Morgunblaðið - 30.05.1968, Síða 30
3 mörk á 9 mín. í framleng-
ingu og Manchester vann
Einhver sögulegasti úrslitaleikur um
Evrópubikarinn sem fram hetur farið
ÓSKADRAUMUR Englendinga
um mörg ár, rættist í gærkvöldi
er Manchester United sigraði í
Evrópukeppni meistaraliða. A1
drei áður hefur enskt lið komizt
i úrslit þessarar keppni, hvað þá
meir. Aldrei áður hefur nokkr-
um sigri félagsliðs verið eins
ákaft fagnað og þessum. Yfir 100
þúsund manns á Wembley-leik-
vanginum ráku upp ólýsanlegt
siguróp er Manchester náði ör-
uggri forystu þá er framlenging
leiks hafði staðið í 4 mínútur.
Já, það þurfti framlenginu til
milli Manch. Utd. og portugölsku
meistaranna Benfica. Og leikur-
inn var mjög dramatískur.
Fyrri hálfleikur var marklaus
en að venjulegum leiktíma liðn-
um stóð 1-1. Á 9 mínútum í fram
lengingu skoraði Manch. Utd. 3
mörk — þvílík stórsókn hefur
sjaldan áður sézt. Evrópubikar-
inn var Englendinga. Hann fer
til Manchester í kvöld. Nýkom-
inn þangað var meistarabikar
Englands, sem Manchester City
hafði unnið. Þeir eiga knatt-
spyrnumenn þar.
Fyrri hálfleikur í gærkvöldi
var heldur lélegur. Mikið var um
hörð og ólögleg návígi svo von-
in um „bezta úrslitaleik allra
tíma“ dvínaði fljótt.
Fyrirliði Manch., Bobby Charl-
Met Vil-
hjálms
bætt
FINNINN Pertti Pousi setti
nýtt Norðurlandamet í þrí-
stökki, 16.76 m., á íþrótta-
móti í Modesto, Kaliforníu
um síðustu helgi. Eidra metið
átti Vilhjálmur Einarsson,
16.70 m.
ton, skapaði forystu eftir 8 mín.
í síðari hálfleik. Skallaði hann í
mark, með fallegum tilburðum,
þversendingu Sadlers.
Röskan helming síðari hálf-
leiks hafði Manch. Uth. yfirburði
í spili, þó ekki yrði meira um
mörk. En er á leið breyttu Portu
galar vörn í sókn og það var
næstum einstefnuakstur að
marki Manch. undir lok venju-
legs leiktíma og þá tókst Graca
að jafna af stuttu færi, er 11 mín.
voru eftir.
Er framlenging hófst voru
áhorfendur kvíðnir — að
þurfa að upplifa þessa jöfnu
baráttu áfram. En Manchester
liðið hóf þegar slíka stórsókn
að æstustu stuðningsmenn
liðsins hefðu aldrei órað fyr-
ir að liðið ætti slíkt til.
George Best, hinn stórkost-
legi útherji sem af mörgum er
nú talinn bezti knattspyrnu-
maður heims, einlék frá miðju
gegnum alla portugölsku vörn
ina og skoraði með fallegu
vinstri fótar skoti. Þá voru 3
mín. af leiktíma. Mínútu síð-
ar skallar Brian Kidd, 19 ára
unglingur, knöttinn upp undir
slá og í netið. Staðan 3-1.
Það ætlaði allt um koll að
keyra. Baráttan var unnin —
Benfica liðið gersigrað.
Er 9 mín. voru liðnar skor-
aði svo Charlton fyrirliði 4.
markið eftir fallegan aðdrag-
anda. Mínúturnar sem eftir
voru voru aðeins formsatriði.
— Sigurganga Manchester
þessar 9 mínútur á sér víst fá
eða engin fordæmi.
Matt Busby, framkv.stjóri Manch. Utd. horfir hér á æfingu á
velli félagsins Old Trafford. George Best er t.v. en hægra megin
Brian Kidd. Þeir tveir tryggðu sigurinn á 2 mínútum með glæsi-
legum mörkum.
„Tilraunalið" valið er
mætir Bretum í kvöld
LANDSLIÐSNEFND hefur valið
„tilraunalið“, sem leika skal
gegn MiddLesex Wanderers í
kvöld. Landsliðið er þaninig
skipað, talið frá markverði til
v. útherja:
Sigurður Dagsson, Val
Guðrni Kjartansson, Í.B.K.
Þorsteinn Friðþjófsson, Val
Ársæll Kjartansson, K.R.
Viktor Helgason, Í.B.V.
Magnús Torfason, Í.B.K.
Matthías Hallgirfmsison, Í.A.
Eyleifur Hafsteinsson, K.R.
Hermann Gunnarsson, Vai
Þórol'fur Beck, K.R.
Guðm. Þórðarson, Bneiðabl ik.
Varaimenn:
Samiúel Jóhannsson, f.B.A.
Anton Bjarnason, Fram
Gunnar Gunnarsson, Vílking
Helgi Númason, Fram
Kári Árnason, Í.B.A.
3. deildar
mótið í kvöld
ÍSLANDSMÓT 3. dediMar hefst
í kvöld kl. 20.30. Þá leika Víðir
og Hrönn, leifcurinn fer fram
á Víðisvetlli, Gerðum, Garði.
Fimleikasamband
Islands stofnað
3 Svíar .
yfir 2,13
Sænsku hástökkvararnir Dahl
gren og Johnson náðu afbragðs
árangri um síðustu helgi. Jan
Dahlberg fór yfir 2.14 í Ture-
berg, sem hann hefur nýflutzt
tiL Bo „Vista“ Johnsson fór yf-
ir 2.13 í Norrköping. Þessari
hæð, 2.13, náði þriðji Svíinn,
Kenneth Lundmark á laugardag
inn.
Svíar eiga nú þrjá hástökkv-
ara, sem hafa náð 2.13 og yfir,
en engin Evrópuþjóð getur stát-
að af því í ár. „Eg verð að ná
að stökkva yfir 2.20 til að hafa
möguleika í Mexíkó“ sagði
Dahlgren eftir keppnina í Ture-
berg.
Guðmundur setfi
100. Islandsmetið
GUÐMUNDUR Gíslason sund
kappi náði því einstæða af-
reki í gærkvöldi að setja 100.
íslandsmet sitt í einstaklings-
greinum. Sjálfur hefur hann
ekki tölu á öllum boðsunds-
sveitarmetum sem hann á þátt
í, en þau munu um eða yfir
30 talsins.
100. metið setti Guðmund-
ur í 100 m flugsundi, 1:02.5 en
það eldra átti Davíð Valgarðs-
son 1:02.7.
í 200 m baksundi kvenna
varð hörkukeppni alla leið.
Sigrún Siggeirsdóttir Á sigr-
aði á 2:44.1 og Hrafnhildur
Guðmundsdóttir ÍR 2:45.0.
Báðar voru þær undir eldra
metinu, 2:45.7 sem sett var
fyrir mánuði.
í 100 m bringusundi
kvenna sigraði Ellen Ingva-
dóttir Á 1:21.2 og var 1/10 úr
sek. frá íslandsmeti Hrafn-
hildar Guðmundsdóttur. Er
það met bezta met í kvenna-
greinum samkv. stigatöflu.
Hrafnhildur varð önnur á
1:22.6 — en fékk stutta hvíld
milli sunda.
í bringusundi karla 100 m
synti Leiknir Jónsson á 1:12.5
en met Harðar Finnssonar er
1:11.1.
í 4x100 m bringusundi karla
setti sveit Ármanns (Leiknir,
1:13.0, Reynir Guðmundsson
1:18.6, Árni Þ. 1:15.7 og Guðm.
Gíslasson 1:13.2) íslandsmet
5:00.5 en eldra met Ármanns
var 5:16.2.
f 4x50 m skriðsundi kvenna
setti Ármannssveitin (Hrafn-
hildur Kristjánsd., Ellen, Matt
hiidur Guðm. og Sigrún Sig-
geirsd.) íslandsmet 2:06.2, það
eldra var 2:10.5.
í sundknattleiknum varð
lið Ármanns íslandsmeistari
eftir sigur yfir KR í úrslita-
leik, 5:3.
17. MAl sl. var haldið stofn-
þing fimleikasambands íslands í
fundarsal ÍSÍ.
Forseti íþróttasambands ís-
lands Gísli Halldórsson, rakti
aðdraganda þessa stofnþings er
væri samþykkt síðasta íþrótta-
þings og árangur af starfi und-
irbúningsnefndar er fram-
kvæmdastjórn skipaði 27. októ-
ber 1966.
Með stofnun Fimleikasam-
bands fslands eru sérsambönd
ÍSÍ orðin 10 talsins.
12 héraðssambönd ÍSÍ, voru
stofnaðilar og auk undirbúnings-
nefndar og framkvæmdastjórnax
mættu 15 fulltrúar.
Þingforsetar voru kjörnir:
Jens Guðbjörnsson, Reykjavík,
Guðjón Ingimundarson, Sauðár-
króki.
Ritarar: Sveinn Björnsson og
Helgi Hólm.
Judónámskeið
*
Armanns
ANNAÐ vornámskeið judodeild-
air Ármanns he.fst núna í viku-
lokin að Ármúla 14.
Eins og áður hetfur verið
skýrt frá þá standa þessi nám-
skeið yfir í mánaðartíma Oig eru
tvisvar í vdku.
Verða þau fyrir karimenn og
kvenfóik á ölluim aldri í öllum
flokikum.
Byrjendum og skólafölki er
sérstaklega bent á að notfæra
sér þessi námiskeið, en innritun
hefst í dag í síma 83295.
Á stofnþinginu voru sam-
þykkt lög fyrir fimleikasam-
bandið og síðan kosin stjórn en
hana skipa:
Valdimar Örnólfsson, Reykja-
vík, formaður.
Meðstjórnendur: Jens Guð-
bjöirnsson, Reykjavík, Sigurður
R. Guðmundsson, Leirárskóla,
Þorgerður Gísladóttir, Hafnar-
firði, Grétar Franklínsson,
Reykjavík.
Síðan urðu miklar umræður
um fimleika, mót og fimleika-
mál almennh en í fundarlok
flutti forseti ÍSÍ, Gísli Halldórs-
*on hinu nýja sambandi árnað-
aróskir.
EÚP-mót
FÖSTUDAGINN 31. þ.m. fer
fram hið árlega EÓP-mót á KR-
á Melavellinum í Reykjavík.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
Karlar: 100 m. hl., 400 m. hl.,
1500 m. hl., 4x100 m. boðhL,
kúluvarp, kringlukast, sleggju-
kast, stangarstökk, hástökk, lang
stökk.
Drengir 17—18 ára: 100 m- hL
Sveinar 16 ára og yngri: 60
m. hl.
Stúlkur: 100 m. hl. og hástökk.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast í síðasta lagi fyrir fimmtu
dagskvöld 30. þ.m. á Melavöll-
inn.
Mótið hefst á sleggjukasti kl
19.30, en aðrar greinar kl. 20.00.