Morgunblaðið - 30.05.1968, Side 5

Morgunblaðið - 30.05.1968, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 19&8. 5 Síðustu tónleikar Sin- fóníuhljómsveitarinnar Væru þetta síðustu hljómleik arnir, er hann stjórna'ði að sinni, en hann myndi starfa fram í júní með hljómsveit- — Bohdan Wodiczko lætur af störfum sem stjórnandi í KVÖLD fara fram 18. og síðustu hljómleikar Sinfóníu- hljómsveitar tslands á þessu starfsári. Eru á efnisskránni þrjú þekkt verk, forleikur Webers að óperunni Euryant- he, fyrsti píanókonsert Tsjai- kovskys og sinfóníska svítan Sjeherasad eftir Rimsky- Korsakoff. Stjórnandi verður Bohdan Wodiczko og verða þetta síðustu hljómleikar, er hann stjórnar um sinn, en von ir standa til að hann muni koma sem gestur til hennar í framtíðinni. Wodiczko hefur stjórnað hljómsveitinn í þrjú ár og stjórnað samtals 67 hljómleikum. Hann mun nú hverfa til lieimalands síns, Póllands, og starfa þar við hljómsveitina í Kodovits. Einleikari með hljómsveit- inni í kvöld verður enski píanósnillingurinn John Og- don, en hann varð frægur, er hann deildi verðlaunum í Tsaikovskykeppninni í Mosk- vu 1962 ásamt Askenasí. Á blaðamannafundi í gær með Gunnari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Sinfóníu- hljómsveitarinnar, Bohdan Wodiczko og Birni Ólafssjmi, konsertmeistara, skýrði Gunn- ar stuttlega frá ferli Ogdons. Hann er liðlega þrítugur, en er talinn í fremstu röð píanóleikara. Hefur hann farið margar hljómleikaferðir m.a. til Bandaríkjanna, Ástralíu og Rússlands. Þá leikur hann stöðugt með hljómsveitum í heimalandi sínu Englandi. Gunnar sagði, að nú væri Bohdan Wodiczko á förum. John Ogdon. ínni í sambandi við útvarpið. Wodiczko hefði unni'ð mikið og ómetanlegt starf fyrir hljóm- sveitina, enda væri hann frá- bær stjórnandi og nyti mikill- ar viðurkenningar í heima- landi sínu, þar sem hann færi nú til starfa. I sama streng tók Björn Ólafsson, og sagði hann, að nú væri mikill harmur kveðinn, er hljómsveitin missti svona mann, sem búinn væri að gera svo mikið og ómetanlegt gagn fyrir hljóm- sveitina. Blaðamenn ræddu síðan við Wodizcko, og sagði hann aS sér hefði verið mikil ánægja að vinna með hljómsveitinni, PANILL Stærð 255 x 19 cm. Eik, gullálmur, askur og oregon pine. Clœsileg vara. Verð mjög hagstœtt. LEIÐIN LICCUR TIL H. HANNES ÞORSTEINSSON heildverzlun, Hallveigarstíg 10 — Sími: 2-44-55. en nú færi hann til starfa í heimalandi sínu. Teldi hann, að menn ættu ætíð að vinna fyrir land sitt fyrst og fremst; skipti þar ekki máli, hvort þar ríkti kommúnismi eða kapítalismi. Hins vegar væri mjög ánægjulegt að vera hér, og hljómsveitin væri góð. Hann sagðist þekkja svo til allar smærri hljómsveitir á Norðurlöndum og persónulega teldi hann þá íslenzku bezta. Og þetta væri ekki einungis sín skoðun, heldur hefðu marg ir einleikaranna sagt þetta sama við sig, verið raunar undrandi á getu hennar. Um aðbúnaðinn sagði Wodiczko, að sér þætti alls ekki nóg skrifað um tónlist á íslandi og gæti það haft alvar legar afleiðingar. Gagnrýni væri bráðnauðsynleg fyrir alla listamenn og furðulegt af hverju menn vildu ekki skrifa um hljómleika meira en gert væri. Þá ræddi hann um Háskóla- bíó og sagði að hljómburður- inn væri versta vandamáli'ð. Þeir hefðu fundið það í Akur- eyrarkirkju, hvað hljómburð- inum væri ábótavant í Há- skólabíói, enda væri kirkjan mjög vel fallin til hljómleika- halds sakir góðs hljómburðar. Wodiczko sagði, að mjög auðvelt væri að bæta hljóm- burðinn í bíóinu. Hægt væri að fá skerma, eins konar skel yfir hljómsveitina, þeir væru framleiddir í Bandaríkjunum og kostuðu um hálfa milljón krónur. Ef menn teldu þetta of dýrt, þá væri það vitleysa. Öll menning væri dýr og ef menn hefðu ekki efni á henni, þá væri mannkyni'ð illa statt. Ekið á kyrr- stæðan bíl Á H-DAG, 26. maí, milli klukk- an 13.00 og 15.30 var ekið á R-4442, sem er tvílitur Plymouth þar sem bíllinn stóð á stæði við Múlakaffi við Hallarmúla. Vinstra afturbretti bílsins dæld- aðist við ákeyrsluna. Rannsóknarlögreglan skorar á ökumanninn, sem tjóninu olli, svo og vitni, ef einhver eru, að gefa sig fram. I Bohdan Wodiczko: „Það vantar alla gagnrýni í blöðin um , tónlist. Það er eðlilegt að fólk hætti að sækja tónleika, þeg- ar ekkert er skrifað um þá.“ INTERNATIONAL RITSTJORN • PRENTSMIÐJA AFGREIOSLA*SKRIFSTOFA sími io-ioa Þurf ið þér sérstðk dekk fyrir H-UMFERÐ ? Nei,aðeins gðð. Gerum fIjótt og vel við hvaða dekk sem er, seljum GENERAL dekk. hjólbarðinn hf. Laugavegi 178 * sími 35260 % í KVÖLD KL. 8,30 Á LAUGARDALSVELLINUM llRVAL - MIDDLESEX WANOtRERS (Úrval Lantlsliðsnefndar), (OLYMPIULIÐ BRETLANDS) Verð aðgöngumiða: Börn kr. 25.00. Stæði kr. 75.00. Stúka kr. 100.00. KNATTSPYRNUFELAG REYKJAVIKUR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.