Morgunblaðið - 30.05.1968, Page 21

Morgunblaðið - 30.05.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1088. 21 - SKJÖLIN Fnamlh. ai bls. 12 Ihonum var lögfræðingurinn ungi Kairl Schulfce-Hillen. Schrader- Beielstein spurði hann hvort hann væri þar sem fulltrúilækn isins. Hann neitaði, en kvað sig vera föður og frænda vanskap- 1 aðra barna. Þá krafðist Schrad- er-Beielstein þess, að hann yfir- gæfi fundarherbergið. Schulte- Hillen rauk á dyr í mjög æstu skapi. Einn embættismannanna frá Hamborg fór á eftir honum og reyndi að sefa hann. Hann benti ennfremur á, að bezt væri að menn stilltu skap sitt sök- um þess að Grunenfchal hefði hótað lögsókn. Schrader-Beiel- stein hringdi til von Veltheim, sem kom bráðlega á staðinn. Umræðurnar snerust fyrst um almenna hluti, um eðli vísinda- legra sönnunargagna. Það var þá sem ástæðan fyrir nærveru Nowels kom í ljós. „Sem stað- tölufiræðingur," sagði hann við Lenz, „leyfi ég mér að efast um gildi gagna þinna.“ Um kvöldið urðu samræðurnar mjög snarp- ar og þá snerust heilbrigðisyfir völdin fyrst á sveif með Lenz. Einu sinni enn spurðu þeir full- trúa Grúnenthal hvort þeir vildu ekki taka thalidomide af markaðinum. Einu sinni enn svöruðu þeir nei. Málið virtist í sjálfheldu. í tvær klukkustundir í matarhlénu ræddu Schrader- Beielstein og von Veltheim við bækistöðvarnar í Stolberg. Þeg- ar fundurinn hófst um kvöldið að nýju bað Velfcheim Lenz að bíða útifyrir og hikandi féllst hann á það. Schrader-Beielstein lagði nú fram tilboðið, sem hann hafði rætt við höfuðstöðvarnar í sím- anum Grúnenthal vildi setja miða á alla Contergan lyfja- pákka, þar sem stæði: „Ekki til notkunar fyrir þungaðar kon- ur-“ Og læknum og efnafræð- ingum yrði gert aðvart um hætt una fyrir ófrískar konur af Con tergan neyzlu. Lengra vilduþeir ekki ganga. Þá hóf Schrader-Beielstein aft ur að véfengja rannsóknir og gögn Lenz. Hann hækkaði rödd ina. Lenz kom reiður mjög inn í fundarherbergið og hafði heyrt allt sem sagt var. Hann sagði, að það væri rangt að ræða gögn sín í fjarveru sinni. Áhrifin voru dramatísk. Aftur 'hörðnuðu samræðurnar mjög. Aft ur tjáðu yfirvöldin Grúnenthal- mönnum, að bezta lausnin væri að taka lyfið af markaðinum. Og í þetta sinn tvínónuðu þeir ekki við hlutina. Annaðhvort tæki fyrirtækið lyfið af markaðinum af frjálsum og fúsum vilja, eða ráðuneytið mundi banna sölu þess. LOKAÞÁTTURINN var ef ti] vill hinn furðulegasti í allri thalidomide-sögunni. Næsta dag laugardaig, nákvæmlega viku eft ir að Lénz heimsótti læknaráð- stefnuna, kom stjórn Grúnent- hals saman í Stolberg til að ákveða hvað ætti að taka til bragðs: þar voru fimm sakborn- inganna í réttairholdunum nú — Múckter. Schrader-Beielstein, Ohauvistré, Leufgens og Win- andi. Þar var einnig Veltheim. Beielstein skýrði frá því, sem gerzt hafði á fundinum í ráðu- neytinu kvöldið áður. Hann lauk máli sínu með því að segja, að Contergan yrði að taka af mark aðinum. Múckter var því ósam- mála en ákvað þá, af ölluim und arlegum stundum, að lesa bréf, sem hann hafði fengið frá Lond on daginn áður: „Kæri dr. Miiokter, Okkur hefur borizt frem- ur uggvekjandi skýrzla frá kvens.iúkdómafræðingi okk- ar um vanskapnað á börnum, sem hægt var að setja í sam- band við það, að mæðumar höfðu tekið thalidomide snemma á meðgöngutímanum, vegna morgunveiki. . . f okt. 1961 fæddust aftur þrjii börn með svipaðan van- skapnað og dóu ÖU eins og hin fyrri.“ f sex tilfellum hafði thali- domide verið skaðvaldurinn. Saft vildi Muckter ekki enn taka thalidomide af mark aðinum. Hinir mótmæltu: nú jæja, hann mundi þá sjálfur taka ábyrgðina. Fundurinn drógst á langinn. Loks var ákveðin að senda dreifibréf tii lækna og efnafræðinga, þar sem skýrt var frá grun- semdum Lenz. En nú hafði stjórnið verið tek in úr höndum Grúnenthal. Almenningsálitið fordæmir Næsta morgun, sunnudag, kom út fréttablaðið Welt am Sonn- tag og skýrði frá þeim grun- semdurn Lenz, að Contergan væri lyfið, sem væri orsök van- skapnaðar hjá börnum, Blaðið hafði frétt sína eftir Wessel- kowski nokkrum, sem heyrt hafði einkaathugasemdir Lenz á ráðstefnunni í Dússeldorf. Nowel, staðtölufræðingurinn, sem hafði verið á fundinum á föstudag eyddi deginum eins og skyldurækinn þýzkur fjöl- skyldufaðir með ættingjum sín- um í Bochum. Hann heyrði um æsifregn Welt am Sonntag af tilviljun, þegar hann hringdi til vinair síns, sem var læknir. Eitt hvað verðuir að taka til bragðs, hugsaði hann. Hann hringdi til Leufgens, framkvæmdastjórans, sem var heima hjá sér. Honum var sagt frá fundinum í Stol- berg og að ákvörðun hefði ver- ið tekin um að taka Contergan af markaðinum. Allt til loka tóku Grúnent- hal-menn ekkert sérstakt til bragðs. Þeir sendu út dreifibréf in sín til lækna og efnafræð- inga og sögðu að lyfið hefði ver ið tekið úr umferð. „Almennings álitið", sögðu þeir, „hefur eyði- lagt allan grundvöll fyrir vís- indalegum umræðum." í sím- skeyti til ráðuneytisins kvað við dálítið annan tón. „Þar til vís- indalegum spurningum hefur verið svarað tökum við Conter- gan úr umferð þegar í stað.“ Af þessum vísindalegu spurn- ingum var sú mikilvægust, sem Múckter hafði verið spurður að af finnskum kvenlækni: gat Con tergan komizt í gegnum fylgj- una og þannig haft áhrif á ófætt barn? Þótt lyfið hefði verið í umferð í þrjú og hálft ár svar- aði hann stuttaralega: „Ekki vit að.“ Nú var það um seinan og starfsbræður hans hófu að kanna þetta. Það reyndist ekki erfitt. Beck man var einn þeirra vísinda- manna, sem tóku upp þráðinn varðandi rannsóknir á Conter- gan. Hann gerði thalidomide skammt geislavirkan til þess að geta fylgt honum eftir í æða- kerfi músa til þess að ganga úr skugga um hvort lyfið kæmist í gegnum fylgjuna. Aðeins fjór- um vikum eftir að Contergan var tekið úr umferð, hafði hann fengið svarið. Það gerði það svo sannariega. Hver var tilganguurinn? Þetta er saga thalidomides. Þeirra fjórtán dómara, sem munu skera úr um hlutverk hvers og eins sakbornings bíð- ur mikið starf: saksóknin ein mun taka mánuði. En rétturinn verður að ganga lengra. Hann verður að skera úr um tilgang hvers og eins þeirra. Fyrstu þrjár ákærurnar fjalla um vanrækslu, er lyfið olli óbætanlegum taugaskemmd- um, óbætanlegum skaða á fóstr- um og dauða saklausra mann- vera. Þrjár aðrar ákærur fjalla um illfýsni nokkurra sakborn- inga — að þeir hafi „sameigin- lega og illgirnislega" valdið heilsutjóni, notað villandi full- yrðingar til að selja lyfið og farið út yfir hæfileg takmörk í Ijósi nýjustu læknavísinda. Þegar um tilganginn er að ræða verða jafnvel lögin óná- kvæm: orð eins og illgirni og vanræksla eru í bezta tilfelli að eins hrjúfir leiðarsteinar. Á næstu mánuðum verður rætt um tilgang Heinrichs Múckter og fé laga hans, hvort þeir séu sekir eða saklausir. En dómurinn svarar aldrei spurningunni um hversvegna þetta gerðist. Orðsending frá L Við bjóðum yður mjög ódýrar vörur á eftirtöldu verði: SUMARKÁPUR frá kr. 1650,— CRIMPLENEKJÓLA tvískipta á kr. 100,— betri gerðir á kr. 1360.— CRIMPLENEKJÓLAR heiUr kr. 800.— PILS hringsniðin kr. 300.— og 320.— CRIMPLENEPILS fóðruð kr. 560,— SUMARKJÓLAR á kr. 400,— stærðir 36 og 38. LAUFIÐ, Laugavegi 2. PLYMOUTH í fararbroddi í H-umferð Enn einu sinni var bíll frá CHRYSLER í fararbroddi — það var PLYMOUTH VALIANT sem var fyrsti bílinn sem fór yfir í hægri umferð á íslandi. „Hið sögulega augnablik, þegar Valgarð J. Briem, formaður Framkvæmda- nefndar, ekur fyrstur manna yfir til hægri fyrir framan Fiskifélagshúsið við Skúlagötu,“ segir á forsíðu Tímans, 28. 5. 1968, með þessum myndum. DODGE og PLYMOUTH eru í fararbroddi í gæðum. DODGE og PLYMOUTH eru í fararbroddi í endingu og akstri. DODGE og PLYMOUTH eru í fararbroddi í útliti og frágangi. DODGE og PLYMOUTH eru í fararbroddi í vinsældum á íslandi. Verið í fararbroddi — veljið yður DODGE eða PLYMOUTH 1968. ^ CHRYSLER-UMBOÐIÐ VÖKULL h.f. Hringbraut 121 — sími 10600. Glerárgötu 26, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.