Morgunblaðið - 11.06.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐiÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1968
lækni skammt frá sér.
—Jæja fulltrúi. Þetta kalla
ég vel gert! Að sofna um miðjan
dag! sagði hann hlæjandi. —
Svona fer, þegar menn keppast
ofmikið við. Hversvegna farið
þér yður ekki svolítið hægar?
Hvað gerir það þó einhverjir
smámorðingjar stingi af? Hvers-
vegna mættu þeir það ekki, þeg-
ar þeir stóru ganga lausir?
— Ja, ég kem nú frá einum
hinna stóru. Kannizt þér nokk-
uð við nafnið Stambulov?
Læknirinn hristi höfuðið.
Hann var ofþreyttur til þess að
láta nokkurn áhuga í ljós. —
Nei. Aldrei heyrt hann nefndan.
— Jæja, en hann hefur nú
heyrt yður nefndan. Það var
þessvegna að ég fór til hans. Ein
hver hefur kært yður. Hefur
sagt, að dauði Milyukovs of-
ursta væri yður að kenna.
75
Halmy starði á hann stein-
hissa. — Hvað eigið þér við með
því? spurði hann, hásum rómi.
Nemetz sagði honum frá heim-
sókn sinni.
— Já, en þetta er bara hrein-
asta brjálæði! gaus upp úr lækn
inum. — Við gerðum allt, sem
hægt var til þess að bjarga hon-
um. Hann var mikið særður, svo
að það hefði verið hreinasta
kraftaverk hefði hann lifað það
af. Með því að skera hann upp,
gáfum við honum tíundaparts
von. En hefði ekkert verið gert,
var engin von. En nú gerast
ekki kraftaverk og þessvegna
gátum við ekki bjargað lífi hans.
En við reyndum það. Guð einn
má vita, að við reyndum það.
SNYRTIHÚSIÐ
Ný sending
frá Holmegaard—Kastrup.
Skálar, vasar, glös af öllum gerðum.
Ennfremur höfum við nú fengið hinn
vinsæla stálborðbúnað frá Þýzkalandi.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
B. silfurbúðin
Laugavegi 55, sími 11066.
auglýsir
SNYRTÍHÚSINU SF
Austurstræti 9, uppi
sem einnig veitir
leiðbeiningar ef ósk-
að er.
boð, engin kveðja. Aðeins nokkr
ir sporvagnamiðar og þessháttar
og svo spjaldið, sem gaf til
kynna að hann væri formaður í
byltingarráði lögreglumanna.
Nemetz stóð upp og gekk á-
leiðis til miðborgarinnar. Hann
kveinkaði sér við verkinu, sem
nú var fyrir höndum: að leita
uppi margar fjölskyldur og af-
henda jafnmörg umslög. Hann
vissi vel, að hann myndi gera
það tafarlaust. Jafnvel versti
sannleikur var betra en hræðsla
og óvissa. Dauðinn gerir þó
enda á slíku. Þegar hann kem-
ur sem punktur aftan við setn-
ingu, er hægt að byrja á þeirri
næstu.
Hann leit á úrið sitt. Klukk-
an var tíu. Þá var Alexa
Mehely þegar búin að hringja í
skrifstofuna hans, datt honum í
hug. Líklega var hún oft búin
að hringja og orðin áhyggju-
fyllri eftir hverja hringingu.
Það mundi taka þrja stundar-
fjórðunga að komast til lögreglu
stöðvarinnar, en ekki nema tutt-
ugu og fimm mínútur til sjúkra-
hússins. Hann ásetti sér að taka
á sig krók og koma þar við.
Allan morguninn hafði heyrzt
í fallbyssunum. Drunurnar í
þeim voru orðnar hversdagsleg-
ar — menn tóku álíka lítið eftir
þeim og undirspilinu í kvik-
myndahúsunum, menn heyra, án
þess að hlusta og taka ekki eft-
ir tónlistinni nema hún færist
svo í aukana, að hún beri mynd-
ina ofurliði.
Hann komst slysalaust í
sjúkrahúsið og fór beint inn í
rannsóknastofuna. Er hann
heyrði þar, að ungfrú Mehely
væri nýfarin, þá settist hann
niður til að bíða hennar.
Líklega hefur hann sofnað, að
minnsta kosti heyrði hann ekki,
þegar dyrnar voru opnaðar. Er
hann leit upp, sá hann Halmy
___rtö 22-24
»30280-32262
LITAVER
Þýzk teppi, verð frá kr. 255.
Ensk teppi, verð pr. ferm. 360,
breiddir 137 — 228 — 366.
Korkgólfflísar, verð pr. ferm.
214 og 324.
Amerískar gólfflísar, verð pr. ferm.
278. Mjög mikið úrval.
Postulíns-veggflísar enskar og
þýzkar, verð frá 190 kr. ferm.
Fjölbreytt litaúrval.
SÓLÓHÚSCÖGN
Seljum frá verkstæði okkar hin hin vinsælu SÓLÓHÚSGÖGN
sterk og stílhrein, í borðkrókinn, kaffistofuna og samkomuhúsið.
Mjög hagstætt verð
Hringbraut 121 sími 21832.
— Það lítur helzt út fyrir, að
einhver vilji yður feigan, sagði
Nemetz. Hérna í sjúkrahús-
inu. Eigið þér nokkra óvini
hérna?
Læknirinn yppti öxlum. —
Það gæti vel verið. Eg get varla
bugsað mér, að maður sleppi
nokkurntíma við að troða ein-
hverjum um tær á svona fjöl-
mennum stað eins og hér. Undir
venjulegum kringumstæðum
beita menn smávægilegum
hefndum, en eins og nú er á-
statt fær maður hnífsstungu í
bakið. Hann brýndi aftur raust
ina. — En að koma með svona
brjálaða lygi! Hefði fanturinn
ekki getað fundið uppá ein-
hverju betra?
— Þér segið ,,fantur“. Þér
virðist með öðrum orðum vita,
um hvern er að ræða?
— O, það er nú bara hug-
detta, svaraði Halmy.
— En sá hinn sami stendur
vitanlega ekki einn að þessu.
Hann hefur tengdaforeldra yð-
ar sín megin.
Halmy gnísti tönnum. — Svo
þau eru þá komin fram á sviðið
aftur? Ég var að vona, að það
til þess að kveikja sér í vind-
lingi. Alexa sagði mér, að þau
hefðu leitað til yðar í skrifstof-
unni yðar. Hversvegna einmitt
til yðar?
— Vitanlega afþví að ég hef
Halmymálið til meðferðar.
Læknirinn brosti í kampinn.
— Já, vitanlega hafið þér það.
Ég var næstum búinn að gleyma
því. Allt í einu snerist hann á
hæli og kom svo nærri Nemetz,
að þeir næstum snertust. — En
hér er nokkuð, sem þér verðið
að ráða fram úr fyrir mig. Ég
virðist fyrst og fremst vera und-
ir grun í því máli, sem þér kall-
ið Halmymálið, og samt farið
þér í grenið til rússneska drek-
ans og reynið að telja hann á
að éta mig ekki. Þér eruð sann
arlega ráðgáta herra fulltrúi!
— Kannski vil ég bara ekki
láta hengja yður fyrir það, sem
þér eigið enga sök á.
— Gott og vel, en setjum nú
svo, að þér sannfærðust um, að
ég hafi raunverulega drepið
Önnu. Vilduð þér þá láta
hengja mig?
— Nei. Nemetz hristi höfuðið.
yrðu þau aldrei. Hann þagnaði,
— Ég mundi vilja láta taka yð-
ur fastan, afþví að það er mitt
Blöðrur og flögg
fyrir 17. júní. Heildsölubirgðir:
Heildverzlun Eiríks Ketilssonar,
Vatnsstíg 3, sími 23472, 19155.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Þú mátt búast við gkyndilegum
Hagnýttu þér þær.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Leggstu fyrir Þér vinnst betur í einrúmi. Sökktu þér í hugsun
í kvöld.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Dagur óviFsunnar. Vertu þolinmóður. Haltu í vini þína.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Varaðu þig í umferðinni. Haltu þig utan við aHar deilur.
Ljónið 23 júlí — 22. ágúst.
Vinir þínir munu koma þér á óvart. Fjármálin kynnu að snúast.
Ráðgaztu við fólk, sem hefur þér meiri reynslu.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
Samband þitt út á við verður sterkara í diag. Vertu orðvar, ef
þú mátt. Haltu kyrru fyrir og skoðaðu hug þinn.
Vogin 23 sej'tember — 22. október.
Gerðu ekki meir en þú rnátt til í dag. Farðu snemma í háttinn.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember.
Taxtu tillit til náungans, heima og heiiman. Farðu verlaga í
fjármálum.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
.A vegi þínum verður nöldurgjarnt fólk. Segðu engum hug þinn.
Sökktu þér í starfið heima sem heiman.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Gott er nú að skipuloggja fram í tímann. Þú kannt að heyra
eitt og annað utan að. Talaðu alvarlega við þína nánustu.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Taktu ekki á sparifé þínu. Haltu þig frá hringiðunni. Gættu
þeirra sem yngri eru. Taktu öllu með ró.
Fiskarnir 19. febrúar. — 20. marz.
Notaðu hyggjuvitið til að miðla málum, jafnit heima fyrir sem
út á við