræðingur og
fulltrúi í H-nefnd og voru þeir á
eftirlitsflugi. Flugmaður var Páll
Halldórsson.
Mun viftureim hafa slitnað í
þyrlunni og orðið einhver meiri
bilun. Gekk vel að lenda henni í
Árbæjarhverfinu. Þaðan var hún
flutt á bíl í skýli Landhelgis-
gæzlunnar og ætluðu viðgerðar-
menn að vinna að því í nótt að
kanna skemmdirnar og gera við.
Jenna og Hreiðar Stefánsson.
Það er leikur að lesa
— 3. hefiið nýkomið út
MARGIR kennarar hafa bent á,
að tilfinnanlega vanti meira af
léttu og aðgengilegu lesefni fyrir
börn, sem kunna lestraraðferð,
en vantar þjálfun í lestrarleikni,
þótt hins vegar sé allvel séð
fyrir lesefni handa byrjendum.
Tíl að bæta úr þassi samdi
Ríkisútgáfa námsbóka m.a. um
það vfð kennarana Jenna og
Hreiðar Stefánsson, sem áðuír
hafa skrifað fjölmargar barna-
bækur, að þau skrifuðai fjögur
hetftd af lesbókum við hæfi þeirra
barna, er kynnu undirstöðu-
atriiði í lestri, en þyrtftu mieiri
æfingu.
Heftin heita einu nafni Það
er leikur að lesa, og kom fyrsta
hetftið út fyrir þrem árum.
Annað hetftið kom út á s.l. ári,
og þrdðja heftið fyrir fáuim dög-
um.
Vandað hefur verið til útgáfu
bókanna. Þær eru prentaðar
með skýru letri oig hæfiiega
stóru. — Baltasar hefur mynd-
skreytt öll hetftin, sem komin
eru.
Kennarar hafa tekið þessum
bókum mjög veil og talið þær
bæta að nokkru úr brýnni þörf.
Fjórða og síðasta heftið kemuir
væntantega út seinna á þessu
ári.
Við undirskrift samningsins. Fremst sitja Emil Jónsson, utanríkisráðherra og Karl F. Rol-
vaag, sendiherra Bandaríkjan na. Aðrir frá vinstri: Lúðvik Gizurarson, viðskiptamálaráðuneyt
inu, Agnar Kl. Jónsson ráðuneytisstjóri í utanrikisráðuneytinu, Þórhallur Ásgeirsson, ráðu-
neytisstjóri í viðskiptamálaráðuneytinu, Helen Kavan, og James G. Sampas, sendiráðsritarar
við bandaríska sendiráðið.
Vöruskiptajöfnuðurinn
í apríl óhagstæður
um 165 milljónir króna
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN í
aprilmánuði var óhagstæður um
165 millj. króna og er þá vörn-
skiptajöfnuðurinn orðinn óhag-
stæður um 694 millj. kr. það sem
af er þessu ári. Á sama tíma í
fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 391 millj. króna.
í apríl sl. voru fluttar út vöruT
fyrk 464 miililj., en fliu'ttar inn
fyriir 629 millj., þa,r af nam inn-
flutniingur til Búrfellsvirkjunar
og íslenzka álfé'lagsins hf. 57
milljónum króna. Það sem af er
árinu 1968 hafa þá verið fluttar
út vöruir fyrir 1.323 millj. króna,
en inn fyrir 2.017 miillj., þar af
fyrir 169 milljónir til BúrfeMs-
virkjunar og íslenzka áltfélagsins
htf. Á sama tíma í fynra hötfðu
verið fluittar út vörur fyrir sam-
tals 1.427 milljónir, en inn fyrir
1.819, þar af fyrir 51 miilljón til
BúrtfeMsvirtkjunar og íslenzka ál-
félatgsins htf.
Tölur inn- og útflutnings 1967
eru reiiknaða.r á því giengi, sem
gi’lti til 24. nóvember það ár, en
tölur 1968 er-u miðaðar vdð geng-
ið, sem tók gil'di þann dag.
- SAMIÐ
Framhald af bls. 32
2.143.000 dollarar, sem er jafn-
virði um 122 milljón króna.
Vörukaupin eru með þeim kjör-
um, að 30% greiðast fljótlega í
dolíurum, en 70% er lán til 18
ára með 5 Vz% vöxtum. í ár er
samningurinn nokkru hærri en
í fyrra, þar sem á ný er gert
ráð fyrir að kaupa maís frá
Bandaríkjunum með slíkum
i lánskjörum.
Lánsfé, sem fengizt hefur með
| þessum hætti, hefur undanfarið
| ár verið varið til ýmissa inn-
| lendra framkvæmda.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Sjólfvirk
símstöð á
Patreksfirði
í dag verður opnuð sjálfvirk
símstöð á Patreksfirði og komast
Patreksfirðingar þá i beint síma-
samband við Reykjavík. Mun
sýslumaður Barðstrendinga, Ás-
berg Sigurðsson, opna símasam-
bandið á morgun við hátíðlega
athöfn. Og á eftir verður kaffi-
samsæti. Símstöðvarstjóri á Pat-
reksfirði er Eggert Haraldsson.
Deilt um stoinun staris
mannaiélags ísals
NOKKRAR deiliur hatfa spunnizt
vegna fyriirhugaðrar stotfnunar
starfsmannafélags etartfsmanna
íslenzka álfélagsinis í Straums-
vík. Samkv. upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér um þetta mál í
gær, mim í drögum að félags-
lögum startfsmannafélagsins hafa
verið gert róð fyrir því, að
væntanlegt starfsmannafélag
kæmi fram sem viðsemjandi við
ísal og gætti hagsmuna starfs-
manna gagnvart vinnuveitend-
um.
Formaður stjórnar ísaL, Hall-
dór H. Jónsson, sagðá, að hann
hefði hatft spuirnir atf stofnun
þessa starfsmannatfélags, en al-
rangt væ.rí það sem haldið h-etfði
verið fram, að ísal stæði að
stofnun starfsmannatfélagsins.
Hitt væri svo annað miál, að
slíkt starfsmannafélaig gæti auð-
vitað ekiki komið fram sem samn
ingsaðidi, nema í umboði eða
Bjuggu sér
sjálfir dansgólf
fyrir sjómaimadagiim
Húsavík, 29. maí.
SJÓMENN gengust að venju fyr-
ir hátíðahöldum hér á sjó-
mannadaginn og hófust þau með
guðsþjónustu kl. 9.30. Var síðan
haldið niður að höfn og farið í
skemmtisiglingu með börn um
flóann, sem að mestu var íslaus
innantil, en þó siglt á miili jaka.
Síðar um daginn fóru fram
ýmsar íþróttake'þpnir. Um kvöld
ið var svo haldinn einn fjölmenn
asti dansleikur, sem hér hefur
verið haldinn í stórasal nýja Fé-
lagsheimilisins og er það í fyrsta
skipti sem þar er dansað.
Sjómenn unnu í sjálfboðaliðs-
vinnu við að steypa gólfið og
gera salinn nothæfan og skreyttu
hann með veiðarfærum, gömlum
og nýjum, sem vel átti við og
minnti á sjómannadaginn.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
seldi kaffi til ágóða fyrir starf-
semi sína.
Fréttaritari.
fyrir hönd viðurkenndra laun-
þegasamtaka á viðkomandi fé-
lagssvæði.
Hecranann Guðmundsson, for-
maður Hlífax, sagði, að boðað
hefði verið til stotfnunar starfs-
mannafélags hjá starfsmönnum
fsals, en er til kom, hefði komið
í ljós, að átt hefði að stofna
stéttarfélag. í uppkasti að lög-
um væntanlegs félags hetfði
verið svo ráð fyrilr gert, að það
kæmi fram sem einaisti viðsemj-
andi við fsal og væri viðurkennt
atf fyrírtækinu sem slíkt. Þá
hefði verið lagt till í uppkasti að
félagslögum, að stjóm væntan-
tegs félags gæti komið fram
fyrir hönd félagsims eem fuíll-
gildUr samningsaðili. Henmann
sagði, að stjóm Klífar hefði rit-
að Alþýðuisambandinu vegn.a
máls þessa og lýst því yfir í bréf
inu, að hún taldi þennan atburð
svo alvarlegan, að nauðsyn bæri
til að kætfa í fæðingu þá til-
raun, sem hér væri gerð til að
kljúfa verkalýðsfélögin. Færi
Hlíf fram á stuðning fró A.S.f.
í þessu rnáli.
Barði Priðriksison, gkrifstofu-
stjóri Vinnuveitendasambands-
ins, sagðist ekki vita, hvoirt það
væri hugsanlegt, að starfsmanna
félag, í líkingu við það sem
þairna mundi hafa verið fyrir-
hugað að stofna, gæti staxfað i
uimboði og með samþykki verka-
lýðstfélaga, sem þarna ættu hlut
að máli. „Þarna virðist mér
koma fram sú hugsun, sem að
mörgu leyti er lík þvi sjónar-
miði, sem sett var fram í drötg-
uim að greinangerð um skipu-
lagsmál A.S.Í., samin atf skipu-
lagsnetfnd þess 1957—58“, bætti
Barði við. „Þar segir m.a., að
undiirstaða í uppbyggingu verka-
lýðssamtakanna skuli vera
vinnustaðurinn og skuli því
stefnt að því að aliliir á sama
vinnuistað (verksmiðju, skipi,
iðjuveri o. s. frv.) séu í sama
startf&greinatfélagi.“