Morgunblaðið - 30.05.1968, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1968.
15
Ólafur G. Hallgríms
son — Minning
HINN 21. þ.m. andaðist á Landa-
kotsspítala, Ólafur G. HallgTÍms-
son, framkvæniidastjóri, öldu-
götu 11 hér í borg. Banamein
hans var hjartaslag.
Ólafur var fæddur á Siglu-
firði 24. ágúst 1921, en þar
bjuggu foreldrar hans, hjónin
Camiiila, elzta dóttiir Thons heit-
ins Jensen og Guðmiundur T.
Hallgrímsson, þá héraðslæknir
þar á staðnum, en Guðimundur
var sonur Tómasar læknis og
læknaskólakennara HaUgríms-
sonar. Ólafur var yngstur sex
systkyna og ólst upp á Siglufirði,
þar til faðir hans lét þar af
störfum héraðslæknis árdð 1934.
Ég kynntist Ólafi heitnum
ekki fyrr en leiðir okkar lágu
saman í 4. bekk Menntaskólans
í Reykjavík. Strax við fyrstu sýn
vakti hann athygli fyrir frjáls-
mannlega og hispurslausa fram-
komu, hann var vörpulegur á
velli og gæddur einhverjtim sér-
stökum þokka, sem laðaði að
honum félaga og vini án fyrir-
hafnar. Hann var ágætlega
músikalskur, hafði djúpa og
fagra söngrödd og var jafnan
hrókur alls fagnaðar í hópi
góðra skólafélaga.
Atvikin höigiuðu því svo til, að
við settumst hlið við hlið, í
fyrsta tíma, báðir nýkomnir í
máladeild, og vorum ef.tir það
sessunautar til stúdentsprófs
1941. Þetta voru miklir gleði-
dagar og þá leiddu menn sízt
hugann að því, að „öllu er af-
mörkuð stund og sérhver hlufur
undi.r himninum hefur sinn
tíma“. Oft lásum við lexíur okk-
ar saman og þá gjarna á heimiii
hans, þar sem ég var heima-
gangur um skeið. Kannske
hvarflaði hugurinn þá stundum
frá námiinu og að öðrum hugðar-
efnum, sem voru mörg og það
var oft sett plata á fóninn.
Heimili hans man ég fyrir það
sérstaka sambland af alþýðleik
og höfðingsskap, sem einkenndi
þar al'lan brag og móðir hans, nú
háöldr.uð, verður mér jafnan
minnissitæð sem göfug kona í
alilri sinni hógværð og látleysi.
Að loknu stúdentsprófi fór
Ólafur tifl. Bandaríkjanna og
lagði stund á verzlunarnám við
„Uniiversity of Maryland" í hál'ft
þriðja ár. Haustið 1944 kvæntist
hann þar vestra glæsilegri konu,
Þórunni, dóttur hjónanna Sig-
ríðar Sigurðardóttur og Guð-
mundar Jenssonar, framkvæmda
stjóra hér í borg. Þau hjónin
komu heim árið 1945 og varð
Ólafur eftir það fljótlega skrif-
stofustjóri hjá Skeljungi h.f.
Síðar varð hann éinnig skrif-
stofustjóri hjá Hæringi h.f., en
lengst af rak hann eigið fyrir-
tæki og hafði með höndum inn-
flutnings og útflutninigsverzlun.
Hann hafði á tímabiili aðalvið-
skiptasambönd sín við íra og
varð fyrsiti ræðismaður þeirra
hér á landi.
Þeim Þórunni og ólafi varð
þriggja barna auðið. Elztur barn
anna er Guðmundur f. 1946, þá
var Sigríður f. 1948 og yngst er
Margrét Erna f. 1953. Á s.l. ári
urðu hjónin fyrir þeirri sáru
raun að miissa dóttur sína Sig-
ríði, mestu efnisstúlku, en hún
fórst 1 bílslysi í Þýzkalandd og
aðeins eru liðnar fáar vikur síð-
an Guðmundur, faðir Þórunnar
félfl frá.
Og nú er Ólafuir, þessi gflað-
væri og góði drengur afllur.
Sorgin hefur því uim sinn setzt
að, þar sem áður ríkti gleðin ein.
En megi það verða huggun
vandamönnum hans öllium, að
sú forsjón sem leggur slíikar
byrðar á mennina, mun einnig
gefa þeim þrek tifl að bera þær.
Við sem urðum honuim sam-
ferða gegnum skóla og áttum
með honum samleið uim lengri
eða skemri áfanga síðar í tífiniu,
þökkum nú þá samfylgd og send-
um ástvinum hans innilegar
samúðarkveð j ur.
GuSm. Vignir Jósefsson.
AÐ hryggjast og gleðjast, hér
um nokkra daga, að heilsast og
kveðjast, það er lífsins saga.
Þessi orð geta að nokkru leyti
lýst ævi Ólafs Hallgrímssonar,
sem lézt að heimili sínu 21. þ.m.
þá aðeins 46 ára gamall.
Svo „skjótt hefur sól brugðist
sumri“ og sár harmur gjör ást-
vinum og vandamönnum.
Ólafur Hallgrímsson var stór-
brotinn heimilisfaðir í rausn og
risnu og að vera heimilinu eitt
og allt tii ánægju og uppbygg-
ingar, var hans heitasta ósk.
Lífsgleði og gott lundarfar var
honum í blóð borið og var hann
hrókur alls fagnaðar þegar svo
bar við að til samfunda kom, og
er mér það gleðiéfni að minnast
þeirra stunda, sem ég og fjöl-
skylda mín nutum á heimili
hans, sem hafði alltaf uppá
alla prýði og ánægju að bjóða
og vil ég þakka allar þær
ánægju samverustundir sem
19 ára kynning og sambúð gaf
mér.
Þegar ég nú í dag kveð þenn-
an góða dreng, því að hann var
æskunnar maður jafnt sem eldri,
óska ég honum góðrar heim-
komu til ríkra sólarheima og
endurfunda þar, nýlega horfinna
ástvina af hér Vistatilveru lífs.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi. Haf þökk fyrir allt og allt.
Ekkju hans og börnum og öli-
um aðstandendum færum við
hjartanlegar samúðarkveðjur.
Guðni A. Jónsson.
NÚ er Óli Rikki farinn. Hugur-
inn hvarflar heim á fornar slóð-
ir, heim til þeirrar Akureyrar,
sem einu sinni var. Þar inn í
Fjörunni urðu okkar fyrstu
kynni. Það var á haustmánuðum
1936. Við lásum saman undir
próf, lögðum fast að okkur, en
tíminn leið að öðru leyti við
ýmsa geðfellda vitleysu. Sam-
borgararnir týna tölunni eftir
því sem á ævina líður. Einstaka
verða manni svo leiðir, að eigi
tjáir annað en láta þá hverfa
sér sýnum, þótt þeir séu enn of-
ar moldu. Á þetta jafnt við um
nákomna sem aðra samferða-
menn. Óli Rikki varð manni
vandabundinn, þótt tímar liðu
og leiðir lægju ekki ávallt sam-
an, en þau bönd reyndust all
sterk, er tengdu okkur þegar í
æsku. Hann var einn þeirra
manna, sem mannfagnaður var
að, hvar sem hann fór eða flækt
ist. Óli Rikki var vörpulegur,
klæddist manna bezt, skartmað-
ur og höfðingi í framgöngu og
samskiptum við aðra menn.
Hann var samkvæmis- og gleði-
maður og fjölfróður um margt.
Óli Rikki var kvæntur Þór-
unni Guðmundsdóttur. Þegar
hann kynntist henni fór eldur
um sál hans ,enda voru þau
ávallt síðan samhent um alla
hluti. Áttu þau fagurt heimili,
þar sem ríkti höfðingsskapur og
hjartahlýja, enda eru þeir marg
ir, sem í dag senda þangað heit-
ar þakkir.
Óli Rikki var ekki gallaflaus
frekar en við hinir. En á beztu
stundum ævi hans ríkti eilíft
vor í kringum hann. Nú hefur
hann náð landi, einmitt á þeim
tíma árs, er dagsbirtan situr að
völdum allan sólahringinn í
fæðingarsveit hans. Sú strönd
er ekki vinalaus, þar sem hann
brýnir báti sínum í naust.
Kristján Eiríksson.
B>að er leikur einn
að slá grasflötinn með
Langmest selda garðsláttuvélin á Norðurlöndum. Norlett mótor-
sláttuvélin slær og fínsaxar grasið og dreifir því aftur jafnt á flöt-
inn. Slær alveg upp að húsveggjum og í kanta. Á báðum gerðum er
hæðarstilling, sem ræður því, hve nærri er slegið. Vinnslubreidd
19 tommur. Létt og lipur í notkun. Gerð 805B DeLuxe kr. 6.132.90.
Gerð 802 A kr. 4.335.00 með söluskatti. Báðar gerðir fyrirliggjandi.
C'- ^ . / .
Ódýrasta og bezta garðsláttuvélin á markaðnum.
Einkauinboðsmenn á íslandi fyrir:
% ílarsh LeHmalall
Globus hf.
Lágmúla 5 — Sími 11555.
AUKIÐ HREINLÆTIÐ - LÆKKIÐ ÖTGJÖLD
Serviettubox með óflýrum serviettum
fyrir:
★ Matsölustaði
★ íssölur
★ Pylsubari
★ Mötuneyti
★ Kaffistofur
★ Veitingastaði
k Heimili
★ Bíla
Serviettur koma tilbúnar til ísetningar NEYZLUVÖRUR HF.
Snorrabraut 50 — Sími 12816—82467.