Morgunblaðið - 30.05.1968, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1008.
19
Þessi stúdent neitaði að beita ofbeldi. Hann klæddist Araba-
búningi, tók sér stöðu mitt á milli hópa stúdenta og lögreglu-
manna þegar efnt var til mótmælaaðgerða í einu hverfi París
ar, og barði bumbu.
- ERLENT YFIRLIT
Framhald af bls. 14
hreyfingu að ræða, en þótt leið-
togar hennar séu þekktir, er erf
itt að koma auga á hana, enda
hefur hún ekkert nafn og enga
stefnuskrá og er ekki formlega
skipulögð. Mikilvægi þessarar
uppreisnarhreyfingar er fólgið í
því, að áhrif hennar eru ekki
bundin við stúdenta eina, held-
ur ná þau til allra stétta þjóð-
félágsins og allra sviða þjóðlífs-
ins. Uppreisnarhreyfingin hefur
þegar grafið undan völdum yfir-
manna í skólum, verksmiðjum,
sjúkraJhúsuim og öðrum stofnun-
um. Hinir ungu upptreisnar-
menn hafa hlotið mjög víðtæka
samúð, einkum vegna hrotta-
skapar lögreglunnar, þótt erfitt
sé að spá um það hvað þessi
samúð verði langUf.
Kunnasti leiðtogi hinna öfga-
sinnuðu vinstrimanna er stúdent
inn Daniel Coihr Bendit, en stuðn
ingsmenn hans eru úr herská-
um samtökum, sem kallast Jeun-
esse Communiste Révolutionaire
(JCR) og eru þrautskipulögð.
Meðlimir þessaira samtaka eru
kallaðir trotskýistar og hafa það
markmið að setja þjóðfélagið úr
skorðum með byltingaraðferðum
og koma þannig á sósíalisma.
Þeir vilja að stúdentar verði öðr
um þjóðfélagshópum til fyrir-
myndar með herskáum aðferðum
og segja að verkalýðsstéttirnar
muni að lokum fara að dæmi
þeirra. En kommúnistaflokkur-
inn_ og verkalýðsfélög, sem
hann stjórnar, hafa reynt allt
sem í þeirra valdi stendur til
þess að draga úr áhrifum þess-
ara og annarra öfgasinna.
Sorbon ne-háskó 1 i er mikilvæg
asta hreiðuir hinnar nýju öfga-
Ihreyfingar, og hefur honum ver
ið lýst sem höfuðvirki stjórn-
leysingja. Veggir háskólans eru
þaktir miðum og spjöldum með
byltingaslagorðum, fundaboð-
um og tilkynningum um mót-
mælaaðgerðir. Undarlegur bylt-
ingareldmóðutr liggur í loftinu.
Eldur logar á miðri háskólalóð-
in-ni og á þremur stórum súlum
hanga myndir af Marx, Lenín og
Mao. Stúdentar í vinnugöllum
og vinnujökkum sitja á tröpp-
unum og ræða ástandið og virð-
ast úrvinda af þreytu og sljóir.
Þetta forna menntasetur virðist
hafa breytzt í sígaunabúðir. Stú
dentar klæddir leðurjökkum
blása í flautur og stjórna um-
ferðinni til og frá h-áskólalóð-
inni. Nokkrir 18-20 ára gamlir
unglingar stanida i-nni í háskól-
anum og selja brauð, pylsur, á-
vexti, kaffi og mjólk. Allt er
þetta einna líkast umsátursá-
standi, sem minnir eldra fólk á
ennþá alvarlegri tíma í sögu
Frakklands.
f París og annans staðar, þar
sem bardagar hafa geisað, er
ömurlegt um að litast. Götur eru
þaktax rusli og sorpi vegna verk
f-allanna, hvarvetna standa leif
ar götuvígja, víða má sjábrunna
bíla og brotin umferðarskilti og
alls staðar eru glerbrot. Ástand
ið er hvergi hörmulegra en í
Latínuhverfinu í París, þar sem
átökin h-afa verið hörðust, og
forvitnir Parísarbúar, sem þang
að leggja leið sína, fyllast undr-
un pg jafnvel skelfingu. FýLa
frá rotnandi sorpi er svo ofboðs-
leg að menn grípa fyrir nefið.
Vatnisleiðslur hafa sprungið og
vatn flæðiir um götumar.
Blaðasöluturnar og símaklefar
hafa verið jafnaðir við jörðu.
Ofbeldið hefur
borið árangur
FRANSKA stjórnin hefur geng-
ið alllangt í átt til samkomulags
við verkamenn og stúdenta, nú
seinast með því að heita verka-
mönnum allríflegum kjarabótum,
einkum hinum lægst launuðu.
Verkamenn hafa tekið tilboðum
stjómarinnar miisjafnlega vel, og
þess vegna er sú hætta fyrir
hendi að óeirðirnar færist enn í
aukana og sumir óttast jafnvel
að þær verði sífellt ofsafengn-
ari, jafnvel svo ofsafengnar, að
ekki reynist unnt að halda þjóð
aratkvæðagreiðsluna, sem de
Gaulle hefur boðað.
Sennilega telur franska stjóm
in sig naumast geta slakað meira
til gagnvart verkamönnum. De
G-aulle og stjórn haiis hafa beð-
ið ægilegan álitshnekki og orðið
að fallast á hinar ýmsu kröfur
til að halda völdunum. Á-lit de
Gaulles og stjórnaxinnar erlend
is er í alvarlegri hættu, og sama
er að segja um stöðu frankans
gjaldeyrisvarasjóði og jafnvæ-gi í
frönskum efnahagsmálum yfir-
leitt. Frönsku stjórninni mun
reynast erfitt og ef til vill um
megn að gerá allt í senn: láta
undan kröfum um launahækkan
ir og þjóðfélagsumbætur, auka
framlög til menntamála og þjóð-
félagsmála og viðhalda um leið
hinni traustu fjárhagsstöðu
F-rakklands.
Þjóðaratkvæðagreiðslunnar
verður beðið með mikilli eftir-
væntingu, en svo kann að fara
að jafnvel þótt de Gaulle fái
hr-einan meirihluta verði hann
ekki talinn nógu mikill til þess
að líta megi á úrslitin sem
traustsyfirlýsingu við hann og
að fremur megi túlka þau þann
ig, að almenningur óttist að enn
þá alvarlegra ástand en nú rík-
ir taki við ef de Gaulle segir
af sér. Ástandið, sem sífellt hef-
’ur minnt meir og meir á borg-
arastyrjöld, getuir leitt til æ
harðari gagnráðstafana af hálfu
ríkisvaldsins og að lokumhljóta
slíkar ráðstafanir að leiða til al-
gers einræðis.
Stjórnin vonar bersýnilega, að
hún geti sundrað andstæðingum
sínum með því að ganga áð ein-
dregnustu kröfum þeirra og það
befur henni tekizt að vissu
marki. Stjórnarandstaðan hefur
alltaf verið sjálfri sér sundur-
þykk þrátt fyrir hina nánu sam-
vinnu Vinstriflokkabandalags
Francois Mi-tterands og Komm-
únistaflokksins, sem eir undir for
ystu Waldeck Roohets. Stjórnar
andstöðunni mun reynast erfitt
að vinna tiltrú þjóðarinnar, ef
henni tekst ekki að sýna fram
á, að hún geti veitt styrka for-
ystu og að sama vand-
ræðaástandið og ríkti á dögum
fjórða lýðveldisins taki ekki við,
ef hún myndar ríkisstjórn. At-
burðirr síðustu vikna hafa ekki
dregið úr hinni gagnkvæmu tor-
tryggni kommúnista og Vinstri-
flokkabandalagsins- En mik-
ilvægara er, að atburðimir hafa
allt að því valdið klofningi í
kommúnistaflokknum vegna til-
raunar flokksforystunnar til að
sigrast á hættu þeirri, sem hún
telu-r sér stafa frá hinum öfga-
fullu vinstri sinnum.
Með samstarfinu við Vinstri-
flokkabandalagið hefur Rochet
reynt að binda enda á langa ein
angrun kommúnista í frönskum
stjórnmálum, ag hann hefur á
all-a lund reynt að gera flokk-
inn „virðulegan“ til að auka
fylgi hans meðal kjósenda. At-
busrðirnir að undanförnu virðast
hafa 1-eitt í Ijós, að Rochet vill
ekki fella stjórn de Gaulles, sem
er markmið hinna öfgafullu, og
athyglisvert er að málgögn sov-
ézka kommúnistaflokksins og
sovétstjórnarinnar hafa verið
heldur kuldaleg í garð stúdent-
anna í Frakklandi. En þrýst-
ingurinn frá öfgamönnun-
um geriir það að verkum, að
kommúnistar eru smám saman að
hverfa frá hinni varkáru stefnu
sem þeir hafa fylgt til þessa, og
gerir það ástandið ískyggilegra
en ella. Þetta felur einnig í sér
sigur fyrir stúdentana, sem hafa
auk þess sýnt, að með ofbeldi er
hægt að flýta fyrir þjóðfélagsleig
um breytingum.
V erzlimarmaður óskast
Maður með bókhalds og vöruþekkingu óskast til
þess að gegna fulltrúarstörfum við stórt verzlunar-
fyrirtæki nærri Reykjavík. Þeir sem áhuga hafa
fyrir nefndu starfi, gjöri svo vel að leggja nafn sitt
inn á afgreiðslu Morgunblaðsins, merkt: „Starf —
5051“ fyrir 5. júní n.k.
ÚTGERÐARMENN -
SKIPSTJÓRAR
Um leið og þér sjáið
ÍSLENDINGAR OG HAFIÐ
sjáið þér einnig hina
stórköstlegu endingu
SIMFISK SI\IIIRPllHRII\IGJmiH
i
SÝItHniGARSTÚKU i. 68
Sölumboð:
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
Suðurlandsbraut 12.
Sími: 37960.