Morgunblaðið - 30.05.1968, Side 28

Morgunblaðið - 30.05.1968, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAI 1988. Nemetz fann börnin í fjarlæg- ari enda salarins. Agnes lá í venjulegu rúmi en Pétur í barna rúmi, sem var honum heldur stutt. Fljótt á litið virtist hann vera við fulla heilsu, en svo sá Nemetz, að vinstri öxlin var í umbúðum. — Hvað gengur svo að þér, strákur? Honum tókst að hafa röddina næstum hressilega. Pétur brosti kindarlega, rétt eins og hann vissi ekki, hvers hann mætti vænta af hálfu frænda síns — hróss, meðaumk- unar eða skamma. — í>að er ekki neitt, sagði drengurinn. — Bara skráma, ekki neitt slæmt Það sagði læknirinn að minnsta kosti. Ég ligg hérna bara vegna hennar Agnesar. Þá fyrst sneri Nemetz sér að litlu stúlkunni.sem lá hreifing- arlaus undir þykkri sæng. Enda þótt sængin næði alveg upp að andlitinu, fékk það ekki dulizt að hún var mikið særð. Andlit- ið var tekið og grátt. Nemetz laut yfir hana og skammaðist sín fyrir að hafa metið dreng- inn meira. Hún opnaði augum og leit á hann. — Lajos frændi! Ertu búinn að vera hérna lengi, Lajos frændi? — Nei, elskan. Ég var rétt að koma. Hvernig líður þér? — Vel, sagði hún. Og allt í einu brosti hún til hans borg- inmannlega. — Veiztu hver er með stærsta sárið hérna á deild- inni? — Nei, svaraði Nemetz, enda þótt hann vissi svarið fyrirfram. — Það er ég, sagði hún há- tíðlega. — Héðan og hingað. Og svo benti hún með hendinni allt holhendinni og niður á mjöðm. — Læknirinn segir, að það verði að setja stálnagla í mjaðmarbeinið til þess að halda því saman. — Hefur hann virkilega sagt þér það? — Nei, ekki mér, en hann sagði það við hinn lækninn. Hann hélt, að ég væri sofandi, en það var ég bara ekki. Hún þagnaði, eíns og hún væri orð- in uppgefin af að tala. Nemetz leit á töfluna á fóta- gaflinum á rúminu. „Nephecto- mi“. Það átti að taka úr henni annað nýrað, og svo átti hún að fá nagla í mjöðmina og ham- ingjan mátti vita, hvað fleira. Önnur hjúkrunarkonan var nú komin að rúminu. Svo að þú ert búinn að fá heimsókn, Pétur sagði hún. Ég er föðurbróðir og for- róðamaður barnanna, sagði Ne- metz. Það á að skera Agnesi? Og hver á að gera það? Ég held það sé hann Mac- ray læknir, en ég veit ekki hve- nær. Þeir viija fyrst bíða á- tekta og sjá, hvort hún ... Hún þagnaði snögglega. Við erum svo hræðilega illa mennt hérna. Nú þegar Rússarnir eru komn- ir aftur, vonum við, að Lendvai prófessor komi aftur. Jafnvel Forster læknir. Ég hefði svarið fyrir, að sá dagur kæmi, að mig langaði að fá hann hingað aft- Ostur er Ijúffeng og holl fœöa - ostur einn sér eða ostur sem krydd. Eigið ávalt nokkrar osttegundir heima. Þér getið valið úr yfir 20 tegundum. Reynið fleiri osttegundir. OSTA OG SMJÖRSALAN SF ■--------------------------------------—-----—--------------------- OSTA BAKKINN er einstaklega skemmtilégur og fjölbreytilegur réttur. Tilvalinn sjónvarps- réttur, daglegur eftirréttur, milli eða eftirréttur við hátíðleg tœkifæri og sér- réttur á köldu borði. Reynið ostabakka — það er auðvelt. Á meðfylgjandi mynd má sjá: Gráðost, camembert ost, stykki af ambassador, tvær ostsneiðar vafðár upp ofan á ostinum, valhnetukjarna stungið í, tilsitterost, skorinn í þykkar, þríhyrndar sneiðar, teninga af goudaosti ásamt grænum og rauðum kokkteilberjum, stungið í appelsínu og teninga af sterkum goudaosti með mandarínurifi. Ennfremur eru á bakkanum appelsína, banani, epli og vfnber. Fallegt er að skreyta með grænu grænmeti, svo sem steinselju, dilli eða blaðsalati, þegar völ er á því. Ýmsa fleiri ávexti og grænmeti má hafa með ost- unum á ostabakka, svo sem hreðkur, tómata, agúrkur, ólífur, döðlur, gráfíkjur, perur og ananas. Ostabakki Raðið saman á fat ostum og ávöxtum eða græn- meti og berið fram sem eftirrétt. Gott er að velja saman milda og sterka osttegund. Þegar ostabakki er borinn fram sem daglegur eftirréttur, eru tvær til þijár osttegundir settar á bakka ásamt einum til tveim tegundum af ávöxtum eða grænmeti, ost- stykkin borin fram heil, svo hver og einn geti skorið sér ostbita eftir vild. Á fiátíðaborðið má skera oststafi, teninga og sneiðar af ýmsum osttegundum og raða smekk- Iega á stóran bakka ásamt ávöxtum eða grænmeti. — Dóttir mín hefur skínandi stöðu sem módel — hjá skop- teiknara. ur. En svona er það nú samt. Við óskum þess öll. Læknarnir komast ekki yfir þetta allt sam an. Eruð þér viss um, að það sé ekki hann Halmy læknir, sem á að gera aðgerðina á henni frænku minni? En ég býzt við, að það verði að skera hana aftur, vegna mjaðmarinnar En það verður langt þangað til. Það var greini- legt, að hún átti við: ef hún lif- ir fyrri aðgerðina af. Nemetz gekk út úr salnum til 68 að leita að Macray og frétta hjá honum um möguleika frænku sinnar. Á gangin- um rakst hann á Alexu Mehely. Guð minn góður, eruð þér nú kominn aftur? sagði hún og var alls ekkert fegin að sjá hann aftur. En þegar hann hafði sagt henni erindi sitt, hjálpaði hún honum að finna lækninn. Og þær fréttir, sem læknir- inn hafði að færa voru nákvæm- lega jafn hryggilegar og Nemetz hafði óttazt. Vesalings barnið, sagði Al- exa, er þau voru aftur komin út í ganginn. Það er svo hræði- legt, hvernig þessi vesalings- börn eru útileikin. Þau halda, að öll borgin sé orðin einn skemmti garður með skottjöldum á öðru hverju götuhorni. Og svo liggja þau bak við götuvirkin og miða á Rússana, eins og þeir væru tálendur. En svo verða þessar tálendur aUt í einu að hermönn- um, sem drepa. — Er Maeray læknir fær? spurði Nemetz. Það er víst hann, sem á að skera hana frænku mína. Hann hefur verið í hressingar- dvöl eftir að hafa- særzt, og kom aftur í dag. Hún fylgdi honum inn í barna- deildina. Agnes var sofnuð, og hann varð að horfa lengi á hana, til þess að sjá, hvort hún drægi yfirleitt andann. Pétur var seztur upp i rúm- inu og var nú að segja hjúkrun- arkonunni frá þessu misheppn- aða ferðalagi þeirra systkina. Enda þótt hjúkrunarkonan væri víst þegar búin að heyra marg ar svipaðar sögur, sat hún og hlustaði með áhuga kannski ekki svo mjög á sjálfa söguna, fremur á . barnsröddina, sem hljómaði eins og fuglakvak. Hvað þetta er indæll drengur, sagði Alexa. Það er gott, að hann skuli ekki vera mikið særður. Hún leit á hann og svo á stúlkuna. Það er merkilegt, að þau skuli vera systkini, ekki líkari en þau eru hvort öðru. Svo tók hún sig snögglega á. Hún er vitan- lega líka lagleg, en bara allt öðruvísi. Nemetz kinkaði kolli. Hann var því fegnastur, að Agnes skyldi vera sofandi. Þá heyrði hann einhvern háv- 30. MAI 1968 Hrúturinn 21. marz — 19. apríl Taktu til í kringum þig, taktu kvöldinu með ró Nautið 20. apríl — 20. maí Þú gætir gert góð kaup í nágrenninu. Kynntu viðfangsefni Tvíbwrarnir 21. maí — 20. júní Segðu meiningu þína, hvað seim það kostar. Eyddu ekki umn efni fram, en njóttu lífsins. Krabbinn 21 júní — 22. júlí Þú átt óvenju hægt með að umgangast aðra. Gefðu ekki hverjum sem er góðar hugmyndir, ekki er vert að gera öllum greiða. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst Taktu öUu með ró í dag og líttu yfir farinn veg. Gerðu einhverja breytingu. Gleddu þína nánustu í dag. Meyjan 23. ágúst — 22. sept. Vinir þínir eru ofarlega á baugi í dag. Gömul ósk virðist um bað bil að rætas.t Vogin 23. sept. — 22. okt. Taktu viðskiptin með alvöru í dag. Lundarfar þitt mun hafa mikil áhrif á umhverfið. Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv. Skipuleggðu ferðalög í dag. Góður dagur til að kynna þér ný viðfangsefni. Verðu kvöldinu til alvarlegra viðfangsefna. Steingeitin 22. des. — 19. janúar Tungulipurð þín er mikil, en gefðu öðrum einnig tækifæri. Þú skalt ekki vinna of mikið. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Þungi dagslns gæti lent á þér. Vertu sam vinnuþýður. Fiskarnir 19 febrúar — 20. marz Reyndu að breyta algjörlega til í dag. Hugsaðu siðar um þá breytingu er þú hefur gert. ___________1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.