Morgunblaðið - 30.05.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ I»OT.
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjamason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
f lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
HÖRMULEG
ÓDÆÐIS VERK
Roger Moore í búningsherbergi sínu hjá brezka sjónvarpinu.
Dýrlingurinn hefur fengiö nóg
Roger Moore yfir í kvikmyndir
/kdæðisverk þau, sem unnin
voru í gamla kirkjugarð-
inum í Reykjavík aðfara-
nótt þriðjdags, þegar ráðizt
var á grafreiti og legsteinum,
krossum, styttum og öðru velt
um koll, brotið og skemmt,
vekja menn til umhugsunar
um, hversu langt þeir vesal-
ingar, sem slíkt stunda, geta
gengið til þess að svala
skemmdarfýsn sinni. Verkn-
aðir á borð við þennan eru
svo langt utan ramma heil-
brigðrar skynsemi, að erfitt
er að gera sér í hugarlund,
hvar ódæðismennirnir munu
næst koma við og saurga um-
hverfi sitt með viðurstyggi-
legum athöfnum sínum.
Undanfarið hefur farið í
vöxt hér á landi, að skemmd-
arverk séu unnin á eignum
annarra án nokkurs annars
sýnilegs tilgangs, en að svala
skemmdarfýsninni. Má í því
sambandi minna á ferðir
skemmdarvarganna í garðinn
við listasafn Einars Jónsson-
ar á Skólavörðuholti, þegar
þeir eyðilögðu tré og annan
skógargróður í garðinum,
og aðfarirnar við mannlausa
sumarbústaði, sem voru nær
gjöreyðilagðir. Einnig rifjast
upp aðfarir af líku tagi við
umferðarmerki, eins og þeg-
ar stangir við þjóðveginn yf-
ir Hellisheiði voru sagaðar í
sundur eða brotnar niður.
Allir verða að vera á verði
gagnvart þeim, sem leggjast
svo lágt, að svívirða helga
reiti og eignir. Virðingarleys-
ið á því, sem gert er og hef-
ur eitthvert gildi, virðist fara
vaxandi. Hér verður aðeins
spórnað á móti, ef allir heið-
virðir menn taka höndum
saman og segja ófögnuði þess
um stríð á hendur með auk-
inni árvekni og áhrifamikilli
fordæmingu.
EKKIREKSTRAR-
FJÁRSKORTUR
illtaf öðru hvoru er að því
vikið í málgögnum Fram-
sóknarflokksins, að erfiðleik-
ar samvinnufélaganna stafi af
því, að þau hafi ekki nægi-
legt rekstrarfé. Og síðast vík-
ur Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands
bænda, að þessu í viðtali við
Tímann í gær, þar sem hann
talaði um þau litlu rekstrar-
lán, sem samvinnufélögin
hafi og kennir rekstrarfjár-
skorti um það, að mörg kaup-
félaganna geti ekki sett trygg
ingar fyrir greiðslum sínum,
m.a. til áburðarkaupa.
Því miður er málið ekki
jafn einfalt og Gunnar Guð-
bjartssen og Tíminn vilja
vera láta. Ástæðan til erfið-
leika margra kaupfélaganna
er beinlínis sú, að rekstur
þeirra hefur gengið svo
hörmulega, að þau hafa ekki
eðlilegt lánstraust.
Annars er sannarlega
fyllsta ástæða til að það mál
sé brotið til mergjar, hvernig
háttað sé lánamálum sam-
vinnufélaganna. Þar er um að
ræða almannasamtök, sem
ekkert eiga að þurfa að dylja;
þess vegna ættu þau að gera
opinberlega grein fyrir lána-
málum sínum, hve mikið fé
Samvinnuhreyfingin hafi að
láni, ýmist frá bankastofnun-
um eða þá frá félagsmönn-
um í innlánsdeildum, en þar
er um að ræða gífurlega mik-
ið fjármagn, eins og alkunna
er. 1
Engin bót fæst á því á-
standi, sem nú ríkir hjá kaup-
félögunum víða um land, með
því einu að fullyrða gjörsam-
lega órökstutt, að illa hafi
verið farið með samvinnufé-
lögin að því er varðar lán-
veitingar. Það er heldur ekki
hægt að ásaka ríkisvaldið fyr-
ir það, þótt einhver atvinnu-
fyrirtæki séu þannig rekin, að
þau séu rúin trausti, bæði í
bankastofnunum og hjá við-
skiptavinum sínum. Fyrst
verða stjórnendur fyrirtækj-
anna að líta í eigin barm og
gera allar tiltækar ráðstafan-
ir til að bæta og treysta rekst
urinn.
Hitt er svo rétt, að ástandið
er vissulega uggvænlegt í
ýmsum landshlutum, þar sem
svo háttar til, að samvinnu-
félögin geta ekki tryggt bænd
um áburð og aðrar nauðsynj-
ar, en þessi fyrirtæki eru oft
eini viðskiptaaðilinn á sviði
helztu nauðsynja bænda.
Bæði ríkisvaldið og bank-
arnir hafa haft þungar áhyggj
ur af þessum erfiðleikum, og
ýmsar ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess að létta undir
með samvinnufélögunum, og
sízt situr þess vegna á þeim,
sem þykjast formælendur
samvinnureksturs, að ráðast
á ríkisstjómina og saka hana
fyrir þá erfiðleika, sem þessir
menn sjálfir hafa komið sam-
vinnurekstrinum í.
LEIÐTOGI í
ATVINNUREKSTRI
¥ ritstjómargrein Tímans í
gær er vitnað til orða for-
Eftir Granville
DÝRLINGURINN barmaði sér
og sagði: „Ég finn til í hvert
skipti sem ég þarf að berja
einhvern.“
Brezki leikarinn Roger
Moore hefur þurft að gera
talsvert af því að berja menn
í sjónvarpshlutverki sínu sem
Dýrlingurinn — söguhetjan
úr bókum rithöfundarins Les
lie Charteris. En þið takið eft
ir því að hann sparkar aldrei
í þann, sem er fallinn. Og
þau sex ár sem sjónvarps-
þátturinn hefur gengið, hefur
dýrlingurinn aldrei drepið
mann.
Moore tók sér smá hvíld
frá myndaötku fyrir sjón-
varpið til að ræða um fram-
tíðina: „Það hefur verið gam
an að leika Dýrlinginn, en
sex ár eru langur tími,“ sagði
hann. Moore, sem nú er 39
ára, er að hætta við sjón-
varpsþáttinn, og hefur tekið
að sér aðalhlutverk í þrem-
ur kvikmyndum á vegum
United Artists félagsins.
Hefst taka þeirrar fyrstuhjá
Ealing kvikmyndaverinu við
London 1. júní. Er það saka-
mála- og gamanmynd, sem
nefnist „Cross Plot“.
„Ég held ekki að kvik-
myndastjórnendurnir ætli að
láta mig hætta að leika góða
manninn,“ sagði hann. „En
væri gaman svona til til-
breytingar að leika forhertan
bófa. Gallinn við Dýrlinginn
manns Framsóknarflokksins,
þar sem hann segist hafa ráð
undir hverju rifi til þess að
bæta hag atvinnufyrirtækj-
anna. En inntakið er nú raun
ar ekki annað en að „það
þarf að breyta um stefnu“,
eins og foringi Framsóknar-
Watls
er sá, að hann er svo ótrú-
verðugur að mér er ómögu-
legt að setja mig í spor hans
sem persónu. Hann tapar
aldrei áflogum. Mig langar
til að tapa eða þó ekki
væri nema að vinna einu
sinni með brögðum."
„Sex ára hlutverk töfra-
hetjunnar hefur að sjálf
sögðu fært mér ríkulega um
bun og góðar gjafir. En það
hefur einnig sína slæmu galla
og fáum dettur í hug að ég
hafi eigin skoðanir, eða að ég
líti ekki alltaf út eins og út-
stillingarbrúða klæðsker-
ans.“
Moore hefur eigin skoðan-
ir. Hann hefur til dæmis
mjög ákveðnar skoðanir í
kynþáttamálum. Um Marlon
Brando, sem lagt hefur kvik-
myndirnar á hilluna til að
einbeita sér að baráttunni
gegn kynþáttaofsóknum, seg-
ir Moore: „Ég dáist mjög að
Brando. Það þarf mikið á-
ræði til að gera það sem
hann gerir og segja það sem
hann segir. Ég er sammála
honum. Og ég tel að ástand-
ið í kynþáttamálum í Bret-
landi eigi sannarlega eftir að
versna. Tökum til dæmis
blökkumenn í leikarastétt.
Það er búið illa að þeim. Ég
held að við séum að byggja
hér upp haturskynslóð.“
Þótt Moore hafi sín-
ar skoðanir, telur hann vara-
samt fyrir leikara að skipta
manna kemst svo spaklega að
orði.
En væri ekki ástæða til
þess, að formaður Framsókn-
arflokksins beitti áhrifum sín-
úm í eiginn flokki á þann veg,
að Samband ísl. samvinnufé-
laga „breytti um stefnu“. Það
er vissulega tímabært að þar
sér af stjórnmálum. „Mér )
finnst það heimskulegt af \
Vanessu Redgrave að hafa L
tekið þátt í nýafstöðnum I
mótmælum í London gegn 7
styrjöldinni í Vietnam," seg- |
ir hann. i
Moore segist hafa „gamal- L
dags“ álit á málum eins og I
eiturlyfjaneyzlu. „Eitur- »
lyfjavandamálið er hörmu 1
legt, en sem betur fer er L
það aðeins örlítill hluti æsk- /
unnar, sem notar eiturlyf. ;
Mér finnst að foreldrar eigi \
að taka á sig meiri ábyrgð í
og vera strangari, þá fækk- l
aði eiturlyfjaneytendum."
Sögurnar um Dýrlinginn
voru eitt sinn kvikmyndað-
ar, og lék þá George Sand-
ers Dýrlinginn. En Moore á-
lítur að höfundurinn sjálfur
hefði getað gert því hlut-
verki betri skil en nokkur
annar.
„Hann reiddist eitt sinn, er
ég sagði þetta við hann. Ég
benti honum þá á að hann
hefði lagt svo mikið af sjálf-
um sér í bækurnar, og skildi X
hann við hvað ég átti.“ í
Við svo búið kvaddi Moore /
og hélt áleiðis til vinnustof- »
unnar þar sem verið var að
kvikmynda næsta kafla af
sjónvarpsþættinum, sem sýnd
ur er í 80 löndum. „Þarna er
Dýrlingurinn", sagði einn af
starfsmönnunum við félaga
sinn. Það tekur Moore áreið-
anlega langan tíma að losna
við geislabauginn.
fari að ríkja viðskiptasjónar-
mið; en ekki þau pólitísku
sjónarmið, sem lengst af hafa
ráðið stefnu Sambandsins og
kaupfélaganna og borið þann
árangur, sem alkunna er, að
mörg kaupfélaganna eru kom
in í erfiðleika, sem vandséð er
hvernig þau komast út úr.