Morgunblaðið - 30.05.1968, Síða 25

Morgunblaðið - 30.05.1968, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1008. 25 Húsgagnakaup Islend- ings vekja athygli I NORSKA blaffinu Ukens Nytt er lítiff fréttavifftal viff norskan húsgagnaframieiffanda, Kroge- næs, sem biaffiff segir nýkominn mannahöfn, og Mbl. hcfur áffur sagt frá. Krogenæs segir í viff- talinu aff furuhúsgögn hans hefffu vakiff mikla athygli á sýn- ingunni og nefnir til sanninda- merkis aff tveir affilar hafi keypt sýningardeild hans, íslenzk ur húsgagnainnflytjandi og ann- ar frá Kanaríeyjum. Svo sem áður hefur verið sagt frá í Mbl. er hér um Húsgagna- höllina að ræða. Krogenæs segir a'ð íslendingurinn Jón Hjartar- son hafi strax, er hann sá 1 hús- gögnin, keypt deildina, en hinn kanaríeyski hafi komið dálítið síðar og keypt sams konar hús- gögn. Einnig sagði hann austur- rískan markað mjög vænlegím. Það sem kom Krogenæs mest á óvart í sambandi við söluna til íslands, var hversu óhrædd- ur íslendingurinn var við kaup- in, þar sem allt að 90% inn- flutningstollur er á húsgögnum til íslands. í viðtali við Jón Hjartarson, er Morgunblaðið átti um líkt leyti og kaupin voru gerð, sagði Jón að hann hefði keypt hús- gögnin vegna þess áð hann hefðí orðið hrifinn af þeim og ætlar hann að hafa þau sem sýningar- húsgögn í verzlun sinni. Hús- gögn sem þessi hafa ekki verið flutt til landsins áður. Hægri umferð á Sauðárkróki SAUÐÁRKRÓKI 27. maí. — Veð ur var með ágætum hér á H- daginn, stillilogn, en lítiff sól- skin. Umferð var lítil fram yfir hádegi, en fór vaxandi og var óeðlilega mikil þegar á daginp leið. Engin slys eða óhöpp hentu, hvorki hér á Sauðárkróki eða i logsagnarumdæminu. Undirbúningur undir umferða- breytinguna var vel framkvæmd ur m.a. vaæ afmarkað æfingar- avæði fyrir ökumenn niður á Borgarsandi, þar sem bílstjórum gefst tækifæri til að æfa sig í rtokkra daga. Flutt voru 22 um- ferðarmerki og 12 ný sett upp. Það vekur mikla athygli hvað bíl- stjórar aka hægt í bænum, en hins vegar voru teknir úti á þjóðvegunum í gær nokkrir ung- ir menn sem óku á ólöglegum hraða. Ég átti tal í dag við yfir- lögregluþjóninn, Gunnar Þórðar- son og Magnús Aðalsteinsson lögregluþjón úr Reykjavík og voru þeir báðir mjög ánaegðir yfir viðbrögðum fólks í umferð- innL — jóm. AUGLYSINGAR SÍMI 22.4.80 frá húsgagnasýningunnl i Kaup- Til sölu International SCOUT 1965 með stækkuðu húsi, láestu mismunadrifi að aftan og framan, spili o. fL Upplýsingar í síma 40217 eftir kl. 7 e.h. Rafsuðumenn - rafsuðumenn Viljum ráða reglusama og góða rafsuðumenn í kvöldvinnu nú þegar. Upplýsingar ekki í síma. RUNTALOFNAR, Síðumúla 17. Cítarkennsla Upplýsingar í síma 1 88 42 í dag og á morgun kl. 2 — 6. Katrín Guðjónsdóttir. Til sölu Hy-Mas 4 traktorsgrafa. Einnig 15 tonna Batam bílkrani og Ingersoll-Rand Giriflow loftpressa 250 cub. fet. Upplýsingar í síma 21131 og 21359, Akureyri. Sumarnámskeið barna á Seltjarnarnesi. Innritun á námskeið eru í dag og á morgun í Mýrar- húsaskóla frá kl. 3—6 eftir hádegi. Námskeiðsgjald kr. 250 greiðist við innritun. Barnaverndarnefnd. VERZLUN TIL LEIGU Matvöru- og búsáhaldabúð í einu af fjölmennustu hverfum bæjarins til ).eigu. Búðin er mjög vel staðsett, búðarpláss er á tveimur hæðum um 250—300 ferm. með geymslum. Tilboð sendist Mbl. fyrir laugardag merkt: „Góð sala —8713“. FLOWERS AFTUR í INGÓLFSCAFÉ í KVÖLD TILKYNNING um framlagningu skattskráa Reykjanesumdæmis og út- svarsskráa eftirtalinna sveitarfélaga: Kóþavogskaupstaðar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Keflavíkurkaupstaðar, Grindavíkurhrepps, 'Hafnarhrepps, Miðneshrepps, Gerðahrepps, Nj arð víkurhrepps, V atnsleysustrandarhrepps, Garðahrepps, Selt j arnameshrepps, Mosfellshrepps. Skattskrár allra sveitarfélaga og Keflavíkurflugvallar í Reykjanesumdæmi, ásamt útsvarsskrám ofangreindra sveitarfélaga, liggja frammi frá 31. maí til 13. júní, að báðum dögum meðtöldum. Skrárnar liggja frammi á eftirgreindum stöðum: f Kópavogi: Á skrifstofu Kópavogsbæjar og hjá umboðsmanni í félagsheimilinu H. hæð. Skrifstofa umboðsmanns verður opin alla virka daga, nema laugardaga kl. 4 til 7 e.h. í Hafnarfirði: Á skrifstofu Hafnarfjarðarbæjar og á skattstofunni. í Keflavík: Á skrifstofu Keflavíkurbæjar og hjá Járn og skip h.f. við Vatnsnestorg. Á Keflavíkurflugvelli: Hjá umboðsmanni Guðmundi Gunnlaugssyni á skrif- stofu Flugmálastjórnarinnar. í hreppum: Hjá umboðsmönnum og á skrifstofum fyrrgreindra sveitarfélaga. f skattskrám alls umdæmisins eru eftirtalin gjöld: 1. Tekjuskattur. 2. Eignaskattur. 3. Námsbókagjald. 5. Almannatryggingagjöld. 5. Slysatryggingargjald atvinnurekenda. 6. Lífeyristryggingargjald atvinnurekenda. 7. Atvinnuleysistryggingargjald. 8. Iðnlánasjóðsgjald. 9. Launaskattur (ógreiddur). 10. Iðnaðargjald. í skattskrá umdæmisins verða einnig kirkjugjöld og kirkjugarðsgjöld, þar sem sóknarnefndir og kirkjugarðs- stjórnir hafa óskað þess. f þeim sveitarfélögum, er talin eru fyrst upp í auglýs- ingu þessari, eru eftirtalin gjöld til viðbótar áður upp- töldum gjöldum: 1. Tekju- og eignaútsvar. 2. Aðstöðugjald. Innifalið í tekju- og eignaskatti er 1% álag til Bygg- ingarsjóðs ríkisins. Kærufrestur vegna tekju- og eignarskatts, útsvars, að- stöðugjalds, iðnlánasjóðsgjalds og launaskatts er til loka dagsins 13. júní 1908. Kærur vegna útsvars skulu sendar viðkomandi fram- talsnefnd, en vegna annarra gjalda til Skattstofu Reykja- nesumdæmis, Hafnarfirði, eða umboðsmanns í heima- sveit. Kærur skulu vera skriflegar og skulu hafa borizt rétt- um úrskurðaraðila í síðasta lagi að kvöldi 13. júní 1968. Álagningarseðlar, er sýna gjöld og gjaldstofna, hafa verið sendir til allra framteljenda. Jafnframt liggja frammi á Skattstofu Reykjanesumdæmis í Hafnarfirði skrár um álagðan söluskatt í Reykjanesumdæmi árið 1967. Hafnarfirði, 29. maí 1968. Skattstjórinn í Reykjanesumdæml.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.